Dagur - 06.04.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 06.04.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 6. apríl 1995 FRÉTTIR Húsavík: Sameiginlegur framboðsfundur Síðasti sameiginlegi framboðsfundurinn í Norðurlandi eystra var haldinn á Húsavík sl. laugardag. Fund- arstjórn annaðist Karl E. Pálsson, fréttamaður á Rúvak, en tæplega 100 manns sóttu fundinn. Frambjóóendur af íramboðslistunum íluttu ávörp, en síðan varpaði stjórnandi spurningum til forsvarsmanna listanna við pallboró. Og aó lokum Iluttu frambjóóendur lokaoró. IM Norrænir karlmenn - áþekk reynsla: Tuttugu og fimm íslenskir karlmenn til Stokkhólms Karfaverð hækkar ekki í Þýskalandi: Hegranes SK fékk kr. 124,50 í meðalverð Dagana 27. og 28. apríl nk. verð- ur haldin ráðstefna í Stokkhólmi á vegum Norrænu ráðherra- nefndarinnar sein ber yfirskrift- ina „Norrænir karlmenn. Ólíkir einstaklingar - áþekk reynsla.“ Talið var rétt og nauðsynlegt af ráherranefndinni að karlar tækju frekar en verið hefur þátt í umræðum um stöðu kynjanna, þær breytingar sem orðið hafa og hverjar karlar vilja sjá á næstu árum. Ingólfur V. Gíslason hjá Skrif- stofu jafnréttismála í Rcykjavík segir aó rætt verói um þaö hvcrnig karlmenn haíl veriö hingað til, hvernig þeir vilji vcra mcð tilliti til jafnréttisumræöunnar. „A málþingi veröur rætt um of- beldi í samfélaginu og hvcrnig karlmcnn gcti skilió á milli karl- mcnnskunnar og olbeldisins og þaö aö vera karlmaður hafi í sér innbyggða árásarhvöt og hvort styrjaldir séu einhvers konar karl- mennskutákn," segir Ingólfur V. Gíslason. Er markmið ráöstefnunnar aö gera karlmenn „mýkri"? „Nci, ég vil ekki taka undir þaö, frekar aö gefa karlmönnum færi á að vera þeir sjálfir sem ein- staklingar og hvorki bundnir af gömlu víkingaímyndinni né af mjúku velúrpabbahugmyndinni,“ sagði Ingólfur V. Gíslason. GG Hegranes SK-2, einn togara Skagfirðings hf. á Sauðárkróki, seldi 80 tonn af karfa í Bremer- haven í gærmorgun fyrir liðlega 10 milljónir króna og var meðal- verð 124,50, sem er svipað og það sem Skagfirðingur SK-4 fékk sl. mánudag. Um hluta aflans var aó ræða, en í dag veröa seld 90 tonn. Meö- alverð á karfa í Bremerhaven viró- ist vera mjög stööugt þessa dag- ana en nokkru lægra en gengur og gerist á þessum árstíma. Þaó or- Ljóðasamkeppni Dags og MENOR: Skilafrestur Ijóða til 10. apríl Eins og kornið hefur fram efna dagblaðið Dagur og Menningar- samtök Norðlendinga til sam- keppni í ljóðlist og er skilafrestur ljóða í samkeppnina til nk. mánudags, 10. aprfl, sem er síð- asti póstlagningardagur. Engin mörk eru sett um lengd Ijóðanna og þau mega vera hvort sem er hefðbundin eöa óbundin. Ljóöin skal senda til Bolla Gúst- avssonar, formanns dómnefndar, Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðár- krókur. Ljóöin ber aó senda undir dulnefni en með skal fylgja rétt nafn, heimilisfang og símanúmer í lokuöu umslagi, auökenndu dul- nefninu. Höfundur ljóösins sem dóm- nefnd metur best, en í henni eru auk Bolla þau Geirlaugur Magnús- son, kcnnari á Sauðárkróki, og Kristín S. Arnadóttir, kennari á Akureyri, fær að launum tvö meistaraverk íslenskrar bók- menntasögu; ritsaln Þorsteins Er- lingssonar og Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Höfundur ljóðsins sem dómnefnd metur næstbest, hlýtur að launum Kvæði og laust mál cftir Jónas Hallgrímsson. Niöurstaða dómnefndar veröur kynnt ööru hvoru megin viö næstu mánaðamót. Þau Ijóó scm hljóta verölaun eða viðurkenningu veróa birt í Degi. óþh Grunnskólanem- endur eiga rétt á leyfi í dymbilviku Samkvæmt lögum um grunn- skóla eiga nemendur rétt á leyfi í dymbilviku og fyrsta þriðjudag eftir páska. Grunnskólanám er lögboðið skyldunám og skólum er óheimilt að bjóða kennslu á þeiin dögum sem sumir nem- endur geta mætt og aðrir ekki. Þar sem erfitt kann að reynast að koma fyrir þeirri viðbótar- kennslu fyrir nemcndur 10. bekkj- ar sem menntamálaráðuneytið hefur heimilað vegna verkfalls kennara geta skólar þá aðeins gert undantekningu varðandi kennslu í dymbilviku, að um það náist sam- komulag milli kennara, nemenda og foreldra og að allir nemendur geti sótt þá kennslu sem boðin er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu, vegna fyrirspurna um heimild til kennslu í grunnskóla í dymbil- viku. sakast fyrst og fremst af miklu framboði af karfaflökum frá Fær- eyjum sem er tilkomið vegna yfir- vofandi verkfalls þar í landi. Reiknað er með að fiskverð hækki um næsta helgi, þ.e. í byrjun Dymbilviku, þegar fiskneyslan eykst í Þýskalandi en kaupendur hafa verið tregir að hækka verðin meðan neyslan stígur ekki. Togarinn Klakkur SH-510 seldi 157 tonn í Bremerhaven á þriðju- dags- og mióvikudagsmorgun fyr- ir 14,1 millj. króna, og fékk meó- alverð 90 kr/kg. Klakkur SH er í eigu Hraðfrystihúss Grundarfjarð- ar sem Skagfiróingur hf. keypti nýverið meirihluta í. GG Dalvlk: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráð ræddi áætlanir um atvinnuálak á árinu 1995 á fundi sínum nýlega. Samþykkt var að sækja nú þegar um styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði, samkvæmt gögnum og umræð- um á fundinum. ■ Bæjarráð hefur hafnað erindi l'rá Jóni Hjaltasyni, þar sem hann sækir um styrk til að rita sögu Jóns Sigurðssonar, ríka frá Böggvisstöðum en þar bjó hann frá 1790 til dauðadags 1846. ■ Bæjarstjóri lagði fram eftir- farandi bókun á fundi bæjar- ráðs nýlega og var hún sam- þykkt: „Bæjarráð Dalvíkur samþykkir að lcitaó verði eftir við Nátlúruvemdarráð að það taki að sér verkefni er varóar Friðland Svarfdæla. Verkefnið felst í að gera tillögur að gönguleiðum, mcrkingum, fuglaskoðunarbyrgjum og tleira. Tillögumar skulu vió það miðaðar aö ferðamenn geti sem best notið þessa svæóis án þess aó valda lífríki þess skaóa.“ ■ íþrótta- og æskulýðsráð hcf- ur samþykkt aó Icngja opnun- artíma sundlaugar um helgar frá 1. apríl fram aö sumaropn- um. Opnunartími verður kl. 10-17 laugardaga og sunnu- daga. Kostnaður við lengingu opnunartíma um 2 tíma um helgar er ca. kr. 19.000.- en kr. 28.000,- ef opnun er aukin um 3 tíma. ■ íþrótta- og æskulýðsráð ræddi þá framkvæmd Reykvík- inga nýlcga að hafa „nætur- sund“ fyrir ungt fólk um helg- ar. Vilji er fyrir að kanna möguleika á þessu sundi í Sundlaug Dalvíkur þegar vora tckur. ■ íþrótta- og æskulýðsráð hcf- ur óskað þess aó tæknideild verði falið að kanna hvort og hvaða ráðstafanir þurfi að gera til að halda fullurn hita í sund- lauginni þegar veður em köld og hvað slíkt kostar. Fram kom að margir dagar hafa dottió úr í aðsókn í vetur vegna þess að laugin hélt ekki hita vegna skorts á rennsli að laug. ■ Stjóm Dalbæjar heíur borist erindi frá Helgu Dögg Sverris- dóttur, sjúkraliða, um heimild til aó gera könnun meðal starfsfólks sem vinnur vió um- önnunarstörf. Stjómin ákvað að óska eftir frekari upplýsingum um tilgang þessarar könnunar. LANCASTER snyrtmáynning föstudaginn 7. apríl frá kl 13-18 Snyrtifrœðingur kynnir nýja súrefniskremið, Vital Oxygen Supply 20% afsláttur Linda Björk Óladóttir, förðunarfrœðingur, leiðbeinir um fórðun og val á litum Til fermingargjafa: Skartgripaskrín, bjútíbox, satínnáttföt og margt, margt fleira ' /I • * A _ SNYRTIVORUDEILD

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.