Dagur - 02.03.1995, Side 12
Smíðum allargerðir innréttinga
og innihurða
Trésmiðjctn fllfo • Óseyri 1 o • 603 flkureyri
Sími 96 12977 • Fox 96 12978
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 2356^j
Krossanesverksmiöjan rekin með 14 milljóna króna hagnaði eftir afskriftir en fyrir fjármagnsgjöld:
Orlofshúsabyggð í Kjarnaskógi að verða að veruleika:
Akureyri, fímmtudagur 2. mars 1995
Framleiðsla sl. árs var 5.774 tonn af mjöli
og 3.731 tonn af lýsi að verðmæti 328 milljónir
■ ■■■ *
Aðalfundur Krossanesverk-
smiðjunnar hf. var haldinn
sl. þriðjudag. Rekstrartekjur
verksmiðjunnar námu 414,4
milljónum króna á síðasta ári en
rekstrargjöld 401,3 milljónum
króna og þegar tekið hefur verið
tillit til afskrifta sem námu 60,4
milljónum króna þá skilar verk-
smiðjan hagnaði upp á 14,1
milljónir króna. Þegar íjár-
magnsliðir eru teknir inn í dæm-
ið þá verður eilítið tap af
rekstrinum, eða 9,2 milljónir
króna á móti 8,6 milljón króna
hagnaði fyrir árið 1993.
Hólmsteinn Hólmsteinsson,
stjómarformaður Krossanes hf.,
segir að ástæður lítils háttar tap-
rekstrar megi rekja til þess að ekki
hafi komið loðna til verksmiðj-
unnar tvo síðustu mánuói ársins.
Hefói loðnuvertíðin þróast svipað
á sl. ári og á árinu 1993 hefði ver-
ið um talsverðan rekstrarhagnað
að ræóa.
langtímaskuldir voru á bilinu 500
til 600 milljónir króna.
Eigið fé fyrirtækisins er 96,9
milljónir, 23%, sem telja verður
þolanlegt í þessari atvinnugrein.
Með þessu ætti rekstrargrundvöll-
ur Krossaness hf. að vera tryggður
svo framarlega sem loðna heldur
áfram að veiðast á Islandsmiðum.
A sl. ári tók Krossanes hf. á
móti 42.828 tonnum af hráefni
sem samanstendur af um 8 þúsund
tonnum af beinum, aðallega frá
UA, um 800 tonnum af rækjuskel
og loðnu, en hlutur loðnu var
33.486 tonn og þar af 1.300 tonn
af síld. Á árinu 1993 tók verk-
smiðjan á móti 38.032 tonnum af
loðnu en alls 49.362 tonnum af
hráefni.
Á sl. ári var tekið á móti fyrsta
loðnufarminum 5. febrúar er Guð-
mundur Olafur OF kom til lönd-
unar en fyrsta löndun á haustver-
tíð var 2. júlí er Sigurður VE kom
til löndunar.
Verksmiðjan framleiddi 5.774
tonn af mjöli og 3.731 tonn af lýsi
á árinu 1994 og heildarfram-
leiðsluverðmæti verksmiðjunnar
var 328 milljónir króna. Alls voru
gengnar 222 vaktir á árinu sem
voru ígildi 16 ársverka og heildar-
launagreiðslur námu kr.
34.057.717.
Lokið er við að setja upp tæki
til að skila loðnuhrogn frá loðn-
unni en aðeins lítill hluti þeirrar
fjárfestingar kemur inn á reikn-
inga ársins 1994, eða um 8 millj-
ónir af tæplega 30 milljóna króna
heildarfjárfestingu. GG
Skuldir verksmiðjunnar hafa
stórlækkað að undanfömu og þar
munar mestu að lán hjá Akureyr-
arbæ voru færð af fyrirtækinu og
nema langtímaskuldir fyrirtækis-
ins í dag 258 þúsundum króna
sem er mikil breyting frá því að
Úrbótamenn og hönnuðir á blaðamannafundinum í gær. Frá vinstri: Jónas Karlesson frá Verkfræðiskrifstofu Sig-
urðar Thoroddsen, Úrbótamcnnirnir Hólmsteinn T. Hólmsteinsson, Sveinn Heiðar Jónsson og Þórarinn Kristjáns-
son og Páll Tómasson, arkitekt. Mynd: Robyn.
Innanhúss*
10 lítrar
kr. 4.640.-
KEA hættir
ígulkeravinnslu
og dreifingu
fisks til verslana
Uppsagnir Qögurra starfs-
manna fískverkunarhúss
KEA við smábátahöfnina við
Sandgerðisbót tóku gildi 28.
febrúar sl. en áður höfðu 13
starfsmenn sem unnu við
ígulkeravinnstu látið af störf-
um í áföngum þegar ákveðið
var að lcggja niður ígulkera-
vinnslu KEA.
Fiskverkunarhús KEA hætti
frá og með gærdeginum aó
þjónusta verslanir með fisk en
starfseminni verður stýrt frá
fiskverkun KEA á Hjalteyri.
Áfram veróur móttaka á fiski
og smábátaeigendum veitt
sama þjónusta og verið hefur
til þcssa. Engin ákvöróun hefur
verið tckin um frckari nýtingu
á fiskverkunarhúsi KEA en
ljóst er að húsið er allt of stórt
undir móttöku fisks eingöngu.
GG
Fýrsti áfangi boðinn út í dag
Idag verða afhent útboðsgögn
vegna smíði fyrstu húsanna í
Kjarnabyggð, orlofshúsahverfí í
Kjamaskógi. Þar hafa Úrbóta-
menn á Akureyri Iátið
skipuleggja kjarna 35 orlofs-
húsa, sem skiptist í megin drátt-
um í tvö svæði og í fyrstu at-
rennu verður smíði 10-12 húsa
boðin út. Verða tilboðin opnuð
14. mars. Seinna í þessum mán-
uði verður síðan boðin út gatna-
gerð, allar lagnir og undirstöður
húsanna.
Ohætt er að segja aó umrætt
svæði bjóði upp á möguleika sem
gerir það einstakt í sinni röð. Und-
anfarin ár hefur verið komið upp
afar góðri aðstöðu til útivistar í
Kjarnaskógi og náttúrufegurð er
mikil. Þá eru aðeins 3,5 km inn í
miðbæ Akureyrar, í alla þá þjón-
ustu sem hægt er að fá. Þessa tvo
þætti, þ.e. að vera út í sveit en
VEÐRIÐ
Hafi menn haldið að veturinn
væri nú liðinn, þá er það hinn
mesti misskilningur. í dag er
spáð norðaustan kalda um
norðanvert landið með snjó-
komu. Á morgun og laugardag
verður boðið upp á hæga norð-
læga átt með éljum eða snjó-
komu, frost verður á bilinu 5-15
stig á morgun og 1-10 stig á
laugardag, og á sunnudag er
spáð norðaustlægri átt og 2-12
stiga frosti.
samt aðeins í seilingarfjarlægð frá
miðbæjarþjónustunni, er óðvíða
hægt að sameina með sama hætti
og í þessu tilfelli. Síðan er gert ráð
fyrir samvinnu við Kjamalund,
heilsu- og endurhæfingarstofnun
Náttúrulækningafélagsins, þannig
að gestir orlofshúsabyggðarinnar
geti sótt þangað ýmsa þjónustu. Á
því sviði eru möguleikar nær ótak-
markaðir.
Úrbótamenn sjálfir verða ekki
eigendur húsanna heldur verða
þau seld eins og hver önnur or-
lofshús og má reikna með að
starfsmannafélög og stéttarfélög
verði stærsti kaupendahópurinn.
Það fer síðan eftir áhuga kaupenda
hversu langan tíma tekur að
byggja svæðið upp í endanlega
mynd, en miðað við þann áhuga
sem þegar hefur komið fram telja
Úrbótarmenn að ekki verði vanda-
mál að selja öll húsin. Er t.d. ekki
ólíklegt að einhver félög sem eiga
íbúðir í fjölbýlishúsum á Akureyri
muni frekar vilja flytja sig í
Kjamaskóg.
Kostnaóur á hvert hús er áætl-
aður tæplega 7 milljónir og heild-
ampphæð alls verksins því yfir
200 milljónir. Það er því óhætt að
segja að þama er á ferðinni fram-
tak sem getur skilað vemlegum
árangri í því atvinnuleysi sem er á
svæðinu, ekki síst meðal iónaðar-
manna. Á blaðamannafundi sem
haldinn var í gær þar sem verkefn-
ið var kynnt, lýsti Guðmundur
Ómar Guðmundsson, formaður
Félags byggingamanna Eyjafirði
og forseti Alþýðusambands Norð-
urlands, yfir mikilli ánægju með
þetta framtak. Það gæti aukió at-
vinnu bæði í bráð og lengd, enda
verði þama til þorp sem hýst geti
allt að 150 íbúa sem allir þurfi
sína þjónustu. Nánar verður
fjallaó um orlofshúsabyggðina
Kjamabyggð í næsta helgarblaði
Dags. HA
Sr. Pétur messar í
Laufási á sunnudag
hans fyrsta
Séra Pétur Þórarinsson, mess-
ar í Laufási nk. sunnudag kl.
14.00 og er það hans fyrsta
messa frá því að hann fór í að-
gerð í haust. Eins og flestum er
kunnugt, er búið að taka báða
fætur af Pétri, vinstri fóturinn
var tekinn ofan við hné snemma
á árinu 1994 en um miðjan des-
ember í fyrra var vinstri fóturinn
tekinn neðan við hné.
Pétur hefur dvalið á Fjóróungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri frá því í
messa frá því hann fór í aðgerð í haust
desember en hcfur þó fengið
heimfararleyfi um helgar að und-
anfömu. Pétur sagði í samtali við
Dag að hann hefði það alveg
ágætt og var hress að vanda. Hann
hefur mjög góðar vonir um að
halda vinstra hnénu, sem augljós-
lega skiptir miklu máli. Hann
dvelur nú á bæklunardeild FSA og
stundar sjúkraþjálfun af krafti en
með því á hann að geta stytt dvöl-
ina á Kristnesi, þar sem hann
verður í endurhæfingu.
Þótt Pétur verói með sína fyrstu
messu á sunnudag frá því í haust,
hefur hann verið með kirkjuskóla
á Svalbarðsströnd og Grenivík,
ásamt konu sinni Ingibjörgu, hann
hefur verið að undirbúa ferming-
arböm sín og hefur skírt nokkur
böm, bæði heima í Laufási og á
FSA. Og væntanleg fermingar-
böm hans ætla einmitt að aðstoða
við messuna á sunnudag. KK