Dagur - 28.10.1995, Blaðsíða 13
Laugardagur 28. október 1995 - DAGUR - 13
POPP
Hrá en
MACNÚS CEIR CUÐMUNDSSON
Á þessum síðustu tímum, ekki og
verstu, heldur í þessu tilfelli - og
bestu þegar jafnréttisumræðan
er komin á nokkuð gott skrið, er
það ekki hvað síst ánægjulegt að
sjá og heyra unga og hæfileikaríka
konu gefa út sína fyrstu plötu,
með sínum eigin lögum og text-
um, eins og hún Kristín Eysteins-
dóttir hefur nú nýlega gert. Það
hefur nefnilega verið nær
eingöngu hlutskipti ungra karl-
manna að sýna slíkt einstaklings-
framtak af þestu gerð a.m.k. í
seinni tíð.
Stelpurnar hafa vissulega verið til
staðar og eru Kolrössur þar auð-
vitað besta dæmið auk þess sem
söngkonur á borð við Móeiði,
Margréti Eir, Emelíönu Torríni,
Heiðrúnu Ónnu, Heiðu í Unun,
Valgerði Guðnadóttur o.fl. hafa
getið sér gott orð, en vart hefur ein
stúlka komið með jafn afgerandi
og djörfum hætti inn í íslenskt
popplíf, eins og Krístin hefur nú
gert með Plötunni sinni, Litir.
Állavega man ritari Popps ekki
Kim
Tónlistarkonan Kim Deal, fyrrum
bassaleikari í rokksveitinni frá-
bæru, Pixies, og eftir því sem best
er vitað ennþá gítarleikari og
söngkona með The Breeders, hefur
nú sett saman nýja hljómsveit
meðan Breeders er ekki að störf-
um, sem Kallast The Amps. Eru
með henni þar þrír karlmenn, Nat-
han Farley gítarleikari, Luis Lerma
bassaleikari og Jim MacPherson,
sem einnig kemur úr Breeders, en
Kim sér svo sjálf um sönginn.
Hafa þau nú þegar sent frá sér
eina smáskífu með laginu Tipp
City og nú eftir helgina kemur
fyrsta stóra platan frá þeim, sem
nefnist Pacer. Upphaflega var það
þó ekki meiningin hjá Kim Deal að
setja saman nýja sveit, heldur að
Kim Deal hefur sett saman nýja sveit og er hin brattasta.
Yfir Atlantsála, frá Bandaríkjunum,
berast nú þau válegu tíðindi, að
söngvari hljómsveitarinnar Blind
Melon, Shannon Hoon, sé ekki
lengur í tölu lifenda. Þegar þetta
er ritað eru málavextir ekki alveg
skýrir, en fregnir herma að Hoon
hafi fundist látinn í gleðiborginni
New Orleans síðastliðinn mánudag.
Vitað er að Hoon sem og aðrir félag-
ar hans í Blind Melon, hafa verið
„gjarnir til gleðiláta" og hafa eitur-
lyfja- og áfengisneysla komið þar mikið
við sögu. (Það er ekki rétt sem komið
hefur fram í fjölmiðlum hér
heima, að Hoon væri ný-
lega uppvís að neyslu
lyfja.) Má þó vel get
sér til um að slík
neysla hafi átt hér
hlut að máli, án
þess að fullyrt sé
neitt um það. Eins
og kunnugt er sló
Shannon Hoon all-
ur. Svertist nú
ímynd rokkhetj-
unnar og var þó
ekki á bætandi.
Blind Melon í gegn með laginu No Rain
af fyrstu samnefndu plötunni sinni árið
1992, en það náði gríðarlegum vin-
sældum um allan heim. Hafði sveit-
in þá verið til í um tvö ár, en var lítt
kunn utan heimahaganna í Los
Angeles. Nú síðsumars kom svo
önnur plata Blind Melon út, Soup,
sem mörgum gagnrýnendum þótti
sýna framþróun, þrátt fyrir að vera
heldur „myrkari" heldur en forver-
inn. Hún hefur hins vegar ekki náð
jafn miklum vinsældum og sú fyrri,
enda jafnan erfitt fyrir ungar sveitir að
fylgja svo góðri byrjun eftir.
Þar sem ekki er um
fullnægjandi fregn-
ir að ræða af
dauða Hoon, er á
þessari stundu
lítið hægt að
fjölyrða um
framtíð Blind
Melon, en
væntanlega
munu mál-
in skýrast
frekar á
næstunni.
Kristín Eysteinsdóttlr kveður sér hljóðs
Kristín Eysteinsdóttir. Gefur íslensku popplífi lit.
eftir slíku í seinni tíð a.m.k. Nafn
henn hefur eflaust verið flestum
ókunnugt fyrir fáeinum vikum, en
gera einherjaplötu og áttu karlam-
ir þrír aðeins að vera henni til að-
stoðar við hljóðfæraleikinn. Síð-
asta haust, fyrir tæpu ári stóðu
líka málin þannig að hún hafði
samið ein sex lög fyrir plötuna og
var útgáfu að vænta snemma á
þessu ári. En þá dundi ógæfan yfir
ef svo má segja og hefur tíminn
nánast fram að þessu verið Kim
Deal mjög erfiður. Byrjuðu vand-
ræðin með því að tvíburasystir
Kim og gítarleikari með Breeders,
Kelly, var handtekin með heroin í
fórum sínum og síðan ekki löngu
síðar var hún sjálf handtekin af
svipuðum ástæðum. Reyndar var
hún sjálf aðeins tekin vegna
ölvunaraksturs, þar sem grunur
um frekari eiturlyfjaneyslu var
nú ættu flestir sem fylgjast með í
poppinu að kannast við hana af
verðskuldaðri athygli fjölmiðla.
ástæðulaus, en Kelly var sem fyrr
sagði í verri málum. Hún slapp
samt við fangelsisvist og hefur
þess í stað verið í viðamikilli með-
ferð, sem nú á víst að vera lokið
með ágætum árangri. Þessi vand-
ræði hafa þó tekið sinn toll hjá
Kim, sem reynt hefur að hjálpa
systur sinni og gert það að verk-
um að framtíð Breeders hefur ver-
ið stefnt í voða auk þess að breyta
áætlun hennar sjálfrar með sína
plötu. Það eru hins vegar töggur í
stelpunni og útkoman er sem sagt
sú, að Amps hefur myndast og
bíða menn nú nokkuð spenntir eft-
ir plötunni.
Það leynir sér ekki þegar hlustað
er á Liti, að Kristín, sem syngur og
spilar á gítar, er hæfileikarík og að
hún er enginn byrjandi þrátt fyrir
að vera nær óþekkt og nokkuð
ung. Rödd hennar er hvortveggja í
senn hrá og hlý og er það líka í
fullu samræmi við lagasmíðarnar
tíu sem platan hefur að geyma.
Hrátt og á köflum kraftmikið ný-
bylgjuslegið rokk í bland við ang-
urværar og jafnvel blúsaðar á
stöku stað lagasmíðar að hætti
trúbadora (Kristín mun víst hafa
töluverða reynslu sem trúbador)
má gefa sem grófa lýsingu á tón-
list Kristínar, sem þó dugir
skammt til að lýsa áhrifum henn-
ar. Textamir eru á sama hátt nokk-
uð áhrifamiklir, en eiga það þó
flestir sameiginlegt að vera heldur
dökkir, lýsa söknuði eftir glataðri
ást, einmanaleika og vonbrigðum.
Ljóðrænn stíllinn á mörgum þeirra
gerir þá hins vegar hrífandi og
undirstrikar það enn frekar að á
ferðinni er tónlistarkona sem ým-
islegt hefur fram að færa. Kristín
er þó aldeilis ekki ein á ferð. Nýtur
hún góðrar aðstoðar Orra Harðar-
sonar, þess góða Skagadrengs, við
hljóðfæraleik og gerð plötunnar að
öðru leyti. Setur hann sinn svip á
plötuna og eiga hann og Kristín
sérstakt hrós skilið fyrir upptök-
una á plötunni, sem hefur tekist
vel og er með góðum og þéttum
hljóm. Er vart hægt að búast við
því betra hjá nokkrum nýliða.
Það sem þó mestu máli skiptir hér,
er að Kristín Eysteinsdóttir er að
sanna það sem maður þóttist
reyndar vita, að stelpurnar gætu
þetta fullt eins vel og strákarnir, ef
ekki betur. Verður þetta svo von-
andi hvatning til fleiri íslenskra
kvenna, á öllum aldri, að láta slag
standa ef þær hafa löngun til að
koma sér og sínu á framfæri á eig-
in forsendum. Mun það eflaust
auðga tónlistarlífið til mikilla
mima.
NÚ ÞEGAf?
á þriðja ár er frá andláti Freddy
Mercury, hafa þeir Brian May gítar-
leikari, Roger Taylor trommuleikari
og John Deacon bassaleikari, ákveðið
að snúa aftur og það áfram undir
nafni Queen. Það kann þó að öllum
líkindum vera í síðasta sinn, því nýja
smáskifulagið, Heaven For Everyone
og nýja platan, Made In Heaven, sem
er að koma út um þessar mundir, er
lokavinna þeirra þriggja á þeirri
plötu sem Freddy var byrjaður að
vinna með þeim þegar hann iést.
Hefur lagið, ekki að undra, fengið
gríðarlega góðar móttökur og má í
kjölfarið búast við því að platan selj-
ist í margmilljónavís.
H\m ÍSLENSKU
The boys, bræðumir amar og Rúnar
Halldórssynir, hafa nú sent frá sér
sína þriðju plötu, sem einfaldlega
kallast The Boys 3. Eins og á hinum
tveimur fyrri, eru það vinsæl lög frá
sjöunda áratuginum sem drengimir
syngja og eru þau m.a. úr smiðjum
Bítlanna, Ob-la-di Ob-la-da, Hollies,
Jennifer Ecles og Kinks, You Really
Got Me m.a. Hinum plötunum
tveimur var vel tekið hér, náði sú
fyrsta t.d. gullplötusölu, en eins og
kunnugt er hafa þeir bræður verið
mjög vinsælir í Noregi, þar sem þeir
hafa verið búsettir ásamt foreldmm
sínum um langt skeið.
FYRIf? VIKU
var sagt frá plötunni sem U2 hyggst
senda frá sér undir nafninu Passeng-
ers. Er nú ljóst að hún kemur út 7.
nóvember og mun geyma samtals 14
lög sem annars hafa verið unnin með
kvikmyndir í huga. Nefnist platan í
samræmi við það, Orginal Sound-
tracks, eins og slíkar plötur nefnast
jafnan, en mun einnig bera töluheitið
1, sem væntanlega gefur til kynna að
meira muni koma í framtíðinni.
Unnu Bono og félagar plötuna í sam-
vinnu við Brian Eno á aðeins um sjö
vikum og mun hún að sögn endur-
spegla það sem U2 hefur verið að
gera á tveimur síðustu plötunum,
Achtung Baby og Zooropa.
hinkná”