Dagur - 31.10.1995, Síða 11

Dagur - 31.10.1995, Síða 11
Þriðjudagur 31. október 1995 - DAGUR - 11 Skólamál Samstai-fíð um einstakling- inn... nemandann I aðalskrá grunnskóla frá 1989 er mjög víða vikið að þætti foreldra í skólastarfi og hvatt til þess að heim- ili og skóli vinni saman að því að ná meginmarkmiðum grunnskólanáms, „til þess að þetta takist þarf livert foreldrilforráðamaður að fá tœkifœri til að taka ábyrgan þátt í skólastarfi. Skólinn á að eiga frum- kvœði með því að veita heimilum upplýsingar og leita upplýsinga hjá foreldrumlforráðamönnuni og sam- starfs við þá. Starf beggja aðila er háð þekkingu og gagnkvœmu trausti og samvinnan þarf að byggjast á samábyrgð og samstöðu um velferð hvers nemenda og aðstœðum hans til menntunar og þroska. “ Samkvæmt þessu má segja að allt samstarf heimila og skóla miði að heill og hamingju bamanna í lífi og starfi. Foreldrar geta auðveldað skólanum starfið og barninu skóla- vistina með því að sýna áhuga og vilja til samstarfs við skólann. Starfsfólk skólans þarf líka að vera reiðubúið til að korna til móts við foreldrana sem treysta þessari stofn- un fyrir baminu sínu. Báðir aðilar eru skyldugir til að taka þátt í samstarfinu. Skóli og heimili þurfa í sameiningu að skil- greina verkefnin og verkaskipting- una og væntingar beggja aðila varð- andi samstarfið þurfa að liggja ljós- ar fyrir. Til þess að þetta megi tak- ast þarf heiðarleika, gagnkvæmt traust, þolinmæði og tíma. Hvaða samskiptaleiðir eru notaðar? Hvem- ig reynast þær? Hvað má bæta? Foreldraviðtalið Nú eru framundan í ntörgum skól- um foreldraviðtöl og ágætt fyrir for- eldra og nemendur að byrja að und- irbúa sig fyrir þau. Hefðbundin 10- 15 mínútna einkaviðtöl kennara og foreldra með/án nemendans einu sinni til tvisvar á vetri eru sennilega of lítill tími til að byggja upp gagn- kvæmt traust og trúnað milli for- eldra og kennara, einkurn ef kenn- araskipti eru tíð. Þess vegna er sjálf- sagt að nota símatíma kennara og hringja öðru hvoru í skólann til að spjalla. Ekki bíða þar til eitthvað kemur uppá, það er yfirleitt erfitt að þurfa að tala um viðkvæm mál ef menn hafa aldrei spjallað saman áð- ur. Það er ágætt að setjast í róleg- • heitum með baminu áður en farið er í foreldraviðtalið. Skoða í skóla- töskuna, fletta gegnum bækumar og hlusta á bamið. Hér eru nokkrar spumingar sem má nota til hliðsjón- ar þegar málin eru rædd heima og í skólanum. • Líkar þér við bekkinn þinn? Attu vini? Hverjir eru það? • Kemur þér og kennaranum vel saman? • Hvernig er í frímínútum? Inni eða úti á skólalóðinni • Nestistímarnir, nestismálin. • Aðrir tímar, leikfimi, handmennt, myndmennt, tónlist. • Hvemig gengur að sameina skóla og áhugamál, s.s. tónlistamám, íþróttir? • Hvað líkar þér best við skólann? Hvað er skemmtilegast? • I hverju ertu góður? • Hvað finnst þér erfitt? • Er heimanámið of lítið, of mikið, of auðvelt, of erfitt? • Finnst þér gott að vinna með öðr- um í hóp eða viltu heldur vinna einn? • Hvernig vinnur þú? Hratt, hægt, kæruleysislega, vandar þú þig? • Hverju rnundir þú vilja breyta hjá þér, persónulega eða í sambandi við námið? • Hverju vildir þú breyta í bekkn- um? • Hverju mundir þú vilja breyta í skólanum? • Hvaða framtíðaróskir áttu, að hverju stefnir þú í framtíðinni? Spurningar til að ræða við kennarann • Hvað segja aðrir kennarar eða starfsmenn skólans um barnið? • Hvemig vegnar barninu í nárni ntiðað við eigin forsendur, getu? • Hefur það áhuga á einhverri námsgrein umfrarn aðrar? • Hvaða gáfu, hæfileika ætti barnið að geta ræktað með sér? • Hvernig er barnið statt félags- lega? • Hverjir eru jákvæðir eiginleika bamsins? • Hvar þarf barnið að taka sig á? • Hver ef afstaða nemandans til skólans að mati foreldra, að mati kennara? • Hvað virðist ganga vel í skólan- um að mati foreldra, kennara? • Hvemig gengur heimanámið? • Hvemig er með félaga/vini? • Spumingar um námið, samk- skipti, vinnuaðferðir o.s.frv. Foreldraviðtalið er ómetanleg samskiptaaðferð og nauðsynlegt fyrir bæði foreldra, kennara og nem- andann að það sé vel undirbúið og því sem þar er ákveðið sé fylgt eftir. Þannig getum við best tryggt að markmiðum grunnskólalaga sé náð. Unnur Halldórsdóttir. LANDSSAMTÖKIN HEIMILI OG SKÓLI Sunnudaginn 29. október efndi Tón- listarfélag Akureyrar til tónleika í Safnaðarheintili Akureyrarkirkju. Tónlistarmennirnir, sem mættir voru til leiks, voru félagamir í kvartettnum Kuran Swing; þeir eru Szymon Kur- an, fiðluleikari, Björn Thoroddsen, sem leikur á sólógítar, Ólafur Þórðar- son, sem leikur á ryþmagítar, og Bjarni Sveinbjömsson, kontrabassa- leikari, sem kemur í stað Þórðar Högnasonar, sem ásamt hinum fyrst- nefndu þrem er einn stofnenda kvart- ettsins. Kvarteltinn var stofnaður árið 1989. Hann vakti þegar mikla athygli, enda valinn maður í hverju rúmi. Kvartetlinn hefur komið fram í út- varpi og sjónvarpi, haldið tjölda tón- leika, gefið út plötur og hyggur nú á tónleikaferð til Norðurlanda og Pól- lands, sem er upprunaland Szymons Kurans. Szynton Kuran átti rnargar frábær- ar lotur á tónleikunum í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju. Hann fór á kostum þegar í fyrsta laginu, sem var Gin og tonic eftir Ólaf Þórðarson. í þessu lagi beitti Szymon Kuran fyrir sig sígaunalegum tilþrifum, sem hann nýtti einnig í öðrum lögum, svo sem lagi, sem Ölafur Þórðarson, kynnir á tónleikunum, kallaði Nonnalag. Tor- velt er að gera upp á milli sólóa Szymons Kurans. Hann fór á kostum í sem næst hverju lagi í lagrænum og hrífandi leik. Sérstaklega má þó geta Lullabye of Birdland, lags eftir Björn Thoroddsen, sem Ólafur kallaði Gróð- ursetningarlagið, Autumn Leaves, þar sem samleikur fiðlu og sólógítars var Sveifla Kurans Swings magnaður, lagsin Römm er sú taug eftir Ólaf Þórðarson og laganna Sweet Georgia Brown og Flintstones, sem leikin voru á miklum hraða, lagi tónleikanna, Svörtu augunum. Ólafur Þórðarson lék af öryggi á ryþmagítarinn og brást hvergi. Kynn- ingar hans voru einnig liprar og leiddi glögglega í ljós mikið öryggi og fæmi fiðluleikarans. Bjöm Thoroddsen sýndi á sama hátt glæsitilþrif í leik sínum. Hann, ekki síður en Szymon Kuran, hefur gott lag á því að spinna á fjölbreyttan og lagrænan hátt, eins og vel kom fram í nálega hverju lagi, sem kvart- ettinn flutti á tónleikunum 29. októ- ber. Nefna má til dæmis Gróðurset- ingarlagið, máttugt sóló í Autumn Leaves, góð tilþrif í hinum hraða flutningi Flintstones og ekki síst fal- lega unninn leik um laglínuna í auka- TONUST HAUKUR ACUSTSSON SKRIFAR áheyrilegar, enda hann gamalreyndur á því sviði. Bjama Sveinbjömsson, kontra- bassaleikara, hefur ekki borið fyrir eyru undirritaðs fyrr en á umræddum tónleikum Kurans Swings. Hann á að baki hljóðfæraleik í ýmsum dægur- lagahljómsveitum og hefur greinilega ryþmann í blóðinu. Bassaleikur hans var öruggur, en fyrir kom, að hann væri ekki alveg tónhreinn svo sem í fyrsta laginu: Gin og tonic. Víða náði Bjarni góðurn tökum í sólóum, svo sem í lögunum Stór Bjór eftir Bjöm Thoroddsen, Hátt uppi, sem Ólafur, kynnir, sagði vera eftir kvartettinn all- an og laginu Flintstones. Eftir hlé, bættist strengjakvartett við í llutningi þriggja laga. Hér vom á ferð fjögur ungmenni frá Akureyri og kallaði Ólafur Þórðarson kvartettinn Strengjakvartett Norðurlands í kynn- ingu sinni. Kvartettinn lék áheyrilegt hlutverk í flutningi laganna þriggja og stóðu hljóðfæraleikarar hans sig í heild talsvert niikið vel. Gott væri, ef þessir tónleikar og þátttaka ungmenn- anna fjöguna yrði til þess að þau tækju að æfa sarnan af alvöru og markvísi. Af leik þeirra á tónleikum Kurans Swings má ætla, að þau gætu náð vel sarnan í flutningi sínum. Tónleikar Kurans Swings voru vel sóttir og ríkti mikil stemmning. Von- andi verður þess ekki langt að bíða að kvartettinn heimsæki Akureyri aftur og gefi þannig aðdáendum sínuni í bænum og nærsveitum hans tækifæri til þess að njóta leiks síns öðm vísi en af plötum eða í útvarpi. Vinir mínir nær og fjær! / Eg sendi ykkur öllum alúðarkveðjur, þakkir fyrir heimsóknir, góðar gjafir og hlýjar kveðjur í tilefni af áttræðisafmæli mínu þann 14. október sl. Lifið heil. TEITUR BJÖRNSSON, Brún. Ódýrt þakjárn, LOFTA- OG VEGGKLÆÐNINGAR Framleiðum þakjárn, lofta- og veggklæðningar á hagstæðu verði. Galvaniserað, rautt, hvítt og koksgrátt. TIMBUR OG STÁL HF. Smiðjuvegi 11, Kópavogi. Símar 554 5544 og 554 2740, fax 554 5607. 441KAUPÞING NORÐURLANDS HF FÉSÝSLA Vikuna 22.-28. október voru viðskipti með hlutabréf 16,7 milljónir króna. Mest voru viðskipti með hlutabréf í eftirtöldum félögum: Ármannsfelli hf. fyrir 6,6 milljónir króna á genginu 0,90, íslandsbanka hf. fyrir 2,9 milljónir króna á genginu 1,23-1,25, Flugleiðum hf. fyrir 2,5 milljónir kró--' á gencmu 2,33-2,37 og íslenc1-? : ilutabreiasjuónum hf. fyrir . ,o mmjonir króna á genginu 1,39-1,40. Viðskipti með Húsbréf voru 452 milljónir króna, Spariskírteini ríkissjóðs 865 millj- ónir, Ríkisvfxla 1.838 milljónir og Ríkis- bréf 243 milljónir. Ávöxtunarkrafa Hús- bréfa lækkaði í vikunni úr 5,84% í 5,69%. SPARISKIRTEINI RÍKISS JÓÐS Tegund K gengi K áv.kr. 92/1D5 1,3532 5,70% 93/1D5 1,2487 5,75% 93/2D5 1,1781 5,70% 94/1D5 1,0718 5,80% 95/1D5 0,9963 5,80% HÚSBRÉF Flokkur K gengi K áv.kr. 94/3 0,9923 5,70% 94/4 0,9868 5,70% 95/1 0,9684 5,70% 95/2 0,9471 5,65% VERÐBRÉFASJÓÐIR Kaupg. Ávðxtun 1. okL umfr. verðbólgu síðustu: (%) Sölug. 6 mán. 12 mán. Fjárfestingarfélagið Skandia hf. Kjarabréf 5,668 5,927 6,7 7,2 Tekjubréf 1,585 1,601 3,9 5,6 Markbréf 3,216 3,248 9,4 7,4 Skyndibréf 2,269 2,269 4,0 4,1 Fjölþjóðasjóður 1,261 1,300 12,3 •11,3 Kaupþing hf. Einingabréf 1 7,739 7,680 5,9 4,5 Eíningabréf 2 4,341 4,363 3,2 1,0 Einingabréf 3 4,953 5,044 5,9 2,4 Skammtímabréf 2,711 2,711 4,1 3,2 Einingabréf 6 1,361 1,403 35,1 17,1 Verðbréfam. Islandsbanka hf. Sj. 1 Vaxfarsj, 3,768 3,807 3,8 2,7 Sj. 2 Tekjusj. 2,053 2,074 37 4,6 Sj. 3 Skammt. 2,609 3,8 2,7 Sj. 4 Langt.sj. 1,794 3,8 2,7 Sj. 5 Eignaskdrj. 1,712 1,721 3,4 0,9 Sj. 6 island 1,315 1,354 31,3 25,7 Sj. 7 Pýsk hlbr. Sj. 10 Evr.hlbr. Vaxtabr. 2,669 3,7 3,7 Valbr. 2,502 4,6 4,8 Landsbréf hf. íslandsbréf 1,709 1,740 4,9 4,1 Fjórðungsbréf 1,208 1,225 3,9 4,4 Þingbréf 1,988 2,013 4,7 4,3 ðndvegisbréf 1,782 1,805 3,0 1,8 Sýstubréf 1,763 1,786 4,9 8,1 Reiðubréf 1,631 1,631 4,1 3,4 Launabréf 1,075 1,091 1,8 1,9 Heimsbréf 1,530 1,576 23,0 4,7 HLUTABREF Sölu- og kaupgengi á Verðbréfaþingi islands: Hagst. tilboð Lokaverð Kaup Sala Alm. hlulabr.sj. hf. 1,19 1,16 1,21 Auölindarbréf 1,38 1,35 1,41 Eignfél. Alþýðub. 1,08 1,12 Eimskip 5,40 5,38 5,42 Flugleiðir 2,35 2,33 2,37 Grandi hf. 2,38 2,22 2,38 Hampiðjan 3,05 3,00 3,15 Haraldur Böðv. 2,43 2,43 2,47 Hlutabréfasjóðurinn 1,92 1,90 1,924 Hlutabréfasj, Norðurl. 1,46 1,49 1,51 Hlutabréfasj. VÍB 1,32 íslandsbanki hf. 1,24 1,22 1,29 ísl. hlutabréfasj. 1,40 1,36 1,41 Jarðboranirhf. 1,90 1,90 2,10 Kaupfélag Eyf. 2,15 2,15 2,30 Lyfjaverslun Islands 2,05 1,96 2,15 Marel hf. 3,80 3,80 4,10 Olís 2,60 2,60 2,75 Olíufélagið hf. 5,87 5,75 5,99 Síldarvinnslan hf. 3,18 3,11 3,18 Skagstrendingur hf. 3,40 3,25 3,50 Skeljungur hf. 4,00 3,64 3,99 SR mjöl 2,00 1,85 2,00 Sæplast 3,38 3,38 3,45 Útgerðarfélag Ak. 3,10 3,00 3,25 Vinnslustöðin 1,02 0,99 1,00 Þormóður rammi hf. 3,15 3,15 3,40 Sölu- og kaupgengi á Opna tilboðsmarkaðlnum: Armannsfell 0,90 0,80 1,00 Bifreiðaskoðun (sl. 2,15 1,00 Hraðfrystihús Eskifjarðar 2,00 1,62 1,90 Isl. sjávarafurðir 1,85 1,56 1,85 (sl. útvarpsfél. 4,00 Pharmaco 7,30 7,50 7,90 Samein. verktakar hf. 7,60 7,55 8,40 Samskip hf. 0,85 0,80 Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,20 7,80 Skinnaiðnaður hf. 2,80 2,80 2,90 Softís hf. 6,00 Sölusamb. ísl. fiskframl. 1,77 1,90 2,00 Tollvörug. hf. 1,00 1,00 1,15 Tryggingarmiðsf. hf. 6,00 5,50 Tæknival hf. 1,49 1,52 1,79 Tölvusamskipti hf. 2,20 1,00 2,75 Þróunarfélag islands hf. 1,25 1,25 DRATTARVEXTIR Október____________________________15,00% MEÐALVEXTIR Alm. skuldabr. lán október 11,90% Verðtryggð lán október 8,90% LÁNSKJARAVÍSITALA Október 3438 Nóvember 3453 VÍSITALA NEYSLUVERÐS Október 174,1 Nóvember 174,9

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.