Dagur - 27.09.1995, Síða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 27. september 1995
- LEIÐARI-----------------------
Náms- og húsnæðislánakerfíð
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓUFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN:
AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON,
HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285).
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
Samantekt sú sem Stúdentablaðið, málgang Stúd-
entaráðs Háskóla íslands, birtir í nýjasta tölublaði
sínu, þar sem þeirri spurningu er velt upp hvort
námsmenn standi frammi fyrir því að velja um náms-
lán eða húsnæði, er sláandi og hún styður það sem
Dagur hefur ítrekað haldið fram. Þessi grein sýnir
svart á hvítu að námslánabyrðin er orðin svo ískyggi-
leg að ungt fólk sem kynni að vilja fjárfesta í húsnæði
að námi loknu, jafnvel þótt það fái góða atvinnu, ræð-
ur ekki við það. Þetta segir líka þá sögu að miðað við
óbreytt húsnæðiskerfi getur þorri ungs fólks ekki
með góðu móti ráðist í húsnæðiskaup, það ræður
ósköp einfaldlega ekki við slíka fjárfestingu.
Greiðslubyrði húsnæðislána í viðbót við afborgun af
námslánum er meira en venjulegt fólk getur ráðið
við. Það er því ekki út í bláinn sem Stúdentablaðið
veltir því fyrir sér hvort ungt fólk verði í framtíðinni
að velja um að fjárfesta í menntun eða húsnæði.
Ráðhena menntamála hefur sagt í viðtölum að
ákvæði um endurgreiðsluhlutfaU námslána verði end-
urskoðað og það er vissulega fagnaðarefni. Vonandi
kemur eitthvað vitrænt út úr þeirri endurskoðun.
En þetta mál snertir líka ráðuneyti félagsmála og
því ber að fagna sem félagsmálaráðherra kynnti í fjöl-
miðlum um liðna helgi að til stæði að gefa fólki kost á
að taka húsbréfalán tO 40 ára í stað 25 ára. Þannig
ætti mánaðarleg greiðslubyrði af húsnæðislánum að
lækka, þótt vitaskuld hækki heildarkostnaður við
íbúðarkaupin.
Félagsmálaráðherra talaði líka tæpitungulaust um
félagslega húsnæðiskerfið og það var fyrir löngu
tímabært. Þetta kerfi er allt of dýrt, hvað sem þeir
stjórnmálamenn segja sem börðust hvað mest fyrir
því á sínum tíma. Félagslega íbúðakerfið hefur ekki
sem skyldi verið sá raunhæfi kostur sem til var ætlast
fyrir það fólk sem hefur lágar tekjur. Þær upplýsingar
sem fram komu í viðtölum við félagsmálaráðherra um
helgina eru sláandi, hann segir að ýmis sveitarfélög
séu komin í stórvanda vegna þeirra mörgu félagslegu
íbúða sem þau hafa orðið að leysa til sín á undan-
fömum misserum, íbúðirnar standi auðar og yfirgefn-
ar og komi engum að gagni. Þessar upplýsingar eru
heldur dapurlegur vitnisburður um félagslega íbúða-
kerfið.
SKÁK
Undanrásir íslandsmótsins í atskák:
Skákfélag Akureyrar á
fjóra menn í úrslítunum
- Gylfi Þórhallsson sigraði í undanrásunum á Akureyri
Þannig er liðsskipan hljómsveitarinnar „Norðan þrír + Ásdís“ í dag. Frá
vinstri: Hörður G. Ólafsson, Hilmar Sverrisson, Viðar Sverrisson og Ásdís
Guðmundsdóttir.
Undanrásir íslandsmótsins í at-
skák fóru fram um síðastliðna
helgi og var keppt í einum riðli á
Akureyri. Eftir harða keppni stóð
Sauðárkrókur:
Hljómsveitin Norðan þrír
bætir við sig söngkonu
Ný hljómsveit er tekin til starfa á
Sauðárkróki undir nafninu „Norð-
an þrír + Ásdís“. Hér er þó á ferð-
inni sama sveit og hefur starfað
undir nafninu „Norðan þrír“ en í
sumar gekk Ásdís Guðmundsdótt-
ir, söngkona, til liðs við þá félaga
og var nafni hljómsveitarinnar þá
breytt.
Hljómsveitina hafa skipað frá
því í fyrrahaust þeir Hilmar Sverr-
isson, hljómborðsleikari, Viðar
Sverrisson, trommari og Hörður
G. Olafson, bassaleikari. Vetrar-
starfið er hafið af krafti og hefur
sveitin leikið á nokkrum dansleikj-
um í haust við góðar undirtektir og
um komandi helgi verður hún á
sínum fyrsta dansleik á Akureyri
eftir að Ásdís byrjaði að syngja
með hljómsveitinni. „Norðan þrír
+ Ásdís“ verður á dansleik í Sjall-
anum á föstudagskvöld.
Meðlimir hljómsveitarinnar
segja að áfram verði leikin fjöl-
breytt tónlist og reynt að höfða til
allra aldurshópa enda hafí sveitin
á að skipa reyndum hljómlistar-
mönnum sem þekki vel til áhuga-
sviðs dansleikjagesta. JOH
Barnakór Glerárkirkju:
Vetrarstarfið að hefiast
Undanfarin ár hefur bamakór
starfað við Glerárkirkju á Akur-
eyri og er kórinn nú að hefja vetr-
arstarf.
í Barnakór Glerárkirkju hafa
verið um þrjátíu 10-12 ára börn og
hefur hann tekið þátt í ýmsum at-
höfnum í Glerárkirkju, t.d. sungið
mánaðarlega í fjölskylduguðs-
þjónustum, tekið þátt í aðventu-
kvöldi og séð um söng við guðs-
þjónustu á annan dag jóla. I vor
fór kórinn í æfingabúðir að Vest-
mannsvatni og dvaldi þar eina
helgi ásamt bamakór úr Borgar-
hólsskóla á Húsavrk.
í vetur verður starfíð ineð líku
sniði og fyrr og verða æfingar á
miðvikudögum kl. 15.30-16.30 í
Glerárkirkju. Kórinn er opinn
krökkum sem áhuga hafa á að
vera með. JÓH
Kyrrðarstundir í
Glerárkirkiu
Eins og undanfarin ár verða í vet-
ur kyrrðarstundir í Glerárkirkju í
hádeginu á miðvikudögum frá kl.
12 til 13. Þar mun þeim sem vilja
og geta gefast tækifæri til að
draga sig stutta stund út úr amstr-
inu og eiga helga stund í kirkj-
unni. Hver samvera samanstendur
af orgelleik, lofgjörð, fyrirbæn og
altarissakramenti. Að helgistund
lokinni í kirkjunni býðst sfðan
þátttakendum að þiggja léttan
málsverð á vægu verði í safnaðar-
sal kirkjunnar. Þær eru of fáar
stundimar sem við gefum okkur
til að koma saman í slíkum til-
gangi en ómæld sú blessun sem af
því hlýst.
(Fréttatilkynning frá Glerárkirkju)
Gylfl Þórhallsson uppi sem sigur-
vegari og með sigrinum öðlaðist
hann rétt til keppni í úrslitum í
Reykjavík í janúar næstkomandi.
Harkan í keppninni á Akureyri
var mikil og allt fram á síðustu sek-
úndur umhugsunartímans var óljóst
hver bæri sigur úr býtum. Enginn
komst taplaus frá þessum riðli og
er það til marks um baráttuna.
Gylfi Þórhallsson fékk sex
vinninga af átta mögulegum og í
öðm sæti hafnaði Jón Björgvins-
son með 5,5 vinninga. í þriðja til
fjórða sæti voru þeir Smári Ólafs-
son og Þór Valtýsson, báðir með
fimm vinninga.
í undanrásum í Reykjavík
kepptu nokkrir félagar úr Skákfé-
lagi Akureyrar. Af þeim komust
Áskell Öm Kárason og Jón Árni
Jónsson áfram í úrslitakeppnina.
Þetta þýðir að Skákfélag Akureyr-
ar mun eiga fjóra keppendur í úr-
slitum í janúar eða fjórðung kepp-
enda. Til viðbótar við þá þrjá sem
nefndir hafa verið keppir Margeir
Pétursson, stórmeistari, sem á þar
sæti.
Næsta mót hjá Skákfélagi Ak-
ureyrar verður annað kvöld en það
mót er fyrir 45 ára og eldri og
verða tefldar hraðskákir. Mótið
hefst í Skákheimilinu kl. 20. JÓH
Almanak HI fyrir
1996 komið út
Út er komið Almanak fyrir ísland
1996, sem Háskóli íslands gefur
út. Þetta er 160. árgangur ritsins,
sem komið hefur út samfellt síðan
1837. Dr. Þorsteinn Sæmundsson,
stjömufræðingur hjá Raunvísinda-
stofnun Háskólans, hefur reiknað
almanakið og búið það til prentun-
ar. Ritið er 96 bls. að stærð.
Auk dagatals flytur almanakið
margvíslegar upplýsingar svo sem
um sjávarföll og gang himin-
tungla. Þar er að finna stjörnukort,
kort sem sýnir áttavitastefnur á ís-
landi, yfirlit um mælieiningar,
veðurmet og margt fleira. Af nýju
efni má nefna töflu sem sýnir veð-
urfar í Reykjavík og á Akureyri
og grein um hlutfall birtu og
myrkurs á mismunandi breiddar-
stigum. Loks eru í almanakinu
upplýsingar um helstu frídaga
fjögur ár fram í tímann.
Háskólinn annast sölu alman-
aksins og dreifingu þess til bók-
sala. Almanakið kemur út í 5000
eintökum, en auk þess eru prentuð
2000 eintök sem Þjóðvinafélagið
gefur út sem hluta af almanaki
sínu með leyfi Háskólans.
Ólí G. sýnir
blómamyndir
á Café Olsen
Þessa dagana sýnir Óli G. Jó-
hannsson, myndlistarmaður á Ak-
ureyri, nokkrar blómamyndir á
veggjum Café Olsen við Ráðhús-
torg á Akureyri. Myndimar eru
allar til sölu. Myndirnar verða til
sýnis á kaffihúsinu næsta hálfan
mánuðinn á opnunartíma þess.