Dagur - 31.10.1995, Side 7
Þriðjudagur 31. október 1995 - DAGUR - 7
Handknattleikur:
Nógaðgerahjá
Stefáni og Rögnvald
Stefán Arnaldsson og Rögn-
vald Erlingsson, milliríkja-
dómarar í handknattleik,
munu hafa í nógu að snúast á
næstu vikum. Þeir munu
dæma leik Sviss og Þýskalands
í Evrópukeppninni, sem fram
fer í Basel nk. föstudagskvöld.
Síðan dæma þeir báða leiki
Marseille frá Frakklandi og Baia
Mere frá Rúmeníu, sem leiknir
verða 10. og 12. nóvember.
Fyrri leikurinn fer fram í Marse-
ille en sá síðari í Mónakó. Helg-
ina eftir halda þeir síðan til Nor-
egs til að dæma leik Larvik við
Radnicki Belgrad frá Júgóslavíu
í EHF-keppni kvenna.
Karfa - Úrvalsdeild:
BowogWilliams
skora flest stig
Jonathan Bow úr KR og Fred
Williams úr Þór hafa skor-
aðflest stig að afloknum átta
umferðum í úrvaldsdeildinni í
körfuknattleik. Alls eru fjórir
leikmenn komnir yfir 200 stig-
in en það eru þeir Bow, sem er
með 225 stig, Williams með
219, Michael Thoele hjá
Breiðabliki með 218 stig og
John Torrey úr Tindastóli með
210 stig.
Njarðvíkingurinn Teitur Ör-
lygsson hefur skorað flest stig
íslenskra leikmanna, 188 talsins
og Herbert Amarsson er með
177 stig fyrir ÍR. Þórsarinn
Kristinn Friðriksson er í tólfta
sæti stigalistans en hann hefur
skorað 150 stig.
Blak:
KA-menn á
botninum
KA er í neðsta sæti í 1. deild
karla í blaki eftir leiki helgar-
innar. KA-liðið, sem er mjög
ungt, mátti þola tvö töp í leikj-
um helgarinnar gegn Þrótti
Reykjavík, syðra.
Báðum leikjunum lyktaði
með 3:1 sigri heimamanna,
15:6, 15:9, 13:15 og 15:10 í
fyrri leiknum og 15:8, 15:18,
12:15 og 15:10 í þeim síðari.
Þróttur er í efsta sæti ásamt
Stjömunni. Bæði liðin hafa
hlotið tólf stig, Þróttur eftir
fjóra leiki en Stjarnan eftir
fímm. ÍS hefur níu, HK og
Þróttur Neskaupstað sex og
KA með þrjú stig eins og áður
sagði.
„Þessir leikir voru eins og
við var að búast. Það var ágætt
að ná tveimur hrinum úr þeim,
þau stig geta orðið okkur mikil-
væg þó vissulega hefði verið
betra að ná fleiri. Liðið fer batn-
andi með hverjum leik og slæmu
kaflamir verða alltaf styttri og
styttri. Við vissum þó að þetta
yrði erfitt hjá okkur fram að jól-
um,“ sagði Pétur Ólafsson, fyrir-
liði KA.
Hart barist
Það var oft hart barist í leikjum helgarinnar í handknattleiknum. Bikarmeistarar KA hófu titilvörnina á sann-
færandi hátt og Þórsarar fóru einnig létt í gegnum umferðina. Myndin hér að ofan er reyndar úr deildarleik
Þórsara gegn Armanni og sjá má af brögðum Armenningsins að það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera
handknattleiksmaður. Mynd: BG
Knattspyrna - Áhorfendur:
Flestir sáu leiki ÍA
- að meðaltali 536 á heimaleikjum Leifturs
Leikir ÍA og KR voru langbest
sóttu leikirnir í 1. deild karla í
knattspyrnu síðasta sumar.
Rúmlega tíu þúsund manns
greiddu aðgangseyri að heima-
leikjum ÍA eða að meðaltali
1121 áhorfandi á leikjunum níu
og 1022 áhorfendur voru að
meðaltali á KR-vellinum, þar
sem mesta aðsóknin var að ein-
stökum leik, 2070 áhorfendur á
leik liðsins gegn í A.
Meðaltalsaðsókn að leikjum
Leifturs í Ólafsfirði var 536 áhorf-
endur, best var aðsóknin gegn ÍA,
901 áhorfandi, en minnstur var
áhuginn í síðasta leik liðsins, gegn
FH þar sem aðeins 366 áhorfendur
greiddu aðgang. Alls seldu Leift-
ursmenn 4828 miða á leiki liðsins
í Ólafsfirði og fengu fimmtu
Handknattleikur - Bikarkeppni:
Norðanliðin komin
í sextán liða úrslitin
Öll þrjú liðin af Norðurlandi,
KA, Þór og Völsungur komust
áfram í 32-liða úrslitum í bikar-
keppninni í handknattleik, sem
fram fór um helgina. Fimm
fyrstudeildarlið heltust úr lest-
inni, Haukar, ÍR, KR, Stjarnan
og Grótta. Sjö 1. deildarlið eru
eftir í pottinum, íjögur lið úr 2.
deild og fjögur lið sem keppa i b-
liðakeppninni. Einum leik er
ólokið, viðureign BÍ og Vals,
sem frestað var vegna atburð-
anna á Flateyri.
Dregið verður í sextán liða úr-
slitin í leikhléi á leik íslands og
Rússlands, sem fram fer í Kapla-
krika annað kvöld.
Annars urðu úrslit þessi í leikj-
um umferðarinnar.
Haukar-FH 21:28
Fram-ÍR 20:19
Stjaman-Afturelding 29:33
Breiðablik-Fjölnir 32:26
ÍH-KR 28:22
Völsungur-Ármann 23:20
Fylkir-HK 3:31
ÍBV-ÍRB 46:30
Víkingur - ÍBV B 33:25
Þór-Valur Rf. 34:22
Keflavík-Afturelding B 25:29
Víkingur B-FH B 24:22
Grótta B-Höttur 42:21
Grótta-KA 24:32
BÍ-Valur frestað
Selfoss-Reynir S. Selfoss áfram
Reynir dæmt úr leik eftir að
liðið dró sig út úr bikarnum.
Atta lið eru komin áfram í bik-
arkeppni kvenna en það eru FH,
Fram, KR, ÍBV, Haukar, Valur,
Víkingur, Fylkir og Stjaman.
Vill fá Valsara
„Ég vona að við fáum erfiða and-
stæðinga næst, í sextán liða úrslit-
unum. Það er ósk mín að fá Vals-
menn,“ sagði Ásmundur Amars-
Ásmundur Arnarsson var drjúgur
fyrir Völsunga gegn Ármanni í bik-
arkeppninni.
son, leikmaður Völsungs eftir sig-
urinn gegn Ármanni.
„Þetta gekk alveg ágætlega hjá
okkur og það var mjög gaman að
koma heim og spila með gömlu
félögunum. Ég hef lítið æft hand-
bolta að undanfömu og það kom
mér eiginlega á óvart hvað ég gat
kastað og gripið," sagði Ásmund-
ur.
Karfa-
Sætaferðir til
Sauðárkróks
Þórsarar munu gangast fyrir sæta-
ferðum á leik liðsins gegn Tinda-
stóli í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik, sem fram fer á Sauðárkróki í
kvöld. Lagt verður af stað frá
Hamri, félagsheimili Þórs, klukkan
17:30 en leikur liðanna hefst klukk-
an 20.
Karfa:
Jón Kr. þjálfar
landsliðið
Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leik-
maður Keflavíkur, var í gær ráðinn
þjálfari íslenska landsliðsins í körfu-
knattleik. Jón sem tekur við starfinu
af Torfa Magnússyni, skrifaði undir
samning fram yfir Evrópukeppnina,
sem fram fer í lok maí á næsta ári.
Island leikur í undanriðli keppninn-
ar, þar sem sex þjóðir berjast unr tvö
laus sæti sem gefa rétt til þátttöku í
riðlakeppninni.
Körfuboltasambandið hefur að
undanfömu verið að falast eftir æf-
ingaleikjum í vetur en lítið hefur
komið út úr þeirri málaleitan, enn
sem komið er.
ogKR
mestu aðsókn liðanna á leiki sína,
ÍA, KR, Fram (709) og Valur
(576) fengu fleiri áhorfendur.
Áhorfendur vom færri á leikjum
annarra liða, minnst aðsókn var að
heimaleikjum Breiðabliks, að
meðaltali 280 áhorfendur greiddu
miðaverðið.
Alls greiddu 54.550 sig inn á
leiki sumarsins, 606 á leik en þeir
voru 632 árið 1994. Minnsta að-
sókn sumarsins var á leik Breiða-
bliks og Keflavíkur, þar sem 105
áhorfendur borguðu sig inn. Þá
var greinilegt að minnstur áhugi
var fyrir tveimur síðustu umferð-
um deildarinnar, 1972 áhorfendur
fylgdust með 17. umferðinni en
flestir voru á leikjum þriðju um-
ferðar, 4347.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080