Dagur - 16.12.1995, Blaðsíða 24
Sauðfjárbænd-
um mun fækka
umtalsvert
Vel heppnað-
ir styrktar-
tónleikar
Hin gamalkunni söngvari
Óðinn Valdimarsson stóð
fyrir tónleikum á veitingahús-
inu Oddvitanum á Akureyri
til styrktar afastelpunni sinni,
henni Marínu Hafsteinsdóttur
frá Eskifirði, sem fæddist
með alvarlegan hjartagalla og
þurfti að gangast undir erfiða
skurðaðgerð í Boston í
Bandaríkjunum.
Fjölmargir listamenn lögðu
þessum góða málstað lið og að
sögn eins aðstandenda tónleik-
anna tókust þeir frábærlega vel
og var mjög góð aðsókn. Ekki
var búið að taka saman hvað
safnaðist á tónleikunum, en það
var umtalsvert. Meðal annars
gáfu félagar í Lionsklúbbnum
Hæng á Akureyri 50 þúsund
krónur í söfnunina. Fyrir allan
þennan góða stuðning vilja að-
standendur tónleikanna sl.
fimmtudag þakka af heilum
hug og er þeim þökkum hér
með komið á framfæri. óþh
© HELGARVEÐRIÐ
Eftir suðlægar vindáttir á und-
anförnum vikum spáir Veður-
stofan hægri austan- og
norðaustan átt. Það er þó
ekkert að óttast - í kortunum
er síður en svo sjáanlegt
norðan áhlaup. í dag er spáð
hægri austan- og norðaust-
anátt með slyddu eða rign-
ingu með köflum á Noður-
landi. Á morgun er spáð
hægri breytilegri átt og kóln-
andi veðri og eftir helgina
verður aftur komin hæg aust-
an- og norðaustanátt.
Alls hafa 354 sauðfjárbændur
á landinu öllu tilkynnt að
þeir ætli að taka tilboði ríkisins
um að hætta alveg sauðQárbú-
skap eða draga verulega saman
seglin. Munu alls um 20-25 þús-
und ljár hafa verið felld í haust
vegna þessara samninga.
Sauðfjárbændum stóðu tvenns
konar samningar til boða. Annars
vegar að hætta alveg og að ríkið
keypti þá greiðslumarkið en hins
vegar að fækka fé, semja sig frá
útflutningsskyldu sem kallað er,
eða eiga 0,7 kindur á ærgildi. Það
þýðir í stuttu máli að ef bóndi á
100 ærgildi í greiðslumarki en set-
ur ekki á nema 70 vetrarfóðraðar
ær, er með 0,7 ásetning eins og
það er kallað, er litið svo á að
hans framleiðsla sé svo lítil miðað
við fyrra greiðslumark að hann
þurfi ekki að taka þátt í útflutn-
ingi. M.ö.o. er verið að umbuna
þeim sem vilja draga saman. Alls
hafa 240 bændur tilkynnt að þeir
ætli að taka þátt í að draga saman,
sem gerir 12-15% af öllu greiðslu-
markinu.
Nú hafa 114 sauðfjárbændur
sent inn beiðni um samning um að
hætta sauðfjárbúskap. Þar af mun
tæpur helmingur, eða um 50
bændur, vera á landinu norðan-
verðu, 36 á Suðurlandi og afgang-
urinn skiptist á Vesturland og
Austurland. HA
gardínur
frá kr. 740,-
KAUPLAND
Kaupangi ■ Sími 462 3565
Rósa Guöný Þórsdóttir
og
Valdimar Flygertrirtg
jólasýningin í ár
Gefðu þeim sem þér
þykirvœnl um
gjafakorl í leikhúsid
Miöasalan í leikhúsinu er opin
mánudaga-föstudaga kl. 14-18
Sími 462 1400
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-22 - SUNNUDAG KL. 13-17
HERRADEILD
GRÁNUFÉLAGSGÖTU4
AKUREYRI • SÍMI 462 3599
VERÐ FRÁ KR. 15.900,-