Dagur - 16.12.1995, Page 16
16 - DAGUR - Laugardagur 16. desember 1995
NORÐLENSKA KEA HANGIKJÖTIÐ
GiLÍS ()<>
Nordlcnska KEA /langikjölið
cr róiiiað Jyrir g(oði og goll bragð
- (’i/Ja iinnið sainkririnl norðlenskri /iefð
seni /lefur gengið í arf kyns/óð eftir kynslóð
/ir nýjn lirra/s norðlensku /ainhakjöli.
Xorðlenska KEA /latigikjölið
- Iuitíðarniatur seni /nvgt er að Ireysta
Fjölvi:
Tvær nýjar bækur
um Margréti litlu
Tvær nýjar
Margrétar-
bækur eru ný-
komnar út hjá
Fjölva í ár.
Þær heita Mar-
grét litla
mamma og
Afmælisgjöf
Margrétar.
Þetta eru litlar
og fallegar barnabækur, fremur
miðaðar við telpur. Þær eru eftir
tvo belgíska félaga Gilbert Dela-
haye sem er rithöfundurinn og
Marcel Marlier sem er listamaður-
inn, en það er einkum handbragð
hans í myndskreytingu bókanna
sem hefur vakið heimsathygli.
Fyrir nokkru var þess minnst í
Belgíu að nú eru 40 ár síðan fyrsta
Margrétarbókin (Martine) kom út
1955. Þær voru raunar tvær sem
komu út saman Margrét í sveitinni
og Margrét ferðast, en nú hafa alls
komið út 45 mismunandi bækur
og hafa þær verið þýddar og út-
gefnar á 32 mismunandi tungu-
mál, þar á meðal á arabísku, hebr-
esku, rússnesku og japönsku, en
alls hafa 45 milljón eintök af Mar-
grétarbókum verið gefin út um
víða veröld.
Hér á landi hefur Fjölvi gefið
út 14 mismunandi Margrétarbæk-
ur, tvær þeirra hafa komið út í
tveimur útgáfum en sex eru nú því
miður uppseldar.
Marcel Marlier hefur og mynd-
skreytt bókaflokkinn Andrés og
Soffía (Jean-Lou et Sophie) og
Fjölvi einnig gefið út nokkrar
bækur úr þeim flokki.
Fjölvi:
Að lifa og leika sér
Lítil stúlka spurði ömmu sína:
Amma, hvemig léku bömin sér í
gamla daga? Og spuming hennar
varð tilefni myndarlegrar bókar.
Því að amma liennar, Oddný
Thorsteinsson, fór að segja henni
hvernig þau krakkamir léku sér,
þegar þau voru lítil. Sagan byrjaði
svona: Þá var svo gaman að lifa
og leika sér.
Sagan er nú komin út hjá Fjöl-
vaútgáfunni og kallast eftir einni
aðalsöguhetjunni Siggi hrekkju-
svín. í byrjun sögunnar lýsir Odd-
ný ýmsum leikjum bama í
Reykjavík í gamla daga, þegar
krakkarnir voru mest á ferli úti
við, eins og París, kýlubolta, auð-
vitað fótbolta og Yfir, en síðan
tekur sagan á sig holdgervingu
söguhetjanna og verður um tíma
æði spennandi mest vegna þess
hvað Siggi er brösóttur og lendir
jafnvel í kasti við lögregluna, en
það átti eftir að koma í ljós að
mannsefni var í Sigga.
Bókin er í stóru broti um 80
bls. og fagurlega myndskreytt í
fullum litum af Höllu Sólveigu
Þorgeirsdóttur. Hún er unnin í
Prentmyndastofunni og G.Ben.-
Edda Prentstofa. Verð er kr.
1.680.
afsláttur
næstu daga
adiska-tiyboð.,
disk fylgir 20 Ijósa jólasería
KAUPVANGSSTRÆTI 4 - SÍMI 462 6100 - FAX 462 6156