Dagur - 06.04.1995, Blaðsíða 1

Dagur - 06.04.1995, Blaðsíða 1
78. árg. Akureyri, fimmtudagur 6. april 1995 68. tolublað % Venjulegir og demantsskornir B trúlofunarhringar ^ Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR VL/)) SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Höfuðstöðvar SH á Akureyri verða í Linduhúsinu - Sölumiðstöðin leigir húsið til 10 ára með forkaupsréttarákvæðum Igær var skifað undir samn- inga milli Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Metró á Akureyri um leigu SH á Lindu- húsinu við Hvannavelli 14 á Ak- ureyri, sem Metró keypti fyrir rúmum mánuði. Samingurinn er til 10 ára með forkaupsréttar- ákvæðum. Metró mun afhenda húsið tilbúið undir þá starfsemi SH sem þar verður, eigi síðar en 15. júlí nk. Þörf SH fyrir hús- næði á Akureyri er ekki leyst með þessu og er enn verið að svipast um eftir geymsluhús- næði með mikilli lofthæð fyrir umbúðalager. Ljóst er að ráðast þari' í veru- legar breytingar á Linduhúsinu, m.a. lyfta þaki þess til að full loft- hæó verði á þriðju og efstu hæð- inni. A fyrstu og annarri hæö verður umbúðaframleiðsla og lag- er cn á cl'stu hæðinni skrifstofur SH. Hver hæð í Linduhúsinu cr um 1000 fermetrar og samtals er gólfflöturinn því um 3000 fer- metrar. Gylfi Þór Magnússon, fram- kvæmdastjóri markaðsmála hjá SH, mun sem kunnugt er ílytjast búferlum til Akureyrar og veita starfseminni þar forstöðu. Hann scgir cnn leitað að geymsluhús- næði meó mikilli lofthæð fyrir stærstan hluta þess umbúðalagers sem verður á Akureyri, en þaðan verður umbúðum dreift til l'rysti- húsa á Norður- og Austurlandi. Vitað er aó meðal húsa sem skoð- uð haí'a verið í því sambandi er íþróttaskemman á Oddcyri. „Við munurn taka við húsnæð- inu 15. júlí og þá förum við að koma okkur fyrir. Þær áætlanir að starfsemi SH á Akureyri veröi komin í gang fyrir haustið eiga því að standast fyllilega miðað við þetta,“ sagði Gylfi Þór Magnús- son. HA Nú er ljóst að þetta fornfræga hús, þar sem til fjölda ára hcfur verið framleitt sælgæti, fær nýtt hlutverk. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fær það afhent 15. júlí nk. Mynd: Robyn Framkvæmdastjóri Árfells um horfur í byggingariðnaðinum á Dalvík: Næsti vetur verður byggingar- iðnaðinum enn erfiðari Horfur í byggingariðnaði á Dalvík eru fremur dökkar um þessar mundir og ekki fyrir- séð að nein stærri verkefni séu framundan á komandi sumri, hvorki á Dalvík né í nágranna- sveitarfélögunum, ncma ef vera skyldi stækkun kirkjunnar í Ól- afsfirði og bygging nýs safnaðar- heimilis við hana. Dalvíkurbær hefur staðið í tveimur stórum byggingarframkvæmdum að undanförnu, þ.e. byggingu sund- laugar og stækkun Dalbæjar, heimilis aldraðra, og því var við- búið að ekki yrði ráðist í stærri byggingaframkvæmdir á næst- unni eftir þær stóru fram- kvæmdir. Nokkrir iðnaðarmenn á Dalvík eru á atvinnuleysisskrá vegna þessa samdráttar og ekki líkur á að úr þeim þrengingum Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fyrir Alþingiskosningarnar: Sprenging síðustu daga Samkvæmt venju er dágóður hópur fólks sem greiðir at- kvæði utan kjörstaðar fyrir AI- þingiskosningarnar nk. laugar- dag, en það getur fólk gert kom- ist það ekki á kjörstað á laugar- daginn. Atkvæði er hægt að greiða hjá hreppstjórum og sýslumönum og um hádegi í gær höfðu á annað þúsund manns greitt atkvæði utan kjörstaðar hjá sýslumönnum á Norðurlandi eystra og vestra. Þar til viðbótar eru síðan aðsend atkvæði og þeir sem greiða atkvæði hjá hrepp- stjórum. A Sýsluskrifstoi'unni á Blöndu- ósi höfóu 68 manns greitt atkvæði um hádegi í gær, hjá Sýslumann- inum á Sauóárkróki 118 og aö auki höí'óu 29 greitt atkvæði á Sjúkrahúsinu. A Siglufirði höí'ðu 113 greitt atkvæði utan kjörstaðar, 81 á Ólafsftrði, yfir 500 á Akur- eyri og 142 á Húsavík. Flestir voru sammála um aó utankjör- staðaatkvæðagreiðsla hefði farið rólega af stað en tvo síóustu daga hefur verið mikið að gera. Töluðu sumir um sprcnginu í gær og fyrradag. Þessi mál viróast vera í svipuð- um farvegi og fyrir undanfamar kosningar. Fólk er þó minna á ferðinni á þessum árstíma en þegar kemur fram á vorið og því spáðu sumir því að utankjörstaóaatkvæði verði færri nú en þegar kosið er í maí, svo dæmi sé tekið. HA Styrkir til þróunar atvinnulífs á landsbygginni: Um 300 umsóknir bárust Stjórn Byggðastofnunar tók þá ákvörðun að verja veru- legum hluta af ráðstöfunarfé sínu á þessu ári til styrktar þeim sem stuðla vilja að þróun at- vinnulífs á landsbyggðinni. Lögð verður megináhersla á nýsköpun í atvinnulífmu, styrkveitingar til vöruþróunar og markaðsmála og til að auka hæfni starfs- manna, eins og segir í auglýs- ingu frá Byggðastofnun, þar sem auglýst er eftir styrkumsóknum til slíkra verkefna. Tvær úthlut- anir verða á þessu ári og rann umsóknarfrestur vegna fyrri út- hlutunarinnar út um síðustu mánaðamót. Um 300 umsóknir bárust og nemur samanlögð upphæð þeirra hundruðum milljóna króna. Að sögn Benedikts Guómunds- sonar hjá Byggóastofnun á Akur- eyri verður nú i'arið í að flokka umsóknir niður og fara yfir þær. Gert cr ráð fyrir fundi hjá Byggðastofnun undir lok þessa mánaóar og þá bjóst Bcnedikt við að fyrstu umsóknir yróu afgreidd- ar. I auglýsingunni frá Byggða- stofnun kemur fram að umsækj- endur geti verið einstaklingar, fyr- irtæki, atvinnuþróunarfélög eða sveitarfélög. Lögð er áhersla á vandaðan undirbúning vcrkefna er varðar nrarkmið, umfang, vinnu- aðferðir og fjármögnun, en um- sækjendur þurfa sjálfir að taka þátt í kostnaði. Umsóknarfrestur vegna síóari úthlutunarinnar renn- ur út 1. september. HA rætist nema byggingarfyrirtæki fái verkefni utan byggðarlagsins, t.d. á Akureyri. Daníel Hilmarsson, fram- kvæmdastjóri byggingarfélagsins Arfells hf., segir ckki fyrirsjáan- legar neinar stórar framkvæmdir á vegunr Dalvíkurbæjar, en skóla- bygging er næsta stóra fram- kvæmd á hans vegum, en vcgna þröngrar fjárhagsstöðu eru ekki ekki líkur til þess að þær fram- kvæmdir hcfjist fyrr en á árinu 1996. Til þess aö hafa nægjanleg verkefni verði að leita þcirra utan bæjarmarkanna, en í dag er verið að innrétta eina íbúð fyrir félags- lega kerfió og verið er að byggja tvær íbúðir í Skógarhólum og er önnur þcirra seld og þokkalegar líkur á sölu hinnar íbúðarinnar. Danícl segir að vcturinn 1995 til 1996 verði byggingariðnaðinum á Dalvík cnn crfióaðri en þessi vctur með tilliti til verkefna, og enginn hafi sótt um byggingarlóð hjá bænum þó eitthvað hafi verið um fyrirspurnir. Bjöm Friðþjófsson, fram- kvæmdastjóri Tréverks hf., segir mjög rólegt yfir byggingariðnað- inum á Dalvík um þessar mundir, en sitt lítið af hverju í smærri verkum. Starfsmenn eru aóeins 9 talsins, sem er aðeins helmingur þess sem verið hefur undanfarin sumur og ckki líkur eins og er aó þeirn fjölgi. Tréverk hf. hóf sl. haust byggingu á einbýlishúsi í Skógarhólum sem veróur selt fok- hclt eða tilbúið undir tréverk, allt eftir óskum kaupanda, og ekki séu fyrirsjáanleg verkcfni á vegurn ríkis eða sveitarfélaga á þcssu ári. Tréverk hf. hefur tekið þátt í útboðsmarkaðnum á Akureyri, nú síðast í félagslegar íbúóir við Snægil I, sem Hyrna hf. hlaut, en ekki enn fengið verkcfni. Tilboð Hyrnu hf. var 90,5% af kostnaðar- áætlun en tilboð Tréverks 92,8% af kostnaöaráætlun. Dalvíkurbær sótti urn lcyfi fyrir þrjár félagsleg- ar íbúöir á þessu ári, en óljóst er um framgang þcss máls, m.a. þarf fyrst aó auglýsa eftir notuóu íbúð- arhúsnæði skv. reglugcrð þar að lútandi. Björn segir menn horfa með nokkurri bjartsýni til flutnings hluta af starfsemi Sölumiðstöóvar hraðl'rystihúsanna hf. til Akureyr- ar og mcnn utan Akureyrar ali vissa von í brjósti um að það hafi einnig áhrif í nágrannasveitarfé- lögunum. Byggingarfélagið Daltré hf. á Daivík er að ljúka við viðbygg- ingu við Dalbæ, heimili aldraða, og á að skila því á komandi vori. Síðan hei'ur fyrirtækið ekki nein stærri vcrkefni á prjónunum á næstu misserum frekar en önnur byggingarf'yrirtæki á Dalvík. GG Ársþing ÍBA: Vernharð kjör- inn íþróttamað- ur Akureyrar Vernharð Þorleifsson, júdó- kappi úr KA, var kjörinn íþróttamaður Akureyrar 1994 en íþróttabandalag Akureyrar stendur að kjörinu. Úrslitin voru kunngjörð á fimmtugasta árs- þingi IBA í gærkvöld. Vemharð cr vel aó þessum titli kominn, þar sem hann varð tvö- faldur Islands- og Norðurlanda- meistari og endaói í 9. sæti á Evr- ópumótinu á síðasta ári. Annar í kjörinu var kylfingurinn Sigurpáll Gcir Sveinsson, sem sigraöi á Landsmóti GSÍ sl. sumar. Þriðji var handknattleikskappinn Alfreð Gíslason, i'jórði Konráð Óskars- son körfuknattleiksmaður og fimmti Hciðar Ingi Agústsson, fremsti íshokkíleikmaður landsins. Nánar veróur fjallað um ársþingið í blaðinu á morgun. SH.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.