Dagur - 22.08.1995, Side 5

Dagur - 22.08.1995, Side 5
Bretamir landa Ted Watt og Watson landa hér fallegum flugulaxi úr Hofsá í Vopnafirði. Góðir kaflar hafa komið í veiðina í ánni á síðustu dögum og allt stefnir í að hún verði nálægt veiðinni í fyrra. Hofsá: Þriðjudagur 22. ágúst 1995 - DAGUR - 5 Allt fyrir veiðimanninn MITCHELL ^Abu Garcia Daiwa Opið á laugardögum VEIÐI- SPORThf Kaupvangsstræti 21 Sími 96-22275 Veiðileyfi Laxá í Aðaldal Múlatorfa Staðatorfa Fnjóská Eyjafjarðará Hörgá Reykjadalsá Húseyjarkvísl Presthvammur Blanda Veiðideild Hjón með 20 laxa á einum degi „Hér eru komnir 700 laxar og raun meira ef við tökum með í reikninginn það sem veiðst hefur á silungasvæðinu. En þetta gengur vel þessa dagana og áin fer í 850 til 900 fiska í sumar sem er nálægt veiðinni í fyrra," segir Þórhildur Þórhallsdóttir í veiðihúsinu Ár- hvammi við Hofsá í Vopnafirði. Sunnudagurinn í Hofsánni var mjög góður því þá komu 36 laxar á land, 26 fiskum meira en á laug- ardaginn. Dæmi eru um ágæt skot í ánni á síðustu dögum, til að mynda veiddi holl frá Akureyri tæplega 80 fiska á þremur dögum sem telja verður mjög góða veiði. I fyrradag voru það erlend hjón sem áttu besta árangurinn á und- anförnum vikum, veiddu 20 laxa á deginum á 1. svæði. Þessa dagana er blandaður hópur við veiðar í Hofsá, veiðimenn frá þremur löndum. „Veiðin var mjög róleg í byrjun tímabilsins en svo komu góðir kaflar inn á milli eins og t.d. hjá Akureyringunum sem fengu tæp- lega 80 fiska á þremur dögum. Þeir voru mjög ánægðir með þetta enda nærri helmingi meira en í fyrra,“ sagði Þórhildur ennfremur. Þokast áfram í Miðfirðinum „Ætli við séum ekki komnir með 760 laxa og við verðum að fram til 10. september,“ sagði Böðvar Sigvaldason, formaður Veiðifé- lags Miðfjarðarár. Hljóðið var einnig þokkalegt í Gylfa Gylfasyni í veiðihúsinu Flóðvangi við Vatnsdalsá. Þar hafa veiðst tæplega 400 fiskar það sem af er tímabilinu en þó bendir margt til að áin sé fisklítil. Samt sem áður er þetta örlítið betri veiði en var í fyrrasumar. Annars má telja að vel megi una við tímabilið í húnvetnsku án- um í sumar. Flestar eru að skila betri veiði en í fyrra og sumar bæta sig talsvert. JÓH .. jú.þflð er alveg rétt hjd þér, vio seljum allt nema fiskinn... Ein glæsilegasta veiði- vöruverslun norðan- lands. Allt fyrir veiðimanninn á einum stað. Verið velkomin! Kornnir eru 650 laxar á land úr Víðidalsá í sumar og eru menn spenntir að sjá hvað gerist á loka- kafla veiðitímabilsins því ekki er að sjá annað en áin sé full af fiski. Gunnar Bollason í veiðihúsinu Tjarnarbrekku sagði í samtali við blaðið í gær að þetta eigi ekki að- eins við um laxinn heldur líka sil- - segir Gunnar Bollason ung sem veiðist með albesta móti í ánni núna. „Hér var tregara í síðasta holli en þá spilaði veðrið inní. Núna er kominn dumbungur og rigning þannig að við búumst við að þá komi líf í veiðina. Það er nóg af fiski, bæði í Fitjánni og Víðidals- ánni, og sömuleiðis feikileg sil- ungsveiði. Það hafa líka veiðst yf- Laxveiðin: Risarnir úr Aðaldal og Víðidal stærstir - báðir veiddir af erlendum veiðimönnum Þó veiðimenn og aðstandendur laxveiðiánna á Norðurlandi gætu sætt sig við betri veiði þetta sum- arið geta þeir þó huggað sig við að tveir stærstu laxar sumarsins koma úr norðlenskum ám. Snemrna á veiðitímabilinu setti breskur veiðimaður í 26 punda lax í Víðidalsá og reyndist hann sá ir 20 laxar á silungasvæðinu fyrir utan allar bleikjurnar, þannig að við kvörtum ekki,“ sagði Gunnar. f£SS0) nestileiruvegi, 1 1 sími461 3008 - 9. stærsti fram að þeim tíma og stóð jrað met um nokkurra vikna skeið. Þá fékk veiðimaður frá Venesúela 25 punda lax á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal síðari hluta júlímánaðar og þar við stendur í baráttunni um stærstu laxa tímabilsins. íslensku veiðimennirnir þurfa að taka sig á á síðasta sprettinum ef slá á þess- um erlendum köppum við. JÓH Vöðlur Spúnar Hjól Flugur Maðkar Víðidalsá: Ain er full af físki

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.