Dagur - 07.01.1995, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 7. janúar 1995
A. C. Green kom frá L.A. Lakers og
cr þekktur fyrir störf í þágu barna
^ og unglinga.
þriggja stiga skytta og gengur
undir nafninu „Thunder Dan“,
sem lauslega snarað gæti útlagst
sem „Þrumu-Dan.“ Þess má geta
aó Whataburger skyndibitastað-
irnir senda 50 dollara til góðgerð-
armála Phoenix Suns fyrir hverja
þriggja stiga körfu sem leikmenn
liðsins skora. Majerle er mjög eft-
irsóttur piparsveinn og það kemur
ósjaldan fyrir að hann sé stoppað-
ur af ungum dömum sem vilja
gefa honum nafnspjöld sín í von
um að hann verði einhvern tímann
einmana og hringi í þær. Hann
þiggur nafnspjöldin jafnan með
bros á vör, en hvort hann riýti sér
þessi gullnu tækifæri skal ósagt
látið.
Enginn tími fyrir konur
Fyrirliði Phoenix Suns er Kevin
Johnson (# 7), eóa KJ („Kay-
Jay“) eins og hann er oftast kall-
aður, er fæddur 4. mars 1966. KJ
er mjög snöggur leikmaður og
hafa andstæðingar Phoenix Suns
oft fengið að finna fyrir því. Hann
er piparsveinn eins og Majerle, og
var hann eitt sinn spurður í viótali
hvernig á því stæói. KJ svaraði að
hann hefði hreinlega ekki tíma til
að hitta kvenfólk því liðió væri
alltaf á ferðinni. Einnig sagði
hann í gríni að ef einhver vissi um
góöa, trúaða konu, mætti láta hann
vita. Einhver af vinurn hans tók
hann á oróinu og auglýsti í smá-
auglýsingum eftir konu handa KJ
undir nafni hans. Eins og búast má
vió hafa viðbrögð viö einni smá-
auglýsingu sjaldan verið jafn
mögnuó því þúsundir svarbréfa
frá æstu kvenfólki streymdu inn í
margar vikur eftir birtingu. Þurl'ti
KJ að koma fram í viðtali þar sem
hann þakkaði þennan mikla
áhuga, en hann væri ekki að leita
sér að konu og aó vinur hans hefði
vcrið að hrekkja hann.
Hreinn sveinn!
A. C. Green (# 45) cr fæddur 10.
apríl 1963, og kom til Phoenix
Suns frá Los Angeles Lakcrs. Það
þótti mikill fengur í honurn þegar
liðsskiptin fóru frarn, enda leik-
reyndur maöur og traustur. Green
er ógiftur, en er í sambúð. Hann er
frægur meóal annars fyrir störf sín
í þágu barna og unglinga, hefur
stofnað samtök sem stuðla að því
að hvetja þau til að halda sem
lengst áfrarn í skólum cg hefur
reynt að stuðla að því að þau lendi
ekki í götuklíkum. Einnig berst
Green fyrir því að unglingar
stundi ekki kynlíf l'yrr en eftir
giftingu. Hann segist sjálfur vera
hreinn sveinn og reynir því að
vera góð fyrirmynd fyrir aðra.
Ein af upprennandi stjörnum
Phoenix Suns er Elliot Perry (#
2), fæddur 28. mars 1969 og er
aóeins rúmlega 180 cm hár og 73
kg. Vegna þess hversu grannur
hann er, er hann einn fljótasti leik-
maður liðsins og hefur fengið orð
Jk. Liðsmenn Phoenix Suns undirbúa lcikinn. Eins og sjá má cr hcimavöil-
urinn mikið hús, tekur 19.000 manns í sæti og komast færri að en vilja.
Myndir: Kristín/Buldur
Þá er NBA körfuboltavertíðin hafin hér í Bandaríkjun-
um, og hafa margir beðið spenntir síðan í júní. Gífur-
legur áhugi er fyrir körfubolta hér vestra og þá sérstak-
lega hér í Phoenix, heimaborg Phoenix Suns. Liðið nýt-
ur mikilla vinsælda og þeir eru sjaldgæfir sjónvarps-
fréttatímarnir hér að ekki sé eitthvað minnst á leik-
menn eða liðið sjálft.
Heimavöllur Phoenix Suns er
sérlega glæsileg 2ja ára íþrótta-
höll, Amcrica West Arena, og tek-
ur hún 19.023 áhorfendur í sæti.
Þrátt fyrir það komast yfirleitt
færri að en vilja á leiki, og er auk
þess erfitt að fá miða eftir venju-
legurn leiðum, þ.e. að kaupa þá
hjá miðasölu Phoenix Suns. Hægt
er að fá mióa á svörtum markaði
fyrir utan höllina sama kvöld og
leikið er, en þá er gangveróið tvö-
falt, þrefalt cða jafnvel hærra, allt
el'tir því hvar sætið er staðsett og
hvaða lið er að spila við Phoenix.
Nokkur hundruð vel stæðir og/eða
heppnir einstaklingar eru með
svokallaða ársmiða, á alla leiki
tímabilsins, og hafa þar mcð fast
sæti í höllinni og geta haldið því
eins lengi og þeir vilja, svo lcngi
sem þeir endurnýja miðann árlega.
Vcrðið á ársmiðum er svimandi
hátt og biðin eftir þeim er löng:
Samkvæmt síðustu tölum tekur
það sjö ár að fá ársmióa frá því að
nafn rnanns cr sett á biólistann!
Dagur í heimsókn á heimaleik Phoenix Suns:
Baríst um aðgöngu-
miða á svörtum
markadi fyrir leild
„Sir“ Charles sá frægasti
Það hafa orðið víðtækar breyting-
ar á liðinu í ár, og þá til hins betra
að mati kunnugra. Frægasti maður
liðsins, „Sir“ Charles Barkley (#
34), er að sjálfsögðu enn á svæð-
inu, cn hann hefur lítið getað spil-
að nú í upphafi leiktímabilsins
vegna meiðsla.
Barkley hefur átt við bak-
vandamál að stríða auk tognunar í
nára og vildu læknar liðsins ekki
leyfa honum að spila fyrr en laug-
ardaginn 26. nóvember, þegar
keppt var við San Antonio Spurs.
Ef Barkley missir af mörgum
leikjum í vetur gæti það rcynst
liðinu dýrkeypt, en hann cr einn
mikilvægasti leikmaður liðsins og
því skal farió vel með hann.
Barkley er mjög vel liðinn alls-
staðar í Bandaríkjunum og er
mjög vinsæll hér í Phoenix.
Barkley er fæddur þann 20.
febrúar 1963 og var alinn upp af
ömmu sinni í mikilli fátækt í
Alabama. Hann virðir fjölskyldu
sína mikið og eyðir háum fjárhæó-
unt í að búa þeim betra líf og
heimili. Barkley er giftur hvítri
konu að nafni Maureen Barkley
og saman eiga þau indæla litla
dóttur, Christiana, sem er 5 ára að
aldri. Hvar sem Barkley fer fær
hann sjaldan frió fyrir æstum
áhorfendum og hann hefur lítið
einkalíf, en það virðist ekki trufia
hann mikið, því hann er ávallt
ljúfur sem lamb við alla sem þurfa
nauðsynlega aó ná tali af honum
og fá eiginhandaráritun.
Þrumu-Dan
Annar leikmaður sem einnig er
mjög vinsæll er Dan Majerle (#
9), fæddur 9. september 1965.
Hann hefur snúið áhangendum
Phoenix Suns heldur betur á sveif
með sér, því hann var ekki sérlega
vinsæll þegar hann var valinn í
liðið frá Central Michigan háskól-
anum 1988. I útdrættinum fékk
hann dræmar viötökur þegar Pho-
cnix Suns tilkynnti valið, var pú-
aður niður, en karl hefur heldur
betur sannað sig. Hann er frábær
A »Sir“ Charles Barkley, ábúö-
armikill á bckknum. Tclja má víst
að hann sé þekktasta nafn Phoenix
Suns liðsins.