Dagur - 19.05.1995, Síða 3
FRETTIR
Föstudagur 19. maí 1995 - DAGUR - 3
Dalvík:
Stýrimannadeildin kaupir
siglinga- og fiskveiðihermi
- mikil lyftistöng fyrir skólann, segir Skúli Guöbjarnarson,
kennslustjóri VMA-útvegssviðs á Dalvík
Að undanförnu hefur staðið yfir
mikið átak til eflingar tækjakosti
stýrimannadeildarinnar á Dalvík.
Nú hefur verið ákveðið að ráðast í
kaup á siglinga- og fiskveiðihermi,
sem er fyrsta og jafnframt stærsta
skrefið í þeirri tæknivæðingu sem
nú er á döfinni hjá útvegssviðinu.
Að sögn Skúla Guðbjarnarsonar,
kennslustjóra útvegssviðsins á
Dalvík, verður hermirinn mikii
lyftistöng fyrir skólann, sem sár-
lega hefur vantað þennan búnað
til að sleppa við að senda nemend-
ur annað í þjálfun sem að sjálf-
sögðu kostar sitt. Skólann vantar
einnig svokallaðan GMDSS íjar-
skiptabúnað sem vonast er eftir að
hann geti eignast í sumar.
„Okkur hefur tekist að safna
nægjanlegum peningum til að kaupa
sjálfan siglinga- og fiskveiðiherm-
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Þorsteinn Gunnarsson, rekt-
or Háskólans á Akureyri og
Jón Þórðarson, forstööumaður
sjávarútvegsdcildar skólans,
mættu á fund bæjarráðs í gær
og ræddu framkomna hug-
mynd urn íþróttaháskóla á Ak-
ureyri og framdðamppbygg-
ingu Háskójans. Fram kom að
flutningur íþróttakennaraskól-
ans frá Laugarvami væri ekki á
dagskrá. Bæjarráó telur mjög
áhugavert að Háskólinn gæti
boðió upp á nám á sviöi iþrótta
og tómstunda og beinir þeim
tilmælum til stjómenda skól-
ans að vinna aó því að svo
gæti oröið.
■ Bæjarráð samþykkti á t'undi
sínum, að tilnefna Erling Sig-
urðarson, í fulltrúaráð Mál-
ræktarsjóðs.
■ Á fundi bæjarráðs voru lögð
fram tvö bréf, þar sem áfengis-
sölu í íþróttahöllinni er mót-
mælt, annað frá Góótemplara-
reglunni cn hitt frá starfsfólki
Heilsugæslustöðvarinnar. í
báðum bréfunum er lýst yftr
miklum vonbrigðum með þá
ákvöróun bæjarstjómar að
mæla með áfengissölu í
íþróttahöllinni á meóan á HM-
95 stendur yfir.
■ Bæjarráð hefur samþykkt að
fela bæjarstjóra og bæjarfull-
trúum, sem sitja fulltrúaráðs-
fund Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, að vera fulltrúar Ak-
ureyrarbæjar á 50 ára afmælis-
hátíð Sambandsins, sem haldin
verður í Háskólabíói 11. júní
nk.
■ Bæjarráó hefur f.h. Akur-
eyrarbæjar, staðfest nýgerðan
kjarasamning launanefndar
sveitarfélaga við Samflot, bæj-
arstarfsmannafélaga, sem und-
irritaöur var 13. maí sl.
inn fyrir sumarið og ætlum síóan að
bæta við tækjum eftir því sem okkur
tekst að afla í sumar. Vió áttum 600
þúsund fyrir af árlegum fjárlögum
til tækjakaupa. Þá fengum við 2,5
milljónir á fjárlögum til tækjakaupa
og aðrar 2 milljónir frá fyrrverandi
menntamálaráðherra fyrir atbeina
Halldórs Blöndal. Þannig áttum við
fyrir hermisbúnaðinum og hann hef-
ur þegar verið pantaður. Síóan þurf-
um við helst nokkur tæki til viðbót-
ar sem tengjast honum og sjáum við
fyrir að þessi tæki verði tilbúin til
notkunar í skólanum næsta haust.
Við miðum við að nota þau tæki
sem eru nýjust á markaðnum, með
stóra markaðshlutdeild í íslenska
flotanum, sem hafa þannig mikið
kennslugildi,“ sagði Skúli.
Hermirinn sjálfur er vél- og hug-
búnaður sem líkir eftir þeim merkj-
um sem koma frá siglinga- og físki-
leitartækjum í skipum. Boðin sendir
hann í tilbúna skipsbrú með tækjum
sem sett verða upp í skólanum.
Þannig er hægt aö líkja eftir raun-
veruleikanum inn í skólastofu.
Skúli segir mikinn skrið hafa
verið á söfnuninni undanfamar vik-
ur. „Okkur hafa borist stórar gjafir
að sunnan í formi tækja sem tengj-
ast herminum. Einnig hafa okkur
borist mikilvægar gjafír héðan að
norðan en fljótlega munum við
kanna hug Norðlendinga sem við
höfum þegar haft samband við.
Héðan hafa áður borist höfðinglegar
gjafir fyrir daga hermisins."
GMDSS búnaóurinn sem fyrr er
getið er fjarskiptabúnaður sem stór-
lega eykur öryggi og samskipta-
möguleika til sjós. Tekið hafa gildi
reglur sem gera auknar kröfur til
fjarskipta og menntunar skipstjóm-
armanna á flestum skipum. Þeir
þurfa því að hafa þessa þekkingu.
„GMDSS tæki þurfum við að hafa
til að geta gefið okkar skipstjómar-
nemum þau réttindi sem þeir vilja fá
út úr þessum skóla. Þá er í bígerð að
komast inn á veraldarvefinn og bæta
almenna kennsluaðstöðu í skólan-
um,“ sagði Skúli.
Próf standa nú yfir og verður út-
skrift 3. júní. HA
Á þessari mynd má sjá siglinga- og fíksveiðihermi sambærilegan þeim sem
settur verður upp á Daivík og tekinn verður í notkun næsta haust.
Þingið að komast í gang
- stefnuræða forsætisráðherra flutt á
Alþingi í gærkvöld
í gærkvöld voru sendar út í
sjónvarpinu umræður frá Al-
þingi um stefnuræðu Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra.
Þar með má segja að þingstarfið
sé komið í fullan gang, en þetta
þing verður í styttra lagi. Búið er
að kjósa í allar nefndir þingsins
en formlega eiga sumar þeirra
eftir að skipta með sér verkum.
Þó liggur fyrir pólitísk ákvörðun
um formennsku í nokkrum
ncfndum. Þannig er til dæmis
ljóst að Geir H. Haarde verður
formaður utanríkismálanefndar,
Jón Kristjánsson formaður Qár-
laganefndar, Össur Skarphéð-
insson formaður heilbrigðis- og
trygginganefndar, Kristín Ást-
geirsdóttir formaður félagsmála-
nefndar, Steingrímur J. Sigfús-
son formaður sjávarútvegs-
nefndar.
Olafur G. Einarsson var kjörinn
forseti Alþingis og varaforsetar
eru Ragnar Arnalds, Sturla Böðv-
arsson, Guðni Ágústsson og Guð-
mundur Ámi Stefánsson.
Þingmenn Norðurlands eystra
eru í eftirtöldum nefndum: Val-
gerður Sverrisdóttir situr í alls-
herjamefnd og efnahags- og við-
skiptanefnd, Steingrímur J. Sig-
fússon situr í efnahags- og við-
skiptanefnd og sjávarútvegsnefnd,
Tómas Ingi Olrich situr í mennta-
málanefnd, umhverfísnefnd og
utanríkismálanefnd og Svanfríður
Jónasdóttir situr i sjávarútvegs-
nefnd.
Þingmenn Norðurlands vestra
eru í eftirtöldum nefndum:
Hjálmar Jónsson situr í allsherjar-
nefnd, fjárlaganefnd og landbún-
aðamefnd, Vilhjálmur Egilsson
situr í efnahags- og viðskipta-
nefnd og sjávarútvegsnefnd, Stef-
án Guðmundsson situr í iðnaðar-
nefnd, sjávarútvegsnefnd og
samgöngunefnd og Ragnar Am-
alds situr í samgöngunefnd. óþh
Krakkar
Landsbankahlaupið fer fram
laugardaginn 20. maí 1995.
Mæting við
Landsbankann
v/Ráðhústorg
kl. 10 f.h.
Hlaupið er ætlað öllum krökkum
fæddum árið 1982-1985.
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
RAUTTyÚix RAUTT
uos r^L uosi
MKam
mm
Tilbdð
úr kjötborði á grillið
Lambarif
kn. 1 99,- kg
Svínakótelettur
kn. 890,- kg
Svínarif
kn. 303,- kg
KEA grillmatur
1 QD/a afsláttun
Matfangs saltkjöt
1 1 S kn. kg.
Pepsi 2 I kn. 130,-
Braggi, áðun kn. 359,
nú kn. 259,- pk.
KEA Pepsi leikur
góð venðlaun og léttan
spunningan
Hrísalundi
Afgreiðslutími:
Mánud.-föstud.kl. 10.00-19.30
laugard.ki. 10.00-18.00