Dagur - 16.12.1995, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 16. desember 1995
Kennarar, kennarar!
Vegna forfalla vantar kennara að Þelamerkurskóla
frá janúar 1996.
Kennslugreinar: íslenska og enska á unglingastigi.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 462 1772 eða 462
6555.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Geðlæknir
Laus er til umsóknar staða þriðja sérfræðings í geð-
lækningum við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, frá 1.
mars 1996.
Deildin þjónar fyrst og fremst íbúum Norðurlands og
Austurlands og veitir ráðgjöf starfsfólki annarra deilda
og stofnana.
Læknirinn þarf að hafa góða hæfni til samstarfs. Einnig
er æskilegt að hann hafi stundað formlegt nám í sál-
lækningum og hafi áhuga á alhliða svæðisbundinni
geðheilbrigðisþjónustu.
Umsóknir um starfið með upplýsingum um menntun og
fyrri störf, skal senda yfirlækni deildarinnar, Sigmundi
Sigfússyni, sem gefur nánari upplýsingar í síma 463
0100.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1996.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
r ^
AKUREYRARBÆR
Ágæti kennari!
í Síðuskóla á Akureyri þurfum við að ráða íþrótta-
kennara í allt að hálfa stöðu frá og með 4. janúar og
út skólaárið. Um er að ræða kennslu í 2. og 3. bekk
auk samstarfs við Erling Kristjánsson („gamla
manninn" í KA) um kennslu í 8.-10. bekk.
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við undir-
ritaðan strax.
Jón Baldvin Hannesson,
vinnusími 462 2588 og heirnasími 461 1699.
J
Kirkjuvarðar- og
skrifstofustarf
við Akureyrarkirkju
Óskum eftir að ráða starfskraft við kirkjuvörslu og skrif-
stofustarf við Akureyrarkirkju.
Um er að ræða heilsdagsstarf sem unnið er í vakta-
vinnu.
Starfssvið er m.a. að annast vörslu kirkjunnar og alla
almenna umhirðu hennar, ásamt margs konar tölvu-
vinnslu og annarra almennra skrifstofustarfa.
Æskilegt er að umsækjendur hafi haldgóða þekkingu á
tölvum.
Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofunni,
þar sem umsóknareyðublöð liggja frammi.
RÁÐNINGAR
DM Endurskoðun Akureyri hf.
»V # IVIU löggiltirendurskoðendur
Glerárgötu 24, Akureyri • Sími 462 6600 • Fax 462 6601
Endurskoðun • Skattaráðgjöf • Rekstrarráðgjöf ♦ Bókhald
Sverrlr Leésson, útgeraormaBur, skcllti hurBum á fundl biejarstjðrnar Akureyrar í gær:
Hurðaskellir útgerðarmaður var óvenju snemma á ferðinni í ár!
ÚAMLA MYNPIN
M3-1483
Ljósmynd: Hallgrímur Einarssun og synir/
Minjasafnið á Akureyri
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þekkja ein-
hvern á þeim myndum sem hér
birtast eru þeir vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Minja-
safnsins, annað hvort með því að
senda bréf í pósthólf 341, 602
Akureyri eða hringja í síma
24162 eða 12562 (símsvari).