Dagur - 27.05.1995, Blaðsíða 11
IÞROTTIR
Laugardagur 27. maí 1995 - DAGUR -11
SÆVAR HREIÐARSSON
Anægðir KA-mcnn að Iokinni undirskrift samninga. Frá vinstir: Björgólfur Jóhannsson, verðandi formaður hand-
knattleiksdcildar KA, Alfrcð Gíslason, þjáifari, Julian Duranona og Þorvaldur Þorvaldsson, fráfarandi formaður
handknatticiksdcildar KA. Myndir: sh
Duranona búinn
að semja við KA
Handknattleiksdeild KA hefur
gengið frá samningi við Kúbu-
manninn Julian Duranona um
að hann verði leikmaður félags-
ins næsta leiktímabil. Duranona
er feiknarsterkur handknatt-
leiksmaður og var m.a. marka-
hæsti leikmaður heimsmeistara-
keppninnar í Tékkóslóvakíu ár-
ið 1990. „Eg er ánægður með að
þetta sé í höfn og á von á að
hann muni verða okkur gífur-
legur liðsstyrkur þegar hann er
kominn í form,“ sagði Alfreð
Gíslason, þjálfari KA, eftir að
skrifað var undir eins árs samn-
ing á fimmtudag.
Duranona er 29 ára, stór og
stæðilegur. leikmaóur sem hefur
reynst mörgum varnarmönnum
erfiður. „Hann getur í rauninni
spilað allar stöóur fyrir utan, rétt
eins og Patrekur. Þar að auki er
hann mjög sterkur á línunni. Þegar
hann lék með Kúbu var hann oft
tekinn úr umferó, þá færði hann
sig inn á línuna og raðaði inn
mörkunum," sagði Alfreó, þegar
hann var spurður um hvar Duran-
ona kæmi inn í lið hans.
Duranona flúói Kúbu í október
sl. þegar þarlend yfirvöld fóru
fram á að hann léki þar í landi
næstu 10 árin. Þetta sætti hann sig
ekki við og síóustu átta mánuði
hefur hann dvalist í Argentínu án
þess að spila handbolta. Hann hef-
búðir
í Hamri
fyrir börn
fædd 1982-1989
hefjast 6. júní
Innritun í Hamri
í síma 12080
ur þó æft og reynt að halda sér í
formi. Duranona kom til Islands
fyrir tæpum tveimur vikum til að
líta á aðstæður hjá KA og æfa
meó félaginu en hcfur lítinn þátt
getaó tekið í æfingunum vegna
meiðsla. Þau munu þó ekki vera
alvarleg og hann ætti að geta hafið
æfingar á næstu dögum.
Fyrsta verk Duranona sem lcik-
manns KA var að veita verölaun á
uppskeruhátíð yngri flokka félags-
ins á fimmtudag og greinilegt aó
hann kunni vel við sig í KA-hcim-
ilinu. Blaðamaður Dags hitti hann
að máli og spurði hvernig honum
líkaöi á Islandi og að vera orðinn
leikmaður KA?
„Þetta hefur verió mjög góður
tími á íslandi og spennandi að
byrja að spila aftur. Þetta er mjög
gott tækifæri fyrir mig og ég mun
reyna að nýta það til fulls,“ svar-
aði Duranona. „Eg kom til Islands
vegna þess að í heimsmeistara-
keppninni í Tékkóslóvakíu kynnt-
ist ég Andrési Péturssyni (fyrrver-
andi íþróttafréttamaður Dags,
innsk. blm.). Við höfum verið í
sambandi að undanfömu og sá
kunningsskajrur leiddi til þess að
ég kom til Islands,“ svaraði Dur-
anona þegar hann var spurður
hvers vegna Island varð fyrir val-
inu.
Kappinn var hógvær þegar
hann var spurður hvort hann setti
Knattspyrna - Mjólkurbikarkeppnin:
Dalvík, Völsungur
og Magni sigruðu
Þrír leikir fóru fram í 1. umferð
Mjóikurbikarkeppninnar á
Norðurlandi á fimmtdug. Dal-
vík, Völsungur og Magni kom-
ust í 2. umferð með góðum sigr-
um en auk þeirra er U23 ára lið
Þórs komið áfram eftir að U23
ára lið Leifturs mætti ekki til
leiks og gaf Ieik liðanna.
Dalvíkingar sóttu Hvöt heim á
Blöndós og héldu heim glaðir eftir
stórsigur, 6:0. Bjarni Sveinbjöms-
son var drjúgur í framlínunni og
geröi þrennu, Örvar Eiríksson
skoraði tvö mörk og Jón Þórir
Jónsson eitt.
A Húsavík sigraði Völsungur
frískt lið Siglfirðinga í KS, 1:0.
Þetta var mikill baráttuleikur og
sigurinn gat lent hvorum megin
sem var. Jafnræði var í fyrri hálf-
lcik en á lokamínútu hálfleiksins
skoraði Amgrímur Amarson eina
mark leiksins fyrir heimamenn.
Völsungar voru betri eftir hlé og
sóttu stíft en náðu ekki að bæta
við mörkum. Gestimir áttu hættu-
legar skyndisóknir og besti maður
vallarins var Björgvin Björgvins-
son, markvörður Völsungs, sem
varði þrisvar glæsilega í leiknum.
Tindastóll og Magni mættust á
Sáuóárkróki og þar höfðu gestimir
betur, 1:0, eftir hörkuleik. Leiðin-
legt veöur setti mark sitt á leikinn
og lítió um fína drætti. Heima-
menn voru þó öllu sókndjarfari og
voru meira með boltann en barátt-
an skilaói Magna sigri og sæti í
næstu umferó. Það var Ingólfur
Askelsson sem skoraði sigurmark-
ið um miðjan fyrri hálfleik.
Völsungur mætir KA í næstu
umferð, Magni og Dalvík leika og
U23 ára lið Þórs mætir Neista.
Aukin
þjónusta við
landsbyggðina!
800 6515
GRÆNT
NUMER
y /'B
\/
Lýsing hf.
FUÓTLECRI FJÁRMÖCNUN
aóídci*
Julian Duranona klæddist KA-búningnum í fyrsta sinn sl. finuntudag. Hann
scgist vonast tii að hjáipa liðinu til að sigra í dcild og bikar næsta vetur.
sér einhver markmið í boltanum á
Islandi. „Ekki er hægt að tala um
persónulegt markmið hjá mér. Eg
vona að ég geti hjálpað KA að
vera alltaf í 1. sæti í deild og bik-
ar,“ sagói Duranona að lokum og
þar með var hann þotinn enda
beið hans að dæma leik stjórnar
handknattlciksdeildar gegn leik-
mönnunr yngri llokka félagsins á
uppskeruhátíöinni.
Alfreð áfram
Handknattleiksdcild KA hefur
cinnig náð samkomulagi viö Al-
freð Gíslason um áframhaldandi
þjálfun liðsins og cr greinilegt aó
félagið ætlar sér stóra hluti næsta
vetur. Um helgina verða Patrekur
Jóhannesson og Signtar Þröstur
Óskarsson á Akurcyri og vonast
KA-menn til að gengið verói frá
samningum við þá fyrir næsta vet-
ur. Heiðmar Felixson, efnileg
skytta úr Þór, hefur æft með KA
að undanförnu og gengió verður
frá félagaskiptum hans til KA inn-
an skamms. Þá hefur Sævar Arna-
son, hornamaður úr Þór, mætt á
æfingar hjá KA og þar á bæ cru
menn spenntir fyrir því að fá hann
í sínar raðir.
Eins og sagt var frá í Degi á
miðvikudag hcfur Valdimar
Grímsson yfirgefið herbúöir KA
fyrir næsta vctur og mun þjálfa lið
Selfoss auk þess sem hann leikur
með félaginu. Nær öruggt er að
Valur Amarson leikur ekki áfram
í gulu trcyjunni en ekki hefur ver-
ið gengið frá félagaskiptum hans.
Þá cr einnig hugsanlegt að línu-
maðurinn Þorvaldur Þorvaldsson
sé á förum til Danmerkur.
Kaffihlaðborð
alla sunnudaga
PKaHBnflr
Lindin við Leiruveg
sími 21440.
^_____________________»
aie
Vinningstölur
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
a 6 af 6 1 47.250.000
& 5 af 6 +bónus 0 345.387
a 5 af 6 3 90.450
Q 4 af 6 262 1.640
a 3 af 6 +bónus 818 220
Aöaltölur
3U19 24
26 39 44
BÓNUSTÖLUR
28 32 48
Heildarupphæð þessa vlku
48.676.377
áísi, 1.226.377
jUinningur: Fór til Svíþjóðar
UPPIÝSINGAR, SlMSVARI 91- 68 15 11
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FVRIRVARA UM PRENTVILLUR