Dagur - 06.04.1995, Side 24
Akureyri, fimmtudagur 6. apríl 1995
Erum flutt í Hofsbót 4
TRYGGING HF 2S,
- bátarnir að koma með 4-5 tonn eftir daginn
Sjávarútvegsráðuneytið gaf á
sl. hausti út leyfi til að veiða
700 tonn af innfjarðarrækju á
Skagafirði, sem er töluverð
aukning milli ára. Tómas Ast-
valdsson hjá Rækjuvinnslunni
Dögun hf. á Sauðárkróki segir
að tveir af þeim þremur bátum
sem leggi aflann upp hjá Dögun
hf., Sandvík og Þórir, eigi eftir
að veiða um 40 tonn, en sá
þriðji, Jökull og jafnframt sá
stærsti, sé búinn með sinn kvóta
og farinn á úthafsrækjuveiðar.
Hofsósbáturinn Berghildur, í
cigu Una Péturssonar, landar sín-
um afla til vinnsiu á Sigluíirói.
Mokvciói hcfur vcrió aö undan-
förnu á rækjuslóðinni út af Fagra-
nesi og Ingveldarstaöarhólmanum
á Skagafirði og hafa bátarnir verió
aö koma með 4 til 5 tonn eftir
daginn. Rækjan hefur veriö frem-
ur smá í allan vetur, frá 300 til
350 stk/kg en hefur þó hcldur ver-
ió að stækka aó undanförnu. I
fyrra var hluta vesturhluta fjaróar-
ins lokaó fyrir rækjuveiði vegna
mikils smállsks og seióa í afla
rækjubáta en þess hefur ekki orðið
vart í neinu magni á þessum
vetri.
Dögun hf. vinnur einnig úthafs-
rækju og fær afiann af Jökli, sem
áóur er getió og af Haferni sem
eru í eigu fyrirtækisins og eins er
keyptur afli af Krossanesi frá Fá-
skrúðsfiröi. Bátarnir hafa verið á
Bakkaflóadýpi og Hcraösflóa og
hafa aflaó mjög vel, þó heldur sé
aó draga úr því allra síðustu daga.
Rækjan sem þar hefur fengist er
nokkuö væn, 180 til 200 stk/kg.
GG
Arni Olafsson, skipulagsstjóri Akureyrarbæjar, Guðný Gerður Gunnarsdóttir, safnstjóri Minjasafnsins, og Gísli
Bragi Hjartarson, formaður skipuiagsncfndar Akureyrarbæjar, með bókina Oddeyrin - húsakönnun, sem drcift
verður í öll þau hús á Oddeyri sem fjallað er um í bókinni. Mynd: GG
Yfirbragð eldri byggðar á Odd-
eyri varðveitt við gerð skipuiags
Mokafli i lok inn-
fjarðarrækjuvertíð-
ar í Skagafirði
Sauðárkrókur:
Auglýst eftir
hjúkrunar-
fræðingum
- tengist ekki uppsögn-
um á staðaruppbótum
Fyrir nokkru auglýsti Sjúkra-
húsið á Sauðárkróki eftir
hjúkrunarfræðingum til starfa.
Að sögn Birgittu Pálsdóttur
hjúkrunarforstjóra er um hefð-
bundna auglýsingu eftir sumar-
afleysingafólki að ræða. Birgitta
sagist hafa fengið nokkur við-
brögð en enn vantaði þó fólk.
Umrædd auglýsing tengist að
hennar sögn ekki þeirri deilu sem
upp er komin vegna uppsagnar á
staðaruppbótum hjúkrunarfræð-
inga. Heilbrigisráöuneytió hvatti
sjúkrastofnanir sem kunnugt er til
aó segja núverandi samningum
upp og taka þess í staö upp sam-
ræmdar reglur sem ráðuneytið
hefur samið. Var þetta m.a. gert á
Sauóárkróki. Hjúkrunarfræóingar
líta víðast á þetta sem uppsögn úr
starfi og ef ekki nást samningar
munu 200 hjúkrunarfræðingar á
landsbyggðinni ganga út þann 1.
júní nk. HA
Q VEÐRIÐ
I dag gerir Veðurstofan ráð fyrir
hægri norðlægri átt um norðan-
vert landið og sama verður upp
á teningnum á morgun. Á laug-
ardag eru horfur á góðu kosn-
ingaveðri á Norðurlandi, eins
og kemur fram í frétt hérna á
síóunni, hægri breytilegri átt og
björtu veðri. Á sunnudag er
spáð sunnan og suðaustan
kalda á Norðurlandi og hlýn-
andi veðri, 2-7 stiga hita.
Sumarið 1989 gerði Akureyr-
arbær samning við Minja-
safnið á Akureyri og Hjörleif
Stefánsson húsameistara um
undirbúningsvinnu fyrir Skipu-
lagsdeild bæjarins vegna endur-
skipulagningar byggðar á Odd-
eyri, þ.m.t. mat á varðveislu
byggðarinnar, hluta hennar eða
einstakra húsa. Verkefnið skyldi
ná til elstu hluta eyrarinnar og
afmarkast af Glerárgötu að vest-
an, Strandgötu og Eiðsvallagötu
að sunnan og norðan og Hjalt-
eyrargötu að austan. Einnig
voru tekin með hús annars stað-
ar á Oddeyri sem reist voru fyrir
1928.
Afrakstur undirbúningsvinn-
unnar var kynntur í gær af Guð-
nýju Gerði Gunnarsdóttur, for-
stöóumanni Minjasafnsins, Arna
Ólafssyni, skipulagsstjóra Akur-
eyrarbæjar og Gísla Braga Hjart-
arsyni, formanni skipulagsnefndar
bæjarins, en það er bókin Oddeyri
- húsakönnun, sem Minjasafnið
gefur út í samvinnu við Skipulags-
deild Akureyrarbæjar meö styrkj-
um frá Húsfriðunarnefnd ríkisins
og Skipulagsstjóra ríkisins. Veiga-
mesti hluti hennar er húsaskrá þar
sem tjallaö er um hvert einasta
hús innan þessa tiltekna svæðis og
var sérstaklega hugsað til þess að
hún mætti verða húseigendum
hvatning til að fara vel með hús
sín og nánasta umhverfi. Bókinni
verður dreift í öll hús á Oddeyri
sem fjallað er um og einnig verður
hún til sölu. Niðurstöður höfunda
eru þær að varðveita beri yfir-
bragð byggðarinnar á Oddeyri og
sérstaklega beri að stuðla aö varó-
veislu byggðar viö Strandgötu,
Norðurgötu og Lundargötu. Sú
byggð er heilsteyptari en á eystri
hluta eyrarinnar, ívið eldri og með
sterkum aldamótablæ.
Arni Ólafsson, skipulagsstjóri,
sagði ígildi gamalla verómæta og
sérkenni hverfisins hafa ráðiö
miklu í skipulagsgerðinni, og hætt
hafi verið við öll áform aó hreinsa
til á einum reit og byggja upp á
honum ný hús. Byggt verður inn í
eyður og tekin hús sem eru illa
farin eða ónýt, gefinn kostur á ný-
byggingu eða aðfluttu húsi.
Vinnu við skipulag svæðisins
lýkur á þessu ári, og þá verður
deiliskipulagið kynnt og lýst eftir
athugasemdum við það.
„Akveðið yfirbragð byggðar-
innar á Oddeyri er mjög eftirsótt
að halda í og hlutfallið milli húsa,
Alþýðusamband íslands:
Samkeppnisstofnun kanni
verð á eggjum og kjúklingum
✓
Afundi miðstjórnar ASI í gær,
var samþykkt ályktun, þar
sem þess er farið á leit við Sam-
keppnisstofnun, að hún kanni ít-
arlega verðmyndun og við-
skiptahætti á eggjum og kjúk-
lingum og grípi til viðeigandi
ráðstafana ef þurfa þykir.
I þessu sambandi er talið eðli-
legt að Samkeppnisstofnun geri
santsvarandi úttekt á fóðurvöru-
framleiðslu og fóðurinnfiutningi
en ætla má að verulegur hluti
kostnaóar vió rekstur fuglabúa sé
fóðurkostnaöur.
I ályktun miðstjómar ASI kem-
ur ennfremur fram, aö nýjar upp-
lýsingar frá Samkeppnisstofnun
unt verómun á eggjurn og kjúk-
lingum í Reykjavík annars vegar
og í Kaupntannahöfn og Osló hins
vegar, sýna l'ram á ótrúlega hátt
verð sem íslenskir neytendur
verða að greiða fyrir þessar vörur.
Einnig hafa komið fram upplýs-
ingar um sérkennileg vióskipti
Mér sýnist þetta líta Ijómandi
vel út,“ sagði Bragi Jóns-
son, veðurfræðingur á Veður-
stofu íslands, í gær þegar hann
var beðinn að spá í kosninga-
veðrið á Norðurlandi nk. laugar-
dag.
„A laugardaginn lítur út fyrir
að verði sáralítill vindur á Norður-
með framleióslukvóta, sem miða
aó því er viróist við aö halda nýj-
um framleiðendum utan við þess-
ar atvinnugreinar. KK
landi, hæg breytileg átt myndi
maður líklega kalla það. Loft-
þrýstingur veröur hár og því eru
góðar líkur á björtu veröi á Norð-
urlandi. Á laugardaginn myndi
hitinn væntanlega verða nálægt
núllinu. Þegar á heildina er litió
kalla ég þetta mjög gott kosninga-
veður,“ sagði Bragi. óþh
Norðurland:
Horfur á góðu
kosningaveðri
stærðir og gerðir, er mjög varð-
veisluvert. Einkenni byggðarinnar
eru þessi lágu, litlu, stöku hús,
sem t.d. í Norðurgötunni eru með
kvir.tum á rniðju húsi, og vió
leggjum til að þessu yfirbragði
verói haldið og hús verði endur-
nýjuð í þessum takti. Strandgatan
setur auðvitað gríóarlegan svip á
byggðina auk t.d. húsanna í Lund-
argötu, og það er viss borgarka-
rakter á þessu hverfi.
Þessir görnlu bæjarkjarnar meó
gömlu húsunum eru orðnir aðal-
aðdráttarafl bæjanna. Þangað leita
ferðamennirnir cn ekki í nýju
hverfin," sagöi Guðný Gerður
Gunnarsdóttir. GG
Maður beið bana
Maður á fimmtugsaldri frá
Blönduósi beió bana á tíunda
tímanum í gærmorgun þar
sem hann var við vinnu í
virkjunarhúsi Laxárvatnsvirkj-
unar skammt sunnan við
Blönduós. Maðurinn, sem var
starfsmaður RARIK, fékk raf-
lost og er talið að hann hafi
látist samstundis. óþh
Innanhúss-
mólning
10 lítrar
kr. 4.640.-
KAUPLAND
Kaupangi ■ Sími 23565