Dagur - 27.05.1995, Blaðsíða 7
Laugardagur 27. maí 1995 - DAGUR - 7
Eitt tekur við af öðru
Þau bcnda á aö það hcnti í raun engan
veginn að vcra mcð þessar tvær bú-
greinar samhliða þvi að einmitt þegar
aðal vinnuskorpumar scu í kartöflun-
um sé einnig mikið um að vera við
sauðféð. I byrjun sauðburóar þurfi að
setja til útsæðið og oft þurfi aó setja
niður áóur cn sauðburói Ijúki þó það
verði ekki í ár.
Elín og Arnór eru á einu máli um
að það sé fjarri lagi aö sauðfjárbúskap-
ur byggist á fáum vinnuskorpum og
löngum fríum á milli eins og sumir
viróist telja.
„Þessar vinnutamir ná nú næstum
saman. I septcmber og október eru þaó
göngur og réttir, smalamennskur og
sláturtíð. Um leið og féó er tekið á hús
þarf svo að rýja. Ef ullin næst hrein þá
fæst nokkuó gott verð fyrir hana. Hins
vegar ef það tekst ekki þá lækkar verð-
ið vemlega. Best er að rýja æmar um
leió og þær fara inn um fjárhúsdymar
á haustinn. Næst tekur við fengitíð og
svo þarf að rýja kindumar aftur síðast í
mars. Þá er farið að styttast í sauðburð
og æmar eru eins og áóur sagði aó fara
á fjall í lok júní. Þá tekur heyskapurinn
við og stendur því sem næst fram und-
ir göngur. Hjá okkur bætast svo kart-
öflumar og vinnan í kringum þær inn í
þetta ferli,“ sögóu Þverárbændur.
Vorsólin varpar geislum sínum á
fannbreióumar utan fjárhúsdyranna,
Fnjóskáin leikur sér blá og tær við
hvíta bakkana og við kveðjum fólk og
fé á Þverá. KLJ
Þau voru í fjárhúsunum þegar tíðindamenn Dags bar að garði, Elin, Birkir, Arnór og Erlingur.
Ærnar á Þverá eru flcstar hvítar, hyrndar, hér bíður ein nýborin á gangin-
um eftir því að fá pláss í spili.
tvílembdar en nokkrar ýmist ein-
lembdar eða þrílembdar. Þverárbænd-
ur reyna aó komast hjá því aó láta þrjú
lömb ganga undir ánum og gemling-
amir eru yfirleitt með eitt. Því þarf að
venja þriðja þrílembinginn undir ein-
lembu og annaó gimbrarlambið ef þau
eru tvö, en hvemig gengur að venja
undir?
„Við höfum nú ekki talið okkur
neina sérfræðinga í því en það eru ým-
is ráð notuð. Við böðum lömbin, tök-
um legvatn úr klaufnabelg og eigum i
bauk til setja á lömbin og í sumum til-
fellum tökum við skinn af lambi sem
hefur misfarist og klæðum lambió sem
á að koma í þess stað í það,“ sagði
Amór.
Vonandi í næsta mánuði
Bændumir á Þverá gera ráð fyrir því Arnór á Þverá.
bagga en það tekur ekki marga daga á
hverju ári að setja baggana inn og það
er mjög létt og þægilegt að gefa þá að
vetrinum. Við emm með vagn í hlöð-
unni sem við getum hlaðið nokkmm
böggum á og svo er vagninum ýtt
50 tonn af kartöflum
Á Þvcrá er fyrst og fremst fjárbú en
þar er líka vænn kartöflugarður.
- Hvaó setjió þið nióur mikið af
kartöflum?
„Við höfum sett niður um það bil
þrjú tonn í eina 3 hektara. I fyrrahaust
fengum vió um 50 tonn upp úr garðin-
um. Vió emm meó þrjár tegundir,
gullauga, premícr og Helgu. Það er
langbest að selja gullaugað en við selj-
um líka útsæói og Helga er vinsælt út-
sæói.
Það er á mörkunum að það sé hægt
að rækta kartöflur hér út af næturfrosti
en þetta hefur samt gengió Ijómandi
vel. Annars er verðió á kartöllunum
mjög lágt um þcssar mundir svo þetta
cm hálfgerð hallærisár bæói í kartöflu-
ræktinni og sauófjárbúskapnum og af-
koma búsins í hcild því í lágmarki,"
segja þau Amór og Elín.
gömul og setjum plastnúmer í þau um
leið en skiptum yfir í álmerkin með
nöfnunum áður en gemlingamir bera.
Þegar við fæmm nýbomar ær í spil
merkjum við parið saman, ána og
lömbin, meó litanuerki. Skellum til
dæmis rauóum lit á kjammann eóa
bakið á ánni og lömbunum hennar, við
notum nokkra liti og merkjum á mis-
munandi staói. Þetta flýtir vcmlega
fyrir mörkun og er mjög þægilegt því
þá leikur aldrei vafi á uppmna lamb-
anna,“ segir Elín.
I ærbókinni má sjá að ein ær er 10
vetra, hún er eins og Elín segir „amm-
an í húsunum," cn svo smá fjölgar í
hverjum árgangi og flestir em geml-
ingamir 91, eins og áður sagói.
Æmar sem eru bomar em flestar
Völuskjóður
Elín er ein þeirra 99 kvcnna sem
standa að Goðafossmarkaði cn
þær hafa stofnað með sér félag
Handverkskvenna milli heiða.
„Það var mikill hvati fyrir
mig, og fleiri konur, þegar þessi
samtök vom stofnuð. Ég hef nú
sclt ýmsa handunna muni á
markaðnum en í vetur úbjó ég
cinkum Völuskjóður en þær eru
mín eigin hugmynd og hönnun.
Valan er bein úr hækli sauð-
kindarinnar og hún hefur verið
leikfang Islenskra barna allt
fram á þennan dag. Þegar ég var
stelpa þá lék ég mér að því að
spá með völu og hafði gaman af.
Völuskjóðumar mínar eru úr ís-
lensku sauðskinni og inn I þeim
er vala og gamla þulan scm ég
hafði yfir sem stelpa þegar ég
spáði með völunni minni, á
þremur tungumálum. Þessar
skjóður með völunni og þulunni
hafa reynst vinsælar og hafa far-
ið víóa bæði í fórum ferðamanna
scm hafa sótt Goðafossmarkað
heirn og cftir öðrum leiðum.
Nemendur Hafralækjarskóla
völdu skjóðumar mínar sem vin-
áttugjöf þegar þau fóru til Dan-
merkur í skólaferðalag og á dög-
unum sendi ég vöiuskjóðu til
ömmu í Reykjavík, sern ætlaði
að gefa hana bamabami sínu í
Noregi. Skjóóan hafi verið á
óskalista bamsins bæði um jól
og afmæli síðan hún sá hana á
Goðafossmarkaði síðastliðið
sumar og nú skyldi óskin ræt-
ast,“ sagði Elín.
Völuþulan
Scgðu mér spákona
sem ég spyr þig að.
Ég skal með gullinu gleöja þig
og með silfrinu seðja þig
ef þú segir mér satt
en brenna þig í eldinum
cf þú skrökvar að mcr.
Þessir gæðingar eru fóðraðir á heyi og kartöflum og þckkja flestar götur bæði um hcimalönd, Flateyjardal og Flat-
cyjardalsheiði. Myndir: Robyn Redman.
að sauðburðinum Ijúki upp úr mánaóa-
mótum. „Það verður ekki hægt aó setja
lambær út hér í þessum mánuði en
vonandi þeim næsta," segir Amór með
hægð.
Sem betur fer er nóg hey í hlöð-
unni, það á að geta enst langt fram í
júní en allt þurrhey á Þverá er heyjaó í
litla bagga.
„Auðvitað er erfitt að heyja í litla
fram í fóðurganginn sem er í miðjum
fjárhúsunum. Garðamir em margir og
stuttir og það er mjög þægilegt aó gefa
baggana af vagninum, svo heyjum við
líka í plastaða rúllubagga," segir Am-
ór.
Á afrétt
Afréttarlönd bænda í noróanverðum
Fnjóskadal eru Flateyjardalur og Flat-
eyjardalsheiói. Þetta em eyðibyggóir,
góð sumarbeitarlönd, sem bændunum
er mjög annt um og nýta með gát og
hafa notió leiðsagnar sérfræóinga.
Yfirleitt fara æmar á afréttina á
tímabilinu frá 15.-25. júní en æmar á
Þverá rata sjálfar út á Flateyjardals-
heiðina og Flateyjardalinn og fmna þar
sína uppáhalds sumarhaga. Aðrir
bændur sem nýta afréttina flytja féð
yfirleitt á tímabilinu 20.-30. júní en
göngur em fyrir miðjan scptember svo
féð er á heiðinni í um það bil 90 daga
ár hvert.
Ungmennafélagsandinn
Amór og Elín hafa alla tíð verið virk í starfi innan ungmennafélagsheyfing-
arinnar og era í ungmcnnafélagi sinnar sveitar, Bjarma. Amór var fomiaður
Bjamta um nokkurra ára skeið og bæði hafa þau gegnt trúnaðarstörfum fyrir
félagið og starfað innan vébanda Héraóssambands Suður-Þingcyinga, HSÞ.
Þau benda á að í litlu samfélagi sé hver einstaklingur mikils virði félagslega
og aó ungmennafélagsstarfió sé að þeirra mati nauósynlegt í hverri sveit.
Yngsti fjölskyldumcðlimurinn á Þverá, Birkir Týr, cr þegar genginn í
Bjamta cn foreldrarnir cm hinir ánægðustu mcð piltinn og spá því að hann
verið íþróttamaóur. „Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið, hann verður bráð-
um eins árs,“ segja þau og brosa út í annað.
Amór keppti um árabil í frjálsum íþróttum, byrjaði á því þegar hann var í
Héraðsskólanum á Laugum í Reykjadal. „Ég hef keppt á öllum Landsmót-
um utan einu s'tðan Landsmótið var haldið á Sauðárkróki árið 1971. Nú er
ég hættur aó keppa í frjálsum íþróttum og hef fært mig yfir í starfshlaup og
dráttavélarakstur en ég var í þriója sæti í dráttavélarakstri á Landsmótinu á
Laugarvatni í sumar.