Dagur - 27.09.1995, Qupperneq 11
IÞROTTIR
Miðvikudagur 27. september 1995 - DAGUR - 11
FROSTI EIÐSSON
Handknattleikur:
Stefán og Rögnvald valdir
til að dæma á HM kvenna
Knattspyrna:
Sigur ÍA ekki
nógu stór
ÍA sigraði Raith Rovers, frá
Skotlandi í viðureign liðanna í
gær á Akranesi 1:0. Skoska liðið
komst þar með áfram í Evrópu-
keppni félagsliða, því það sigr-
aði í fyrri leiknum 3:1 og því
samanlagt 3:2 í leikjunum
tveimur.
Skagamenn sóttu mun meira
mest allan leiktímann en tókst að-
eins einu sinni að skora. Marka-
kóngur íslandsmótsins, Arnar
Gunnlaugsson, var þar að verki,
skallaði í netið af stuttu færi eftir
hornspyrnu Haraldar Ingólfssonar.
Þrátt fyrir linnulitlar sóknir
heimamanna á lokakaflanum urðu
mörkin ekki fleiri.
Stefán Arnaldsson.
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson hafa verið valdir af Al-
þjóða handknattleikssambandinu
til að dæma á heimsmeistara-
keppni kvenna, sem fram fer í
Austurríki og Ungverjalandi dag-
ana 5.-17. desember.
„Það var draumurinn að komast
í þetta mót og það er ekkert
skemmtilegra en að dæma kvenna-
handbolta eins og hann gerist bestur
í heiminum. Konurnar eru líkam-
lega sterkar en þær spila „hreinni“
handbolta þar sem minna er um
brot og leikirnir ganga því oft bet-
ur,“ sagði Stefán þegar Dagur sló á
þráðinn til hans í gær.
„Keppnin er líka mikilvæg fyrir
okkur að öðru leyti, ef við náðum
að standa okkur vel á þessu móti er
líklegt að við verðum valdir til að
dæma á Olympíuleikunum á næsta
ári,“ sagði Stefán.
Þeir Stefán og Rögnvald vom
valdir fimmtu bestu dómaramir í
síðustu heimsmeistarakeppni sem
haldin var hér á landi og hafa því
óumdeilanlega skipað sér í flokk
með bestu dómurum heims.
Þetta er áttunda heimsmeistara-
keppni þeirra saman á sjö árum en
þeir hafa áður dæmt á tveimur A-
keppnum karla, einni B-keppni,
tveimur A-keppnum kvenna og
tveimur heimsmeistaramótum ungl-
inga.
Körfuknattleikur - DHL-deildin:
„Spáin kemur mér
ekki á óvart“
Herferð
Dómaranefnd HSÍ leggur
áherslu á að handknattleiks-
dómarar verði harðir á að dæma
á sóknarbrot á íslandsmótinu í
vetur. Nefndin sendi frá sér bréf
til félaganna með upplýsingum
um þau atriði sem lögð verður
áhersla á, og eru þau í samræmi
við það sem Dómaranefnd Al-
þjóða handknattleikssambands-
ins lagði hvað mesta áherslu á
fyrir heimsmeistarakeppnina sl.
vor.
Tekið verður hart á sóknarbrot-
um með bolta (ruðningi) og án
bolta, s.s. ólöglegum hindrunum,
gegn grófum leik
hrindingum og þegar varnarmönn-
um er haldið.
Skýrt er tekið i'ram að fyrir grip
í skothendi aftanfrá þá skuli refsa
með útilokun og fyrir bakhrind-
ingar með brottvísun og síðan úti-
lokun. Refsa á fyrir peýsutog með
áminningu og síðan með brottvís-
un. Almennt skal það vera hlut-
verk dómara að reyna að losa
handknattleikinn við gróf brot og
til að ná þvf markmiði, að beita
brottvísunum eða útilokunum.
í bréfinu segir jafnframt: „Stig-
hækkandi refsing er tæki dómar-
ans til að losa leikinn við gróf
brot, endutekin brot, óíþrótta-
mannslega framkomu, tuð, mót-
mæli. peysutog og fleira. Henni
skal beitt. Tiltal og áminning eru
ekki refsingar heldur upplýsingar.
Brottvísun, útilokun og brottvikn-
ing eru refsingar."
Slakað hefur verið á reglum
varðandi varamannabekkinn. Ein-
um manni er heimilt að standa
fyrir framan bekkinn og vera á
ferðinni svo fremi sem hann er að-
eins að koma ábendingum eða
hvatningu til leikmanna sinna. Kristinn Björnsson.
- segir Páll Kolbeinsson,
þjálfari Tindastóls, sem spáð er 10. sæti
„Spáin er raunhæf og það kem-
ur mér ekkert á óvart í henni.
Sterkustu liðin eru í okkar riðli,
Keflavík, Njarðvík og ÍR og
þessi vetur verður erfiður eins og
þeir síðustu,“ segir Páll Kol-
beinsson, þjálfari körfuknatt-
leiksliðs Tindastóls. Úrvalsdeild-
in hefst annað kvöld en fyrr í
vikunni komu fulltrúar liðanna
saman til að spá fyrir um stöðu
liðanna á keppnistímabilinu.
Tindastóli var spáð 10. sætinu
en Þórsliðinu 7. sæti.
„Við höfum lent þeim megin
þar sem flest stigin hafa lent und-
anfarin ár þannig að stefnan hjá
okkur verður að ná níunda eða tí-
unda sætinu. Það væri eins og að
vinna í happdrætti að komast í úr-
slitakeppnina, en mestu máli
skiptir að sleppa við fall,“ segir
þjálfarinn, sem er mjög óhress
með riðlaskiptingu deildarinnar.
Tindastól! hefur verið mjög
óheppinn, lenti í riðli með erfiðari
liðunum auk þess sem sá riðill
kemur mun verr út tjárhagslega,
þar sem öll önnur lið riðilsins eru
á sv-horninu, á stór-Reykjavíkur-
svæðinu og á Suðurnesjum. Liðið
er nú í A-riðlinum með Njarðvík,
Keflavík, ÍR, Breiðabliki og
Haukum en í B-riðlinum eru Þór,
Valur, KR, Grindavík, ÍA og
Skallagrímur.
Sama fyrirkomulag verður á úr-
slitakeppninni eins og undanfarin
ár. Atta efstu lið deildarinnar
komast í úrslitakeppnina en liðin í
9. og 10. sæti Ijúka þar með
keppni. Liðið sem lendir í botn-
sæti deildarinnar fellur niður í 1.
deild en liðið í ellefta sætinu leik-
ur við liðið sem lendir í 2. sæti 1.
deildarinnar.
„Við erum búnir að undirbúa
okkur vel fyrir veturinn og erum
alla vega tilbúnir í slaginn. Við er-
um með spræka stráka sem gætu
komið á óvart. Liðið er ungt, en
þó árinu eldra heldur en í fyrra og
reynslunni ríkara. Eg vonast því
til þess að leikur okkar verði held-
ur stöðugri og við náum að stríða
liðunum á heimavelli. Heimavöll-
urinn kemur líka til með að skipta
máli. Við erum með skemmtileg-
an heimavöll, stóran og góðan hóp
stuðningsmanna og ég veit að fyr-
ir hin liðin er ekkert gaman að
koma hingað."
Úrvalsdeildin hefst annað
kvöld og þá fara fram tveir leikir
norðanlands. Tindastóll leikur við
ÍR á Sauðárkróki og Þórsarar
mæta Skallagrími í íþróttahöllinni
á Akureyri.
Tindastóli og Þór er spáð misjöfnu gengi í úrvalsdeildinni scm hefst annað
kvöld. Myndin er úr leik liðanna á Greifamótinu sem fram fór fyrir
skömmu.
Blak:
Okeypis þjálfun fýrir
þá yngri í tvo mánuði
Blakdeild KA hefur ákveðið að
bjóða ölluin 10-13 ára krökkum
ókeypis þjálfun í blaki í tvo
mánuði. Eftir þann tíma geta
hinir ungu iðkendur ákveðið
hvort að blakið sé íþrótt fyrir
þá.
Blakdeildin hefur kynnt tilboð
sitt í skólum á Akureyri að und-
anfömu og með þessu vonast þeir
til að geta vakið áhuga yngstu
krakkanna á íþróttinni. KA hefur
ákveðið að bjóða upp á þjálfun,
bæði í fjórða aldursflokki fyrir
tólf og þrettán ára krakka og í 5.
flokki fyrir tíu og ellefu ára.
Handknattleikur - dómgæsla:
Skíöi:
Leitað eftir
styrkjum
fyrir Kristin
Skíðasambandið hefur farið þess
á leit að Ólafsfjarðarbær og fyr-
irtæki í bænum styrki Kristin
Björnsson, landsliðsmann í alpa-
greinum, til æfinga og keppni.
Kristinn en nú í Austurríki við
æfingar og hyggst dvelja erlendis í
vetur við æfingar og keppni eins
og hann gerði á síðasta ári.
Handbolti:
Viking
byrjar vel
Mótheijar KA í Evrópukeppn-
inni í handknattleik, norsku
bikarmeistararnir Viking frá
Stavanger, unnu átta marka
sigur í fyrstu umferð deildar-
innar í Noregi. Viking vann
29:21, á heimavelli sínum gegn
Sandefjord, en fyrirfram er
búist við því að bæði liðin
verði í toppbaráttunni.
Það er ekkert nýtt að norsku
Víkingamir byrji tímabilið vel
því þeir voru í efsta sæti um
jólaleytið í fyrra en luku keppni
um vorið um miðja deild. Tveir
landsliðsmenn eru í liðinu, Sten-
ar Egge, sem er aðalmarkvörður
landsliðsins og stórskyttan Run-
ar Ehrland. Sá síðamefndi var
reyndar ekki í byrjunarliði Sta-
vanger-Iiðsins, en hann átti við
meiðsl að stríða í fyrra, heldur
Torbjöm Annesen, ungur leik-
maður, sem skoraði átta mörk í
leiknum.
Næstkomandi sunnudag leik-
ur liðið við norsku deildarmeist-
arana, Elverum, en með því liði
leikur Matthías Matthíasson,
hornamaður, sem lengi lék með
ÍR.
íþróttaskóli
fyrir börn
íþróttaskóli barna 3-4 ára verður
starfræktur á vegum KA í vetur
með sama fyrirkomulagi og sl.
vetur. Bömin koma með for-
eldrum sínum eða fylgdarmanni
og fá að reyna sig við ýmsar
þrautir og leiki. Skólinn tekur til
starfa nk. laugardag og er þeim
sem hyggja á þátttöku bent á að
skráning og upplýsingar em í
KA-heimilinu í síma 462-3482.
Blak:
HK-sigur á
haustmóti
Haustmót í blaki var haldið sl.
laugardag í íþróttahúsinu
Austurbergi í Reykjavík með
þátttöku sex liða í karlaflokki
og þriggja liða í kvennaflokki.
íslands- og bikarmeistarar HK
urðu sigurvegarar í karla-
flokki en Víkingsstúlkurnar í
kvennaflokknum.
KA sendi lið í karlaflokki og
hafnaði í fjórða sæti eftir tap
fyrir ÍS í leiknum um bronsið
15:9 og 15:6. KA-liðið sigraði í
fyrsta leik sínum gegn Hamri
13:15, 15:0 og 15:8, tapaði fyrir
Stúdentum 15:13, 11:15 og
13:15 og mátti einnig þola tap í
undanúrslitunum gegn HK
15:10 og 15:10.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080