Dagur - 02.03.1995, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 2. mars 1995
ÍÞRÓTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
Handknattleikur - úrslitakeppni 1. deildar:
Glæsilegur sigur KA-manna
Körfuknattleikur - úrvalsdeild:
ÞóNA í kvöld
- tryggðu sér oddaloik gegn Stjörnunni með fimm marka sigri
„Það er kominn tími til að kom-
ast á beinu brautina og við ætl-
um okkur sigur í næsta leik.
Menn voru taugastrektir eftir
gengi liðsins í síðasta leik en við
rákum af okkur slyðruorðið,“
sagði Valdimar Grímsson, KA-
maður, eftir að KA sigraði
Stjörnuna í fjörugum leik í gær-
kvöldi. Lokastaðan var 26:21 og
liðin mætast í hreinum úrslita-
lcik í Garðabæ annað kvöld.
KA byrjaði leikinn af gífurleg-
um krafti og fyrstu þrjú mörkin
komu frá KA mönnum en dómar-
amir byrjuóu snemma að reka
grimmt útaf í báóum liðum og vió
það jafnaóist leikurinn. Valur
Amarson fór á kostum framan af
leik og skoraði fjögur af fyrstu
fimm mörkum KA-manna.
Heimamenn héldu eins til tveggja
marka forustu fram að leikhléi en
Stjaman jafnaði með tveimur
mörkum, 10:10, þrátt fyrir aó vera
tveimur leikmönnum færri síðustu
sekúndumar.
Þaó var í upphafi síðari hálf-
leiks sem KA gerði út um leikinn.
Valdimar og Atli skiptu fyrstu
fjórum mörkunum á milli sín og
eftir það hélt KA ömggu forskoti.
Sigmar varði sem berserkur og
lióið lék fullkomna vöm. Mest
komst forskot heimamanna í sjö
mörk, 24:17, en síðustu mínútum-
ar var sem liðið slakaði aðeins á
klónni og Stjaman slapp með
fimm marka tap, 26:21.
Það voru ungu strákamir, Valur
og Atli, sem voru í lykilhlutverki
hjá KA ásamt Valdimar, sem fór
vel með færin. Sigmar varði vel á
köflun. KA-vöminni tókst að loka
á beittasta vopn gestanna, Sigurð
Bjamason og aðrir þekktir leik-
menn áttu einnig erfitt uppdráttar.
Mörk KA: Valdimar 10/5, Atli Þór 5,
Valur 5, Leó Öm 2, Patrekur 1, Erlingur
I, Alfreð 1. Varin skot: Sigmar Þröstur
14, Bjöm 1.
Mörk Stjörnunnar: Konráó 6/3,
Filippov 4, Jón Þ. 4, Einar 2, Skúli 2,
Magnús 2, Vióar 1. Varin skot: Gunnar
II, Ingvar 4.
Ahorfendur: 839 og virkuðu sem auka-
maóur hjá KA.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og Gunn-
ar Viðarsson. Dæmdu vel mikinn hasar-
leik en ráku of oft útaf.
Hópferð suður
KA-menn eru stórhuga fyrir odda-
leikinn annað kvöld og ætla að
efna til sætaferðar til Reykjavíkur.
Farið verður með rútu frá KA-
heimili á föstudag kl. 11.00 og
farið kostar 2,500 krónur. Nánari
upplýsingar fást í KA- heimilinu.
- IR í heimsókn á Króknum
Valur Arnarson átti stórleik mcð KA í gærkvöldi og skoraði hvert glæsi-
markið af Öðru. Mynd: Robyn.
í kvöld verður leikin síðasta um-
ferðin í úrvalsdeildinni í körfú-
knattleik og í næstu viku tekur
við úrslitakeppni. Þórsarar taka
á móti Skagamönnum í íþrótta-
höllinni á Akureyri í kvöld en
Tindastóll, sem enn á smá
möguleika á sæti í úrslitakeppn-
inni, mætir ÍR á Sauðárkróki.
„Þetta er búið að vera hálf erf-
iður vetur hjá IA og það er ekki
spuming að við erum með betra
lið. Við höfum aó meiru aó keppa
þannig að mínir menn verða vel
stemmdir í leiknum," sagði
Hrannar Hólm, þjálfari Þórs, í
samtali við Dag. Þórsarar eiga
góða möguleika á 2. sæti riðilsins
með sigri en þrátt fyrir að flestir
hafi talið það tryggja liðinu
heimaleikjarétt í úrslitakeppninni
hefur annað komið á daginn. Eftir
miklar vangaveltur kom í ljós að
það lið í hverri viðureign sem hef-
ur fleiri stig eftir deildarkeppnina
fær heimaleikinn og Þórsarar eiga
því enga möguleika á tveimur
heimaleikjum, hvort sem andstæð-
ingamir verða Keflvíkingar,
Grindvíkingar eða IR-ingar. „Við
erum búnir að vera að keppa að
því að ná heimaleikjunum meiri
hlutann af vetrinum og síðan er
bara eins og því hafi verið kippt
frá okkur. Þetta var bara klúður
hjá KKÍ að hafa ekki alla hluti á
hreinu,“ sagði Hrannar Hólm.
Tindastóll fær ÍR í heimsókn í
síðustu umferóinni í kvöld og
verður að sigra í leiknum til aö
eiga möguleika á sæti í úrslita-
keppninni. Ef sigur hefst er það
undir úrslitum úr leik Hauka og
Snæfells komið hvort Tindastóll
kemst áfram en Haukamir teljast
sigurstranglegri í þeirri viðureign.
Skíðaganga:
Jaðarsgangan og
ókeypis kennsla
Næstkomandi sunnudag efna
Skíðaráð Akureyrar og Golf-
klúbbur Akureyrar til göngu-
skíðadags á golfvellinum á Ak-
ureyri. Þar fer fram svokölluð
Jaðarsganga, sem er
trimmganga, en þeir sem vilja
ganga á tíma og keppa fá einnig
möguleika á því.
Brautin verður opin frá kl. 11
til 16. Keppni í flokkum 12 ára og
yngri hefst kl. 12 og í flokkum 13
ára og eldri kl. 13:15. Þrenn verð-
laun verða í hverjum flokki.
Okeypis kennsla verður á golf-
vellinum kl. 11.00 og 14:30 og má
reikna með að kennslan taki um
klst. Eitthvað verður af skíðum til
útlána.
Jaðarsgangan er sú þriðja í röð-
inni af fímm almenningsgöngum á
Akureyri í vetur og eru þeir mintir
á sem tóku þátt í fyrri göngum aö
hafa þátttökukortin með sér til
þess að fá stimpil í það. Þeir sem
taka þátt í fjórum af fimm
göngum fá sérstaka viðurkenningu
í vor. Golfskálinn verður opinn og
þar býóst fólki að kaupa sér hress-
ingu. Vonandi veróa veðurguðim-
ir hliðhollir Norðlendingum og að
sem flestir sjái sér fært að koma á
golfvöllinn, sem er alveg frábært
gönguskíðaland fyrir almenning.
Skíði - alpagreinar:
Jöfn keppni á
Um síðustu helgi var haldið
Dalvíkurmót í svigi og stórsvigi
fyrir krakka á aldrinum 9 til 14
ára. Keppendur voru alls 46 og
keppni var hörð í öllum aldurs-
flokkum. Hér á eftir eru úrslitin
í öllum flokkum:
Stúlkur 9-10 ára í svigi:
1. Vema Siguróardóttir 1.02.54
2. Magdalena Valdimarsd. 1.06.91
3. Thelma Óskarsdóttir 1.08.14
Stúlkur 11-12 ára í svigi:
1. Inga Bóasdóttir 1.25.48
2. Andrea Víóisdóttir 1.29.15
3. Elsa H. Einarsdóttir 1.29.19
Stúlkur 13-14 ára í svigi:
1. Ásrún Jónsdóttir 1.24.08
Feðgar sam-
■ ■ <•> ■■■
herjar a velli
Sá óvenjulegi atburður átti
sér stað þegar b-lið Þórs og
Dalvík mættust í 2. deildnni í
körfuknattleik í fyrradag að
feðgar spiluðu saman í liði
Þórs.
Nick og John Cariglia náðu
vel saman í liði Þórs og í sam-
einingu skoruðu þeir 35 stig en
Þór sigraði í leiknum, 89:81.
John hefur verið í leikmanna-
hópi Þórs í úrvalsdeildinni í
vetur en lítið fengið að spreyta
sig og fékk því tækifæri meó
b-liðinu. Samkvæmt heimild-
um Dags er þetta í fyrsta sinn
sem feðgar leika saman í liði í
deildarkeppninni á íslandi.
2. Berglind Óóinsdóttir 1.26.45
3. Elsa Benjamínsdóttir 1.33.48
Piltar 9-10 ára í svigi:
1. Ómar Sævarsson 1.02.32
2. Hjalti Steinþórsson 1.03.92
3. Steinar Sigurpálsson 1.05.27
Piltar 11-12 ára í svigi:
1. Fjölnir Finnbogason 1.16.63
2. Skafti Brynjólfsson 1.20.28
3. Kristján K. Bragason 1.26.63
Piltar 13-14 ára í svigi:
1. Björgvin Björgvinsson 1.09.33
2. Þorsteinn Marinósson 1.19.46
Stúlkur 9-10 ára í stórsvigi:
1. Vema Sigurðardóttir 1.30.73
2. Jóhanna Ragnarsdóttir 1.33.03
3. Magdalena Valdimarsdóttir 1.34.34
Skíði - alpagreinar:
Tvö bikar-
mótum
helgina
Skíðafólk hefur næg verkefni
þessa dagana og um helgina
verða tvö bikarmót á Ólafsfirði
og Dalvík.
Á laugardaginn verður bikar-
mót í svigi, minningarmót um
Bjöm Brynjar Gíslason í
karlaflokki og bikarmót í svigi í
kvennaflokki í Ólafsfirði. Á
sunnudag verður síðan bikarmót í
stórsvigi á Dalvík, sem Skíðafélag
Dalvíkur og Skíðadeild Leifturs
halda í sameiningu.
Handknattieikur:
Þórsarar
lágu fyrir
Fýlki
Þórsarar eiga í erfiðleikum í
úrslitakeppni 2. deildar í
handknattleik og í gærkvöldi
tapaði liðið fyrir Fylki í
íþróttahúsinu Austurbergi,
20:18, eftir að staðan var
jöfn í hálfleik, 9:9.
Leikurinn var í jámum
framan af en um miðjan hálf-
leikinn misstu Þórsarar aðeins
takinn og áttu á brattann að
sækja. Þeir náðu að jafna fyrir
hlé og staðan í hálfleik var 9:9.
Þórsurum misstu heima-
menn framúr sér í síðari hálf-
leik og Fylkismenn vom
komnir með fjögurra marka
forustu. Þórsarar eyddu mikl-
um kröftum í aö vinna þann
mun upp og í lokin fengu þeir
gullin tækifæri til að jafna
leikinn en þá var enginn ícraft-
ur eftir og Fylkismenn sigmðu
með tveimur mörkum, 20:18.
Síðustu mínútumar misstu
Fylkismenn besta mann sinn,
markvörðinn Sebastian Alex-
anderson, útaf í 2 mínútur auk
þess sem tveir útileikmenn
fóru sömu leið. Þrátt fyrir liðs-
muninn náðu Þórsarar ekki að
jafna. Þeir náðu muninum nið-
ur í tvö mörk og fengu þrjú
önnur færi sem ekki nýttust.
Páll Gíslason var sterkastur
Þórsara í leiknum og skoraði 6
mörk en aðrir leikmenn áttu
nokkuð jafnan leik.
Dalvík
Stúlkur 11-12 ára í stórsvigi:
1. Harpa R. Heimisdóttir 1.15.92
2. Inga Bóasdóttir 1.31.24
3. Guðrún S. Víðisdóttir 1.32.05
Stúlkur 13-14 ára í stórsvigi:
1. Ásrún Jónsdóttir 1.29.90
2. Berglind Óóinsdóttir 1.34.09
3. Elsa Benjamínsdóttir 1.47.00
Piltar 9-10 ára í stórsvigi:
1. Steinar Sigurpálsson 1.26.51
2. Hjalti Steinþórsson 1.29.19
3. Ómar Sævarsson 1.30.49
Piltar 11-12 ára í stórsvigi:
1. Fjölnir Finnbogason 1.26.60
2. Skafti Brynjólfsson 1.30.82
3. Ámi F. Ámason 1.34.17
Piltar 13-14 ára í stórsvigi:
1. Björgvin Björgvinsson 1.17.98
2. Þorsteinn Marinósson 1.20.40
3. Skafti Þorsteinsson 1.21.55
Munið
ódýru
morgun-
tímana
frá kl. 9-14
Aðeins kr. 270,-
Sólstofan Hamri
Sími 12080