Dagur - 02.03.1995, Síða 3
FRETTIR
Fimmtudagur 2. mars 1995 - DAGUR - 3
Tilboð opnuð í fyrsta áfanga
heiisugæslustöðvarinnar á Akureyri:
SS-Byggír bauð lægst
Framleiðsluaukning verði 10-15% á ári
Efnt hefur verið til samstarfs
nokkurra aðila um það hvernig
best mætti lækka framleiðslu-
kostnað og auka framleiðslu og
hagræðingu í fiskeldi. Á fundi
með landbúnaðarráðherra í gær
var kynnt sk. Markáætlun fyrir
strandeldi þar sem tilgreind eru
verkefni á sviði fiskeldis sem
menn vonast til að muni skila
mestum árangri fyrir atvinnu-
greinina. Undirritaður var
samningur þar sem raforkuverin
lofa afslætti á raforku til eldis-
ins. Stefnt er að 10-15% fram-
leiðsluaukningu i fiskeldi á ári
fram til aldamóta.
„I markáætluninni setjum við
okkur markmið sem við ætlum
okkur að ná á svo og svo mörgum
árum. Það má segja að þetta sé
sameiginlegur leiðarvísir fyrir fyr-
irtækin og ekki síður þær stofnanir
sem kostaðar eru af opinberu
rekstrarfé. Við höfum gert kröfu
um að ákveðin ytri skilyrði verði
löguð, a.m.k. tímabundið, svo
hægt verði að ná þessum árangri.
Einn þessara þátta er lækkun á
raforkuverði og það sem vió náum
fram með því getur skipt sköpum,
jafnvel þótt þetta sé tímabundin
lækkun meðan verið er að skapa
fiskeldisfyrirtækjunum aukið
svigrúm til aukinnar framleiðni,“
sagði Vigfús Jóhannsson, einn
þeirra sem stóðu að markáætlun-
inni.
Þrjú atriði eru ijefnd sem eldis-
markmió: Framleiðsluaukning um
10-15% á ári til aldamóta, afföll
verði minnkuð úr 10% árið 1992 í
3-5% af ársframleiðslu árið 2000
og loks aó lyfjanotkun minnki úr
0,14 kg/tonn, slátrað 1992, í um
0,05 kg/tonn árió 2000. SV
„Þessi framkvæmd hefur geng-
ió ákaflega vel,“ sagði Ingunn um
lagningu hitaveitunnar. I fyrra-
sumar var hafist handa við lagn-
ingu leiðslunnar og tengingu
Núpsbæjanna, Vélaverkstæðis
Guðmundar og Silfurstjömunnar.
Einnig voru lagðar lagnir heim að
bæjum og lagnakerfið í þorpinu
og byggðir tveir veituskúrar af
fjórum, en eftir er aó leggja stofn-
æóina frá Silfurstjömunni aó
Kópaskeri. Stefnt er að því að
tengja hitaveituna í húsin fyrir 1.
ágúst. IM
Samstarf að þróunarvinnu í fiskeldi:
f gær voru opnuð tilboð í fyrsta
áfanga endurbóta við Heilsu-
gæslustöðina á Akureyri. Um er
að ræða innréttingu og frágang
á efstu hæð Amarohússins, þar
sem Heilsugæslustöðin er til
húsa. Sjö tilboð bárust, öll nema
eitt lægri en kostnaðaráætlun
hönnuða. Lægsta tilboðið á SS-
Byggir á Akureyri, rúmar 19,6
milljónir sem er 89,5% af kostn-
aðaráætlun. Hún hljóðaði upp á
tæpar 22 milljónir.
Hyma hf. á Akureyri átti næst
lægsta tilboð sem var 90,6% af
kostnaðaráætlun, Tréverk á Dal-
vík bauð 90,8, Stefán Jónsson á
Akureyri 92,4, Trésmiðjan Ösp á
Akureyri 93,1, SJS verktakar á
Akureyri 94,7 og Hákon Guó-
mundsson á Akureyri 101,8. Búist
er við að innan skamms tíma verði
ákveðió hvaða tilboði verði tekið,
en til þess hefur verkkaupi 21
dags frest.
Ríkið keypti sem kunnugt er
fjórar hæóir í Amarohúsinu undir
Heilsugæslustöðina. Hún er nú til
húsa á 3., 4. og 5. hæð hússins,
ýmist á hluta hæðar eða allri hæð-
inni. Nú bætist 6. hæðin við og í
framtíðinni mun Heilsugæslustöð-
in hafa fjórar efsju hæðir hússins
til fullra afnota. I þessum áfanga
Nemendatónleikar
Tónmenntaskólans
Dagur tónlistarskólanna var haldinn hátíðlegur víðs veg-
ar um land sl. laugardag. Slíkur dagur er haldinn ár
hvert og er tilgangurinn að vekja athygli á því mikla
starfi sem fram fer í tónlistarskólum landsins. í dag eru
yftir 70 tónlistarskólar í iandinu með á tólfta þúsund
nemendur á öllum aldri. Tónmenntaskólinn á Akurcyri
stóð fyrir nemendatónleikum í Lóni á Iaugardag og voru
þeir vel sóttir eins og sést á myndinni. Á innfelldu mynd-
inni er Inga Berglind Birgisdóttir, einn nemenda skólans,
að spila á fiðlu SÍna fyrir gesti. Myndir: Robyn
verður efsta hæðin tekin fyrir en
síóan er reiknað með að taka eina
hæð á ári og halda niður eftir hús-
inu. Umfangsmestu breytingamar
eru á efstu hæðinni, sem nú var
vcrið að bjóóa út. Þar verður
móttaka þeirra sem til Heilsu-
gæslustöðvarinnar leita. Gengið
verður inn í næsta hús fyrir sunn-
an (Krónuna), þaðan tekin lyfta
upp á 6. hæð og síðan gengið yfir
í hús Heilsugæslustöðvarinnar á
tengibrú. HA
Öxarfjöröur:
Fundað um
hitaveitumál
- stefnt aö tengingu
fyrir 1. ágúst
„Hér ríkti samhugur um að
treysta hitaveitunni fyrir þessum
málum fólksins sem allra mest.
Það er ekki hitaveitunnar að sjá
um þessi mál, en Guðmundur
Örn hitaveitustjóri hefur unnið
ákaflega vel og við viljum gjarn-
an njóta tilsagnar hans,“ sagði
Ingunn St. Svavarsdóttir, sveit-
arstjóri í Öxarfjarðarhreppi, en
þar var haldinn almennur fund-
ur sl. þriðjudag þar sem rætt var
um lagnakerfi og ofnakaup í
húsin.
Akureyri:
Fræslufundur um
snjóflóð annað kvöld
I gær kom hingað til lands, Ger-
ald Kampel, forstjóri Ortovox,
sem er einn stærsti framleiðandi
heims á búnaði til notkunar í
snjóflóðum. Kampel er hingað
kominn í boði Skátabúðarinnar
og hann mun halda fræðslu-
fundi um snjóflóð og tæki tengd
þeim á meðan á dvöl hans
stendur og svara fyrirspurnum.
Fyrsti fundurinn var í Reykja-
vík í gærkvöld, í kvöld fundar
Kampel í Sigurðarbúð á ísafirði
og á morgun föstudag á Akureyri,
í húsnæði Hjálparsveitar skáta kl.
20.00. Fundimir eru opnir öllum
sem áhugasamir eru um þessi mál.
Fyrirtækið Ortovox framleiðir
m.a. snjóflóðaýla og snjóflóða-
stengur fyrir björgunarsveitir,
feróamenn og aðra sem þurfa að
ferðast um svæði þar sem er snjó-
flóðahætta. Kampel er einnig
hingað kominn til að kynna sér
aðstæður og viðbrögð viö snjó-
flóðahættu á Islandi í ljósi þess að
Skátabúðin er einn stærsti kaup-
andi fyrirtækisins á snjóflóðabún-
aði. Hann mun einnig hitta full-
trúa björgunarsamtaka, Almanna-
vama og bæjarfélaga.
Hjálparsveit skáta á Akureyri
stóö fyrir átaki innan sveitarinnar í
fyrravetur og eru allir félagar
hennar með snjóflóðaýlu á ferðuni
sínum á varhugaverðum svæðum
að vetrarlagi. Á þann hátt er auð-
veldara aö finna þá sem lenda í
t.d. snjóflóði. KK
Forstjóri eins stærsta framlciðanda heims í búnaði til notkunar í snjóflóðum
er í heimsókn á íslandi þessa dagana og hann hcldur m.a. fræðslufund í hús-
næði Hjálparsveitar skáta á Akureyri annað kvöld.
Innflutningur
Sölumennska
Óskum eftir að ráða starfsmann til starfa á
skrifstofu.
Æskilegt er aó viðkomandi hafi reynslu í markaðs- og
sölumálum, tungumála- og tölvukunnátta nauðsynleg.
Skriflegum umsóknum meó upplýsingum um fyrri störf
skal skila inn á afgreióslu Dags merkt „Skrifstofustarf.“
Farið veróur meö umsóknir sem trúnaðarmál.
I
I
f
Auglýsendur!
Skilafrestur auglýsinga í helgarblaðið okkar er
til kl. 14.00 á fimmtudögum.
- já 14.00 á fimmtudögum
auglýsingadeild, sími 96-24222.
Opiðfrá kl. 8.00-17.00.
1
f
I