Dagur - 27.10.1995, Síða 15

Dagur - 27.10.1995, Síða 15
Föstudagur 27. október 1995 - DAGUR - 15 ÍÞRÓTTIR FROSTI EIÐSSON UMFÍ þingar að Laugum 39. sambandsþing Ungmennafé- lags fslands verður sett klukkan 9 í fyrramálið á Laugum í S- Þingeyjarsýslu. A þinginu verða störf Ung- mennafélagshreyfingarinnar síðast- liðin tvö ár vegin og metin, þar með talin Landsmót, Landshreyf- ing 95 og umhverfisverkefni UMFÍ svo nokkuð sé nefnt. Lagð- ar verða fram nýjar tillögur og ný stjóm kosin. Þór mætir Keflavík Þórsarar mæta Keflvíkingum í 8. umferð úrvalsdeildarinnar í körfu- knattleik á sunnudagskvöld. Leik- ur liðanna fer fram í fþróttahöll- inni á Akureyri og hefst klukkan 20. Tindastóll leikur gegn Vals- mönnum á sama tíma að Hlíðar- enda, íþróttahúsi Reykjavíkurliðs- ins. Handknattleikur - 2.jdeild karla: Leik Þórs og Ármanns flýtt um þrjá mánuði Hvernig stendur á óskabvriun KA á íslandsmótinu? Samsetning liðsins helsti lykillinn að góðri byrjun - segir Alfreð Gíslason, þjálfari liðsins Lið Þórs í 2. deildinni í hand- knattleik hefur nóg fyrir stafni um helgina, því liðið mun leika tvo heimaleiki í íþróttahöllinni. Fyrri leikur liðsins verður gegn Ármanni í deildarkeppninni í kvöld klukkan 21 í íþróttahöll- inni á Akureyri. Leikur liðanna var ekki settur á fyrr en 3. febrú- ar en Ármenningar báðu Þórsara um að flýta leiknum um rúma þrjá mánuði til að Reykjavíkurl- iðið gæti nýtt ferðina norður en liðið mætir Völsungi í bikar- keppninni á Húsavík klukkan 12 á morgun. Þórsarar keppa bikar- leik sinn einnig á morgun, í íþróttahöllinni. Liðið mætir þá Val Reyðarfirði og hefst leikur- inn klukkan 16. Páll Gíslason verður á fullri ferð með Þórsurum uin helgina. Alfreð Gíslason, þjálfari KA segir það hafa komið á óvart hve Julian Duran- ona (á myndinni hér að ofan) hafi verið fljótur að komast í form eftir að hafa ekki leikið handknattleik í tvö til þrjú ár. Mynd: BG Öllum íþróttaviðburðum gær- kvöldsins var frestað í gær og því ljóst að leikir KA og Stjörn- unnar í 1. deildinni í handknatt- leik og viðureign Tindastóls og Þórs í 1. deildinni í körfuknatt- leik bíða betri tíma. Ellert Schram, forseti ÍSf, fór þess á leit við Körfuknattleiks- sambandið rétt eftir hádegisbilið í gær að það frestaði þeim leikjum sem vera áttu í gærkvöld vegna náttúruhamfaranna á Flateyri. Á svipuðum tíma ákváðu KA og Stjaman að fara fram á það við Mótanefnd HSÍ að hún frestaði leik liðsins í KA-heimilinu og var það auðsótt mál, enda höfðu sam- böndin þá bæði sameinast um að fresta öllum íþróttakappleikjum. Nýir leikdagar hafa ekki verið settir á en ljóst er að það verður erfitt að koma leikjunum inn í þétta leikjadagskrá félaganna. HSÍ hefur farið þess á leit við félögin að leikmenn muni votta Flateyringum samúð sína með því að leika með sorgarbönd um helg- ina og munu leikir hefjast á einnar mínútu þögn. Öllum 1 leikjum frestað Handknattleikur- 5. flokkur karla: Ekkert verður af KEA-mótinu KEA-mótinu í 5. flokki karla í handknattleik, sem leika átti á Akureyri um helgina, hefur ver- ið aflýst. Mótanefnd HSÍ tók þá ákvörðun, að beiðni margra for- eldra og vegna ótryggrar færðar. Nýir leikdagar hafa ekki verið settir á en svo virðist sem Akur- eyringar munu ekki halda fyrstu umferðina, hún fari fram í Reykja- vík um næstu helgi. Að sögn Atla Hilmarssonar, hjá Mótanefnd HSÍ, liggur ekki ljóst fyrir hvort Þór og KÁ fái að halda fjölliðamót í þessum flokki í vet- ur. Öðrum mótum hefur verið ráð- stafað, en hugsanlegt er að úrslita- keppnin í þessum aldursflokki verði haldin á Akureyri. Það fer þó mikið eftir því hvort Akureyr- arliðin verða í úrslitum í þessum aldursflokki. Handknattleikur - 1. deild karla: Öruggt hjá Gróttu Fjórir leikir fóru fram í 1. deild karla í handknattleik í fyrra- kvöld. Mesta athygli vekur stór sigur Gróttu á Haukum 29:23 og Seltirningar eru því enn sem komið er taplausir á heimavelli í vetur. Hafa sigrað í þremur við- ureignum en tapað leikjum sín- um á útivöllum. Valsarar skutust upp í annað sæti deildarinnar með sex marka sigri á FH 27:21. Meistaramir frá því í fyrra hafa því hlotið níu stig, einu færra en KA eftir sex leiki í mótinu. Víkingur sigraði KR 27:21 og ÍR lagði Selfoss með sömu markatölu. Leikjum kvölds- ins lyktaði því öllum með sex marka sigri. Leikjum ÍBV og Aft- ureldingar og KÁ og Stjömunnar var frestað og hafa þeir ekki verið settir á. Ekkert verður leikið í deildar- keppninni fyrr en 15. næsta mán- aðar vegna landsleikjanna við Rússa og Evrópuleikja félagslið- anna. Guðrún og Anna keppa í San Marinó Anna Sigurðardóttir og Guð- rún Gísladóttir, þolfimikenn- arar, verða fulltrúar íslands á Evrópukeppninni í Ms. Fit- ness, sem fram fer í smáríkinu San Marinó á Ítalíu á laugar- daginn. Þær Anna og Guðrún héldu til Ítalíu á miðvikudagsmorgun- inn og hafa því ágætan tíma til að æfa sig fyrir keppnina. Þær eru fyrstu fulltrúar íslands í Evrópukeppninni í þessari grein en Anna tók þátt í heimsmeist- aramótinu í Bandaríkjunum í fyrra og náði þá mjög góðum árangri, hafnaði í 15. sæti. Þær unnu sér rétt til keppn- innar með því að hafna í tveim- ur efstu sætum íslandsmótsins, sem fram fór í Sjallanum á Ak- ureyri um síðustu helgi. I umfjöllun Dags frá mótinu var missagt að stúlkum í keppn- inni hefði einvörðungu verið greitt af hársnyrtistofunni Passi- Guðrún Gísladóttir frá Akureyri verður annar fulltrúi íslands í Evrópukeppni Ms. Fitness. on. Hið réíta er að Anna kom með eigin hársnyrti norður, Guðrúnu Sverrisdóttur frá Hár- greiðslustofunni Cleo í Garða- bæ. Þá sá Hulda Hafsteinsdóttir frá Hársnyrtistofunni Medulla um að greiða Guðrúnu og Guð- rún Bjamadóttir, förðunarfræð- ingur, um förðun hennar. Byrjun KA-liðsins í 1. deildinni í handknattleik í vetur er nokkuð sem menn þar á bæ eru ekki vanir. Liðið hefur sigraði í öllum fimm leikjum sínum í deildinni, en undanfarin ár hefur liðið ver- ið seint í gang og skemmst er að minnast ijögurra tapleikja í byrjun deildarinnar í fyrra. En hvernig skyldi standa á því að KA-menn eru fyrr á ferðinni nú en áður? Dagur sló á þráðinn til Alfreðs Gíslasonar, þjálfara KA, til að fá svör við því. „Nei, það er víst örugglega ekki hægt að þakka þetta neinum áherslubreytingum í þjálfuninni, því hún hefur verið mjög svipuð og í fyrra,“ sagði þjálfarinn, að- spurður um það hvort þjálfunin hefði verið með öðrum hætti en áður. „Við byrjuðum aðeins fyrr að æfa en ég held að það megi segja að lykillinn að þessari byrj- un sé góð samsetning liðsins. Við misstum Valdimar (Grímsson) en fengum Julian (Duranona) í stað- inn og ég held að þessi samsetn- ing sé sterkari. Ég byggi það á því að í fyrra var hægt að stöðva sóknarleikinn hjá okkur með því að taka Patrek (Jóhannesson) úr umferð og klippa á Valdimar úr horninu en það er mikið erfiðara fyrir liðin að gera sóknina óvirkari í vetur. Svo finnst mér liðið vera stöðugra og ég er ánægður með nýju mennina, þeir hafa komið vel inní liðið og að sama skapi má segja að þeir sem fyrir voru hafi einnig staðið sig vel. - En er eitthvað sem komið hefur þér á óvart hjá liðinu? Nei, í rauninni ekki. Julian hef- ur verið að spila eins og ég bjóst við. Hann var reyndar fyrr í gang en ég bjóst við, eftir að hafa ekki spilað handbolta í tvö til þrjú ár. Mér finnst Addi (Guðmundur Arnar Jónsson) hafa verið van- metinn í markinu. Hann er ekki sami „showkarlinn" og Sigmar Þröstur Óskarsson en hann hefur verið að verja vel jafnt og þétt og hentar okkur vel, því við erum með háa 6-0 vörn og hann lokar mjög vel uppi. Þá eru varnarmenn liðsins betri í vetur og gera færri mistök heldur en í fyrra. Við eig- um þó nokkuð eftir ennþá í að ná toppgetu. Að mínu mati eru Vals- arar með sterkasta liðið í deild- inni. Mönnum hættir til að gleyma þeim eftir erfiða leiki í byrjun mótsins en þeir sýndu það gegn FH að þeir eru sterkastir í dag og ekki spuming um það að mínu áliti,“ sagði Alfreð. KA mætir erfiðum andstæðingi á sunnudagskvöldið, Gróttu í bikarkeppninni. Grótta hefur ekki enn tapað á heimavelli í vetur og liðið lagði Hauka að velli í fyrra- kvöld með sex marka mun. Er Al- freð ekki smeykur við þann leik? „Grótta hefur komið rnjög á óvart í vetur og hefur verið að spila vel. Það er hins vegar ekki á stefnuskránni hjá okkur að detta út úr bikamum," sagði Alfreð, og það verða lokaorð hans í þessu spjalli. Afmœlisfagnaður 1 i M oanD n n 1915 1995 80 ára Sjallanum 28. okt. Húsið opnað kl. 19.30 og borðhald hefst stundvíslega kl. 20.30. Þríréttaður matseðill á aðeins kr. 2.500.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.