Dagur - 28.10.1995, Page 13

Dagur - 28.10.1995, Page 13
Laugardagur 28. október 1995 - DAGUR - 13 POPP Hrá en MACNÚS CEIR CUÐMUNDSSON Á þessum síðustu tímum, ekki og verstu, heldur í þessu tilfelli - og bestu þegar jafnréttisumræðan er komin á nokkuð gott skrið, er það ekki hvað síst ánægjulegt að sjá og heyra unga og hæfileikaríka konu gefa út sína fyrstu plötu, með sínum eigin lögum og text- um, eins og hún Kristín Eysteins- dóttir hefur nú nýlega gert. Það hefur nefnilega verið nær eingöngu hlutskipti ungra karl- manna að sýna slíkt einstaklings- framtak af þestu gerð a.m.k. í seinni tíð. Stelpurnar hafa vissulega verið til staðar og eru Kolrössur þar auð- vitað besta dæmið auk þess sem söngkonur á borð við Móeiði, Margréti Eir, Emelíönu Torríni, Heiðrúnu Ónnu, Heiðu í Unun, Valgerði Guðnadóttur o.fl. hafa getið sér gott orð, en vart hefur ein stúlka komið með jafn afgerandi og djörfum hætti inn í íslenskt popplíf, eins og Krístin hefur nú gert með Plötunni sinni, Litir. Állavega man ritari Popps ekki Kim Tónlistarkonan Kim Deal, fyrrum bassaleikari í rokksveitinni frá- bæru, Pixies, og eftir því sem best er vitað ennþá gítarleikari og söngkona með The Breeders, hefur nú sett saman nýja hljómsveit meðan Breeders er ekki að störf- um, sem Kallast The Amps. Eru með henni þar þrír karlmenn, Nat- han Farley gítarleikari, Luis Lerma bassaleikari og Jim MacPherson, sem einnig kemur úr Breeders, en Kim sér svo sjálf um sönginn. Hafa þau nú þegar sent frá sér eina smáskífu með laginu Tipp City og nú eftir helgina kemur fyrsta stóra platan frá þeim, sem nefnist Pacer. Upphaflega var það þó ekki meiningin hjá Kim Deal að setja saman nýja sveit, heldur að Kim Deal hefur sett saman nýja sveit og er hin brattasta. Yfir Atlantsála, frá Bandaríkjunum, berast nú þau válegu tíðindi, að söngvari hljómsveitarinnar Blind Melon, Shannon Hoon, sé ekki lengur í tölu lifenda. Þegar þetta er ritað eru málavextir ekki alveg skýrir, en fregnir herma að Hoon hafi fundist látinn í gleðiborginni New Orleans síðastliðinn mánudag. Vitað er að Hoon sem og aðrir félag- ar hans í Blind Melon, hafa verið „gjarnir til gleðiláta" og hafa eitur- lyfja- og áfengisneysla komið þar mikið við sögu. (Það er ekki rétt sem komið hefur fram í fjölmiðlum hér heima, að Hoon væri ný- lega uppvís að neyslu lyfja.) Má þó vel get sér til um að slík neysla hafi átt hér hlut að máli, án þess að fullyrt sé neitt um það. Eins og kunnugt er sló Shannon Hoon all- ur. Svertist nú ímynd rokkhetj- unnar og var þó ekki á bætandi. Blind Melon í gegn með laginu No Rain af fyrstu samnefndu plötunni sinni árið 1992, en það náði gríðarlegum vin- sældum um allan heim. Hafði sveit- in þá verið til í um tvö ár, en var lítt kunn utan heimahaganna í Los Angeles. Nú síðsumars kom svo önnur plata Blind Melon út, Soup, sem mörgum gagnrýnendum þótti sýna framþróun, þrátt fyrir að vera heldur „myrkari" heldur en forver- inn. Hún hefur hins vegar ekki náð jafn miklum vinsældum og sú fyrri, enda jafnan erfitt fyrir ungar sveitir að fylgja svo góðri byrjun eftir. Þar sem ekki er um fullnægjandi fregn- ir að ræða af dauða Hoon, er á þessari stundu lítið hægt að fjölyrða um framtíð Blind Melon, en væntanlega munu mál- in skýrast frekar á næstunni. Kristín Eysteinsdóttlr kveður sér hljóðs Kristín Eysteinsdóttir. Gefur íslensku popplífi lit. eftir slíku í seinni tíð a.m.k. Nafn henn hefur eflaust verið flestum ókunnugt fyrir fáeinum vikum, en gera einherjaplötu og áttu karlam- ir þrír aðeins að vera henni til að- stoðar við hljóðfæraleikinn. Síð- asta haust, fyrir tæpu ári stóðu líka málin þannig að hún hafði samið ein sex lög fyrir plötuna og var útgáfu að vænta snemma á þessu ári. En þá dundi ógæfan yfir ef svo má segja og hefur tíminn nánast fram að þessu verið Kim Deal mjög erfiður. Byrjuðu vand- ræðin með því að tvíburasystir Kim og gítarleikari með Breeders, Kelly, var handtekin með heroin í fórum sínum og síðan ekki löngu síðar var hún sjálf handtekin af svipuðum ástæðum. Reyndar var hún sjálf aðeins tekin vegna ölvunaraksturs, þar sem grunur um frekari eiturlyfjaneyslu var nú ættu flestir sem fylgjast með í poppinu að kannast við hana af verðskuldaðri athygli fjölmiðla. ástæðulaus, en Kelly var sem fyrr sagði í verri málum. Hún slapp samt við fangelsisvist og hefur þess í stað verið í viðamikilli með- ferð, sem nú á víst að vera lokið með ágætum árangri. Þessi vand- ræði hafa þó tekið sinn toll hjá Kim, sem reynt hefur að hjálpa systur sinni og gert það að verk- um að framtíð Breeders hefur ver- ið stefnt í voða auk þess að breyta áætlun hennar sjálfrar með sína plötu. Það eru hins vegar töggur í stelpunni og útkoman er sem sagt sú, að Amps hefur myndast og bíða menn nú nokkuð spenntir eft- ir plötunni. Það leynir sér ekki þegar hlustað er á Liti, að Kristín, sem syngur og spilar á gítar, er hæfileikarík og að hún er enginn byrjandi þrátt fyrir að vera nær óþekkt og nokkuð ung. Rödd hennar er hvortveggja í senn hrá og hlý og er það líka í fullu samræmi við lagasmíðarnar tíu sem platan hefur að geyma. Hrátt og á köflum kraftmikið ný- bylgjuslegið rokk í bland við ang- urværar og jafnvel blúsaðar á stöku stað lagasmíðar að hætti trúbadora (Kristín mun víst hafa töluverða reynslu sem trúbador) má gefa sem grófa lýsingu á tón- list Kristínar, sem þó dugir skammt til að lýsa áhrifum henn- ar. Textamir eru á sama hátt nokk- uð áhrifamiklir, en eiga það þó flestir sameiginlegt að vera heldur dökkir, lýsa söknuði eftir glataðri ást, einmanaleika og vonbrigðum. Ljóðrænn stíllinn á mörgum þeirra gerir þá hins vegar hrífandi og undirstrikar það enn frekar að á ferðinni er tónlistarkona sem ým- islegt hefur fram að færa. Kristín er þó aldeilis ekki ein á ferð. Nýtur hún góðrar aðstoðar Orra Harðar- sonar, þess góða Skagadrengs, við hljóðfæraleik og gerð plötunnar að öðru leyti. Setur hann sinn svip á plötuna og eiga hann og Kristín sérstakt hrós skilið fyrir upptök- una á plötunni, sem hefur tekist vel og er með góðum og þéttum hljóm. Er vart hægt að búast við því betra hjá nokkrum nýliða. Það sem þó mestu máli skiptir hér, er að Kristín Eysteinsdóttir er að sanna það sem maður þóttist reyndar vita, að stelpurnar gætu þetta fullt eins vel og strákarnir, ef ekki betur. Verður þetta svo von- andi hvatning til fleiri íslenskra kvenna, á öllum aldri, að láta slag standa ef þær hafa löngun til að koma sér og sínu á framfæri á eig- in forsendum. Mun það eflaust auðga tónlistarlífið til mikilla mima. NÚ ÞEGAf? á þriðja ár er frá andláti Freddy Mercury, hafa þeir Brian May gítar- leikari, Roger Taylor trommuleikari og John Deacon bassaleikari, ákveðið að snúa aftur og það áfram undir nafni Queen. Það kann þó að öllum líkindum vera í síðasta sinn, því nýja smáskifulagið, Heaven For Everyone og nýja platan, Made In Heaven, sem er að koma út um þessar mundir, er lokavinna þeirra þriggja á þeirri plötu sem Freddy var byrjaður að vinna með þeim þegar hann iést. Hefur lagið, ekki að undra, fengið gríðarlega góðar móttökur og má í kjölfarið búast við því að platan selj- ist í margmilljónavís. H\m ÍSLENSKU The boys, bræðumir amar og Rúnar Halldórssynir, hafa nú sent frá sér sína þriðju plötu, sem einfaldlega kallast The Boys 3. Eins og á hinum tveimur fyrri, eru það vinsæl lög frá sjöunda áratuginum sem drengimir syngja og eru þau m.a. úr smiðjum Bítlanna, Ob-la-di Ob-la-da, Hollies, Jennifer Ecles og Kinks, You Really Got Me m.a. Hinum plötunum tveimur var vel tekið hér, náði sú fyrsta t.d. gullplötusölu, en eins og kunnugt er hafa þeir bræður verið mjög vinsælir í Noregi, þar sem þeir hafa verið búsettir ásamt foreldmm sínum um langt skeið. FYRIf? VIKU var sagt frá plötunni sem U2 hyggst senda frá sér undir nafninu Passeng- ers. Er nú ljóst að hún kemur út 7. nóvember og mun geyma samtals 14 lög sem annars hafa verið unnin með kvikmyndir í huga. Nefnist platan í samræmi við það, Orginal Sound- tracks, eins og slíkar plötur nefnast jafnan, en mun einnig bera töluheitið 1, sem væntanlega gefur til kynna að meira muni koma í framtíðinni. Unnu Bono og félagar plötuna í sam- vinnu við Brian Eno á aðeins um sjö vikum og mun hún að sögn endur- spegla það sem U2 hefur verið að gera á tveimur síðustu plötunum, Achtung Baby og Zooropa. hinkná”

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.