Dagur - 06.04.1995, Side 19

Dagur - 06.04.1995, Side 19
Fimmtudagur 6. apríl 1995 - DAGUR - 19 Glæsilegur floti jeppa við Baugasel í Barkárdal. Jeppafcrðin á laugardag er tilvalið tækifæri tyrir fólk að kynnast möguleikunum sem vel útbúnir jeppar gefa til vetrarferðalaga. Eyjafjarðardeild Ferðaklúbbsins 4x4 stendur fyrir jeppadegi fjölskyldunnar á laugardag: Almenningi boðið í jeppaferð á Barkárdal - „ætlum að sýna fólki að það geta allir jeppar náð lengra á úrhleyptum dekkjum,“ segir Ingólfur Gíslason Stundum þurfa öflugustu fjallajeppar á aðstoð að halda en alvarleg óhöpp eru mjög sjaldgæf í jeppamennskunni. Eyjafjarðardeild Ferðaklúbbsins 4x4 stendur í fyrsta sinn fyrir jcppadegi fjölskyldunnar næst- komandi laugardag. Sífellt vax- andi jeppaeign og kunnátta í ferðamennsku á jeppum hefur valdió breytingum í feröamennsku hér á landi, jafnt á sumrin sem veturna og sunnan heióa hafa jeppamenn reynt með góðum ár- angri að kalla fjölskyldufólk sam- an í léttar dagsferóir um helgar. Nú á að reyna þetta noróan heiða með fjölskylduferð á jeppum frá Akureyri í Barkárdal og veróur lagt af staó á laugardagsmorgun kl. 10. Ingólfur Gíslason, stjórnarmaó- ur í Eyjatjarðardeild Ferðaklúbbs- ins 4x4, segir aó þessi feró verði ekki einungis fyrir eigendur jeppa á stórum flothjólböróum heldur séu eigendur óbreyttu jeppanna einnig hvattir til aó koma meó og kynnast því af eigin raun hversu miklu má breyta með því að minnka loft í hjólböróum. Ætlunin er að fara á jeppununt í Baugasel á Barkárdal og þeir sem ekki kom- ast alla leið veróa selfluttir á „blöórujeppum" á leiöarenda. Ætlunin er að við upphaf ferðar- innar, þ.e. við Lcirunesti á Akur- eyri, vcröi jeppunum skipt upp í flokka eftir útbúnaði. Því næst veröur haldiö aö Barkárdal, en hann er einn af hliðardölum Hörg- árdals. Þar halda jeppar á stærri dekkjum áfrarn förinni en félagar í ferðaklúbbnum 4x4 ætla að sýna hinum hvernig jeppamenn bera sig að við að hleypa úr dekkjum og láta jeppana „fljóta“ ofan á snjónum. Trúlega verða þó ein- hverjir jeppar el'tir, ekki síst ef snjóalög verða þannig og þá verð- ur fólk selflutt í Baugasel, eins og áður segir. Þar verða veitingar, af- hentir nestispakkar frá KEA og Frissi Fríski frá Mjólkursamlagi KEA. Ætlunin er einnig að byggja snjóhús og fara í leiki með börn- unum þannig að ferðin mun standa undir nafni sem fjölskyklu- ferð. Ekki bara fyrir jeppafólk Ingólfur segir þaö útbreiddan mis- skilning að Ferðaklúbburinn 4x4 sé eingöngu ætlaður jeppaáhuga- mönnum. Innan þessa félagsskap- ar sé fólk sem hafi feróalög um landið, og þá ekki síst óbyggóirn- ar, sem aðal áhugamál og í gegn- um félagsskapinn fræóist fólk um margt sem þetta áhugamál snerti. Vissulega eru jeppaeigendur margir innan þessa hóps og nám- skeið haldin sem snúa að jeppun- um sjálfum cn einnig stendur fé- lagió fyrir t.d. námskeiðum í átta- vitanotkun og notkun staðsetning- artækja scm kemur mun fleirum að notum en jeppamönnum. „Jeppadagur fjölskyldunnar er einn lióur í að opna félagsskapinn hjá okkur og sýna þá mögulcika sem hann gefur. Við vonumst líka til að Jeppadagur fjölskyldunnar geti oróið reglulegur dagskrárliður í starfinu," segir Ingóllur. Aðal vetrarferðatími jeppa- manna er nú framundan en Ingólf- ur segir misjafnt hvaða form ferðamenn velji. Sumir kjósi að fara vítt yfir og keyra langt cn aðr- ir taki stefnuna á ákveóinn áning- arstað og dvelji þar í faónii náttúr- unnar og kyrrðarinnar. Á ferð austan við Bláfell. Með hækkandi sól fara jcppamenn að ókyrrast enda mikill snjór í fjöllum og á hálcndi og færið gott. Sumarhátíð í undirbúningi Eyjafjaröardeild Ferðaklúbbsins 4x4 var stofnuó fyrir þremur árum og eru 90 félagar í klúbbnum. Flestir koma þeir af Eyjafjarðar- svæðinu en einnig alla leið austan úr Mývatnssveit. Hver félagi greiðir 3000 kr. í félagsgjald en fær á móti námskeið og fræðsluer- indi á hverjum fundi en þeir eru haldnir einu sinni í mánuði. Fé- lagsstarf þessa jeppaáhugafólks á landinu er mikið og nefnir Ingólf- ur að í sumar sjái Eyjafjarðardeild Ferðaklúbbsins 4x4 í fyrsta skipti um sumarhátíð klúbbsins en hún verður haldin viö Vaglaskóg í júlí. Þar er búist við fjölda jeppa- og ferðaáhugafólks vítt að af landinu JÓH Sigbjörn Gunnarsson alþingismaður Akureyri * Hann spilaði alltaf með sama liði í fótboltanum. * Hann flakkar ekki á milli flokka. * Hann flakkar ekki með lögheimili sitt. * Hann yfirgefur ekki félaga sína þótt á móti blási. * Hann hagar ekki seglum eftir vindi. % Irísalundi Afgreiðslutími: Mánud.-föstud.kl. 10.00-19.30 laugard.kl. 10.00-18.00 Snyrtivörukynning frá Margaret Astor 1 5 % afsláttur fimmtudag frá kl. 14-19 leiðbeinandi verður á staðnum Kynning á háralit frá Clairol 1 5 % afsláttur föstudag frá kl. 15-18 og laugardag frá kl. 11-15 leiooeinandi verður á staðnum Kynning á andlitslínu frá Pond's Performance 1 5 % afsláttur föstudagfrá kl. 15-18 og laugardag frá kl. 11-15 leiooeinandi verður á staðnum Tískusýning á föstudag kl. 17 Sýndur verður dömu-, herra og barnafatnaður Mikið úrval af snyrtivörum til fermingargjafa Páskaskraut í miklu úrvali Matar- og kaffistell á kr. 2.490 pk.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.