Dagur - 06.04.1995, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 6. apríl 1995
JUÞingiskoshlngarnar 8. apríl nk.
Tryggjum framtíð Norðurlands með
stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn
Undanfariö kjörtímabil hefur
Sjálfstæöisflokkurinn veitt forystu
samstjórn með Alþýóuflokknum,
hér hefur verið vió völd viðreisn-
arstjórn. Velheppnuðum verkum
þessarar stjórnar sér víða stað í
þjóðlífinu. Nú er skammt til Al-
þingiskosninga og er því ekki úr
vegi aó rifja upp hvaó áunnist hef-
ur í tíó núverandi ríkisstjórnar og
íhuga þaö hvað biói okkar ef úrslit
kosninganna verða ckki Sjálfstæð-
isflokknum í hag.
✓
Arangurinn af starfi
viðreisnarstjórnar
Ef tíunda á árangur af starfl ríkis-
stjórnarinnar bcr hæst á hvern veg
ríkisstjórninni hefur tekist aö
ryója braut nýrri hugsun í þjóðlíf-
inu. Horllð cr frá hugarfari sér-
tækra aðgcróa og þess í staó eru
vandamálin lcyst meó altækum
aðgerðum. I því felst aö þegnun-
um og þar mcö atvinnulílinu eru
sköpuó skilyrói til að starfa með
hagsæld að leiðarljósi. Stöðug-
leika hefur verið komió á í efna-
hagslífinu, vcxtir lækkaðir með
markaðstengdum aðgerðum á hár-
réttum tíma, horfið hefur verið af
braut skuldasöfnunar og þátttaka
Islands í viöskiptaheildum tryggó
með aðild að EES og GATT
samningunum. Enda cr umtals-
verður efnahagsbati orðin stað-
reynd. Þessum árangri megurn við
ekki glutra niður.
Þrátt fyrir það að ríkisstjórnin
hafi allt kjörtímabilió þurft aó
ieggja megin áhersluna á vióreisn
efnahagslífsins hefur á mörgum
öórum svióum þjóðlífsins einnig
oróió ábati. Þó hel'ur varnarbarátt-
an ein orðið að nægja á sumum
svióum, ýmist vegna erfiórar
stöðu eóa þá að verk fyrri ríkis-
stjómar bundu hendur þeirrar nú-
verandi. Eg vil endurtaka að ár-
angrinum í endurreisn efnahags-
lífsins megum vió ckki kasta á
glæ og við meguni heldur ckki
fórna tækifærinu sem gefst á
næsta kjörtímabili til að vinna öt-
ullega að cndurreisn ýmissa ann-
arra þátta þjóðlífsins nú þcgar bct-
ur árar og svigrúm eykst. Þetta
verður aðeins tryggt mcð því að
Sjálfstæðisflokkurinn komi sterk-
ur út úr Alþingiskosningunum
sem í hönd fara.
Skipi Sjálfstæðisflokkurinn
ekki lengur öndvegið,
hvað þá?
Verói Sjálfstæðisflokknum núna
ýtt tii hliðar í íslenskum stjórn-
málum er vargöld fyrir dyrum. Þá
bíður okkar ekki annaó en tjöl-
flokka vinstri stjóm með tilheyr-
andi glundroða, ráðleysi og sund:
urlyndi. Sporin þau hræða: I
Rcykjavík situr nú slík samsuða
vió völd. Lítil og smá eru afrek R-
listans frá því að hann tók við
völdum á síöastliðnu vori. Helst
kæmi þá upp í hugann bitlinga-
ráóningar pólitískra samherja og
þrotlaus lcit hins nýja meirihluta
eftir einhverjum hneykslismálum
varðandi stjórnsýslu sjálfstæðis-
manna í borginni. Þessi leit helur
tckiö á sig margar cn æði lágkúru-
legar myndir en engin hefur cftir-
tekjan orðið. Þá má heldur ekki
gleyma skattahækkunum scm R-
listinn hefur staðið fyrir og cinar
sér ollu þær hvað mestu róti sem
íslenskt efnahagslíf varð fyrir á
síðasta ári.
Sé á skattahækkanir minnst
kemur fijótt upp í hugann Jóhanna
Sigurðardóttir með sína fylgillska,
flest fólk úr liinurn ýmsu „félags-
hyggjufiokkum" sem ekki hefur
náð árangri þar sem þaö var áður.
Allur málfiutningur Jóhönnu og
einnig Alþýðubandalagsins og
„óháðra" snýst um skattahækkanir
í einni eða annarri mynd, skatta-
hækkanir sem munu beint cða
óbeint í gegnum hækkun vaxta
kyrkja atvinnulífið í landinu og
keyra það í gjaldþrot ásamt mcð
mörgum Ijölskyldum. Framsókn-
arllokkurinn eóa formaður hans
og sumir aðrir frambjóðcndur
llokksins hafa myndast við aó
mótmæla þessum málfiutningi
Þjóðvaka og Alþýðubandalagsins
en llciri framsóknarmenn cru á
sama máli. Enda alltal'jafn erfitt
aö henda rciður á málflutning
Framsóknar.
Vinstri llokkarnir og Framsókn
hafa í kosningabaráttunni cinnig
rcynt aó draga athyglina að
skuldavanda heimilanna í landinu.
Sá vandi er ærinn en enginn
stjórnmálamaður í landinu ber
mciri ábyrgð á honum cn Jóhanna
Sigurðardóttir mcð aðgeröum sín-
um sem félagsmálaráðherra cn í
því ráöuneyti sat hún í sjö ár sam-
fellt.
Hæfír frambjóðendur með
víðtæka reynslu
Á Norðurlandi eru í framboði fyrir
Sjálfstæðisfiokkinn hæfir l'ram-
bjóöcndur með fjölhæfa mcnntun
og mikla reynslu bæói úr stjórn-
málum og af öðrum sviðum þjóð-
lífsins. Norðurland eystra er annaó
stærsta landsbyggðarkjördæmið,
Halldór Blöndal landbúnaðar- og
samgöngumálaráðherra hefur leitt
©Ferðafélag
Akureyrar
auglýsir eftir starfsmanni
á skrifstofu félagsins í sumar frá 1. júní til 1. sept-
ember. Starfshlutfall er 75%.
Tungumálakunnátta nauósynleg og þekking á landinu.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.
Umsóknir sendist til Ferðafélags Akureyrar, pósthólf
48, 602 Akureyri.
Upplýsingar hjá Ragnhildi, sími 96-25798 og Ingvari,
sími 96-27866 eftir kl. 19 daglega.
Stjórn FFA.
Kristinn Hugason.
lista sjálfstæðismanna í kjördæm-
inu um alllangt skeið. Hiklaust má
segja aó aldrei hefur hann sannað
sig betur en á síðasta kjörtímabili
er honum var falinn ráðherradóm-
ur. I samgöngumálunum hefur
mikið áunnist, t.d. stóó það ekki
fyrir Halldóri Blöndal að stoppa af
vonlausan rekstur Skipaútgerðar
ríkisins og einkavæða fyrirtækið.
Þá ráku vinstri flokkarnir og
Framsókn upp mikið ramakvein
eins og við mátti búast en hver sér
nú eftir Skipaútgerð ríkisins? I
landbúnaöarmálunum var sú
kostulega staöa uppi er núverandi
ríkisstjórn tók við völdum aó síó-
asta ríkisstjórn hafði haft það fyrir
eitt af síðustu verkum sínum að
gera búvörusamning við bændur
sem gilti allt þetta kjörtímabil og
langt fram á þaö næsta. Þrátt fyrir
þetta hefur Halldóri Blöndal auðn-
ast aó hnika ýmsu til rétts vegar.
Því þó að ýmislegt hafi áunnist
viö uppbyggingu landbúnaóarins í
gegnum áratugina hefur fleira far-
ið miður enda má segja aó meg-
instefnan í landbúnaðarmálunum
hafi verið röng allt frá setningu af-
Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur hlutverki
að gegna í öllum
þáttum þjóðlífsins.
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
leiðir flokkinn,
þeirri leiðsögn er
ljúft að lúta.
urðasölulaganna upp úr 1930.
Með þeim lögum var í raun komið
í veg fyrir uppbyggingu frjáls at-
vinnulífs í greininni. Landbúnað-
urinn hefur enda verið leikvöllur
Framsóknar, einkum hinar hefó-
bundnu búgreinar. Eigi að vera
hægt að bjarga landbúnaðinum frá
hruni þarf sjálfstæðisstefnan að fá
notið sín í landbúnaðarmálunum á
næsta kjörtímabili.
I öðru sæti á lista Sjálfstæóis-
manna á Norðurlandi eystra er
maóur sem er brýnt að nái inn á
Alþingi en það er Tómas Ingi 01-
rich. Tómas Ingi er gagnmenntað-
ur skólamaður og hefur enda beitt
sér mjög fyrir uppbyggingu Há-
skólans á Akureyri. Sú stofnun
hcfur þegar auögaó atvinnu- og
menningarlífió umtalsvert á Akur-
eyri og raunar á Norðurlandi öllu.
Stærri átaka er þó þörf við upp-
byggingu skólans. Háskólann á
Akureyri ætti að gera að háskóla
atvinnulífsins á Islandi m.a. með
frekari uppbyggingu sjávarútvegs-
og rekstrarfræðibrauta skólans og
fiutningi búvísindanáms á há-
skólastigi norður. Það myndi stór-
bæta búvísindanámið að það yrói
tengt betur en verið hefur öðru há-
skólanámi í landinu.
Háskóla íslands þarf síðan að
byggja upp áfrarn sem forystuafl
kennslu og rannsókna í hug- og
raunvísindum í landinu. Jafnframt
þarf aó bæta kjör kennara á öllum
skólastigum, það er þjóðhagsleg
nauðsyn. Til allra þessara hluta er
enginn frambjóóandi á Norður-
landi eystra líklegri en Tómas Ingi
Olrich auk þess sem hann er
ómissandi fulltrúi Akureyrar á Al-
þingi.
A Norðurlandi vestra er efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins
séra Hjálmar Jónsson prófastur á
Sauóárkróki. Séra Hjálmar er virt-
ur og vel látinn maður sem mun
sóma sér með stökum ágætum á
meðal þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins á Alþingi. í öðru sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæminu er maður nokkuð aníiarr-
ar gerðar en séra Hjálmar en þaó
er Vilhjálmur Egilsson hagfræð-
ingur, alþingismaður og fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs. Það
er styrkur fyrir dreifbýliskjördæmi
að hafa Vilhjálm á meðal þing-
manna sinna því fáir bera betra
skynbragð á það en hann í hverju
raunhæf byggðastefna felst. Því
hann veit að fólkið á landsbyggð-
inni vill og þarf að starfa með
hagsæld í huga engu síður en íbú-
ar þéttbýlisins. Fólk úti á landi á
ekki að þurfa að búa í byggða-
gildrum sem gera eignir þess
verðlausar og reistar eru sam-
kvæmt misheppnaðri byggöa-
stefnu Framsóknar.
Sjálfstæðisfiokkurinn hefur
hlutverki að gcgna í öllum þáttum
þjóólífsins. Davíð Oddsson for-
sætisráðherra leiðir flokkinn,
þeirri leiðsögn er Ijúft að lúta.
Góóur meirihluti þjóóarinnar vill
aó Davíð Oddsson verði áfram
forsætisráðherra. Tryggjum það
um leið og kjör fjögurra þing-
manna Sjálfstæðisflokksins af
Noróurlandi í Alþingiskosningun-
um á laugardaginn kemur.
Kjósum Sjálfstæóisflokkinn.
Kristinn Hugason.
Höfundur er sérfræóingur í búvísindum, Norð-
lendingur og sjúlfstæöismaóur.
Samkórinn Björk ásamt söngstjóra sínum, Sólveigu Einarsdóttur.
Samkórinn Björk:
Tónleikaferð til Reykjavíkur
Samkorinn Björk ur Austur-
Húnavatnssýslu, Miklos Dalmay
og Bjarkarkvartettinn halda
tónleika í Bústaðakirkju í
Reykjavík föstudagskvöldið 7.
aprfl kl. 21.30.
Söngstjóri samkórsins er frú
Sólveig Einarsdóttir, undirleik
annast Miklos Dalmay á píanó og
Þórir Jóhannsson á harmoníku.
Undirleik fyrir Bjarkarkvartettinn
annast Guómundur Hagalín Guð-
mundsson á harmoníku.
Söngskrá kórsins er fjölbreytt,
bæði íslcnsk og erlend lög, þjóð-
lög og létt gamanlög.
Miklos Dalmay er ungverskur
píanósnillingur sem kennir við
tónlistaskóla í Austur- Húnavatns-
sýslu. Hann mun á tónleikunum
fara fimum höndum um nótna-
borðið í einleikshlutverki ásamt
undirleik með kórnum.
Bjarkarkvartettinn er karla-
kvartett, söngskráin er fyrst og
fremst létt sönglög og dægurlög
sem falla vel að undirleik með
harmoníku.