Dagur - 27.05.1995, Page 9
Laugardagur 27. maí 1995 - DAGUR - 9
Skipuleg skráning á safni Davíðs Stefánssonar:
Hann má alveg vera hjá mér
Davíð Stcfánsson safnaði ekki bara Ijóðabókum. Sigrún stcndur hér við hillu með ýnisurn smáritum, m.a. útfara-
minningum og spakmælabókum.
Loks er hafin skipuleg skráning á
bókasafni Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi. Sigrún Ingimars-
dóttir bókasafnsfræðingur á
Amtsbókasafninu sér um skrán-
inguna en yfirumsjón með verk-
inu hefur Lárus Zophoníasson.
Verkefnið er gríðarlegt því fjöldi
titla í safhinu er um 5500 og eng-
inn veit hversu mörg bindi það
hefur að geyma. Amtsbókasafn-
inu hefur verið falin umsjá með
safhi skáldsins, en það hefur að
geyma bækur af ýmsum toga, þó
ekki frumhandrit Davíðs, en þau
eru í eigu Héraðsskjalasafnsins.
„Það hefur staðið til í mörg ár
að skrá safnió og mér skilst að fyrst
hafi verið farið að tala um þessa
skráningu fyrir tuttugu árum. Þegar
aldarafmæli Davíðs stóð fyrir dyr-
um ákváöum við á Amtinu að grípa
tækifærið og sækja um styrk til
menningarmálanefndar. Hún út-
hlutaði okkur 250 þúsundum, KEA
styrkti okkur um 50 þúsund og
bærinn lagði til tölvu. Við sóttum
líka um styrk til þjóðhátíðarsjóðs,
en höfum ekki fengið svar, en ég
vona að það verði jákvætt. Það eina
sem háir okkur er fjárskorturinn, en
ég býst við að kostnaðurinn við
skráninguna verði um ein og hálf
milljón.“
Sigrún vinnur fulla vinnu á
Amtsbókasafninu, en skráir í Dav-
íðshúsi á morgnana. „Ég hef tæki-
færi til að vinna í þessu fyrir hádegi
þar sem opnunartími Amtsins er frá
eitt til sjö. Hólmkell Hreinsson
bókasafnsfræöingur hefur að vísu
vcrið mér innan handar við tölvu-
vinnsluna, og Lárus hefur mikla
þekkingu á verkefnum sem þess-
um, þannig að ég er ekki ein á báti.
Astæðan fyrir því aó ég vinn þctta
er sú að ég á best heimangengt af
starfsfólki bókasafnsins því ég er
bamlaus og auk þess gjörþekki ég
skráningaraðferðina. Fyi'ir utan
hagkvæmu hliðina langaði mig líka
mjög mikið til að taka verkið aö
mér; þetta er mjög spennandi.“
Skráningaraðferðin er þó ekki
alveg samkvæmt hefðbundnum
reglum. „Bókasafnið er nákvæm-
lega eins og Davíð skildi við það,
bækumar í sömu hillum og ekki
verið hróflað við neinu. Við ætlum
okkur ekki að breyta því, heldur
láta safnið halda sér eins og hann
vildi hafa það. Við létum prenta
sérstaka miða sem við skrifum
staðsetningu hverrar bókar á og
límum síðan inn í bækurnar. I raun
er þetta mjög einfalt. Ég byrjaði
bara í einu hominu, í lýrsta skáp,
fyrstu hillu, á bók núrncr citt. Þegar
ég hef lokið við að skrá bækumar í
bókaherberginu vcrður þetta
kannski eitthvað flóknara, því það
em bækur út um allt hús, á borðum
og inni í fataskápum með ullar-
sokkum og teppum og öóm dóti.“
Sigrúnu líður mjög vel í Davíðs-
húsi, hún segist aö vísu ekki hafa
orðið vör við Davíð ennþá en hann
megi alveg vera hjá henni. „Mér
finnst þetta vera eins og að koma
inn í helgidóm þegar ég kem hing-
að inn, allt óbreytt og bækumar em
fágæti, inn á milli cru bækur sem
þú finnur ekki annars staðar. Þess
vegna er hræðilegt að hugsa til þess
að öll þessi verðmæti gætu hrein-
lega fuðrað upp. Bmnavamir í hús-
inu em mjög lélegar og engin teng-
ing við slökkvistöðina og allar raf-
lagnir mjög frumstæöar. Ég held þó
að þetta standi til bóta.“
Bókasafn Davíðs cr mjög yfir-
gripsmikið. Hann átti gott ljóðasafn
og ýmsar merkilegar bækur um allt
milli himins og jarðar, en inn á
Eviayrí*
Miðinn scm límdur cr í hvcrja bók.
Myndina af gamla bænum í Fagra-
skógi tciknaði Kristinn G. Jóhanns-
son cn um hönnun sá Lárus Zop-
honíasson.
Það eru bækur hvar scm má
koma þcim fyrir, meira að
segja í fataskápum með ýmsum
óskyldum hlutum, t.d. tcppum og
ullarsokkum Davíðs.
milli eru bæklingar, tímarit, smá
pésar og útfararminningar. Honum
áskotnuðust mörg verk sem bóka-
vörður, því forlögin vissu af söfn-
unargleði hans og gáfu honum
bækur; létu aukaeintök fylgja með
bókasendingum til Amtsbókasafns-
ins.
Sigrún segir að hluti tilgangsins
með skráningunni sé aö gcra fólki
klcift að njóta safnsins. Bækumar
verói þó ekki lánaðar út, en fólk
geti fengið að skoða þær á bóka-
safninu; Davíóshús veröi nokkurs
konar deild út frá því. Verkefnið er
stórt, og gert er ráð fyrir að þaó taki
um fimrn ár aö skrá allar bækumar.
Því miður er þó útlit fyrir að fé til
starfans verói uppurið um eða cftir
mitt sumar. shv
íslandsmeistara-
mót í torfæru
verður laugardaginn 27. maí kl. 13. í
Iandi Glerár fyrir ofan Akureyri.
Allir landsins bestu bílar mæta.
Miðaverð kr. 800,-
Greifinn
ÚSETI
HUSNÆOISSAMVINNUFÉLAQ
Búseti auglýsir:
Af sérstökum ástæðum hefur félagið til úthlutunar þriggja
herbergja félagslega raðhúsíbúð við Drekagil. íbúðin er
laus 1. júní nk.
Önnur sams konar íbúð er laus til úthlutunar 1. ágúst nk.
Þá er laus til umsóknar þriggja herb. íbúð í fjölbýlishúsi.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu félagsins, Skipagötu
14, á eyðublöðum sem þar fást.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
BÚSETi,
Skipagötu 14, sími 26899.
Barn sem situr í barnabílstól
getur sloppið við meiðsl
í árekstri!
mÉUMFERÐAR
Uráð