Dagur - 27.05.1995, Page 13
Það er víst óhætt aó segja að árið
1994 hafi verið happadrjúgt n-
írska rokktríóinu Therapy? og það
í meira lagi. Spilaði þar stærst
hlutverk platan Troublegum, sem
færði hljómsveitinni alþjóðlega
athygli og tilnefningar sem bestu
nýlióar ársins á Evrópsku MTV
verðlaunahátíðinni. Var þessi
gæða og magnþrungna rokkplata
svo hvarvetna á listum yfir bestu
verk ársins hjá gagnrýnendum og
völdu margir þeirra hana þá bestu
á árinu. Dugnaður við tónleika-
hald hefur líka haft sitt að segja
meó uppgang félaganna þriggja
sem skipa Therapy?, þeirra Andy
Caimes söngvara og gítarleikara,
Michael McKeegan bassaleikara
og Fyle Ewing trommuleikara, en
bróðurpartinn af síðasta ári eftir
að Troublegum kom út í byrjun
þess voru þeir í tónleikaferðum. A
þessu ári hafa þeir heldur ekki
slegið slöku við. Eru nýlega
komnir úr miklu ferðalagi um
Eyjaálfu og Japan þar sem þeir
voru í samfloti með öðrum merk-
um sveitum á boró við Nine Inch
Nails, Live, Faith No More og
Body Count. Voru viötökumar
víst hreint út sagt afburða góðar
Laugardagur 27. maí 1995 - DAGUR - 13
MACNÚS GEIR CUÐMUNDSSON
Therapy? Boða breytingar á nýrri plötu.
og hlaut Therapy? einróma lof
fyrir sinn þátt. Verður því ekki
annaö sagt en að jarðvegurinn þar
hafi verið undirbúinn vel fyrir út-
gáfu nýjustu plötu hljómsveitar-
innar, sem kemur út 12. júní næst-
komandi. Mun hún bera titilinn
Infemal Love og hefur nú fyrsta
lagió af henni, Stories, verió sett á
smáskífu. „Menn munu áfram
finna mikinn kraft og þunga, cn
þetta verður samt róttækasta plata
okkar hingað til“, segir bassaleik-
arinn McKeegan um nýju plötuna.
Til rnarks um það vcrður t.d. sel-
lóleikur í fimm laganna, sem
býsna spennandi verður aó heyra
hvemig hljómar. Auk ólgandi
kraftsins sem einkennt hefur Ther-
apy? hafa skemmtilegir og um
margt háðskir textar verió vöru-
merki tríósins. Þeir veróa líka
áfrani til staóar, en verða jafnvel
enn opinskárri en þeir hafa áður
verið. Meðal annars mun víst kyn-
líf eitthvað bera á góma í textum
laganna, en samtals verða þau tólf
á plötunni.
TIL IIEIMJRS
Ekkert lát ætlar að veröa á hinum
svokölluðu „Tributc" plötum og
bætast sífellt íleiri tónlistarmenn,
lífs eða liónir, í hóp þeirra sem
ástæða hefur þótt að heiðra mcó
þessum hætti. Dæmi um eina
slíka sem fregnir hafa nú borist af
að sé í bígcró, er til heiðurs sálar-
söngvaranum mikla, Marvin
Gaye, en hann féll á sviplegan
hátt fyrir hendi síns eigin l'öóur
fyrir um aldarfjórðungi eóa svo.
Reyndar eru fregnimar ckki mjög
niiklar um þá scm koma til með
að flytja lög Gaye, nema hvað aó
sjálf Madonna mun koma þar við
Marvln Gaye senn helðraður.
sögu. Mun hún í samvinnu við
tripphoppsveitina bresku Massive
Attack og Nellee Hooper, sem
eins og kunnugt er hefur starfað
mikið með Björku og var eitt
sinn í Simply Rcd, hafa unnió út-
gáfu af laginu I want you fyrir
plötuna. Gert cr ráð fyrir að hún
konii út í scptember. Af Ma-
donnu er það síðan frekar að
firétta að hún ætlar bráólega aó
fara að leika í nýrri mynd eftir
leikstjórann þekkta og þeldökka,
Spike Lce. Mun ntyndin víst
fjalla um símavændi, það ,Jkrass-
andi" fyrirbæri.
AGOHA
Fyrst nafn Bjarkar Guðmunds-
dóttur ber á góma hér á síóunni í
tengslum viö Ncllee Hooper, er
sjálfsagt aó
minna á nýju
plötuna, Post,
scm er væntan-
lcg í lok júní eða
byrjun júlí (dag-
setningamar 24.
júní og 7. júlí
hafa báðar
heyrst nefndar).
Eins og allir vita
náði Björk sín-
um besta árangri
hingað til með
fyrstu smáskíf-
unni, Arrny of
me, þcgar lagió
fór beint í tíunda sæti breska
smáskífulistans. Þcim árangri
náói þó lagið ckki aó íylgja eftir
og er það nú í kringum 40. sæti.
Það breytir hins
vegar ekki því
að Post cr spáð
inn á topp tíu
breiöskífulist-
ans, sem hcldur
betur væri nú
glæsilegt ef af
yrði. Því má svo
bæta við að
Björk kemur við
sögu á plötunni
Songs l'rorn the
cold sea mcó
franska tón-
skáldinu og upp-
tökusljóranum,
Björk. Plata númcr tvö að koma.
Hcctor Zozou.
Brautargengi nýrra bandarískra
popprokkssveita, sem sótt hafa í
þjóðlagaarfinn til að krydda skök-
unarverk sín, á nokkuð svipaðan
hátt og t.d. REM hefur mótað sinn
stíl, hefur verið með afbrigðum
gott nú um talsvert skeið. Þarf
ekki annað en að nefna nöfn Co-
unting Crows, Collective Soul, Li-
ve, Toed The Wet Sprocket og
Bluestraveller því til sönnunar,
sem allar falla á sinn hátt undir
þessa skilgreiningu og hafa allar
slegið í gcgn á síðustu tólf mánuð-
um eða svo. Hér má reyndar líka
alveg bæta við nafni Chrash Text
Dummies, þótt sú hljómsveit sé
ekki bandarísk heldur kanadísk,
en fellur samt vel inn í hóp hinna.
Hafa flestar þessara sveita ef ekki
allar komið plötum sínum inn á
topp tíu í Bandaríkjunum og víðar
og það gildir einnig um enn eina,
Hootie and The Blowfish, sem
heldur betur hefur slegið í gegn á
þessu ári. Hefur plata þessa kvar-
tetts frá Caroline, Cracked Rear
View, „Brotin Baksýn“, nú um
tveggja mánaða skeið setið á topp
tíu og þar af í um mánuð í þriðja
sætinu og er hún þar enn þegar
þetta er ritað. Líkt og Crash Test
Dummies, voru Darios Rucker
söngvari og félagar hans aðeins
óbreyttir barspilarar, þegar upp-
hafið að öllu saman, samningur
við Atlanticútgáfurisann, féll þeim
í skaut. Samlíking við Crash... er
líka sérstaklega nærtæk hvað
varðar áberandi þjóðlagasvip á
tónlistinni og kemur þá reyndar
einnig önnur hljómsveit upp í
hugann sem ber líkt nafn og Ho-
otie And Thc Blowfish, nefnilega
Hooters. Þeir sem lagt hafa við
Hootie And Thc Blowfish. Góðir og
gcra vel.
hlustir og hrifist áður af Hooters,
munu t.d. áreiðanlega greina
skyldleika í lögunum Running
from an angel og Time. Sá skyld-
leiki er líka af hinu góða, því þetta
eru tvö af bestu lögum plötunnar.
Craced Rear View er annars í
heild mjög þægileg og vel heppn-
uð plata, sem verðskuldar vin-
sældir sínar fyllilega.
• Gibby Haincs, liðsmað-
ur bandarísku rokk-
svcitarinnar góðu Butthole
Surlérs, hefur svo lítió ber á
sett saman nýja sveit meö
leikstiminu Johnny Depp.
Vinna þeir nú að gerð plötu og
hafa m.a. fcngió til liós við sig
fyrrum gítarleikara Scx Pi-
stols, Steve Jones. Kalla þeir
sig stutt og laggott, P.
• Döðlur er naln á glcði-
sveit nokkurri ættaðari
frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum, sem nú á að sögn að
vcra að gera „allt vitlaust"
víða um land. Mcð henni cr að
korna út plata á vcgum Skíf-
unnar sem nefnist Bara rugl.
- U2 hafa nú klárað að
^ taka upp lagið Kiss me,
hold me, touch me, sem eins
og sagt hefur verið frá áöur hér
á síðunni, cr lag scm Bono lét
spila öllum að óvörun í klúbbi
einum í Dublin fyrir nokkru.
Var þar um aó ræða hráa og
ófullgeröa upptöku, sem nú
hefur verið fínpússuð meó
hjálp títtncfnds manns hér á
síðunni í dag, Nellec Hoopcr.
• - Krist Novoselic, fyrr-
urn bassaleikari Nir-
vana, hefur sctt saman hljóm-
svcit. Ncfnist hún Sweet 75 og
hélt sína fyrstu tónleika í byrj-
un maí. Heppnuðust þeir þol-
anlega og spilaði sveitin þar
sex ný iög.
• - Stone Gossard, gítar-
leikari Pcarl Jarn, hefur
ásamt tveimur öðmm tónlistar-
mönnum gert sér lítið fyrir og
stofnað plötuútgáfu, sem stað-
sett er í Bretlandi. Nefnist fyr-
irtækið Loosegroove og hel'ur
nú þegar gert samninga við sex
hljómsveitir. Safnplata með
þeint öllum vcrður það fyrsta
sem kcmur út frá Gossard og
co., í byrjun júní.