Dagur - 16.08.1995, Síða 15

Dagur - 16.08.1995, Síða 15
IÞROTTIR Miðvikudagur 16. ágúst 1995 - DAGUR - 15 FROSTI EIÐSSON Knattspyrna: Hlynur fékk góöa dóma Hlynur Birgisson fékk góða dóma fyrir leik sinn um síðustu helgi með Örebro. Liðið lék þá gegn Malmö á heimavelli og sigraði 5:0 óg lék Hlynur með Örebro síðustu áttatíu mínútur leiksins, ekki síðustu tíu mínút- urnar eins og ranghermt var í Degi í gær. „Við vorum ekki búnir að skora mark í fimm leikjum áður en það kom að þessum leik en skoruðum iangflest mörkin í fyrra,“ sagði Hlynur sem fékk þrjár stjörnur í tveimur blöðum sem þýðir að hann hafi átt mjög góðan leik og í tveimur öðrum fékk hann góðan vitnisburð. „Liðin hafa verið að reyta stig hvert af öðru og þrátt fyrir að okk- ur hafi ekki gengið neitt sérstak- lega vel erum við í fjórða sætinu og sex til sjö stigum frá toppn- um.“ Það var hins vegar ekki af góðu sem Hlynur kom inná gegn Mal- mö, hægri kantmaður liðsins meiddist á ökkla og talið er að hann verði frá í mánuð. Hlynur verður því líklega í byrjunarliðinu á laugardaginn þegar liðið Ieikur útileik gegn Gautaborg. Handknattleikur: Andrés þjálfar kvennalið ÍBA Andrés Magnússon, sem þjálf- að hefur yngri kvennaflokka hjá KA í handknattleik hefur verið ráðinn þjálfari ÍBA sem verður með lið í 1. deild kvenna í vetur og hann mun jafnframt stýra 2. flokki kvenna hjá KA. Ljóst er að ÍBA kemur til með að tefla fram mjög ungu liði í dcildinni. „Það má eiginlega líta á þetta sem tilraun. Arangurinn fer að einhverju leyti eftir aðstöðunni sem við fáum og ef hún verður þokkaleg eigum við að geta staðið okkur gegn nokkrum lið- anna í deildinni. Liðið verður skipað stúlkum sem komu upp úr þriðja flokki en líklega einnig steipum sem enn eru í þriðja og fjórða flokki. Þá hafa eldri stúlk- ur æft þrátt fyrir að þær hafi ekki verið með lið á ísiandsmót- inu.“ íslandsmeistaramótið í sandspyrnu í Glerárdal Meistaratitillinn í sjónmáli hjá Einari - sigraöi í tveimur flokkum í Glerárdalnum Einar Gunnlaugsson frá Akureyri er nokkurn veginn öruggur um að tryggja sér Islandsmeistaratitilinn í sandspyrnu í flokki sérútbúinna bíla. Annað mótið af þremur á ís- landsmótinu var haldið á braut í Glerárdalnum og Einar gerði sér lítið fyrir og sigraði í tveimur flokkum, þar sem hann tryggði sér einnig sigurinn í „allt-flokki“ þar sem öll farartæki geta keppt. Allt bendir ti\ þess að tveir Akur- eyringar hampi fslandsmeistaratitli í sandspyrnu því Einar Birgisson hef- ur einnig sigrað á báðum mótunum. Hann keppir í fólksbílaflokki á bif- reið sinni Chevrolet Nova. Áhuginn er gjarnan mestur fyrir sérútbúna flokknum þar sem kraft- urinn er mestur. Einar keppti á far- artæki sínu, „Norðdekkdrekanum“ og lenti í úrslitunum gegn Gísla G. Jónssyni sem keppti á bifreið sinni „Kókómjólkinni." Einar sigraði ör- ugglega í fyrri ferð þeirra og tók framúr Gísla í síðari ferðinni eftir Einar Birgisson frá Akureyri sigr- aði í flokki fólksbíla á Chevrolet Nova. Mynd: GG að hafa setið eftir í rásmarkinu en Helgi Schiöth varð í þriðja sæti á „Frissa fríska.". „Eg er nokkuð öruggur með sig- urinn í sandinum. Ég held að það dugi mér að mæta í síðasta mótið og keppa í einni grein. Möguleikarnir í torfærunni eru hins vegar litlir en ég á þó einhverja möguleika á 2. sæt- inu,“ sagði Éinar sem var reyndar ekki allskostar ánægður með braut- ina sem var nokkuð grýtt. Einar sagði að besti tími hans í mótinu, 4:58 sekúndur væri nokkuð frá hans besta en á góðum brautum væri hægt að komast niður fyrir fjórar sekúndurnar. Mótið fór fram í blíðskaparveðri og um 200 hundruð áhorfendur fylgdust með mótinu. Ingólfur Jónsson frá Akureyri sem sigraði á fyrsta mótinu í sand- spyrnu í mótorcrosshjóla datt á hjóli sínu og þurfti að hætta keppni. Flokkur mótorcrosshjóla: 1. Karl Gunnlaugsson 2. Finnur Aðalbjörnsson 3. Þorvaldur Ásgeirsson Flokkur fólksbíla: 1. Einar Birgisson 2. Bjarni Hjaltalín 3. Almar Sævarsson Flokkur jeppa: 1. Gunnar Guðmundsson 2. Kristján Hreinsson 3. Jóhann Björgvinsson Opinn flokkur: 1. Bogi Arnarsson 2. Ásmundur Stefánsson 3. Jón Haukur Stefánsson Sérútbúinn flokkur: 1. EinarGunnlaugsson 2. Gísli G. Jónsson 3. Helgi Schiöth Allt-flokkur: 1. Einar Gunnlaugsson 2. Einar Birgisson 3. Jóhann Björgvinsson Handknattleikur: KA-stúlka í landsliöshópi Anna Bryndís Blöndal, leik- maður í 3. flokki KA í hand- jj knattleik var valin í sextán 11 manna landsliðshóp 16-18 ára U landsliðsins sem heldur til Þýskalands í keppnis- og æf- ingaferð í dag. Islenska liðið áætlar að keppa við þýska jafn- aldra sína. Firmakeppni KA í knattspyrnu Firmakeppni í knattspyrnu fer fram á vegum KA á knatt- spyrnuvöllum félagsins dagana 25. og 26. ágúst. Skráningar- frestur er til miðvikudagsins 23. Tekið er á móti skráning- um í síma 4626615 á milli kl. 10-12 fyrir hádegi og í síma 4623482 allan daginn. Þátt- tökugjald er kr. 10.000.- Leikið er á litlum völlum með sjö í liði. Mót hjá GA Viking brugg mótið f golfi verður haldið á Jaðarsvellinum á sunnudaginn. Ræst verður út frá klukkan 10. Keppni er með höggleik og glæsileg verðlaun með og án forgjafar og nándar- verðlaun á par þrjú brautum. Alfrcð Gíslason og félagar hjá KA mæta KA og Aftureldingu í fyrstu um- feröum 1. deildarinnar. Handknattleikur: Afturelding verður fyrsti mótherji KA nyröra Bikarmeistarar KA í hand- knattleik mæta KR-ingum í fyrsta leik Islandsmótsins sem hefst 17. næsta mánaðar. Leikur liðanna fer fram í Laugardals- höll en þremur dögum síðar á KA heimaleik gegn Aftureld- ingu. Verið er að leggja lokadrög á mótaskrá íslandsmótsins en eftir- talin lið mætast í 1. umferðinni sem fram fer þann 17. september: KR-KA, FH-IBV, Selfoss-Stjarn- an, ÍR- Grótta, Valur-Haukar og Víkingur-UMFA. í 3. umferð leikur KA gegn FH úti og þar á eftir við Hauka á heimavelli. ÍBA á fyrsta leikinn í 1. deild kvenna þegar liðið leikur gegn Haukum í Hafnarfirði þann 29. september og daginn eftir í Laug- ardalshöll gegn KR. Einar Gunnlaugsson kampakátur með bikarinn í flokki sérútbúinna bíla. Við hlið hans standa þeir Gísli G. Jónsson sem varö annar og Helgi Schiöth sem hafnaði í þriðja sæti. Mynd: GG Mynd: GG Með 650-700 hestöfí „Eg hef ekki tekið það saman hvað bíllinn er úr mörgum pört- um en ætli hann sé ekki búinn til úr 15-20 bíltegundum,“ segir Einar Gunnlaugsson um Norð- dekkdrekann sinn sem sést hér á myndinni fyrir ofan. „Grindin er úr Bronco en finna má hluti úr mörgum öðrum tegundum. Það má nefna, Benz, Ford, Citroen og Trabant svo eitthvað sé nefnt.“ Bensíntankurinn er úr síðast- nefndu tegundinni og hluti af stýrisútbúnaðinum er fenginn úr lyftara. Einar sagði að vélin hefði ekki verið mæld nákvæmlega en hann gæti trúað að 650-700 hest- öfl væru undir húddinu og síðan væri bætt á kraftinn með því að sprauta nitrogasi inn á vélina. 1 i H|°°°n □ d Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Hamar sími 461 2080

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.