Dagur


Dagur - 16.12.1995, Qupperneq 13

Dagur - 16.12.1995, Qupperneq 13
Segjum feimnimti stríð á hendur Feimni er vandamál sem hrjáir marga. Hjá sumum er feimnin al- varlegt vandamál og þeir geta varla stunið upp orði án þess að roðna og blána og byrja að stama. Aðrir eru aðeins feimnir við ákveðnar aðstæður og misjafnt eftir einstaklingum hvers konar aðstæður kalla feimnina fram. Feimni ætti þó ekki að vera ein- hver óyfirstíganleg hindrun og flestir geta lært að draga úr sinni eigin feimni þó hún hverfi kannski aldrei alveg. Hér á eftir eru talin upp nokkur atriði sem geta hjálpað hinum feimna að vera afslappaðri og óhræddari í samskiptum sínum við ann- að fólk. segja. Á íslandi klikkar heldur aldrei að minnast á hvernig veðrið sé. 3. Brostu og náðu augnsambandi. Fólk tekur frekar eftir þér ef þú brosir og endurgeldur jafn- vel í sömu mynt. Ef þú lítur niður á fætur 1. Til að byrja með er inik- ilvægast að læra að slaka á og ná stjórn á hjart- slættinum og 'Æ skruðningunum í maganum. Öndunar- æfingar gera sitt gagn og þá skiptir máli að anda rólega og draga andann djúpt að sér. Oft er einnig hægt að vinna bug á þess- um líkamlegu óþægindum með því að gefast ekki strax upp. Ekki flýja úr veislu eftir fimm mínútur vegna þess að þér líður illa og ert feiminn því stundum hverfa óþægindin af sjálfu sér þegar líður á. 2. Reyndu að æfa þig í að tala við fólk augliti til auglitis. Stutt, óformleg samskipti við af- greiðslufóík í búð eða bflstjóra í strætisvagni er ágætis byrjun. Fólk í ýmsum þjónustustörfum tekur yfirleitt vel í að eiga stutt orðaskipti þar sem slíkt fær tím- ann til að líða hraðar. Þar sem stór hluti vandans er að vita um hvað á að tala er nauðsynlegt að undirbúa sig fyrirfram. Gott ráð er að renna yfir fréttir í biöðum og finna þar umræðuefni og æfa síðan nokkr- um sinnum það sem þú ætlar að þér tekur annað hvort enginn eftir þér eða það sem verra er, þú virk- ar neikvætt á fólk. Ef þú brosir og nærð augnasambandi opnar þú leið að frekari tjáskiptum. Augn- samband gefur líka til kynna að þú sért að hlusta og hafir áhuga á því sem viðkomandi er að segja. 4. Hættu að fmynda þér allt hið versta. Þú vanmetur sjálfa(n) þig þegar þú býst alltaf við því að hlutimir fari á versta veg. Uin leið og þú ferð að vanmeta þig gerir taugaveiklun vart við sig, þú byrj- ar að roðna og stama og gleymir þvf sem þú ætlaðir að segja. 5. Margir sem eru feimnir hugsa sí- fellt um hve asnalega þeir hljómi og hafa áhyggjur af því að engum líki við þá. Enginn dæmir þig jafn hart og þú sjálf(ur) og því engin ástæða að draga þá ályktun að þú sért ómögulegur þó þú segir eða gerir eitthvað kjánalegt. Ef þú roðnar og segir eitthvað asnalegt í samræðum við einhvem þýðir það ekki að hið sama gerist í hvert skipti sem þú átt samskipti við fólk og sá sem þú talar við verður örugglega búinn A ) að gleyma þessu atviki næst þegar þið hittist. 6. Þú þarft ekki að vera full- ocr kominn. Ef brandararnir > / 0 þínir verða að vera óborgan- y" o lega fyndnir og allt sem þú segir vandlega íhugað er ekki furða þó þér finnist að þér mistak- ist. Settu þér markmið sem eru raunhæf. 7. Allir sem eiga í mannlegum samskiptum taka þá áhættu að vera hafnað. Reyndu að taka höfnun ekki á þann veg að eitt- hvað sé athugavert við þig því oft hefur höfnunin ekkert með það að gera hver þú ert. Ab hjálpa þeim sem eru feimnir Þó þú sért ekki feimin(n) sjálf(ur) breytir það ekki þeirri staðreynd að samkvæmt rannsóknum þjáist önnur hver manneskja af feimni af einhverri tegund. Því er mikilvægt að þú áttir þig á því að aðrir eru ekki eins opnir og fullir sjálfsör- yggis og þú ert og þitt hlutverk er því að sjá til þess að fólk geti ver- ið afslappað nálægt þér. Hér eru nokkur ráð sem þú getur notað til að draga úr feimni annarra: • Sjáðu til þess að athyglin beinist ekki eingöngu að einni manneskju (ekki heldur þér) á mannamótum. Ef enginn stelur at- hyglinni er mögulegt fyrir alla að fá einhvern hluta athyglinnar í einhvern tíma. # Reyndu að draga það besta 8. Fólk safnast saman á mismunandi stöðum og misjafn hvað hentar hverjum. Reyndu að átta þig á hvers konar samkomur henta þér best. Kannski líður þér betur að spila með blakliði eða að syngja í kirkjukór heldur en á troðfullum bar eða í kokteilboði. 9. Takmarkið með að vinna bug á feimninni er ekki aðeins að þér líði vel heldur einnig að þér takist að láta öðrum líða vel. Hafðu þarfir og líðan annarra í huga í öll- um samskiptum. Ef sá sem þú um- gengst hugsar með sér að gott sé að vera nálægt þér er það merki um að feimnin sé á undanhaldi að þú hafir til að bera færni í mann- legum samskiptum. Til hamingju með árangurinn! Byggt á Psychology today. fram í fólki við mismunandi að- stæður. Kennarar í skólum ættu t.d. að beina máli sínu til nemenda sem veigra sér við að tala í tímum og fá þá til að taka virkan þátt í umræðum. Á vinnustöðum ættu yfirmenn að fylgjast með hverjir leggja ekki orð í belg á fundum og gera sér far um að hvetja þá feimnu til að koma með eigin hugmyndir. Á mannamótum skalt þú vera fyrri til að brjóta ísinn og hefja spjall við þá sem standa ein- ir. • Hjálpaðu hinum feimnu með því að beina umræðum í þægileg- an farveg. Reyndu að komast að því hver áhugamál hins feimna eru og bryddaðu upp á samræðum tengdum áhugamálinu. Byggt á Psychology today. Er útiljósið bilað? Er raflögnin í ólagi? Ert þú að byggja eða breyta og þarft bæði rafmagnsteikningu og láta leggja rafmagnið? Hafðu samband og fáðu tilboð í einstaka þætti eða heildarverk, þér að kostnaðarlausu. RAFVERKTAKI Sími 461 1090 er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar sem allir unglingar ættu að kannast við. Bókin fjallar um viðburðaríkt sumar í lífi ósköp venjulegra unglinga. Kalli og Vigga eru ennþá saman en á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum kynnist Kalli Veru. Eftir það verður ekki aftur snúið! er skrifuð af þeim Smára Frey og Tómasi Gunnari, sem eru 19 ára gamlir og ættu því að komast nær raunverulegum heimi unglinga en þeir sem eldri eru. Skjjaldborg h£ Armúla 23. Reykjavík Akureyri: Furuvellir 13 r 588-2400 Fox 588-8994 r 462-4024

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.