Dagur - 06.04.1995, Síða 13
Fimmtudagur 6. apríl 1995 - DAGUR - 13
Kristín Margrét Jóhannsdóttir
menntaskólakennari, Akureyri:
Það er frumskylda lýðræðisríkis að
mennta alla sína þegna, óháð stétt
þeirra eða stöðu. G-listinn gerir
kröfu til algjörs jafnréttis til nánts og
vill gott og slerkt íslenskt mennta-
kerfi.
Vigdís Steinþórsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Akureyri:
I tfð núverandi ríkisstjórnar hefur
staða fjölskyldunnar vernsað til
muna, ekki síst vegna niðurskurðar í
menntamálum og heilbrigðismálum.
Bjarkey Gunnarsdóttir
skrifstofumaður, Olafsfirði:
Ég treysti G-listanum best til þess að
fylgja eftir þeim breytingum sem
þörf er á í húsbréfakerfinu og hús-
næðismálum almennt.
Berghildur Björgvinsdóttir
leiðbeinandi, Þistilfirði:
Alþýðubandalagið og óháðir hafa
mótað stefnuna „skólinn í fremstu
röð.“ Listinn styður kröfuna um
jöfnuð óháð búsetu, vill jafna lífs-
kjör og hækka skattleysismörk.
Linda Margrét Baldursdóttir
bankastarfsmaður, Húsavík:
Fjölskyldan er grunnur samfélagsjns
en staða hennar hefur versnað til
muna. Úr því vill G-listinn bæta.
Ásgeir Magnússon
framkvæmdastjóri, Akureyri:
Vegna þess að öflug uppbygging
atvinnulífsins og aukin samábyrgð í
þjóðfélaginu eiga samleið.
Hörður Harðarson
fiskvinnslunemi, Húsavík:
Það rfkir neyðarástand í húsnæðis-
málum þúsunda heintila í landinu.
G-listinn vill verja verulegum fjár-
munum til að takast á við þennan
vanda.
(lunnlaugur Júlíusson
sveitarstjóri, Raufarhöfn:
Alþýðubandalagið og óháðir standa
fyrir framsæknar og róttækar áhersl-
ur í atvinnu- og byggðamálum.
Steingrímur J. Sigfússon er forystu-
maður í stjómmálum sem ég þekki
og treysti vel.
Gunnlaugur Ólafsson
bóndi, Hallgilsstöðum Langanesi:
Alþýðubandalagið hefur sýnt að það
vill standa vörð um íslenskan land-
búnað og vernda hann gagnvart
hömlulausum innflutningi erlendra
búvara.
Hjörtína Guðmundsdóttir
sérhæfður fiskvinnslumaður,
Dalvík:
Ég vil mannvinsamlegra þjóðfélag.
Þá er engin spuming hvað maður
kýs.
Þorgrímur Starri Björgvinsson
bóndi, Garði:
Alþýðubandalagið er eini flokkurinn
sem hefur hreinan skjöld í Evrópu-
málum og sá eini sem hægt, er að
treysta til að verja fullveldi Islands
fyrir ásælni ESb.
Ragnar Pálsson
afgreiðslumaður, Akureyri:
Alþýðubandalagið er eini alvöru
vinstriflokkurinn. Varist lélegar
eftirlíkingar.
Hjálmar Freysteinsson
læknir, Akureyri:
Ég treysti þvf framboði til að standa
vel að uppbyggingu og rekstri
velferðarkerfisins.
Frímann Stefánsson
menntaskólanemi, Akureyri:
Ég veit að ef hér verður vinstri stjórn
þá mun hún bæta lífskjörin í landinu
og láta aftur meiri peninga í mennta-
kerfið.
Hugrún Sigmundsdóttir
leikskólakennari, Akureyri:
Áherslur G-listans í uppeldis- og
menntamálum eru mér að skapi og
ég treysti fólkinu á G-listanum vel
til að fylgja þeim eftir.
Kristinn Torfason, forstöðumaður,
Akureyri:
G-listinn er skipaður sérlega hæfu
fólki. Steingrímur J. er þegar kunnur
af verkum sínum og ég tel mjög
mikilvægt fyrir Akureyri að Arni
Steinar nái kjöri.
Þórhildur Þorsteinsdóttir
hótelstýra, Ólafsfirði:
Góð stefnuskrá, gott fólk. Þetta er
listi sent ég treysti til góðra verka.
Dagný Marinósdóttir
húsfreyja, Sauðanesi:
Ég tel G-listann öflugasta lands-
byggðarframboðið og treysti fram-
bjóðendum hans best til að gera eitt-
hvað róttækt í þeim málum.
Sigrún Þorláksdóttir
húsmóðir, Grímsey:
Mér finnst þetta vera eina frantboðið
sem vit er í.
Kristjana Sveinsdóttir
póstafgreiðslumaður, Ólafsfirði:
Ég treysti G-listanum best til að ná
fram réttlæti í skattamálum.
Kristján Ásgeirsson
framkvæmdastjóri, Húsavík:
Ég vil sjá samhjálp og stuðning við
þá sem minna mega sín. Ég tók
ungur þá lífshugsjón í arf og hún á
ekki síður við í dag því misréttið
hefur aukist.
Ester Þorber^sdóttir
húsmóðir, Þórshöfn:
Á G-listanum er fólk með áherslur í
atvinnumálum og jöfnun lífskjara
sem verðskuldar traust.
Erla Sigurðardóttir
frainhaldsskólakennari, Lauguin:
Mín áhugamál eru ,ekki síst
menntamál og ferðamál. Áherslur G-
listans í þeim efnunt falla vel að
mínum sjonarmiðum.
Sölvi Ingólfsson
hafnarverkamaður, Akureyri:
Við þurfum gjörbreytta stjómar-
stefnu og ég treysti G-listanum best
fyrir þeirn breytingum.
Bragi Halldórsson starfs-
maður Sjálfsbjargar, Akureyri:
Ég treysti G-listanum best til að
bæta stöðu fatlaðra. Staða þeirra
hefur versnað verulega í tíð þessarar
ríkisstjórnar og það þarf að lagfæra.
Björn Valur Gíslason
sjómaður, Ólafsfirði:
Það þarf að taka á í atvinnumálunum
og endurskoða sjávarútvegsstefnuna.
Ég treysti G-listanum best lil þess.
Sigurþór Albert Heimisson
leikari, Akureyri:
Alþýðubandalagið hefur sýnt í verki
að það vill efla íslenska ntenningu.
Menningin er homsteinn samfélags-
ins.
Hlíf ísaksdóttir
nemi, Akureyri:
Niðurskurður ríkisstjómarinnar í
menntamálum og versnandi staða
námsmanna er eitt það versta sent
gerst hefur á þessu kjötímabili. G-
listinn vill veita menntamálum for-
gang og byggja upp fyrir framtíðina.
Björn Þór Olafsson
Íróttakennari, Ólafsfirði:
tvinnuleysi hefur margfaldast,
skattar hækkað á launafolki, gjöld
verið tekin upp í heilbrigðiskerfinu
qg gjaldþrot og erfiðleikar blasa við.
Ég get ómögulega sætt mig við slíkt
ástand og kys G-listann.
Jakob Hjaltalín, bátsmaður og
form. sjómannadeildar Verkal.féL
Húsavíkur:
Aljrýðubandalagið hpfur verið í
forystu fyrir okkur Islendingunt í
landhelgþsmálum og gætt réttar sjó-
manna. Ég treysti Steingrími J. og
G-listanum best.
Rósa Eggertsdóttir
kennari, Akureyri:
Eftir að hafa fylgst með störfum
menntamálaráðherra í gegnunr árin
treysti ég G-listanum best til að
skapa góða, heildstæða mennta-
stefnu í samráði við skólafólk.
Áslaug Kristjánsdóttir
sundlaugarvörður, Akureyri:
Frambjóðendurnir á G-listanum
skara fram úr. Þar er fólk sem ég
treysti og það er mjög mikilvægt að
korna Árna Steinari inn.