Dagur - 27.09.1995, Page 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 27. september 1995
Sláturtíð hjá Ferskum afurðum hf. á Hvammstanga komin á fullt:
Gef ekki mikið fyrir meintan birgðavanda
„Markaðshorfur fyrir kindakjöt
nú í haust eru ágætar. Við selj-
um afurðir til ýmissa aðila á
þessum frjálsa markaði, eins og
hann kemur fyrir hverju sinni.
En ég gef ekki mikið fyrir um-
ræðu um meintan birgðavanda.
Mikið af kindakjöti er hreint
ekkert annað en drasl og refa-
fóður; afskurður og kjöt af
gömlum rollum. Slíku kjöti má
henda og þegar það hefur verið
gert fer þetta 2.600 tonna kjöt-
ijall nú aldeilis að lækka,“ sagði
Sigfús Jónsson, sláturhússtjóri
hjá Ferskum afurðum á
Hvammstanga, í samtali við
Dag.
Sláturtíð í norðlenskum slátur-
húsum er nú komin í fullan gang
og mikið var umleikis í sláturhúsi
Ferskra afurða þegar blaðamaður
Dags kom þar við á dögunum. A
þessari haustvertíð starfa þar nú
25 starfsmenn, flestir úr Vestur-
Húnavatnssýslu og af Hvamms-
tanga og einnig nokkrir Dala-
- segir Sigfús Jónsson sláturhússtjóri
menn. Sláturtíðin stendur í fimm
vikur og er áformað að slátra
1.700 til 2.000 fjár á viku. Ein-
hverjir dagar munu svo alltaf falla
út í miðri viku þegar: „... menn
þurfa að fara í göngur eða í réttir.
Við verðum að taka tillit til þess
og spila þetta á mannlegu nótun-
um,“ segir Sigfús.
Að sögn Sigfúsar Jónssonar
verður hjá fyrirtæki hans mest
slátrað af húnvetnsku fé nú í
haust. Einnig leggja nokkrir
bændur úr Saurbæ í Dölum þar
inn fé sitt, sem og sauðfjárbændur
við Arnarfjörð og við Isafjarðar-
djúp. Það hafa þeir gert í nokkur
ár, enda þótt sláturhús sé á þeirra
heimaslóðum. Fallþunga dilka í ár
segir Sigfús vera allgóðan, en þó
eitthvað minni en í fyrra. Þá voru
dilkar vænir, meðalþyngdin 16,0
kg. -sbs.
Sigfús Jónsson segir áforniað að
slátra 7.500 til 8.000 fjár hjá fyrir-
tæki sínu nú í haust.
.. mm J HEi ...
Hiú
Mikið var unileikis í vinnslusal Ferskra afurða þegar þessi mynd var tekin.
Myndir: Sigurður Bogi
Hljóðbókaklúbburinn:
Gefur út síðari hluta
Góða dátans Svejk
Ut er komin hjá Hljóðbóka-
klúbbnum seinni hluti skáldsög-
unnar Góði dátinn Svejk eftir
Jaroslav Hasek í íslenskri þýð-
ingu Karls ísfelds. Það er Gísli
Halldórsson leikari sem les sög-
una, en upptakan var upphaf-
lega gerð árið 1979 til flutnings í
Ríkisútvarpinu. Fyrra bindi
hljóðbókarinnar kom út í febrú-
ar sl. og markaði upphaf útgáfu
Hljóðbókaklúbbsins. Lesendur
hafa því margir mátt bíða
óþreyjufullir eftir því að heyra
söguna alla.
Góði dátinn Svejk er ein fræg-
asta skemmtisaga sem skrifuð hef-
ur verið á þessari öld og fór á sín-
um tíma sigurför um heiminn.
Sagan kom fyrst út á íslensku
1942-1943 og varð strax vinsæl,
enda hefur hún margsinnis verið
endurútgefin. í túlkun Gísla Hall-
dórssonar er dregin upp eftir-
minnileg mynd af dátanum Svejk
og gefur það hljóðútgáfunni aukið
gildi.
Seinna bindi Góða dátans
Svejk er á sex snældum, en alls er
verkið útgefið á 12 snældum og
tekur um 12 klukkustundir í flutn-
ingi.
Útgefandi hljóðbókarinnar
Góði dátinn Svejk II er Hljóð-
bókaklúbburinn. Hljóðritunin var
gerð hjá Ríkisútvarpinu, en um
tjölföldun sá Hljóðbókagerð
Blindrafélagsins. Kápu hannaði
Þórhildur Elín. Hljóðbókin verður
fyrst um sinn aðeins seld félögum
í Hljóðbókaklúbbnum og kostar
1.995 kr.
Adalskodun hf. í Hafnarfirði segir ójöfn skilyrði á markaði hamla
því að fyrirtækið geti hafíð störf á Norðurlandi:
Verður að jafiia samkeppnisstöðu
- segir framkvæmdastjórinn
„Við getum ekki farið í upp-
byggingu skoðunarstöðva úti á
landsbyggðinni nema sam-
keppnisstaða okkar og Bif-
reiðaskoðunar íslands hf. sé
jöfnuð. Fyrr getum við ekkert
gert og nú er verið að skoða
þessi mál innan dómsmálaráðu-
neytisins,“ sagði Bergur Helga-
son, framkvæmdastjóri Að-
alskoðunar hf. í Hafnarflrði, í
samtali við Dag.
Samkvæmt gildandi reglugerð
er skoðunarstöðvum bifreiða, sem
eru í eigu einkaaðila, gert skylt að
starfa einnig úti á landi og þá til
jafns við þá markaðshlutdeild sem
þær afla sér á Reykjavíkursvæð-
inu. Aðalskoðun hf. í Hafnarfirði,
sem tók til starfa seint á síðasta
ári, hefur þegar aflað sér um 30%
hlutdeildar á þessum markaði og
er gert, samkvæmt áðurnefndri
reglugerð, að hefja starfsemi úti á
landi og starfa til samræmis við
þann veg sem fyrirtækið hefur afl-
að sér á höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn Bergs Helgasonar hef-
ur Bifreiðaskoðun íslands hf. ýmis
forréttindi sem aðrir á markaðnum
hafa ekki. Hefur til að mynda um-
sjón með samræmdri ökutækja-
skráningu, einkaleyfi til sérskoð-
unar á breyttum bifreiðum og hef-
ur jafnframt betra tölvukerfi sem
tryggir fyrirtækinu mun greiðari
aðgang að markaði en keppinaut-
arnir hafa.
Aðurnefndum atriðum segir
Bergur Helgason að þurfi að
breyta eigi Aðalskoðun hf. að geta
hafið störf úti á tandi, svo sem á
Norðurlandi. Málið sé nú í skoðun
innan ráðuneytis dómsmála og
vonast Bergur til að það skýrist og
skilyrði verði jöfnuð á næstunni.
-sbs.
Aðalskoðun hf. vill jafnari sam-
keppnisstöðu til að geta hafið starf-
semi úti á landi.
: '