Dagur - 27.05.1995, Side 14
14 - DAGUR - Laugardagur 27. maí 1995
Enginn vill lcnda í slysi, því ættu allir bílstjórar að stcfna að því að vcra var-
kárir og vakandi við stýrið í sumar.
Kemur þú að
slysi í sumar?
Nú er sumarið á næstu grösum
og þar með tími ferðalaga og
umferðarþunga. ÖIl berum við
þá ósk í brjósti að sumarið verði
slysalítið og umferðin farsæl en
gerum okkur jafnframt grein
fyrir því að slys gera ekki boð á
undan sér.
í upplýsingariti frá Rauða
krossi Islands er farið yfir það
hvcrnig beri aö bregðast við sé
komið að slysstað, þar segir meðal
annars:
Taktu stjórnina í þínar hendur,
vertu rólegur og ákveðinn í fram-
koniu. Skipuleggöu vinnuna,
skiptu verkum. Gefóu bein og
ótvíræð fyrirmæli.
Tryggöu öryggi á slysstað,
komdu í veg fyrir aö fleiri lendi í
slysinu. Vió umferðarslys verður
að koma fyrir aðvörunarþríhym-
ingum, (í u.þ.b. 150 m fjarlægð)
kveikja aðvörunarljós og stjórna
umferðinni. Komið hinum slösuðu
á öruggan staó ef um bruna eóa
sprengjuhættu er að ræða.
Gerið ykkur grein fyrir hve
víðtækt slysið er og hve mikil þörf
cr fyrir hjálp. Tilkynnið slysið. A
kápusíðu símaskrárinnar eru neyð-
amúmer fyrir allt landið. Látió
eftirfarandi upplýsingar koma
fram: Hver hringir, hvað kom fyr-
ir og hvar.
Oft líður nokkur tími þar til
fagfólk kemur á staðinn. Þess
vegna er mikilvægt að sem allra
flestir kunni að veita hjálp á fyrstu
mínútunum cn þá þekkingu er
hægt að öólast með því aó sækja
námskeið í skyndihjálp.
Þegar margir eru slasaðir verð-
ur tafarlaust að gera sér grein fyrir
hverjir þarfnast neyóarhjálpar og
hverjir geta beðið. Er þá átt vió þá
sem eru með áverka sem hindra
lífsnauðsynlega starfsemi eins og
öndun og blóórás.
Við öll slys er mikilvægt að
virða viðbrögð og tilfinningar hins
slasaóa og láta hann finna fyrir
stuðningi. Taliö hlýlega og róandi
til viðkomandi og haldið í hönd
hans ef mögulegt er uns hjálp
berst. KLJ
H
H
ELGARi Jl EILABROT
1x2
Umsjón: GT
34. þáttur
Lausnir á bls. 16
í hverju eftirtalinna landa er hassta leyfða áfengisprómilla I blóði ökumanns?
Danmörku
Islandi
Svíþjóð
Og hver er áfenglsprómillan í þvl landi?
D 0,5
0,6
0,8
Hver orti kvæðiðEg bið að heilsa (Nú andar suðrið sæla..,)?
I Davíð Stefánsson Pi Hannes Hafstein
Jónas Hallgrímsson
Eru nöfn manna birt f dómum?
Nei
Bara dulnefni
Hvaða samningurisáttmáll er kenndur við Camp David?
Friðarsamningur Egypta og Israela
Fyrsti hafréttarsáttmálinn
Uppgjafarsáttmáli íraka
6
Hvert er heiti vindhraða sem lýst er með þvi að lauf og smágreinar titri og breiði úr léttum flöggum?
Andvari
Kul
Gola
Og hvað er sá vindhraði mörg vindstíg?
8
Hvaða maður sagðist nýlega hafa verið ríkisrekinn alla aevi og að einkavæðing væri böl mannkyns?
Ari Trausti Guðmundsson
Jón Múli Ámason
Siglaugur Brynleifsson
Hvaða ráðherra er yfirmaður Rikisendurskoðunar?
Dómsmálaráðherra
Fjármálaráðherra
Enginn
Hver var markaðshlutdeild Hagkaups og Bónusar í matvöruverslun 1993?
D
44%
55%
u
En hver var markaðshlutdeild Kaupfélags Eyfirðinga f matvöruverslun 1993?
1%
5%
9%
12
Hver var ástæða þess að Borgundarhólmur var frelsaður undan hemámi Þjóðverja síðar en afgangurinn af Danmörku?
Eyjan gleymdist
Erfiðari hafnlending
Synjun þýskra á uppgjöf
13
Hvaðan komu hingað flestirferðamenn I fyrra?
I Frá Bandaríkjunum
Frá Danmörku
Frá Þýskalandi
ÚAMLA MYNDIN
SNÆFRIÐUR INCADOTTIR
Það var ekkert
Þú hlýtur aó minnast mín næst þegar kona strýkur yfir bak þitt.
Eg velti því oft fyrir mér hvaó þú munt eiginlega segja henni.
Þaó sama og þú sagói einu sinni við mig?
Þaó veróur samt ekki þaó sama.
Þau oró voru mín, þau á engin önnur.
Þessi orö hef ég geymt í hjarta mínu og þar hafa þau velkst um
í tímans rás.
Hvað sagóirðu öórum um mig?
Ekkert, þagóir kannski yfir því?
Hvað var þaó svo sem, það var aldrei neitt á milli okkar.
Skrýtið,
samt fór ég í fyrradag með vinkonu minni út aö boröa á staóinn
okkar.
Yfir rósaflúruóum diskum fann ég minningar um það sem var
aldrei neitt.
Ég man. Augun þín, hárió, hláturinn.
Ég man þaó allt sem í rauninni reyndist ekki vera neitt
- sögóum viö bæði, eftir á.
Hvemig sem á þaó er litið hugsa ég samt stundum til þín.
Núna er farió að hausta í Reykjvík.
í gráum kjallararúðum húsanna get ég séð skóna mína ösla
laufin
á leió heim úr vinnunni.
„Ætli þún munir ennþá eftir mér og þessu sem vió aldrei átt-
um?“
- er spuming dagsins.
Klukkan er korter yfír fimm og hjarta mitt er fullt af því,
troófullt af engu.
Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/
Minjasafnið á Akureyri
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lcsendur Dags þekkja ein-
hvern á þcim myndum sem hér
birtast eru þeir vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Minja-
safnsins, annaö hvort með því að
senda bréf í pósthólf 341, 602
Akureyri eða hringja í síma
24162 eða 12562 (símsvari).