Dagur - 28.10.1995, Side 3

Dagur - 28.10.1995, Side 3
FRETTIR Laugardagur 28. október 1995 - DAGUR - 3 Kartöflur seldar í verslunum langt undir framleiðslukostnaði: Kaupmennirnir hafa pressað verðið niður - segir Ákveðið verðstríð hefur geysað milli kartöfluframleiðenda að undanförnu og hefur t.d. mátt fá 2 kg poka í KEA-Nettó á 45 krónur en hann hækkaði síðan á þriðjudag í 75 krónur. Kartöfl- urnar eru eingöngu af Eyjafjarð- arsvæðinu. Júlíus Guðmunds- son, verslunarstjóri, segir að rekja megi ástæðu þessa verð- falls til þess að framleiðendur eru að koma sinni framleiðslu á markaðinn og á meðan bjóða þeir kartöfluverðið niður hver fyrir öðrum. Sigurlaug Eggertsdóttir á Ashóli í Grýtubakkahreppi Uppskeran í Eyjafirði er heldur lakari nú í ár en hún var haustið 1994 en verðlagning kartaflna hefur ekki ráðist af því undanfarin ár hvort uppskeran hefur verið góð eða slæm, tíföld eða meira eða minna. Sigurlaug Eggertsdóttir á Ás- hóli í Grýtubakkahreppi segir að uppskeran í haust hafi verið svip- uð og haustið 1994. Uppskem- horfur hafi ekki verið bjartar framan af sumri en síðan hafi ræst úr því, ekki síst í veðurblíðu sem var um tíma í haust. Markaðshorf- Sléttunúpur ÞH-272: Fékk 43 milljóna króna úreldingarstyrk úr Þróunarsjóði Útgerðarfyrirtækið Jökull hf. á Raufarhöfn keypti í maí- mánuði í vor 138 tonna bát, Gústa í Papey, fyrir 170 millj- ónir króna, sem síðan fékk nafnið Sléttunúpur ÞH-272. Gunnlaugur Júlíusson, sveit- arstjóri Raufarhafnarhrepps og stjórnarformaður Jökuls hf., segir það aldrei hafa verið ætlun útgerðarinnar að eiga skipið til langframa en honum hafi fylgt góður kvóti sem í upphafi yfírstandandi fisk- veiðiárs var 446 þorskígildis- tonn, þar af 120 tonn af þorski og 260 tonn af rækju. Markmiðið liafi verið að ná af honum kvótanum og fáist þokkalegt verð fyrir bátinn auk úreldingarinnar fáist kvótinn á ásættanlegu verði. Þróunarsjóð- ur sjávarútvegsins hefur sam- þykkt beiðni útgerðarinnar um úreldingu að upphæð krónur 42.920.000 og gildir það til loka nóvembennánaðar. Þreifað hefur verið fyrir um sölu á bátn- um, bæði hérlendis og erlendis. Sléttunúpur ÞH fer nú á rækjuveiðar og landar aflanum hjá Söltuntirfélagi Dalvíkinga hf. og útvegar rækjuverksmiðj- an bátnum kvóta til veiðanna. Gunnlaugur Júlíusson segir ekki Ijóst hvort keypt verði ann- að skip fyrir Sléttunúp ÞH, það ntál sé í skoðun en ekkert skip sé í sigtinu enn sem komið er, hvað sem síðar kann að verða. Jökull hf. á tvö önnur skip, togarann Rauðanúp ÞH-160, sem er á karfaveiðum á Skerja- dýpi og línubátinn Atlanúp ÞH- 270, sem er 200 tonn að stærð, sem verið er að gera kláran á línuveiðar og verður hann á þeim veiðum a.rn.k. til febrúar- loka, þ.e. meðan á línutvöföld- un stendur. Aflinn er frystur um borð og verður lionum landað á Raufarhöfn eða á Fáskrúðsfirði meðan báturinn stundar veiðar sunnarlega við Austfirðina. GG Utvarp VMA góðan daginn! Nú er nokkur reynsla komin á Útvarp VMA, sem er lil húsa í Verk- menntaskólanum á Akureyri, og er rekið á kostnað og ábyrgð nemenda- ráðs skólans. Talsmenn útvarpsins láta vel af og þeir eru vel ánægðir með þær viðtökur sem útvarpsstöðin hefur fengið. Sent er út á FM-tíðn- inni 104,9 á skólatíma alla virka daga og einnig á laugardögum. Þegar ljósmyndari Dags leit inn á Útvarp VMA í vikunni voru þeir Amar Þór Ómarsson og Konráð Logi Fossdal við útsendingarborðið. óþh/Mynd:BG ur fyrir kartöflubændur á Norður- landi ættu að vera þokkalegar því uppskeran á Suðurlandi var mjög misjöfn, sums staðar góð en á öðr- um stöðum brást hún nokkuð. „Það hefur geysað visst verð- stríð milli kartöflubænda að und- anfömu en það em kaupmennimir sjálfir sem hafa pressað verðið niður, ekki framleiðendur. Við hér á Áshóli létum ekki frá okkur kartöflur á þessu gjafverði, tökum ekki þátt í því að selja kartöfur langt undir framleiðslukostnaði. Ég álít að framleiðsluverð sé kringum 60 krónur og því vona ég að þetta verð hafi bara verið eitt- hvað skot sem ekki verði endur- tekið. Ég vona því að við fáum sanngjamt verð fyrir framleiðsl- una þegar fram í sækir,“ segir Sig- urlaug Eggertsdóttir. Sigurlaug álítur að innanlands- framleiðslan anni ekki eftirspum allt árið, grípa verði til innflutn- ings, en það ráðist að mestu af því hversu mikið kemur upp úr kart- öflugörðunum á Suðurlandi, ekki síst í Þykkvabæ. GG „Oeðlilegt aö úr- skurður ráðuneytisins hafi ekki borist sveitarstjórninni" Úrskurður félagsmálaráðuneyt- isins við kæru þriggja bænda í Þórshafnarhreppi vegna ákvörð- unar hreppsnefndarinnar að leysa íjallskilanefndina frá störf- um þar sem hún taldi fullreynt að hún gæti sinnt sínum störfum vegna innbyrðis ósamkomulags, hefur enn ekki borist sveitar- stjórninni þrátt fyrir að hún hafi verið lesin kærendunum fyrir rúmri viku síðan. Félagsmála- ráðuneytið mun hafa staðfest ákvörðun sveitarstjórnarinnar. Jóhann A. Jónsson, oddviti Þórshafnarhrepps, segir það mjög óeðlilegt að úrskurður félagsmála- ráðuneytisins skuli ekki hafa enn borist sveitarstjóminni, ekki síst í ljósi þess að félagsmálaráðherra sjálfur hafi kynnt einum kærend- anna, Ágústi Guðröðarsyni á Sauðanesi, niðurstöður ráðuneyt- isins. Þar sé ekki gætt réttlætis. „Þetta mál var unnið af okkar hálfu með lögfræðingi félagsmála- ráðuneytisins áður en til aðgerða af okkar hálfu kom. Það hefur leg- ið fyrir allan tímann að kæran átti ekki við nokkur rök að styðjast vegna þess að sveitarstjórn hefur öll umboð til að taka á málum sem þessum með þeim hætti sem hún gerði. Það er á okkar ábyrgð að koma lagi á þessa hluti sem em gömul vandamál. Það liggur ekk- ert fyrir um það hvenær ný fjall- skilanefnd verður skipuð, sveitar- stjómin fer sjálf með þessi mál og það er mjög ólíklegt að það verði á næstunni. Ef það er ekki sátt um þessi hluti meðal þeirra hags- munaaðila sem þar eiga mestra hagsmuna að gæta, þ.e. bænda, þá Jóhann A. Jónsson. ber sveitarstjóm þá ábyrgð að halda lögum og reglum í heiðri og það er því eðlilegt að hún beri þá ábyrgð áfram að sinni,“ sagði Jó- hann A. Jónsson. GG Gilfétagiö: Vill viður- kenningu á framlagi Á fundi bæjarráðs Akureyrar í fyrradag voru lögð fram tvö bréf dags. 20. október sl. frá Giifélaginu - samtökum áhugafólks um listamiðstöð í Grófargili - ásamt ársreikn- ingi félagsins 1994 og milli- uppgjöri dags. 19. september sl. í öðru bréfinu telur félagið sig hafa að fullu lokið fram- kvæmdum við gestavinnustofu og fjölnotasal í Kaupvangs- stræti 23 í samræmi við samn- ing við Akureyrarbæ dags. 9. febrúar 1994 og viljayfirlýs- ingu dags. sama dag. Framlag sitt til framkvæmdanna telur félagið að nemi kr. 4,74 millj. á verðlagi október 1995 og leitar eftir því að það verði viðurkennt. Með tilvísun til viljayfirlýs- ingarinnar tilnefnir bæjarráð Magnús Garðarsson, tækni- fræðing, í nefnd til þess að meta framlag Gilfélagsins. Hinu bréfinu fylgja hug- myndir Gilfélagsins um nýt- ingu Ketilhússins í tengslum við listamiðstöðina í Grófargili og lýsir félagið sig reiðubúið til þess að hefja samningavið- ræður um framkvæmdir þar. Bæjarráð vísaði þessu er- indi til menningarmálanefndar til umsagnar. óþh Arnarneshreppur: Fé fennti og nautgripa saknað Þrjátíu kindur ffá bænum Litlu-Brekku í Arnames- hreppi fennti og drápust í áhlaupinu fyrr í vikunni. Bændur á nokkrum öðrum bæjum í Arnarneshreppi urðu fyrir búsifjum af sömu sökum. „Þessar kindur fennti ein- faldlega í krapaelgnum. Nei, ég hef engar tryggingar gagn- vart tjóni sem þessu og verð því að bera skaðann sjálfur. Almennt taka bændur ekki fé á hús fyrr en um áramót sé tíðin góð. Menn voru ekkert farnir að huga að því að taka féð inn, svo gott hefur veðrið verið að undanfömu," sagði Brynjar Finnsson, bóndi í Litlu- Brekku, í samtali við Dag. Bændur á bæjunum Þrastar- hóli og Syðra-Koti leituðu í gær kinda sem voru úti í áhlaupinu og sömuleiðs var saknað átta nautgripa frá Spónsgerði. -sbs. Fyrirtæki til sölu: Teiknistofa í fullum rekstri til sölu. Hentar vel fyrir einn ti1 tvo. Til greina kemur að selja hlutafélagið með eða án bún- aðar. Upplýsingar í síma 461 2090 og eftir kl. 20 í síma 461 1550.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.