Dagur


Dagur - 27.05.1995, Qupperneq 15

Dagur - 27.05.1995, Qupperneq 15
Laugardagur 27. maí 1995 - DAGUR -15 UTAN LANPSTEINANNA SÆVAR HREIÐARSSON Berst með kjafti og klóm Söng- og leikkonan Grace Jones hefur gaman aó því aó hneyksla fólk. Hún er til vandræða hvar sem hún kemur og fara mióur skemmtilegar sög- ur af framkomu hennar. Ekki er langt síóan spurðist út saga um hana uppdópaða og alls- nakta inni á salemi skemmtistaóar og lýsingin var ekki fögur. Nú á hún yfir höfði sér ákæru fyrir líkamsáras eftir aó hafa ráóist á útkastara næturklúbbs í Miami. Utkastarinn reyndi aó stöóva áflog milli hennar og annarrar ólánsamrar konu þegar söngkonan hávaxna stökk skyndilega til og sló útkastarann auk þess sem hún sökkti tönnunum í handlegg hans. Útkastarinn lá sár eft- ir en Grace var flutt í fangageymslur. Gracc Joncs cr ^ ekkert lamb að Ieika við og er til vandræöa hvar sem hún kemur. Rosic Perez segist hafa skoriö konu á háls þegar hún var aðeins 12 ára. Ósátt við fortíðina Leikkonan smávaxna Rosie Perez er ekki eins og fólk cr flest og segja sérfræðingar að þar sé erfiðri æsku um aó kenna. Hún er ein af 12 systkinum sem fátækir foreldr- ar hennar áttu í erfrðleikum með að annast. Rosie var ásamt tveimur systrum sínum, skilin eftir á mun- aðarleysingjahæli þegar hún var aðeins tveggja ára og þar ólst hún upp. Þegar hún varð eldri var hún flutt á sambýli fyrir heimilislaus börn þar sem hún var sögð vera rólegt bam, þjáð af tilfinningaleg- um erfiðleikum. Nú er hún orðin fræg leikkona og hefur slegið í gegn í myndum á borð vió White Men Can’t Jump, Fearless og It Could Happen To You. Eitthvað virðist hún ósátt við fortíð sína og hefur skáldað .mismunandi sögur til að segja blaóamönnum. Sú svæsnasta segir frá því að hún hafi alist upp í skuggahverfum Brook- lyn og þegar hún var 12 ára segist hún hafa skorið konu á háls. I refs- ingarskyni hafi hún verió send á vandræðabarnaheimili og tekin frá foreldrum sínum. Sannleikurinn er þó alveg jafn sorglegur og óvæntur og lygarnar sem hún segir um sjálfa sig en í raun var Rosie send á sambýli talsvert fyrir utan New York þegar hún var 10 ára. Systir hennar, Magda, ólst upp með henni á munaðarleysingjahælinu. „Hún segir aó hún hafi skorið konu á háls þegar hún var 12 ára en þaó er bara þvaður sem hún segir til að líta út sem hörku- kvendi," segir Magda. „Það er úti- lokað að Rosie hafi skorið konu á háls þegar hún var 12 ára,“ segir Stcve Roca, sem rak sambýlió sem hún bjó á á árunum 1975 til 1980. „Rosie var langt frá því að vera of- beldishneigó. Hún átti við tilfinn- ingaleg vandamál aó stríða sem barn. Eg hefði vitað ef eitthvað eins hryllilegt og þetta hefði gerst. Hún bjó á sambýlinu hjá mér og saug cnn þumalinn og lék viö heimilishundinn þegar hún var á þessum aldri,“ sagði Steve. ◄ Phil Coliins segist óttast um iíf sitt í hvcrt sinn scm hann stígur á svið. Söngfuglinn Phil Collins segist lifa í ótta við að verða fyrir barðinu á brjáluðum byssumanni og vera skotinn niður á sviði. „Eg sé þetta fyrir mér líkt og atriði í kvikmynd," segir Phil um þessa draumsýn sína. „Hljómsveitin mín er á sviði og skyndilega sé ég allt í gegnum kíki á riffli. Ég er ekki sjúklega tortrygginn en maður hefur áhyggjur af ástvin- um jafnt sem sjálfum sér. Ég býst þó við að þaó sé hluti að starfmu að vera skotspónn brjálæóinga,“ segir söngvarinn, sem hefur áóur oróið fyr- ir áreitni andlega truflaðs aðdáenda. Fyrir fjórum árum braust kona inn á heimili hans til að vinna honum mein en án árangurs. Hún haföi áður sent honum fjölda símbréfa þar sem hún sakaöi hann um að siga mallu- morðingjum á sig. „Þetta var klikkuð frönsk kona sem versnaði stöðugt,“ sagði Phil um kellu. það heilaga en Cage segist hafa beðið hennar þegar þau hittust fyrst, fyrir átta árum. Þau hittust fyrst á kaffihúsi og sagðist hann hafa fallið strax fyrir henni. Til að sanna það fór hún fram á að hann færði henni svart brönugras og eiginhandaráritun frá rithöf- undinum ómannblendna JD Sa- linger. Cage brá$t skjótt við og þar sem ekki er til svart brönu- gras fann hann purpuralitað og málaði það svart. Hann borgaði einnig um 150.000 krónur fyrir bréf sem Salinger haföi skrifað undir. Patricia heillaðist að áræðni stráksins og ákvað að stinga af frá kærasta sínum og fara með Cage til Kúbu í skemmtiferð. En á síðustu stundu hætti hún við og fór aftur í faðm kærasta síns. Hún sá Cage aðeins fjórum sinnum næstu átta árin. Það var síðan fyrir örfáum vikum aó hún hringdi og bað mig að giftast sér, sagði Cage í sjónvarps- viðtali skömmu eftir giftinguna. Cage segir Patriciu vera sannan sálufélaga og þá persónu sem ég myndi vilja vera ef ég væri kona. I Cindy Craw- 1 ford segist enn eiga mikið ólært í leik- listinni. Ekki er langt síðan fréttir bárust frá Hollywood af enn einu Patricia Arquette lætur ganga á eft- ir sér. stjömuhjónabandinu. Nicolas Cage og Patricia Arquette gengu í Nicholas Cage beið í átta ár eftir draumastúlkunni. Vlðurkennlr vankanta sína Fyrirsætan Cindy Crawford reynir sig nú á nýju sviði. Hún hefur snúið sér að kvikmyndaleik og væntanleg er myndin Fair Game, þar sem hún leikur á móti William Baldwin. er um spennumynd að ræða og segir Crawford það létta henni verkið og auðveldara sé að leyna því að hún sé ekki sérlega góð leikkona. Ég er alveg örugglega engin Meryl Streep en þessi mynd þarfnast þess heldur ekki, segir Craw- ford. Hún segir það hafa hjálpað sér mikió að Baldwin sé mótleikarinn enda hafi þau þekkst um 8 ára skeið. Sagan segir að unnusta hans, leikkonan Chynna Phillips, hafi ekki verið ánægð með það hversu vinalegir aöalleikendurnir voru á meðan á tökum stóö. Eftir aó hafa séð ástarsenur þeirra í myndinni skildi Chynna eftir haröorð skilaboð á símsvara fyrirsætunnar þar sem hún ráðlagði Cindy að láta karl sinn í friði. Ef marka má ummæli Cindy eftir að tökum lauk er þó ekki líklegt að sambandið við Baldwin nái út fyrir hvíta tjaldið. Hún segir hann hafa troðið í sig illa þefjandi samlokum áður en ástaratriðin voru mynduð og hún hafi liðið fyrir það. Einn daginn hlýtur hann aó hafa étið einhvers konar ítalska samloku með kryddpylsu og hvítlauk á milli. Ég spurði hann hvers vegna hann bætti ekki túnfisk í safnið og gcrði endanlega útaf við mig, sagði Cindy um þann andfúla. Nú er barist um að fá Cindy til að leika í væntanlegum myndum. Wamer Bros hefur gert samning við hana um aðra mynd og þrátt fyr- ir að enn hafi ekki fundist hentugt viðfangsefni fær hún tvöföld þau laun sem hún fékk fyrir Fair Game, eða um 2 milljónir dollara.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.