Dagur - 27.10.1995, Síða 9
Föstudagur 27. október 1995 - DAGUR - 9
Liggur talkennsla
forskólabarna niðri?
Að undanfömu hafa birst í fjöl-
miðlum greinar um greiðslur til
talmeinafræðinga og má þar nefna
grein í Degi þann 18. október og í
Morgunblaðinu þann 21. október
sl., svo einhverjar séu nefndar. Að
gefnu tilefni og af því að málið er
mér skylt sem talmeinafræðingi,
vil ég gera athugasemdir, sérstak-
lega við yfirlýsingar menntamála-
ráðuneytisins.
Til þess að skýra forsögu máls-
ins er um að ræða greiðslur sem
menntamálaráðuneytið hefur innt
af hendi til talmeinafræðinga
vegna talkennslu forskólabama.
Þær greiðslur vom felldar niður
þann 1. júlí 1995 og vísað til
sveitarfélaga að inna þessa
greiðslu af hendi. Hins vegar var
ekki búið að ganga frá því við
sveitarfélögin að þau greiddu fyrir
þessa þjónustu og því er enginn
sem greiðir hana í dag. I yfirlýstri
skýringu frá menntamálaráðuneyt-
inu er um að ræða greiðslur fyrir
talkennslu fatlaðra bama á leik-
skólum sem sveitarfélag reiði af
hendi eftir 1. júlí 1995 en geti síð-
an fengið endurgreiddar hjá ráðu-
neytinu, hafi ég skilið rétt. En
þarna er einhver misskilningur á
ferðinni því menntamálaráðuneyt-
ið hefur aldrei mér vitanlega greitt
talmeinafræðingum fyrir tal-
kennslu fatlaðra bama heldur hef-
ur Tryggingastofnun ríkisins ann-
ast þá greiðslu alfarið. Hins vegar
hefur menntamálaráðuneytið
greitt fyrir talkennslu bama með
framburðargalla sem ekki hafa
fram að þessu verið skilgreind
fötluð. Þama stendur hnífurinn í
kúnni því í dag er enginn tilbúinn
til að greiða fyrir talkennslu þeirra
bama.
En er þá ekki hægt að láta for-
eldra borga sjálfa fyrir slíka tal-
Valdís Jónsdóttir.
Af hverju eiga þessir
foreldrar að greiða
fyrir talkennslu
sinna barna ef aðrir
foreldrar og þá for-
eldrar fatlaðra
barna fá hana end-
urgjaldslaust?
kennslu? Jú, vissulega er það hægt
en málið snýst ekki um það heldur
er þetta fyrst og fremst í mínum
huga réttlætismál. Af hverju eiga
þessir foreldrar að greiða fyrir tal-
kennslu sinna bama ef aðrir for-
eldrar og þá foreldrar fatlaðra
bama fá hana endurgjaldslaust?
Það hlýtur að vera jafn mikilvægt
að koma öllum til máls, fötluðum
sem ófötluðum. Það má líka benda
á að talkennsla er endurgjaldslaus
þjónusta fyrir skólaböm þar sem
grunnskólalögin kveða svo á um
að mæta skuli öllum sérþörfum
nemenda. En má þá ekki bara láta
þessi talgölluðu forskólaböm bíða
þangað til þau koma í skóla? Svar-
ið við því er nei, því bamið líður
fyrir þennan galla og verður auð-
veldur skotspænir fyrir stríðni. Það
er því ekkert skrítið að foreldrum
finnist liggja á að koma bami sínu
í talkennslu áður en það byrjar í
skóla þar sem það lendir í aukinni
hættu á að verða fyrir aðkasti.
En er þetta ekki óskaplegur
kostnaður fyrir sveitarfélög að
greiða fyrir talkennslu bams sem
ekki kann að bera rétt fram ein-
stök hljóð? Nei, því að það tekur
ekki langan tíma að kenna bami
réttan framburð ef forsendumar
em í lagi. Hér á því ekki að vera
um mikinn kostnað að ræða fyrir
sveitarfélög, ekki síst ef um semst
að þau fái hann endurgreiddan hjá
menntamálaráðuneytinu. Þá er ég
að tala um kostnað vegna tal-
kennslu ófatlaðra bama á leikskól-
um. En þá er spumingin. Fáist
samþykkt að greiða fyrir tal-
kennslu bama á leikskólum, hver
greiðir þá fyrir talkennslu bama
sem eru í heimahúsum eða hjá
dagmæðmm? Það hefur hvergi
komið fram.
Eins og málin standa í dag get
ég ekki séð að lausn sé beint í
sjónmáli. Þó skal tekið fram að
verið er að vinna í því að finna
einhverja lausn og fullur vilji er
hjá öllum að sem best megi takast
til. En á meðan verið er að losa
þessa stíflu í kerfinu verða talgöll-
uð forskólaböm og aðstandendur
þeirra að bíða.
Valdís Jónsdóttir.
Höfundur er talmeinafræðingur og rekur eigin
talmeinastofu á Akureyri.
Nýtt útlit ökutækjaflota Skeljungs hf.
Á bifreiðaverkstæði Skeljungs hf.
hafa starfsmenn hafist handa við
að mála bifreiðaflota félagsins í
samræmi við nýtt útlit sem Shell
Intemational Petrolium hefur tek-
ið í notkun. Nú þegar hafa nokkur
ökutæki félagsins verið málum í
nýjum stíl og munu önnur fylgja í
kjölfarið eftir því sem tækifæri
gefst til.
Ljóst er þó að nokkur tími mun
líða þar til allur floti Skeljungs
hefur klæðst nýja búningnum, þar
sem félagið á og rekur yfir 100
ökutæki. Hjá Skeljungi eru menn
almennt þeirrar skoðunar að létt-
ara sé yfir nýja útlitinu og segja
bílstjórar félagsins augljóst af við-
brögðum fólks að þessi nýjung
veki athygli. (Fréttatilkynning)
íslenskur tónlistar-
dagur á morgun:
Dagskrá í
Deiglunni aflýst
Á morgun, laugardag, var ætlunin
að efna til dagskrár í Deiglunni á
Akureyri í tilefni íslensks tónlist-
ardags, en aðstandendur dagskrár-
innar hafa ákveðið að af henni
verði ekki vegna hinna hörmulegu
atburða vestur á Flateyri. Til stóð
að kennarar og nemendur Tónlist-
arskólans á Akureyri ásamt öðmm
tónlistarflytjendum, myndu halda
upp á íslenskan tónlistardag í
Deiglunni, en af því verður sem
sagt ekki.
Akureyri:
Hagyrðinga-
kvöldinu frestað
Vegna veðurs, ófærðar og atburð-
anna á Flateyri var frestað hagyrð-
ingakvöldi sem vera átti í Deigl-
unni á Akureyri í gærkvöld á veg-
um Gilfélagsins og dagblaðsins
Dags.
Stefnt er að því að hagyrðinga-
kvöldið verði 16. nóvembernk.
S Shell
Á myndinni eru f.v. Jósef Gunnlaugsson við nýjustu bifreið Skeljungs, sem
er af gerðinni Scania, og Tryggvi Bjarnason við eina þá elstu í flotanum,
Mercedes Ben/ frá 1976, en bílarnir voru þeir fyrstu sem málaðir voru í
nýju útliti Shell. Scanian dreifir olíu- og smávörum á suðvesturhorni lands-
ins, en olíubíllinn með dráttarvagninn þjónustar héraðið kringum Drangs-
nes við Húnaflóa.
BÓNUSTÖLUR
■16 !í 345(47)
Helldarupphæð þessa viku:
47.989.943
á fsi.: 2.679.943
mmViiwingur: er tvöfaldur næst
UPPtÝSINGAH. SÍMSVARI 66B 5111
LUKKULÍNA 668 1511 - TEXTAVARP 451
BIRT MCÐ FYRIRVARA UM PRÍNTVILLUR
Vetrorgalli á frábxru verii!
Nýkomnir!
Vatnsþéttir!
IVIeð losaniegu fóðri!
Hlýir é veturna,
þægilegir c sumrin!
StærSir: 92-140.
Lifir: Rauðir og blúir.
Fóðrið má losa frá. Gallin er úr „Beavernilon".
3.990,-
I Aígreiðslutími: !£££