Dagur - 06.01.1996, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 6. janúar 1996
FRÉTTIR
Nú þegar hafa um fjögur þúsund manns séö nýjustu mynd James Bond
í Borgarbíói og fyrstu fjóra sýningardagana hafa um þrjú þúsund
manns séö Ace Ventura 2. Mynd: BG
Ótrúleg aðsókn á
Bond og Carrey
- segir sýningarstjóri Borgarbíós
„Það er ótrúleg aðsókn þessa
dagana,“ sagði Jóhann Norð-
fjörð, sýningarstjóri Borgar-
bíós á Akureyri, um mikinn
áhuga Akureyringa og nær-
sveitarmanna á nýjustu James
Bond myndinni, Goldeneye,
og nýrri afurð spéfuglsins Jim
Carreys, Ace Ventura 2.
Nýja Bondmyndin var aðal
jólamynd Borgarbíós og hafa
nú hátt í fjögur þúsund marins
séð hana. Þessi nýi Bond þykir
síður en svo gefa fyrirrennurum
sínum eftir. Það er í það
minnsta álit gagnrýnenda og
sömuleiðis fjölmargra bíógesta.
Jóhann Norðfjörð sagði í
gær að eftir sýningar í fjóra
daga á Ace Ventura 2 hafi um
þrjú þúsund manns séð mynd-
ina, sem hann sagði að væri
hreint ótrúleg aðsókn, mesta að-
sókn sem hann hafí séð í Borg-
arbíói. „Þetta er alveg með ólík-
indum, það er greinilegt að
Carrey er í sérstöku uppáhaldi
hjá Akureyringum."
Jóhann nefndi að æ fleiri
noti sér þann möguleika að
panta miða á sýningar Borgar-
bíós í gegnum Intemetið. Hann
segir að ef fólk panti miða á
þennan hátt fyrir kl. 16 sýning-
ardaga viðkomandi myndar sé
hægt að tryggja bíógestum miða
og þeir þurfí ekki að hafa
áhyggjur af biðröð.
Almennt sagði Jóhann
greinilegt að bíóaðsókn væri að
aukast umtalsvert. Það staðfestu
aðsóknartölur í desember og
þessa fyrstu daga janúarmánað-
ar í samanburði við sömu daga
fyrirári. óþh
Erfiður rekstur Foldu hf. á Akureyri á si. ári:
Ullarfatnaður til
Rússlands fyrir
25 mil|jónir króna
Rekstur Foldu hf. á Akureyri var
mjög erfiður á árinu 1995. Til að
snúa við erfiðri stöðu fyrirtækis-
ins frá árinu 1994 hefðu allar
áætlanir þurft að ganga fullkom-
lega upp. Það gekk ekki eftir, gert
var ráð fyrir mun meiri sölu en
raun varð á og eru margir sam-
verkandi þættir sem því valda.
Stærsti þátturinn er veðráttan á
árinu 1995.
Framleiðslan er mest seld á
norðlægum slóðum, m.a. þykkar
ullarpeysur, og það hefur afgerandi
áhrif á söluna þegar hitastigið fer
aldrei niður fyrir 15 gráður frá því í
febrúarmánuði og fram í október á
helsta markaðssvæðinu.
Eftirpantanir í haust voru minni
en á árinu 1994, en nýja Natural-
línan frá Foldu hf. sem markaðssett
var í haust hefur gengið mjög vel
og betur en bjartsýnar spár hljóðuðu
upp á. Fyrirtækið er með mörg jám
í eldinum og væntanlega skýrist það
nú í janúarmánuði hvaða stefnu
sölumál Foldu hf. taka á árinu.
Folda hf. hefur verið þreifa fyrir
sér með sölu á ullarfatnaði á Rúss-
landsmarkað frá því á síðasta ári en
áður fyrr var Rússlandsmarkaðurinn
uppistaðan í sölu fyrirtækisins er-
lendis og sá markaður sem afkoma
fyrirtækisins byggðist á. Ekki hafa
þó verið stigin nein stór skref í
þessum efnum og á síðasta ári voru
sendir þangað þrír gámar að verð-
mæti um 25 milljónir króna. Á síð-
ustu misserum hefur margt verið að
breytast í Rússlandi en framleiðslu-
Héraðsnefnd Vestur-Húnavatnssýslu ræður félagsmálastjóra:
Allur undirbúningur
yfirfærslu grunn-
skólans í tímahraki
- segir Olafur B. Oskarsson, formaður Héraðsnefndar Vestur-Húnavatnssýslu
Héraðsnefnd Vestur-Húnavatns- að framtíðarskipan skólaskrifstofu
sýslu endurskoðaði fjallskila- eða annarrar skrifstofu sem leysi
reglugerð um Víðidalstungu- af fræðsluskrifstofu við yfirtöku
heiði auk Aðalbóls, Núps- og
Húsheiða og hluta Staðarhrepps
að Vatnsnesfjalli, á fundi ráðsins
á Hvammstanga nýverið en gild-
andi reglugerð var frá árinu
1975. Felld eru m.a. út ákvæði
um vorsmalamennslu sem er
orðið úrelt fyrirbrigði.
Haustgöngum verða settar fast-
ari skorður, ákveðnar dagsetn-
ingar á göngum og réttum.
Tónlistarskóli Vestur-Hún-
vatnssýslu er rekinn af Héraðs-
nefnd Vestur-Húnavatnssýslu og
verður hann rekinn áfram í
óbreyttri mynd en breytingar á
rekstri fræðsluskrifstofu á næsta
ári og hugmyndir um stofnun
skólaskrifstofu voru ekki ræddar
ítarlega þar sem talið var að verk-
efnið væri það skammt á veg
komið að ekki væri tímabært að
Héraðsnefnd tæki afstöðu til þess
nú. SSNV, Samband sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra, hefur lagt til
sveitarfélaganna á grunnskólunum
verði í ákvörðunarvaldi héraðs-
nefndanna. Það mál hafa ýmsar
hreppsnefndir í Vestur-Húna-
vatnssýslu verið að skoða, og hef-
ur Hvammstangahreppur m.a. tek-
ið undir hugmyndir SSNV auk
Þorkelshólshrepps.
Ólafur B. Öskarsson, bóndi í
Víðidalstungu I, oddviti Þorkels-
hólshrepps og formaður Héraðs-
nefndar Vestur-Húnavatnssýslu,
segir allan undirbúning undir yfir-
færslu grunnskólanna til sveitarfé-
laganna mjög seint á ferðinni og
of margir endar óhnýttir miðað
við að aðeins séu sjö mánuðir til
stefnu, m.a. ráðningarmál kenn-
ara, kostnaðarhliðin o.fl. Allur
undirbúningur sé að lenda í tíma-
hraki sem bitni á skólastarfinu
næsta haust.
Héraðsnefnd hefur rekið sam-
eiginlegt félagsmálaráð fyrir Vest-
ur-Húnavatnssýslu undanfarin tvö
ár og á haustdögum var ráðinn fé-
lagsmálastjóri, Hjördís Hjartar-
dóttir félagsráðgjafi, sem hafa
mun starfsaðstöðu í heilsugæslu-
stöðinni á Hvammstanga. Félags-
málastjórastarfið er 50% starf, en
einnig starfar hún fyrir Svæðis-
stjóm fatlaðra á Norðurlandi
vestra. Þetta er nýmæli, ekki hefur
áður starfað félagsmálastjóri á
svæðinu eftir að lög um félags-
þjónustu sveitarfélaga tóku gildi
og eru Vestur-Húnvetningar
fyrstir landsmanna til að taka upp
þessa þjónustu. Að sama skapi
minnkar aðkeypt þjónusta.
I sumar var keypt ný slökkvi-
bifreið fyrir svæðið sem staðsett
er á Hvammstanga og kostaði hún
4,5 milljónir króna. Nýi bílinn
tekur 2.500 lítra en sá gamli að-
eins 1.000 lítra, en það var Bed-
ford-bifreið sem komin var til ára
sinna. Verið er að stækka slökkvi-
stöðina til að mæta brýnni hús-
næðisþörf en jafnframt munu
sjúkrabifreiðamar verða í húsinu.
Framtíðarmarkmið er að byggð
verði geymsla fyrir sjúkrabflana
við sjúkrahúsið. GG
vara Foldu hf. er vel þekkt í Rúss-
landi og töluverð eftirspum eftir
vörunni.
„Það hefur hins vegar hamlað
sölu á þennan markað að kaupgeta
almennings er mjög lítil vegna bágs
efnahagsástands en nú eru ákveðin
teikn á lofti um jákvæðar breytingar
og því hugsa margir sér til hreyf-
ings á þessum markaði, þ.m.t. Folda
hf. Við bindum töluverðar vonir við
þetta dæmi í Rússlandi en síðustu
sendingar þangað lofa mjög góðu
en allt of snemmt er að segja til um
árangur fyrr en komið er vel fram á
þetta ár,“ sagði Ásgeir Magnússon,
framk væmdastj óri.
Folda hf. á ekki mikið af svo-
kallaðri HM-vöru á lager, þ.e. vöru
sem framleidd var til sölu vegna
HM-keppninnar í handknattleik á
sl. vori en reikna má með að mjög
erfitt verði að koma henni út nema
á mjög lágum verðum, kannski
svipað og að selja jólatré í janúar-
mánuði. Ákveðin áhætta var tekin í
sambandi við framleiðslu HM-vör-
unnar en sala fatnaðar og minja-
gripa skilaði sér ekki í neinum takti
við það sem gert var ráð fyrir. Því
varð nokkurt tap af þessari tilraun,
þó ekki stórt. Ymis smávara sem
framleidd var, eins og t.d. lykla-
kippur, hefur m.a. verið notuð sem
gjafavara frá fyrirtækinu til við-
skiptavina í auglýsingaskyni. GG
„Kæmi ekki á
óvart þó aukn-
ingin í bóksölu
væri aðeins 5%“
- sagði Stefán Jónasson bóksali
Kaupmenn á Akureyri eru
þokkalega sáttir við jólaversl-
unina að þessu sinni, það er
þó nokkuð misjafnt eftir því
með hvaða vörur er verslað.
Ragnar Sverrisson, kaupmað-
ur í Herradeild JMJ og for-
maður Kaupmannafélags Ak-
ureyrar, segir verslunina hafa
verið ágæta hjá honum og
nokkur aukning milli ára þó
ekki geti hann merkt að fólk
hafí neitt umtalsvert meiri
auraráð en áður.
„Þessi góða tíð í desember-
mánuði skipti verulegu máli og
ég v;irð var við fólk í búðinni
austan frá Langanesi, frá Aust-
fjörðum og vestan úr Húna-
vatnssýslum. Þeir sem lengst
eiga að fara eru þó ekki á ferð-
inni síðstu dagana fyrir jól,“
sagði Ragnar Sverrisson.
Guðjón Ármannsson, vöru-
hússtjóri KEA, sagðist þokka-
lega ánægður með jólaverslun-
ina, þó hefði kuldinn í síðustu
vikunni fyrir jól sett strik í
reikninginn, dregið hefði úr
umferð í miðbænum. Guðjón
segir að viðskiptin hafi ekki
verið meiri en í fyrra en hann sé
sáttur við sinn hlut en ljóst sé
að jólaverslunin hafi dreifst yfir
lengri tíma. Breytingar voru
auk þess hjá Vöruhúsi KEA,
t.d. var jólamarkaður sem starf-
ræktur var í fyrra ekki nú.
„Fólk leitaði mjög mikið, bar
verð mikið saman og kom svo
aftur eftir að hafa farið milli
verslana. Margir vönduðu mjög
til jólagjafakaupanna, m.a. var
mikil verslun í geisladiskum,“
sagði Guðjón Ármannsson.
Stefán Jónasson, kaupmaður
í Bókabúð Jónasar, segir bóka-
verslunina hal'a verið minni hjá
sér nú fyrir þessi jól en í fyrra
og því valdi m.a. stórafsláttur
Hagkaupa á söluhæstu bókatitl-
unum og eins hafi fólk meira
sótt f stóra markaði í kuldatíð-
inni en að fara á milli verslana,
t.d. í göngugötunni.
„Ég hef ekki verið að bæta
við vörutegundum, t.d. ekki
snúið mér að söiu á hljómdisk-
um til að örva umferðina í búð-
ina. Það er hins vegar mjög erf-
itt að keppa við 30% afslátt á
10 söluhæstu bókalitlunum,
raunar gjörbreytir það dæminu.
Fréttir af góðri bóksölu fyrir
þessi jól eru mjög villandi, enda
hafa t.d. útvarps- og sjónvarps-
stöðvarnar aðeins talað við for-
svarsmenn stóru markaðanna
sem harðast börðust á auglýs-
inga- og afsláttarmarkaðnum og
þar er að sjálfsögðu söluaukn-
ing milli ára. Það er mikil aukn-
ing hjá Máli & menningu sem
mestan afslátt veitti og eins í
Eymundsonarbúðunum, sem
veittu verulegan afslátt, en þær
eru í eigu Prentsmiðjunnar
Odda. Sömu fjölmiðiar hafa
ekki verið að segja frá því að í
smærri verslunun á höfuðborg-
arsvæðinu er samdráttur í bók-
sölu. Sá samdráttur jafnar upp
að mestu þá aukningu sem er
hjá stóru aðilunum, sem talað er
um að sé allt að 40%. Það kæmi
mér ekki á óvart þó aukningin
væri kannski 5%, ef hún nær
því. Það er engin almennileg
lína í metsölubókum hjá okkur,
því um leið og birtur var listi
yfir 10 söluhæstu bækumar var
verðið keyrt niður um allt að
þriðjung. Þannig var t.d. um
bækurnar Karlar eru frá Mars,
konur frá Venus og Ekkert að
þakka, sem sitja á toppnum,"
sagði Stefán Jónasson. GG