Dagur - 27.05.1995, Page 2

Dagur - 27.05.1995, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 27. maí 1995 FRÉTTIR færukeppni arsins, Greifator- færan, í malargrúsunum ofan Akureyrar. Mótið gefúr stig til íslandsmeistara en Qögur slík verða haldin í sumar auk tveggja bikarmóta. Allir bestu torfæruökumenn landsins eru meðal þátttakenda, á meira eða minna endurbættum bílum. Greifatorfæran er nú haldin í fimmta sinn og hana ber upp á 21 árs afmælisdag Bílaklúbbs Akur- eyrar, sem heldur keppnina í sam- vinnu við Greifann. Heimamenn hafa sigraði í öll skiptin og þrjú síðustu ár hefur Einar Gunnlaugs- son, núverandi Islandsmeistari, borðið sigur úr bítum. Hann er aó sjálfsögðu meóal þátttakenda nú. Miðaverð er 800 kr. og þess má geta aö í kvöld kl. 20.00 hefst í Sjallanum mikil grillveisla sem öllumeropin. HA Einar Gunnlaugson, núverandi Grcifa- og íslandsmcistari, mætir .il leiks í dag með nýja og enn öflugri vél en sl. sumar. Mynd: Halldór Greifatorfæran í dag Kl. 13.00 í dag hefst fyrsta tor- Uf og fjör í Bamaskólanum Þrátt fyrir norðannæðing á uppstigningardag var efnt til fjölskyldudags í Barnaskóla Akureyrar og gerðu börn og fullorðnir sér ýmislegt til skemmtunar. Blaðamaður Dags mætti á svæðið og festi nokkur augnablik á filmu. Börnin á meðfylgjandi mynd létu kuldann ekkert á sig fá og borðuðu sem best þau gátu pylsur og drukku með Frissa fríska. Mynd: óþh. sýningarhelgi Síðustu sýningardagar vorsýn- ingar Myndlistaskólans á Akur- eyri eru í dag og á morgun kl. 11-18. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Þeir sem sýna eru Anna María Guömann, Helga Björg Jónasar- dóttir, Jónborg Sigurðardóttir, Konráð W. Sigursteinsson og Rannveig Helgadóttir, öll úr mál- unardeild, og Amar Tryggvason, Ágústa Gullý Malmquist, Friðrik Örn Haraldsson, Haraldur Sigurð- arson, Skafti Skírnisson og Þór- hallur Kristjánsson, úr grafískri hönnun. Vorsýningin er í húsakynnum Myndlistaskólans við Kaupvangs- stræti. Flotkvínni miðar vel Flotkvíin sem Akureyrarhöfn festi kaup á í Lithácn er nú á leið til Akureyrar og miðar vel. Þýski dráttarbáturinn Fairplay XIV dregur kvína og fór framhjá Gautaborg í gærkvöld. Fimm daga veðurspá sem þá lá fyrir er hagstæð og ef áætlanir ganga eftir mun báturinn koma með kvína til Akureyrar á hvítasunnudag. Meðfylgjandi mynd tók Guðmundur Sigurbjörnsson, hafnarstjóri á Akureyri, þcgar sigit var út úr höfninni í Klaipeda í Litháen sl. þriðju- dag. Þá var framundan 1700 sjómílna sigling til Akureyrar. Fulltrúi Marks og Spencer í heimsókn hiá Silfurstjörnunni „Ég veit að þeir heimsækja fáa, en hvað út úr því kemur hef ég Kolbrún Kjarval opnar sýningu í Galleríi AllraHanda í dag, laugardaginn 27. maí, opnar leirlistakonan Kolbrún Kjarval sýningu á verkum sín- um,- í, Galleríi AllraHanda í Grófargili. Sýningin verður opin : til Í2. júní nk. Állir eru vel- komnir á'opnun sýningarinnar. Kolbrún Kjarval er fædd árið 1945. Hún stundaði nám í Eng- landi, Skotlandi og Danmörku. Kolbrún hefur haldið fimm einka- sýningar, bæði hcr heima og í Danmörku. Auk þess hefur hún tekið þátt í fjölmörgum samsýn- ingum. ekki hugmynd um. Við höfum selt ftskinn sjálfir og haft þá stefnu að skipta við fleiri aðila og smærri en ekki það stóra að- ila að við gætum ekki afborið það að viðskiptin hættu,“ sagði Björn Benediktsson hjá Silfur- stjörnunni í Öxarfirði, aðspurð- ur um væntanlega heimsókn fulltrúa frá Marks og Spencer til stöðvarinnar í næstu viku. Þaö eru Islenskar sjávarafurðir Launavísitalan hækkar Hagstofan hefur reiknað launa- vísitölu miðað við meðallaun í aprfl sl. Er vísitalan 137,3 stig og hækkar um 0,5% frá fyrra mán- uði. Samsvarandi launavísitala sem gildir við útreikning greiðslu- marks fasteignaveðlána er 3.002 stig í júní 1995. sem hafa milligöngu um heim- sókn fulltrúans frá Marks og Spencer. Björn segir að fyrirtækið geri miklar kröfur um gæði þeirrar vöru sem þeir selji. Óskaö hafi verið eftir upplýsingum frá Silfur- stjömunni um ýmis atriði og heimsókn fulltrúans komi þar í kjölfarið. Björn sagði aö í Silfurstjöm- unni væri ekki gefið fóóur með litarefnum, vatn væri ekki endur- nýtt og yfirborðsvatn ekki notað. Sjúkdómar hafa ekki komið upp í stöðinni og afurðir komið vel út við gerlatalningu og rannsóknir. Aðspurður um hvort heima- menn gerðu sér vonir um góðan sölusamning í kjölfar heimsóknar- innar sagði Bjöm: „Við erum al- veg vaxnir upp úr því að gera okk- ur vonir um eitt eða neitt. Vió er- um búnir að vonast eftir að fá betri veg síðan 1976 en þær vonir hafa dugað okkur skammt.“ IM Híicavík" Fjölskyldudagur í dag Fjölskyldudagur er haldinn á Húsavík í dag, laugardag. Fjöl- skyldudagurinn er liður í verk- efninu Heilsuefling á Húsavík sem ætlað er til að auka áhuga fólks á hreyfingu og hollari lífs- háttum. Sveinn Hreinsson, tómstunda- fulltrúi, sagðist vona að fólk mætti vel til leiks á fjölskyldudaginn og búi sig samkvæmt veðrinu. Fjöl- skyldudagurinn væri ágæt æfmg fyrir hversdagsleikana 31. maí þegar Húsvíkingar keppa við íbúa Opdal í Noregi um hvor bærinn á hlutfallslega fleiri íbúa sem hreyfa sig í lágmark 15 mín. þann daginn og láta skrá afrekið. I dag hefst fjölskyldudagurinn við sundlaugina kl. 13, en frítt er í sund og ýmis leiktæki við laugina. Kl. 13.30 verður fjölskylduganga frá sundlauginni nióur í fjöru og aftur til baka. Krabbameinshlaup- ið fer fram, en þaó felst í að þátt- takendur komi sér 2 km af eigin rammleik á einhvern hátt. Heilsu- gæslustöðin býður fólki blóðþrýst- ingsmælingu við sundlaugina kl. 14-16. Matbær KÞ og Búrfell verða með kynningu á heilsuvör- um á sama tíma og leikin verður lifandi tónlist. IM Opnar einka- sýningu í Deiglunni Erlingur Valgarðsson, 34 ára Akureyringur, opnar sína fyrstu einkasýningu í Deiglunni í Grófargili á morgun, sunnudag- inn 28. maí, kl. 14. Við opnun sýningarinnar verða þau Þórey Aðalsteinsdóttir og Viðar Egg- ertsson með upplestur. Á þessari fyrstu einkasýningu Erlings verða til sýnis 19 verk í olíu og lakki. Sýningin verður opin kl. 14-18 alla daga til 8. júní nk. Hvatt til aukinnar vatnsdrykkju í skólum og íþróttahúsum: Drykkjarskál í Sundlaug Akureyrar Tannverndarráð, sem starfar á vegum heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins og íþrótta- og æskulýðsdeild menntamála- ráðuneytisins, hafa ákveðið að hvetja til aukinnar vatnsdrykkju í skólum og íþróttahúsum. Vegna þess verða gefnar nokkrar drykkjarskálar í skóla og íþróttahús til að reyna að kynna þennan einfalda útbúnað, sem er óvíóa hérlendis en þykir sjálfsagð- ur hjá öðrum þjóóum. Ein slík drykkjarskál hefur ver- ið sett upp í Sundlaug Akureyrar og verður formlega tekin í notkun í tengslum við íþrótta- og útivist- ardaginn á Akureyri í dag. Af þessu tilefni liggja frammi í Sund- lauginni auglýsingar og upplýs- ingar um vatn. Drykkjarskálin sem gefin var af tannverndarráði er staðsett við útigufubaðið í Sundlaug Akureyrar. HA Vorsýning Myndlista- skólans á Akureyri: Síðasta

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.