Dagur - 16.12.1995, Blaðsíða 11

Dagur - 16.12.1995, Blaðsíða 11
Laugardagur 16. desember 1995 - DAGUR - 11 á Grænlandi voru kynni mín af innfæddum fremur lítil utan starfsins. Þess vegna er víst best að vera ekki að fullyrða alltof mikið um þetta fólk, sem raunar sýndi mér ekkert annað en stök- ustu vinsemd. Starfsfólkið á sjúkrahúsinu var ágætt í viðkynn- ingu og þar fékk ég að smakka ýmsa þarlenda rétti svo sem sauð- nautakjöt, nýjan sel og mattaq, sem eru bitar úr náhvelishúð. Grænlendingamir gengu frekar af- slappaðir að störfum sínum. Ekki þýddi að setja upp mikið af skrif- legum fyrirmælum sakir misjafnr- ar lestrarkunnáttu fólks. Nokkuð vom sumar konumar ónákvæmar með mætingar og var þar um að kenna áfengisneyslu. Fyrir kom að forfallaðir starfsmenn sendur ein- hverja vini sína til að vinna fyrir sig. Næturvaktin hafði gjarnan karlinn sinn hjá sér, sér til halds og trausts ef drukkna næturgesti í stað étinn af lausagönguhundum, sem eru mikilvirkir í sorphirðu á Grænlandi. Flestir hundanna voru samt bundnir á streng, hvert æki sér, oftast níu til ellefu hundar. A þessum árstíma voru þeir heldur ljótir greyin og voru að fara úr hárunum. Þeir eru hálfsveltir yfir sumarið og aðeins gefið tvisvar í viku. Þeir eru því gólandi allan sólarhringinn en gelta ekki. Þeir geta verið grimmir og er því óráð- legt að vera að þvælast innan um þá. A veturna eru þeir hins vegar í essinu sínu og það þá fyrsta boð- orð veiðimannsins að fóðra hund- ana vel, því undir þeim er líf hans komið. Ég var ákaflega heppinn með það, hversu tíðindalítið var í Scor- esbysundi meðan ég dvaldi þar. Ég hvarf því þaðan með góðar minningar um stórbrotna náttúru og elskulega þjóð, sem að hluta til a Pétur Pétursson skoðar hér ferðafötin; bjarnar- skinnsbuxur og stígvél úr hreindýraskinni. bæri að garði. Þótti mér það heim- ilislegt að koma að þeim skötuhjú- unum liggjandi andfætis á dýnu á ganginum snemma morguns. Einnig var það alltaf spennandi að sjá, hvaða sjúklingar höfðu út- skrifað sig sjálfir yfir nóttina og hverjir höfðu komið í þeirra stað að eigin frumkvæði. Einnig kom það fyrir að ættingjar gistu á sjúkrahúsinu sínum nánustu til skemmtunar. Það gat verið mjög gaman að ráfa um grjótmelana í kringum þorpið þar sem ekki virtist vera um stingandi strá að ræða. Þegar vel var að gætt var þó allsstaðar einhver heimskautagróður að teygja sig mót sólu, yfirleitt að- eins örfáa sentimetra. Þótt fuglalíf væri fátæklegt var samt alltaf eitt- hvað af smáfuglum að sjá. Hvar- vetna gat því að líta einhver dæmi um aðlögunarhæfni lífveranna. Þrátt fyrir gróðurleysið varð ég aldrei var við ryk eða sandfok. Þarna var staðviðri á meðan ég stóð við og jafnan sólskin um daga og lygnt. Þarna er ekki um neina mold að ræða eða sand til að tjúka. Allt vatn var blátt, bæði sjórinn og stöðuvötn uppi á landi. Manni fannst því allt vera hreint þama í stórbrotinni umgjörð íss- ins, jafnvel þótt Grænlendingar hirði aldrei rusl af götu sinni. Hvar sem drepið var niður fæti milli húsa mátti sjá öldósir, flösk- ur og hverskyns msl annað en líf- rænan úrgang, því hann var þegar hefur verið örkumluð af Dönum. Mér er sagt að Gænlendingar steli helst aldrei neinu nema áfengi. Þeir reykja hroðalega mikið en eiturlyf þekktust ekki þama norð- urfrá. í þessu einangraða samfé- lagi hefur ekki fundist lekandi í hálft ár, en tíðni hans hefur verið gríðarleg á Grænlandi síðustu ára- tugina. Berklar eru hins vegar talsvert famir að láta á sér kræla að nýju. Grænlandsdvöldin minnti mig enn á það, hversu gott við Islend- ingar höfum það í flestum efnum, að minnsta kosti á meðan við höf- um eitthvað að gera. Hins vegar er fólk auðvitað mjög misánægt og fer það oftast eftir skapgerð þess og lífsafstöðu fremur en verald- legu gengi. Auðvitað á lífið ekki að vera nein átakalaus skemmtun, og mótlæti og spenna getur gefið því lit og þroskað einstaklinginn og gert hann að manni. Ég held að það sé samt talsvert atriði að taka hlutina ekki allt of hátíðlega og held ég mikið upp á þessi vers Arnar Amarsonar úr ljóðinu Undir svefn: Um þreytta limu líður sœlukennd. Eg lít með brosi yfirfdrna vegi og lilœgirþað, er aftur upp ég stend, livað yfirstíga má á nœsta degi. Og er það ekki mesta gœfa manns að milda skopi slys og þrautir unnar, að ftnna kímni í kröfum skaparans og kankvís bros í augum tilverunnar? Það er alltaf fjör í Himnaríkinu góða. Á þessari mynd eru, frá vinstri talið; Sverrir Jóhannesson, Gísli Hjörleifsson, Helga Ólafsdóttir, Mira Kolbrún Svóud og iengst til hægri er forstöðumaðurinn Hjörleifur Hjálmarsson. Myndir: sbs. Félagsmiðstöðin Himnaríki er í Glerárskóla: Ahuginn er mikill en að- stöðuleysi torveldar starfíð Fjöldi unglinga úr efstu bekkjum grunnskóla sækir stíft þær fjórar félagsmiðstöðvar sem á Akureyri em - og fer þar fram öflugt starf af ýmsum toga. Dagur heimsótti fyrir skemmstu félagsmiðstöðina Himnaríki í Glerárskóla, en hún er einkum ætluð nemendum úr neð- anverðu Glerárhverfi - enda þótt fjöldi ungmenna annarsstaðar að úr bænum sæki hana jafnframt. Miðstöðin er opin tvisvar í viku, á mánudagskvöldum og í eftirmið- daginn á miðvikudögum og á þessum dögum sækja hana að jafnaði þetta 70 til 100 unglingar á aldrinum 13 til 16 ára. „Mér þykir sárt að sjá aðstöðu- leysi okkar hér í þessari félags- miðstöð," sagði Hjörleifur Hjálmarsson, forstöðumaður Himnaríkis, þegar blaðamaður Dags ræddi við hann. Félagsmið- stöð þessi er á formlegum pappír- um reyndar kennd við Glerár- skóla, en krakkamir hafa uppá sitt eindæmi kennt hana við upphæðir, það er Himnaríki. Opið hús tvisvar í viku Það var á mánudagskvöldi sem við litum við og þá er opið hús í skólanum. Unglingar bisuðu við að koma ýmsurn leiktækjum svo sem tennisborðum, tölvum, snókerborðum og ýmsu fleiru fyr- ir í tveimur kennslustofum sem miðstöðin hefur, auk þess sem nokkur starfsemi fer fram á göngum skólans. Þetta rými hefur félagsmiðstöðin til umráða á áður- nefndum kvöldum vikunnar, en í annan tíma er það skólans. Því kostar þetta miklar forfæringar til og frá, fyrir og eftir opin hús, og það segir Hjörleifur nokkuð óþægilegt. - Af annarri starfsemi félagsmiðstöðvarinnar má nefna sundlaugarpartý, stuttmyndahátíð, bingó, hljómsveitakeppni, tísku- sýningar, dansnámskeið og nám- skeið af ýmsum toga; svo sem í leirvinnslu, matreiðslu, hljómplötuleik og fleiru. Hressir krakkar voru á fullu í ýmsum leikjum þegar við litum þar við. Sumir spiluðu borðtennis, aðrir voru í tölvum, nokkrir sem annast diskótekið voru þar og enn aðrir voru í afgreiðslu sjoppunnar. Þá er fátt eitt nefnt. Hópur fjórtán ára krakka annast ýmis störf í sjoppunni og við fleira - og það eru vinsæl og eftirsótt störf. Um þrjátíu krakkar sækja um þau áður en starfsemi miðstöðvarinnar hefst á haustin, en aðeins um helmingur kemst að. Þeir fá ekki greidd laun fyrir vinnu sína með beinum hætti; en fá þess frekar ókeypis aðgang að dansleikjum í Dyn- heimum, pitsupartý einu sinni á hverjum vetri og boðsferð til Reykjavíkur í vetrarlok. Horfum til kjallara í stjórnunarálmu „Við þurfum bætt húsrými fyrir þessa starfsemi. Til þess hef ég horft að þegar ný stjómunarálma Glerárskóla verður tekin í notkun eftir tæpt ár, það er haustið 1996, getum við fengið inni í kjallara skólans. Þar er mikið húsrými sem enn hefur ekki verið ráðstafað. Við þyrftum fyrir okkar starfsemi 250 til 300 fermetra. Þetta hef ég rætt við íþrótta- og tómstundaráð Akureyrarbæjar og rnáli mínu var síður en svo illa tekið. En allt er þetta spuming urn peninga og ljóst er að aldrei myndi þetta kosta minna en 10 milljónir kr. Þó vil ég geta þess að rekstur félagsmið- stöðvanna fjögurra hér á Akureyri, það er þeirra sem eru við Glerár- skóla, Lundarskóla og Síðuskóla auk Dynheima kostar ámóta mikið og reksturinn á einni miðstöð í Reykjavík. Hér er þetta rekið með mun minni tilkostnaði, en ég held að samt sem áður séu krakkamir hér ekkert óánægðari en þeir fyrir sunnan," sagði Hjörleifur Hjálmarsson, forstöðumaður Himnaríkis í Glerárskóla að lok- um. -sbs. Leirkerasmíði er vinsæl í félagsmiðstöðinni og þessar stúlkur standa hér viö leirbrennsluofninn. Þær heita Klara Guðmundsdóttir, til vinstri, og Greta Huld Mellado.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.