Dagur - 19.01.1995, Page 12
qIÍq
Verður þessi gœðastimpill á
nýju innréttingunum og
hurðunum þínum?
Trcsmiójcm fllfo • Óscyri lo • 603 nkurevrí
Sími 96 12977 • Fox 96 12978
Þingeyjarsýslur:
Rafmagns-
truflanir í gær
Rafmagnstruflanir urðu á
orkuveitusvæði Laxárvirkj-
unar í gærmorgun vegna ísingar
og samsláttar. Allar línur voru
komnar í lag aftur skömmu eftir
hádegið.
Þaó bilaöi lína í Aðaldal og vió
það varð Kinnin einnig rafmagns-
laus að hluta til. Fljótlega tókst að
finna bilunina og gera við. Línan
til Kópaskers bilaði einnig og var
rafmagnslaust á svæðinu í um
hálfan annan tíma. Línan til Akur-
eyrar datt út um ti'ma, hún tengir
svæðið við Byggðalínuna og hefði
Laxárvirkjun ekki annað orkuþörf
svæóisins hefði bilunin getað
komið sér illa.
A mánudag voru rennslistrufl-
anir í Laxá en þær hafa lagast að
megninu til og þó ekki sé full raf-
magnsframleiðsla gat virkjunin
annað orkuþörf á Noróausturlandi
í gær, að sögn Bjarna Júlíussonar,
stöðvarstjóra Laxárvirkjunar. IM
Skagafjörður:
Sameiningar-
vilji kannaður
með vorinu
Bæjarráð Sauðárkróks hefur
falið bæjarstjóra að kanna
hvort vilji er hjá öðrum sveitar-
félögum í Skagafirði til við-
ræðna um sameiningarmál. Var
þetta gert í framhaldi af bréfi
sem lagt var fram á bæjarráðs-
fundi, en það var svar félags-
málaráðuneytisins til sveitar-
stjóra Hofshrepps varðandi
hugsanlega sameiningu sveitar-
félaga í Skagafirði.
Snorri Björn Sigurðsson, bæj-
arstjóri á Sauðárkróki, bjóst við
því að undir vorið ntuni hann og
sveitarstjóri Hofshrepps kanna
hvort menn yfir höfuð hafi áhuga
á að ræða þessi mál. „Ef menn
hafa þaó ekki, veróur bara að hafa
það. Þetta er hlutur sem við ráðum
ekki við. En ég á varla von á að
þetta verði fyrr en með vorinu, við
tökum þessu rólega í byrjun.“
- Hafa farið fram viðræður í
þessa vcru?
„Nei, satt best að segja hefur
þetta legið alveg niðri síðan í
fyrra, menn hafa ekki tekið þessa
umræðu upp að nýju. Eg á samt
fastlega von á aó það sé vilji ein-
hversstaðar, spurningin er hvaö
hann er víða. Það er kannski
spurningin sem okkur langar að fá
svar við. Vió þurfum að halda
þessu vakandi því þetta er mál
sem ég held að sé mjög þarft að
koma áfram,“ sagði Snorri Björn.
HA
Q VEÐRIÐ
Fárviðri gekk yfir vestanvert
Norðurland í gær en veður-
hæóin veróur minni í dag þó
áfram verði stíf norðaustan-
átt. Hvasst veróur fram eftir
degi og snjókoma. Spáin
fyrir Noróausturland er mun
betri því reiknað er með
hægari vindi og slyddu í
dag. Hitastig verður svipað
og í gær.
Breytingum á faereyska togaranum Akrabergi er að Ijúka, en skipið er í eigu
Framherja hf., scm Samhcrji hf. á hiut í.
Byrjað er að setja saman nýjan dráttarbát fyrir Akureyrarhöfn og er gert
ráð fyrir að verkinu Ijúki um mánaðamótin mars-apríl. Myndir: Robýn
Verkefnastaöa Slippstöövarinnar-Odda hf. allgóð:
Breytingar á Svalbak á lokastigi
- skipið á rækjuveiðar í næstu viku
Verkefnastaða Slippstöðvar-
innar-Odda hf. er allgóð um
þessar mundir. Verið er að ljúka
framkvæmdum og breytingum
við færeyska togarann Akraberg
í eigu Framherja hf. sem Sam-
herji hf. á hlut í en það verk hef-
ur að mestu verið í umsjá Sam-
herja hf. Slippstöðin-Oddi hf.
seldi þeim nokkra menn um
tíma í einstaka verkefni og skip-
ið hefur verið málað að utan af
starfsmönnum stöðvarinnar.
Byrjað er að setja saman nýjan
dráttarbát fyrir Akureyrarhöfn
sem keyptur er í Hollandi og er
gert ráð fyrir að því verki ljúki um
mánaðamótin mars/apríl. Ymis
önnur viógeröarverkni hafa verió
unnin að undanförnu, þó engin
verulega stór, og einnig hefur tals-
vert af skipurn vcrið uppi í dráttar-
brautinni. Mörg önnur verkefni
eru til skoðunar og í samningum
en of snemmt að fjölyrða um þau.
Stærsta verkefni síðustu vikur
hefur verió við togara Utgerðarfé-
lags Akureyringa hf., Svalbak
EA-2, og er það verkefni á loka-
stigi. M.a. hefur verið sett niður í
skipið vinnslulína fyrir rækju,
breytingar á frystiklefa og sett
hefur verið niður þriðja togspilið
en fyrirhugaó er að fara á tveggja
trolla veiöar með rækjutroll. Fyr-
irhuguó er frekari tækjasmíói á
vinnsludekki fyrir heilfrystilínu
og verður sú vinnslulína sett niður
seinna í vetur, skipió annað hvort
stoppað eða til þess notaöar tvær
eóa þrjár inniverur skipsins.
GG
Byggingaframkvæmdir í kaupstöðum á Norðurlandi eystra í fyrra:
Byrjað á 12 íbúðum utan Akureyrar
Asíðasta ári var hafin bygging
á tólf íbúðum í kaupstöðum
á Norðurlandi eystra, ef Akur-
eyri er ekki talin með. Atvinnu-
ástand í byggingariðnaði er upp
og ofan, en vetrarmánuðirnir
eru mönnum í þessari grein
jafnan þyngstir í skauti.
Að sögn Þorsteins Björnssonar,
bæjartæknifræöings á Olafsfirði,
var á síðasta ári úthlutað lóðum
undir fjögur einbýlishús og var
bygging hafin á einu þeirra.
Einnig var úthlutaó lóð undir sex
íbúða blokk og þar af verða þrjár
íbúðir í félagslega kerfinu. Búist
er vió að framkvæmdir hefjist í
maí. Af öðrum verkefnum má
nefna aö félagsheimili aldraðra cr
komið vel á veg og þá horfa ión-
aðarmenn til hugmynda um
stækkun Olafsfjarðarkirkju, sem
stefnt er að ráóast í síðar á árinu.
Sveinbjöm Steingrímsson,
byggingafulltrúi á Dalvík, sagði að
þar hefði verið hafin bygging á
fjórum einbýlishúsum á síðasta ári,
en alls urðu átta íbúðir fokheldar á
árinu. Stærsta verkefni ársins var
sundlaugin, sem kláraðist á haust-
dögum. Einnig var talsvert unnið
við Dalbæ, dvalarheimili aldraðra,
og sér nú senn fyrir endann á þeim
áfanga. Atvinnuástand byggingar-
manna á Dalvík er þokkalegt eins
og er, en framhaldið ræðst mikið af
því hvað verður í gangi af við-
haldsverkefnum.
A Húsavík voru talsverðar
framkvæmdir á síðasta ári. Byrjað
var á þremur einbýlishúsum og
var eitt þeirra kláraó. Einnig var
Ólafsfjörður:
Glit hf. hefur fram-
leiðslu í marsmánuði
- Guðbjartur Ellert Jónsson ráðinn framkvæmdastjóri
Guðbjartur Ellert Jónsson
viðskiptafræðingur hefur
verið ráðitin framkvæmdastjóri
keramikfyrirtækisins Glits hf. í
Ólafsfirði og tekur hann til
starfa í dag. Fyrirtækið var
keypt frá Garðabæ til Ólafs-
fjarðar á sl. ári. Guðbjartur
kemur frá Akureyri, en hann
hefur að undanförnu starfað hjá
Gúmmívinnslunni hf.
Áður starfaði hann hjá Jötni hf.
í Reykjavík, og síðan urn tíma hjá
K. Jónssyni & Co hf. á Akureyri á
síðustu starfsmánuðum þess fyrir-
tækis.
Guðbjartur útskrifaðist sem
viðskiptafræðingur frá Háskólan-
um í Suður-Karólínu í Bandaríkj-
unum árið 1990, en hann er fædd-
ur árió 1963. Hann er giftur Önnu
Láru Finnsdóttur og eiga þau tvö
börn, tveggja og sjö ára.
Glit hf. veróur til húsa í syóra
frystihúsinu, þ.e. þar sem áður var
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar hf. fyr-
ir sameininguna viö Hraðfrystihús
Magnúsar Gamalíelssonar hf. Gert
er ráð fyrir að húsnæðið undir
starfsemina verði tilbúið um mán-
aðamótin febrúar/mars og upp-
setning á tækjum langt komin
þannig að eitthvað verður farið að
vinnu við steypu í marsmánuói en
eiginleg vinnsla ekki fyrr en í
scinni hluta marsmánaðar. Ekki er
farið að huga að ráðningu starfs-
fólks en það verður með fyrstu
verkum nýs framkvæmdastjóra en
gert ráð fyrir að þarna starfi 10
rnanns, og þar af verói 7 til 8 úr
Ólafsfirði en sækja þarf þekkingu
að framleiðslunni að í 2 til 3 störf.
GG
byrjað á fjögurra íbúða rahúsi. ís-
lenskir sjávarréttir hófu byggingu
220 m2 húsnæðis fyrir sína starf-
semi. Lokið var á árinu við sam-
býli á vegum Svæðisskrifstofu um
málefni fatlaðra og við sextán
íbúóa einingu við Hvamm, dvalar-
heimili aldraðra. Þá var byrjað á
síðasta áfanga við grunnskólann,
sem miðar að því að gera hann
einsetinn. I ár er stefnt á að gera
þennan áfanga fokheldan og klára
að utan og eru þær framkvæmdir
það sem helst er bitastætt fram-
undan hjá byggingarmönnum á
Húsavík, að sögn Ólafs Júlíusson-
ar, byggingafulltrúa. Viðhaldsmál
hjá bænum bjóst hann við aó yrðu
í minni kantinum á þessu ári sam-
kvæmt fjárhagsáætlun. HA
r~-----------1
I fýjtuulif
> C-634 XT
I þvottavél
• 18 þvottakerfi
| 5 kg þvottur
Hitabreytirofi
600 snúninga
| Rústfrír pottur
I Frábærl verð 39.900,-
I
stgr.
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 2356^|