Dagur


Dagur - 22.08.1995, Qupperneq 8

Dagur - 22.08.1995, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 22. ágúst 1995 ÍÞRÓTTIR Kvennaknattspyrna: Valur bikarmeistari Valur varó á sunnudaginn bikarmeistari kvenna í knattspymu þegar liðið sigraði KR 1:0. Það var Guðrún Sæmundsdóttir, vamar- maður Vals, sem gerði draum Vesturbæjarliðs- ins um tvöfaldan sigur í bikamum, að engu þegar hún skoraði mark eftir homspymu í síð- ari hálfleiknum. KR mætir Fram í úrslitaleik bikarsins í karlaflokki nk. sunnudag. Greifamótið í dag Greifamót Golfklúbbs Akureyrar sem verið hefur á fimmtudögum í sumar verður leikið í dag, þriðjudag. Ástæðan er sú að Sveitakeppni unglinga 15-18 ára fcr fram á Jaðarsvelli um helgina og hefst unglingamótið á fimmtudag- inn. Alþjóðlegt júdómót: Bjarni lagði Vernharð Júdókappamir Vcmharð Þorleifsson og Bjami Friðriksson glímdu um 3. sætiö á Opna banda- ríska meistaramótinu í júdó sem haldið var um helgina. Bjami lagði Vernharó í glímunni um bronsið en Vemharð hafnaði síðan í fimmta sætinu í þessum flokki. Hann sigraði þrjá fyrstu andstæðinga sína, Bandaríkjamann, Ge- •orgíu- og Úkraníumann en tapaði síðan fyrir Stevens, silfurverðlaunahafa frá því á Olymp- íuleikunum í Barcelona. Ný stjarna í tennis Gunnar Einarsson, sautján ára piltur sem búió hcfur í Bandaríkjunum undanfarin ár gcrði scr lítið fyrir og varð Islandsmeistari í karlaflokki í tennis um síðustu helgi. Gunnar sigraði margfaldan meistara, Einar Sigurgeirsson í úr- slitum 7:6, 1:6 og 7:5. Hrafnhildur Hannes- dóttir cndurhcimti titilinn af Stcfaníu Stcfáns- dóttur. Viðurcign þcirra í úrslitum lauk mcð sigri Hrafnhildar 7:6 og 6:3. Knattspyrna - Svíþjóö: Tap hjá Örebro Möguleikar Örebro, liðs Hlyns Birgissonar og Amórs Guðjohnsen á sænskum meistaratitli eru því sent næst úr sögunni cftir 3:1 tap gegn Gautaborg á útivclli á laugardaginn. Hlynur lék mcð Orebro cn liðið vcrður aftur í sviðs- ljósinu á morgun þegar það á síðari Evrópu- leik sinn gegn liöi frá Luxemborg. Gautaborg styrkti mjög stöðu sína með sigrinum og er komið með 27 stig en Helsingborg er á toppn- um ntcð 30 stig cftir 1:0 sigur gcgn Dcgerfors. Hópferð hjá Dalvíkingum Knattspymulið Dalvíjair sem á í harðri baráttu í 3. deild karla á Islandsmótinu fyrirhugar hópferð á leik liðsins við Selfoss sem fram fer á föstudag. Ætlun þeirra er að dvelja í Reykja- vík og fylgjast jafnframt mcð bikarúrslita- Iciknum í karlaflokki. Stangarstökk kvenna: Vala bætti Norðurlandametið Sautján ára stúlka úr ÍR, Vala Flosadóttir bætti Norðurlandametið í stangarstökki um einn sentimetra þegar hún fór yfir 3,81 metra á Reykjavíkurlcikunum. Vala átti sjálf eldra metið en það var sett í Svíþjóð þar scm hún hefur verió búsctt síðustu þrjú árin. Heims- metið í stangarstökki kvenna er 4,20 en það var einnig sett á föstudagskvöldið, á stórmóti í Köln þar sem Daniela Bartova frá Tékklandi fór yfir 4,20 mctra. Verður Ágúst á bekknum? Þróttarar voru mjög óhressir með að Bragi Bergmann dómari skyldi gefa Ágústi Hauks- syni leikmanni og þjálfara liðsins gula spjald- ið í leiknum gcgn KA á Akurcyrarvellinum sl. sunnudagskvöld. Spjaldið er það sjötta sem Ágúst fær í sumar og hann verður þ'ví að taka út leikbann í næstu umferö en þá á Þróttur leik gegn Stjömunni. Hljómar það kunnuglega? Jú, títtnefndur Ágúst var einmitt í banni þegar Stjaman og Þróttur mættust í fyrri umferóinni og Þróttarar hugðu það leyfilcgt að Ágúst mundi stjóma liði sínu af bekknum. Fram- haldið þekkja flestir, Stjaman lagði fram kæru og var dæmdur sigurinn í leiknum og síöan hefur allt gengið á afturfótunum hjá þeim röndóttu, - þangað til um helgina. Nú cr það bara spumingin hvort Ágúst stjómar sínum mönnum af bekknum gegn Stjömunni. Knattspyrna - KAtvis Þórsarar tóku öll stigin með sér frá Reykjavík eftir sigur á IR 1:2. A myndinni má sjá lcikmenn liðsins fagna marki fyrr í sumar. Knattspyrna - 2. deild karla: Þór skaust upp í þriðja sætið með sigri á ÍR 1 Þórsarar hafi nert út Marteinsson os Hreinn voru síðan áttu meðal annars stant Segja má að Þórsarar hafi gert út um leikinn við ÍR í Breiðholtinu á fyrsta stundarljórðungnum. Á þeim tíma höfðu þeir skorað tví- vegis og slakir ÍR-ingar voru aldrei nálægt því að jafna. Loka- tölur urðu því 1:2 sigur Þórs sem þar með skaust upp í þriðja sæti deildarinnar. Ámi Þór Árnason skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Þór þcgar á fyrstu mínútunni þegar hann slapp framhjá varnarmönnum IR og átti gott skot frá vítateig sem hafnaði í netinu. Hreinn Hringsson bætti öðru marki við eftir fjórtán mínútna leik þegar hann skallaði knöttinn í markiö eftir hornspymu. Andri Marteinsson og Hreinn voru síðan báðir nálægt því að bæta við mörk- um, skoti Ándra var bjargað á línu og Hreinn Hringsson skaut knettin- um i hliðarnetið eftir að hafa slopp- ið innfyrir vöm ÍR. Heimamenn fengu sín marktækifæri þrátt fyrir að vera minna inn í leiknum, þar á meðal sláarskot. Leikurinn jafnaðist í síðari hálf- leiknum og bæði liðin fengu þokka- leg marktækifæri. Mark IR-liósins kom á 57. mínútu. Einn vamar- manna Þórs missti knöttinn framhjá sér á blautum vellinum og Guðjón Þorvaróarson nýtti sér það og minnkaði muninn eftir aó hafa sloppið inn í vítatciginn. Þórsarar áttu meðal annars stangar- og sláar- skot í hálfleiknum en fleiri urðu mörkin ekki. „Það er langsóttur möguleiki á að við komumst upp en það hlýtur að vera keppikefli allra liða aó stefna að góðu sæti í deildinni. Mér fannst aldrei vera nein hætta á að við misstum forskotið frá okkur því IR-ingarnir voru ekki að búa mikið til í leiknum,“ sagði Nói Bjömsson, þjálfari Þórs. Þór: Ólafur Pétursson, Sveinn Palsson, Guðmundur Hákonarson, Þórir Askels- son, Öm Viðar Arnarson, Birgir Þór Karlsson, Sveinbjöm Hákonarson, Elmar Eiríksson (Páll Gíslason), Andri Marteins- son, Árni Þór Árnason, Hreinn Hringsson. Bátasiglingar - íslandsmót: Andri og Jens hrepptu meistaratitla Keppendur úr Siglingafélaginu Nökkva á Akureyri voru sigur- sælir þegar íslandsmótið í báta- siglingum var haldið í Skerjafirð- inum um helgina. Andri Pálsson sigraði í keppn- inni í Topper-flokki en það er sú tegund báta scm keppt er á. Andri bar þar siguroró af Herði Finn- bogasyni úr Nökkva því báðir fcngu jafnmörg refsistig. Andra var úrskurðaður sigur vegna þess að lakasta ferð hans var betri en hjá Jcns en samkvæmt reglum mega siglingarmcnn láta sex bestu ferðir af sjö tclja. Jens Gíslason sem einnig er í Nökkva sigraði örugglega í Eur- ope-flokki án þess að fá refsistig. Snorri Valdimarsson úr Ymi Kópa- vogi varð annar með 11,7 refsistig og Gunnar Hallsson Nökkva í þriðja sæti mcð 17,4 refsistig. Olafur Víðir Olafsson úr Ymi sigraði í A-flokki Optimist báta með þrjú refsistig og Martin Swift frá Brokey í Rcykjavík í B-flokkn- um mcð sama stigafjölda. Mótið stóö frá föstuc’egi til sunnudags og var stígandi í vind- inum. Kyrrt veður á föstudaginn en farið að blása vel síðasta keppn- isdaginn. entapa KA-mönnum gekk illa að halda forskoti sínu gegn Þrótti í leik liðr anna á Akureyrarvellinum e á sunnudagskvöld. Akureyrarlíðið náði forystunni í tvígang en gestr irnir náðu að jafna í bæði skiptin og skora síðan sigurmark sitt á lokamínútu leiksins. Ekki var liðin nema ein mínútá af leiknum þegar Höskuldur Þórhallst son skoraði fyrsta mark KA með skalla eftir homspymu Þorvaldar Makan Sigurbjömssonar og heima- menn voru heldur sterkari aðilinn fyrsta stundarfjórðung leiksins en eftir það komust Þróttarar betur inn í leikinn og Páll Einarsson jafnaði í 1:1 með föstu skoti sem Eggert Sig- mundsson rétt náði aö snerta með fingurgómunum. Snilldartilþrif hjá Dínó Ekki voru liðnar nema sex mínútur af síðari hálfleiknum þegar KA komst yfir í annað sinn og kom markið eftir stórkostleg tilþrif Eng- lendingsins Dean Martin á hægri kantinum. Dínó, eins og hann: er gjaman nefndur, skildi tvo vamar- Pétur Ormslev, þjálfari KA: „Vorum klaufar" „Við vorum klaufar. Við komumst yfir í báðum hálfleikunum . og kannski hafa leikmenn haldið að þetta yrði auðvelt,” sagði Pétur Ormslev, þjálfari KA eftir leikinn gegn Þrótti. „í heildina verður þaij að segjast að við vorum lakara lið- ið og skorti vilja og kraft. Það koma alltaf svona dagar og við verðum að kyngja því,“ sagði þjálf- arinn. Aðspurður um það hvers vegna vörnin hefði opnast oft sagði hann: „Við vorum of langt frá mönnunum og gáfum þeim þannig meiri tíma til að velja rétta menn til að gefa á.“ Það voru mikil fagnaóarlæti í her- búðum Þróttar eftir leikinn, en sigur- inn á sunnudagskvöldið var sá fyrsti frá því liðið sigraði IR í fjóröu um- feróinni sem leikinn var 12. júní. „Það var kominn tími á sigur hjá okkur. Vlð höfum oft spilaó ágæt- lega en með Iitlum árangri og ákváö- um í dag að breyta til, koma inn á völlinn með því hugarfari að berjast. Mér fannst baráttan mikil hjá báðum liðunum og nokkur harka sem oft fylgir í svona leikjum þegar blautt er. Spjöldin hefðu því getað orðið mun fleiri," sagði Ágúst Hauksson, þjálfr ari Þróttar. EIMSKA KNATTSPYRNAN Stan Collymorc byrjaði vel með Livcrpool og skoraði glæsilcgt mark gcgn Shcffield Wedncsday. Man. Utd. steinlá Enska úrvalsdeildin hófst um helgina og lofa leikirnir góðu fyr- ir veturinn. Meistarar Blackburn hóf tímabilið með sigri og sama er að segja um Newcastle og Li- verpool. Manchester United mátti hins vegar þola stóran skell gegn Aston Villa. Blackburn fékk draumabyrjun á hcimavelli gegn QPR. Strax á sjöttu mínútu fékk liðið vítaspyrnu sem Alan Shearer skoraði úr. Vítió var dæmt þegar Shearer lenti í vægu samstuði vió Danny Maddix innan vítateigs. Chris Sutton var nálægt því aó bæta við öðru marki í síðari hálfleiknum en tókst ekki og lokastaðan því 1:0. Það dró til tíðinda á 73. mínútu þegar mark- verði Blackburn, Tim Flowers var vísað af leikvelli fyrir að fella Tre- vor Sinclair, kantmann QPR innan vítateigs. Aston Villa hefur styrkt lið sitt mikið frá síðasta leiktímabili og liðið hreinlega valtaði yfir Manc- hester United. Ian Taylor skoraði fyrsta markið af stuttu færi eftir 14. mínútur og Mark Draper sem keyptur var frá Leicester í sumar bætti öðru marki við á 27. mín putu. Það var síðan Dwight Yorke sem skoraði þriðja mark Birming- hamliðsins; úr vítaspyrnu á 37. mínútu. Manchester United átti ekkert svar við stórleik Villa en náði þó aó minnka muninn á 83. mínútu þegar unglingurinn David Beckham sendi þrumufleyg í markió af löngu færi. Liverpool byrjaði á heimavelli

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.