Dagur - 31.10.1995, Blaðsíða 10

Dagur - 31.10.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 31. október 1995 ÍÞRÓTTIR SÆVAR HREIÐARSSON United saxar á forskotið Manchester United saxaði að- eins á forskot Newcastle um helgina með því að vinna Midd- lesbrough á laugardaginn. Newcastle heimsótti Tottenham á sunnudag og náði aðeins jafn- tefli. Forskot þeirra svörtu og hvítu er því komið niður í tvö stig. Liverpool skaust upp í þriðja sætið með glæsilegum sigri á Manchester City, 6:0. Það var líf í leik United og Middlesbrough á Old Trafford. Bryan Robson, snéri aftur til Manchester til að mæta sínum gömlu félögum með lið sitt, sem komið hefur skemmtilega á óvart í vetur. Roy Keane, leikmaður Un- ited, var rekinn af leikvelli eftir hálftíma leik fyrir að lemja Norð- manninn Jan Age Fjörtoft en það kom ekki að sök. Gary Pallister, fyrrum leikmaður Middlesbrough, og Andy Cole skoruðu sitt hvort markið og tryggðu United sigur- inn. Newcastle náði ekki að sigra í leik sínum gegn Tottenham á White Hart Lane. Chris Arm- strong hefur fundið réttu leiðina í markið og liann kom Tottenham yfir með skallamarki í fyrri hálf- leik en Frakkinn David Ginola jafnaði fyrir Newcastle fljótlega eftir hlé. Liverpool og Manchester City mættust í deildarbikarkeppninni í Úrslit Úrvalsdeild Aston Villa-Everton 1:0 1:0 Dwight Yorke (76.) Blackburn-Chelsea 3:0 1:0 Tim Shcrwood (39.) 2:0 Alan Shearer (49.) 3:0 Mike Newell (57.) Leedsd-Coventry 3:1 0:1 Pion Dublin (12.) 1:1 (iary McAllister (40.) 2.1 Gary McAllister (43.) 3:1 Gary McAllister (89. víti) Livcrpool-Man. City 6:0 1:0 Ian Rush (3.) 2:0 Jamie Kedknapp (5.) 3:0 Robbie Fowler (47.) 4:0 Neil Ruddock (S3.9 5:0 Robbie Fowler (60.) 6:0 lan Kush (64.) Man. Utd.-Middlesbrough 2:0 1:0 Gary I’aliister (40.) 2:0 Andv Cole (87.) Rautt spjald: Roy Keane, Man. Utd. (30.) QPR-N. Forest 1:1 0:1 Jason Lee (46.) 1:1 Trevor Sinclair (80.) Sheff. Wed.-West Ham 0:1 0:1 Iain llowie (40.) Wimbledon-Soulhampton 1:2 0:1 Neil Shipperlev (9.) 1:1 Jason F.uell (63.) 1:2 Neil Shipperley (74.) Kautt spjald: Scott Fitzgerald, Wimbledon (85.) Tottenham-Nevvcastle 1:1 1:0 Chris Armstrong (21.) 1:1 David Ginola (47.) Staðan Newcastle 119 1 127: 8 28 Man. Utd. 11 82 1 23:11 26 Liverpool 11 7 22 24: 8 23 Arsenal 10 63 1 15: 5 21 N. Forest 11 5 60 19:12 21 Middlesbrough 11632 11: 621 Aston Villa 116 2 3 13: 8 20 Leeds 11 6 23 17:13 20 Tottenham 11 443 16:1416 Chelsea 11 434 11:1415 Blackburn 1142516:15 14 West Ham 11 344 10:12 13 ShelT. Wed. 11326 9:13 11 QPR 1131710:17 10 Wimbledon 1131710:17 10 Everton 1123612:16 9 Southampton 11 236 11:20 9 Coventry 11 1 4 68:21 7 Bolton 10127 11:22 5 Man. City 110293:21 2 - Liverpool kaffærði Manchester City á Anfield Road miðri síðustu viku og þá sigraði Liverpool 4:0. Gamla brýnið Ian Rush heldur dýrasta leikmanni Bretlandseyja, Stan Collymore, úti úr byrjunarliði þeirra rauðklæddu og hann skoraði tvö mörk á Anfi- eld. Robbie Fowler heldur sínu striki og skoraði einnig tvö mörk og Jamie Redknapp og varamað- urinn Neil Ruddock settu sitt markið hvor. Nottingham Forest hefur nú leikið 24 leiki í úrvalsdeildinni í röð án þess að tapa. Á laugardag gerði liðið jafntefli við QPR þar sem Jason Lee skoraði fimmta mark sitt á tímabilinu fyrir Forest og hefur hann fyllt í skarðið sem Stan Collymore skildi eftir sig. Mark hans dugði Forest þó ekki til þriggja stiga því Trevor Sinclair sannaði snilli sína enn einu sinni og jafnaði fyrir QPR. Gary McAllister var í sviðs- ljósinu þegar Leeds sigraði Co- ventry. Eftir að Dion Dublin hafði komið gestunum yfir með skalla- Gary McAIIister skoraði þrennu fyrir Leeds gegn Coventry. ■ Manchester City hefur fengið fram- herjann Thomas Christiansen að láni frá spænska stórliðinu Barcelona. Eins og nafnið gefur til kynna er Christian- sen danskur að uppruna en hann er spænskur ríkisborgari og hefur leikið nokkra landsleiki fyrir Spán. Hann hef- ur aldrei náð að festa sig í sessi í aðal- liði Barcelona og vill nú reyna fyrir sér í Englandi. City bauðst að fá rúmenska landsliðsmanninn Gheorghe Hagi lán- aðann en enska félagið hafði ekki efni á að borga honum þau laun sem hann fær hjá Barcelona. í staðinn fékk City Christiansen, sem er 22 ára, og fékk hann góð meðmæli frá Johan Cruyff, þjálfara Börsunga. ■ Óvíst er hvort sala Sheffield Wed- nesday á rúmenska bakverðinum Dan Petrescu til Chelsea fyrir 2,3 milljónir punda verður að veruleika. Félögin komust að samkomulagi um kaupverð fyrir tveimur vikum en Petrescu hefur síðan farið í tvö læknispróf og forráða- menn Chelsea eru ekki ánægðir með niðurstöðuna. Síðan félögin sömdu hef- ur Wednesday gert samning við Rauðu Stjömuna í Belgrað um kaup á júgó- slavnesku landsliðsmönnunum Darko Kovacevic og Dejan Stefanovic fyrir 4 milljónir punda og ef ekkert verður úr sölunni á Petrescu má búast við að fé- lagið lendi í vandræðum með að standa við þá samninga. ■ Kovacevic og Stefanovic era báðir 21 árs og eru í hópi efnilegustu leik- manna Evrópu. Kovacevic er framherji og hefur skorað 42 mörk í 45 leikjum með Rauðu Stjömunni en Stefanovic er miðvörður. Sheffíeld Wednesday bíður nú eftir að fá atvinnuleyfi fyrir kappana og er búist við að það taki nokkum tíma en David Pleat, stjóri Wednesday, reynir hvað hann getur til að útvega það sem fyrst þar sem ítölsk og spænsk lið hafa einnig sýnt leikmönnunum áhuga. ■ Líklegt þykir að David Hirst verði seldur frá Wednesday ef Kovacevic fær atvinnuleyfi. Honum hefur gengið illa að skora en vitað er að Everton hefur áhuga á að fá hann í sínar raðir. Miklar hræringar eru í herbúðum Wednesday þessa dagana og í síðustu viku bauð fé- lagið 1,3 milljónir punda í tengiliðinn Scott Oakes hjá Luton en því tilboði var hafnað. Á sama tíma lánaði Wed- nesday markvörðinn Chris Woods til 1. deildarfélagsins Reading í einn mánuð. ■ Brasilíski snillingurinn Juninho gat ekki leikið með Middlesbrough gegn Manchester United um helgina þrátt fyrir að vera kominn með atvinnuleyfi í Englandi. Hann átti eftir að ganga frá lausum endum í Brasilíu og náði ekki til Englands tímalega til að leika með sínum nýju félögum. ■ Fleiri brasilíumenn era sennilega á leiðinni í enska boltann. Vandræða- gemsinn Edmundo, sem þykir einn snjallasti framherji Brasilíu í áraraðir, verður sennilega seldur til liðs í Evrópu síðar á árinu eftir að félag hans, Fle- mengo, lýsti því yfir að hann væri til sölu. Flamengo vill þó ekki selja kapp- ann fyrr en tímabilinu lýkur í Brasilíu í desember. Formaður Flamengo segir að félagið hafí fengið tilboð í Ed- mundo, sem gengur jafnan undir gælu- nafninu Villta dýrið , frá þremur ítölsk- um félögum, einu spænsku og einu ensku. Edmundo, sem þekktur er fyrir að lenda í útistöðum við dómara, sam- herja og forráðamenn liða, var keyptur til Flamengo frá Palmeiras fyrir 3,3 milljónir punda í maí sl. en hefur átt í erfiðleikum með vinna með landsliðs- framherjanum Romario. Formaður Fla- mengo sagði einnig að félagið hefði fengið tilboð frá evrópskum liðum í kantmanninn efnilega Savio. ■ Markaðurinn fyrir félagsskipti á ítal- íu er opinn í eina viku í byrjun nóvem- ber og er talið að tvö ítölsk lið reyni að kaupa framherjann Andrea Silenzi frá Nottingham Forest en hann hefur lítið fengið að leika síðan hann gekk til liðs við félagið í sumar. Liðin sem um er rætt eru Inter Milan og Genoa og hefur framkvæmdastjóri Genoa lýst því yfir að félagið vilji gjaman skipta á Silenzi og tékkneska framherjanum Tomas Skurhavy. ■ Ray Harford, stjóri Blackbum, var í síðustu viku á leik með varaliði Totten- ham þar sem hann fylgdist með rúm- enska Imidsliðsmanninum Ilie Dumitr- escu. Á síðustu vikum hefur Harford reynt að kaupa Trevor Sinclair frá QPR, Neil Heaney frá Southampton og John Collins frá Celtic en lítið orðið ágengt. Harford reynir nú að fylla stöðu vinstri kantmanns vegna langvar- andi meiðsla Jason Wilcox. ■ Paul Warhurst hefur farið fram á að vera seldur frá meistaraliði Blackbum eftir að hafa átt í erfiðleikum með að komast í aðalliðið. Hann var keyptur frá Sheffield Wednesday fyrir 2,7 milljónir punda fyrir tveimur árum en hefur lítið getið leikið síðan vegna meiðsla. Aston Villa hefur keypt miðvörðinn Carl Tiler frá Nottingham Forest fyrir 750.000 pund. Forest keypti Tiler frá Bamsley fyrir þremur árum fyrir 1,4 milljónir punda og þótti hann þá einn sá efnilegasti á Bretalndseyjum. Hann hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Forest og neitaði nýjum samningi við félagið í sumar. ■ QPR hefur hafnað tilboði Leeds í kantmanninn snjalla Trevor Sinclair. Bill Fotherby, stjómarfonnaður Leeds, segir að félagið hafi boðið leikmenn sem hluta af greiðslu fyrir Sinclair en því hafi verið hafnað. QPR keypti kappann frá Bristol Rovers fyrir 600.000 sumarið 1993 og hann þykir nú koniinn í hóp bestu kantmanna Eng- lands. Ray Wilkins, stjóri QPR, segir að hann sé ekki til sölu fyrir minna en 10 milljónir punda og verður því að teljast líklegt að hann verði áfram í her- búðum QPR enn um sinn. ■ Enski landsliðsfyrirliðinn David Platt er tilbúinn í slaginn á ný eftir meiðsl og lék tvo æfingaleiki með varaliði Arsenal í síðustu viku. ■ Italska íþróttadagblaðið Corriere dello sport hefur greint frá því að eig- andi Inter Milan, Massimo Moratti, hafi sent aðstoðarmann sinn til Eng- lands til að kanna áhuga Arsenal á að kaupa Paul Ince aftur til heimalandsins. Blaðið sagði að Arsenal hefði þegar boðið í enska tengiliðinn, sem hefur gengið illa að aðlagast ítalska boltan- um. ■ Táningurinn Ian Moore hjá Tranm- ere hefur verið orðaður við nokkur af stærstu félögum Englands að undan- fömu. Moore er 19 ára og hefur leikið á als oddi í framlínu Tranmere að und- anfömu. Middlesbrough, Manchester United, Liverpool og Southampton hafa öll fylgst vel með stráknum að undanfömu en ef þau hafa áhuga á stráksa þá er hann metinn á vel yfir 1 milljón punda. Faðir hans, Ronnie Mo- ore, er fyrrum leikmaður Tranmere og var mikil markavél á sínum yngri árum en hann er nú þjálfari hjá Tranmere. ■ Mark Crossley, markvörður Notting- ham Forest, gerir sér nú vonir um að komast í annað hvort skoska eða velska landsliðið eftir að hafa gefið upp alla von um að vera valinn í landsliðshóp Englands. Crossley hefur greinilega tröllatrú á sjálfum sér og hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með að hafa ekki verið valinn í enska landsliðhópinn. marki jafnaði McAllister með langskoti. Hann kom Leeds yfir með marki beint úr aukaspyrnu þremur mínútum síðar og full- komnaði þrennuna úr vítaspyrnu einni mínútu fyrir leikslok. Aston Villa vann Everton og var það kærkomið eftir að hafa ekki náð sigri í þremur leikjum í röð. Það var framherjinn Dwight Yorke sem tryggði stigin þrjú með góðu skallamarki undir lok leiks- ins. Everton gengur illa og hefur ekki unnið leik frá því í lok ágúst. Meistarar Blackbum náðu í mikilvæg stig gegn Chelsea. Tim Sherwood átti heiðurinn að fyrsta marki Blackbum en skot hans hafnaði í Ruud Gullit og fór af honum í netið. Gullit klikkaði síð- an á rangstöðuvöminni og það nýtti markahrókurinn Alan Shear- er til þess að bæta við öðm marki. Mike Newell batt endahnútinn á góðan leik með þriðja marki Blackbum. Úrslit 1. deild Derby-OIdham 2:1 1:0 Robbie Van Der Laan (33.) 2:0 Paul Simpson (49.) 2:1 Scan McCarthy (65.) Grimsby-Stoke 1:0 1:0 l’aul Groves (51.) Leicester-Crystal Palace 2:3 0:1 Bruce Dyer (5.) 0:2 David Hopkin (27.) 0:3 Bruce Dyer (68.) l:3Mark Robins(76.) 2:3 Scott Taylor (80.) Millwall-WBA 2:1 1:0 Chris Malkin (19.) 1:1 Andy Hunt (21.) 2:1 Uwe Fuchs (59.) Portsmouth-Watford 4:2 1:0 MarkStimson(lL) 2:0 Mark Stimson (15.) 2:1 Kcvin Phillips (50.) 3:1 Martin Allen (66.) 3:2 Craig Kamage (87.) 4:2 Jimmy Carler (89.) Reading-Ipswicli 1:4 0:1 Gus Uhlenbeek (43.) 1:1 Stuart Lovell (64.) 1:2 Alex Mathic (67.) l:3Paui Mason (85.) 1:4 Geraint Williams (90.) Southend-Huddersiield 0:0 Sunderland-Barnsley 2:1 1:0 Craig Russell (20.) 2:0 Lee Howey (62.) 2:1 Andv Liddell (69.) Wolves-Sheff. Utd. 1:0 1:0 Steve Bull (37.) Luton-Charlton 0:1 0:1 Garry Nclson (16.) Port Vale-Birmingham 1:2 0:1 Paul Tait (7.) 0:2 Steve Claridge 1:2 Andy Portcr (80,/vítI) Norwich-Trantnere 1:1 1:0 Andy Johnson (10.) 1:1 lan Moorc (46.) Staðan Millwall Birmingham Leicester WBA Sunderland Tranmere Norwich Charlton Oldham Grimsby Ipswich Barnsley Huddersfield Derby Southend Wolves C. Palace Reading Stoke Watford Portsmouth Luton Sheff. Utd. Port Vale 14842 17:1128 14 743 24:1425 147 4324:18 25 147 34 20:15 24 14662 17:1324 13 5 62 21:13 21 14563 19:1521 14563 18:13 21 14 5 54 19:15 20 145 5 414:15 20 145 45 24:2219 14545 21:27 19 14536 17:20 18 144 64 16:18 18 14536 12:16 18 14455 18:19 17 13 45 416:17 17 14 3 6 5 18:22 15 14365 15:19 15 14 3 5 6 18:21 14 14347 19:23 13 14338 10:17 12 143 29 17:2611 142 5 7 12:1811

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.