Dagur - 06.04.1995, Blaðsíða 18

Dagur - 06.04.1995, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Fimmtudagur 6. apríl 1995 Frá yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra vegna alþingiskosninga 8. eða 8. og 9. apríl 1995. Aðsetur yfirkjörstjórnar meðan á kosningu stend- ur verður í Oddeyrarskólanum á Akureyri, sími 22954. Atkvæði verða talin í íþróttahöllinni við Skólastíg, Akureyri, að kosningum loknum. Akureyri, 5. apríl 1995. F.h. yfirkjörstjórnar Norðurlandskjördæmis eystra. Freyr Ófeigsson, formaður. Alþingískosningarnar s. agríl nk. Við höíum byggt upp frá grunni Látum bíla ekki vera í gangi aö óþörfu! Utblástur bitnar verst á börnunum mIumferðar Wf Iráð Á þeim átta árum sem Alþýóu- flokkurinn hefur verið við stjóm í félagsmálaráðuneytinu hefur orðið gífurleg uppbygging á sviði hús- næðismála. Húsnæðislánakerfið sem þá var við lýöi var löngu komið í þrot enda voru um átta þúsund manns sem þá bióu þess að fá lán úr sjóðnum, sem gat tekið þrjú ár. Fyrir utan þetta voru lánin svo lág að nær undantekningarlaust þufti önnur lán með. Þetta kerfi þjónaði ekki fólkinu heldur mætti frekar segja að fólkið hafi þjónað því. Ur þessu var bætt með húsbréfakerf- inu sem stytti biótímann og Iánin hækkuðu. I stað niðurgreiddra vaxta til allra varó stuðningurinn markvissari í formi vaxtabóta sem kemur sérstaklega tekjulágum ein- staklingum og fjölskyldum til handa. Sem dæmi um þetta er reiknað með að vaxtabætur verði í ár um þrír milljarðar króna. Félagslega íbúðarkerfið fer nú Aðgengilegar upplýsingar um tilvísanir - fyrir þig Kominn er út nýr upplýsingabæklingur: Spurningar og svör um tilvísanakerfið. Þar er að finna greinargóðar upplýsingar fyrir almenning um þessa nýju tilhögun og hvernig hún verkar. Þá er bæklingnum ekki síst ætlað að svara mörgum spurningum sem brunnið hafa á sjúklingum og aðstandendum þeirra undanfarnar vikur og mánuði. Einnig er fjallað um undirbúning tilvísana og ástæðurnar fyrir því að þær eru teknar í notkun. Þar kemur m.a. fram að 1993 var skoðun á kostnaÖarlegum áhrifum tilvísana falin óháðum aðila, Verk- og kerfisfrœðistofunni. Niðurstaða hennar er sú að tilvísanir muni spara ríkinu um 100 milljónir króna á ári og sjúklingum sjálfum um 50 milljónir! Að auki hefur Hagfræðistofnun Háskóla íslands verið falið að fylgjast með áhrifum tilvísana á kostnað, eftir að þær komast í gagnið 1. maí n.k., og hefur læknum verið boðið að fylgjast með þeirri vinnu. Upplýsingabæklingurinn liggur frammi á heilsugæslustöðvum, læknastofum, í lyfjaverslunum, hjá samtökum sjúklinga og í umboðum Tryggingastofnunar um land allt. Ef þú átt óhægt um vik að nálgast hann þar, býðst þér að hringja í síma (91) 604545 og fá bæklinginn sendan heim, þér að kostnaðarlausu. Við hvetjum þig til að nálgast bæklinginn og kynna þér málið! TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS 5 HEILBRIGÐIS- OG UH TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ S u) WiM z m, I 3; S I Spurningar og svör um tilvísanakerfið is Aöalhciöur Sigursveinsdóttir. ört stækkandi á þessu kjörtímabili og fjárveitingar hafa verió veittar til byggingar 2000 íbúða á þessu kjörtímabili. Aðalatriði málsins Mikil umræða hefur verið um skuldastöðu heimilanna í kjölfar skýrslu Þjóðhagstofnunnar á síð- asta ári. Þar kemur fram að þær hafi farið vaxandi. Stjómarand- staðan hefur haldið því fram aó staðan hafi aldrei verið jafn slæm, þessu vísa ég alfarið á bug. Þetta er nefnilega fjarri Iagi. Þjóðhags- stofnun bendir á í þessari skýrslu að skýringanna sé að leita í því að endurfjármagna þurfti nær allt húsnæði í kjölfar verðtryggingar allt frá 1980, lengri lánstíma hús- næðislána þannig að skuldir greið- ast nú hægar en áöur og horfið hefói verið frá skömmtun lánsfjár og mikill fjöldi ungs fólks hefur komið fyrr út á húsnæðismarkað- inn. Enfremur er bent á að hlutfall húsnæðisskulda heimila hafi farið lækkandi vegna aukins frjálsræöis á lánamarkaði. Aðalatriði málsins varðandi greiðsluerfiðleika hcim- ilanna er að það eru ekki skuldir heimilanna heldur greiðslubyrói. Auknar skuldir eru því ekki nei- kvæðar í þessu tilfelli heldur já- kvæðar. „Alþýðuflokkur- inn vill leysa vandann en ekki slá honum á frest.“ Stefnan okkar er skýr Almenna húsnæðiskerfið, hús- bréfakerfið, þarf að styrkja og festa í sessi. Til að bregóast vió greiðsluvanda þeirra sem eiga í vanskilum þarf að greina eðli vandans eftir umfangi vanskila hverju sinni. Aðgerðii; til lausnar verða að byggja á slíkri greiningu. Alþýðuflokkurinn vill leysa vand- ann, ekki slá honum á frest. At- huga þarf sérstaklega upphæð lána, lánstíma og lán til kaupa á fyrstu íbúð. Félagslega íbúðar- kerfið þarf aö cndurskipuleggja. Kerfið er nú of flókið og þarfnast einföldunar vió. Þá er afar mikil- vægt að lánskjörum sé haldið inn- an þeirra marka sem félagslegar aðstæður krefjast hverju sinni Alþýðuflokkurinn leggur til að sett verði lög um greiðsluaðlögun, sem hafi það að markmiði að að- stoða einstaklinga sem eru í alvar- legum og viðvarandi greiðslu- vandræðum, til þess að ná tökum á fjármálum sínum. Við viljum að vaxtabætur verði samtímagreiósl- ur þannig aó útborgun þeirra verði aðlöguð að gjalddögum húsnæóis- Iána. Sérstaklega þarf aó koma til móts við þá sem eru að kaupa sér húsnæði í fyrsta skipti og lánshlut- fall þeirra verói hækkaö. Alþýðu- flokkurinn vill einnig beita sér fyrir því að stimpilkosnaður veröi endurskoðaður. Stefna okkar er skýr, við vilj- um halda áfram aó byggja upp það velferðakerfi sem flokkurinn hefur byggt upp, nánast frá grunni. Aðalheiður Sigursveinsdóttir. Höfundur er ungur jafnaóarmaður og skipar 3. sæti á lista Alþýðuflokks á Noróurlandi eystra fyrir komandi Al- Tryggingastofnun ríkisins: Gildistími hjálpar- tækjaskírteina lengdur Tryggingaráð hefur ákveðið að hjálpartækjaskírteini til langtíma- nota verði framvegis gefin út til fimm ára í senn, í stað þriggja áð- ur. Ákvörðunin felur í sér sparnað og hagræði fyrir sjúklinga, sem þarfnast einnota hjálpartækja til langframa. Tryggingastofnun ríkisins gef- ur út hjálpartækjaskírteini fyrir þá, sem þurfa á einnota hjálpartækj- um aó halda samkvæmt læknis- vottorði. Aðallega er um að ræða hjálpartæki fyrir sykursjúka og stómaþega, svo sem einnota sprautur, nálar, poka og fleira. Samþykkt Tryggingaráðs þýð- ir, að sjúklingar þurfa sjaldnar aó fara til læknis til að endumýja vottorð vegna einnota hjálpar- tækja. Sjúklingamir greiða sjálfir fyrir læknisvottorðin, þannig að þessi breyting sparar þeim bæói fé og fyrirhöfn. Samþykktin kemur í kjölfar beiðna frá Samtökum sykursjúkra og Stómasamtaka Islands um að gildistími hjálpartækjaskírteina yrði lengdur. Skírteini vegna ein- nota hjálpartækja til skammtíma- nota verða áfram gefin út til eins árs í senn. (Fréllalilkynning).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.