Dagur - 06.01.1996, Side 7

Dagur - 06.01.1996, Side 7
Laugardagur 6. janúar 1996 - DAGUR - 7 þeir gjarnan sínum orlofstíma á einum stað en nú eru þeir famir að skipta orlofinu upp í aðalorlof og aukaorlofsferðir. Oft fara þeir þessar styttri ferðir til íslands. Þetta helst í hendur við að Flug- ieiðir hafa breytt sínum áherslum. Fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum og leiðir hingað til lands fleira fólk sem hefur þokkalega góð fjárráð. En flestir ferðamenn eru komnir hingað til að kynnast náttúrunni og eiga því erindi út á land. Norðurland eystra er t.d. mjög eftirsóttur ferðamannastaður og því skiptir miklu máli að þjón- ustuframboð og gæði þjónsutu haldist í hendur út á landi ekki síður en í Reykjavíksegir Tóm- as. Samgöngur eru mikilvægur þáttur í að fá ferðamennina út á land og þar segir Tómas framfar- irnar hafa verið miklar. „Þær hafa breyst mikið okkur í hag og að því leyti býr landsbyggðin við betri aðstæður nú en áður. En það sem ég held að skipti mestu máli er að við lögum okkur að breyttum að- stæðum og bjóðum upp á gæða- þjónustu.“ Hvalaskoðun til fyrirmyndar Sem dæmi um þjónustu sem hægt sé að kalla gæðavöru nefnir Tóm- as hvalaskoðun á Húsavík. „Þjónustan er mjög góð, upplýs- ingar sem eru veittar eru vandað- ar, skipið sem er notað er safn- gripur og talandi dæmi um ís- lenskt handverk og siglingaleiðin er vandlega úthugsuð. Verðið er líka viðráðanlegt og það er einmitt vara af þessu tagi sem við eigum að bjóða upp á. A öðrum stöðum á landinu er verið að bjóða upp á hvalaskoðun sem er ekki alltaf í lagi og ferðamenn kvarta yfir. Þetta lýsir vel þessum tveimur heimum; annars vegar að vanda sína vöru frá upphafi til enda og standa við allt sem var lofað og hins vegar að þetta sé höppum og glöppum háð. Þessi vöruvöndun er það sem kemur til með að skera úr hvort ferðaþjónustan á Islandi verður samkeppnisfær í framtíð- inni.“ Tómas bendir ennfremur á að í hótelmálum sé þörf á breytingum. Algengt sé að nýta heimavistir sem gistirými yfir sumartímann og þær hafi bjargað miklu þegar þörfin á gistirými er mest. Mörg þessara herbergja séu þó ekki lengur í samræmi við kröfur við- skiptavina því nú sé t.d. orðið mjög algengt að ferðamenn vilji hafa herbergi með baði. Framtíðin ekki trygg Tómas segir fyrirsjáanlegt að vöxtur verði í ferðaþjónustunni á næstu árum. Hins vegar sé það líka öruggt að samkeppnin verði gífurlega hörð. „Við getum ekki sagt að framtíðin sé trygg því það er hún ekki. Það sem við eigum tryggt er hörð samkeppni og til að bregðast við henni þurfum við að skoða markaðsmál vel og eyða tíma í að skoða markhópana sem við viljum höfða til, finna okkur einhvern hluta af markaðinum sem við eigum erindi til og bjóða upp á vöru sem stendur undir því sem hún er sögð vera. Ef við ger- um það held ég að við eigum fyrir okkur góða framtíð." AI Starfshópurinn sem vann skýrsl- una Rannsóknir og ferðaþjónustu á íslandi gerir eftirfarandi tillög- ur. 1. Staða fcrðaþjónustunnar sem atvinnugreinar verði skýrð. Þetta felur m.a. í sér að ferða- þjónustan verði skilgreind á skýrari hátt, endurbæta þarf söfn- un hagtalna á vegunt opinberra aðila um aila helstu þætti ferða- þjónustunnar og bæta þart' upp- lýsjngamiðlun fyrirtækja, sam- laka og stofnana í ferðaþjónustu. Einnig er æskilegt að Þjóðhags- stofnun meti reglubundið stöðu og afkomu ferðaþjónustunnar. 2. Breikka þarf starfsgrunn ferðaþjónustunnar. Þó tslensk náttúra hafi verið og verði áfram sterkasta aðdráttar- aflið fyrir ferðamenn er nauðsyn- legt að meiri fjölbreytni verði í frantboði ferðaþjónustunnar á vörum og þjónustu. Þetta er nauðsynlegt m.a. vegna þess að taka þarf tillit til umhverfissjón- armiða og burðarþols viðkvæmra ferðamannstaða. Einnig skiptir máli að háannatími í greininni er of stuttur og að ójafnvægi er í fjárfestingum milli mismunandi þátta ferðaþjónustunnar. í skýrsl- unni er bent á ýmsar leiðir sem hægt væri að fara til að breikka starfsgrunninn en einkum er horft til rannsókna og þróunar- verkefna í tengslum við sögu, menningar- og atvinnultf þjóðar- innar. 3. Ná þarf samstöðu um ímynd íslands Skýrsluhöfundar leggja ntikla áherslu á að samstaða náist um ímynd íslands og telja að kjarni slíkrar ímyndar hljóti að vera einstæð náttúra, sjálfbær þróun og sérstæð menning, gömul og ný. Mikilvægt er að ferðaþjón- ustan skapi þessa ímynd í sam- vinnu við aðrar atvinnugreinar eins og útflutningsgreinar og einnig orkuiðnaðinn og vísinda- samfélagið. 4. Styrkja þarf forsendur stefnumótunar í greininni Stjómvöld þurfa að gefa ferða- þjónustunni meiri gaum og nauð- synlegt er að bæta stöðu þeirra stofnana sem vinna á vegum stjómvalda að stefnumótun og eftirliti með starfsskilyrðum og stuðla að þróun ferðaþjónustunn- ar. Er hér einkum átt við samgönguráðuneytið, Ferða- málaráð, Rannsóknarráð íslands og Utflutningsráð. 5. Etla verður rannsóknir, þró- unarstarf og nýsköpun í ferða- þjónustu „Vöruþróun" í ferðaþjónustu er háð sömu lögmálum og gerist í öðrum greinum framleiðslu og þjónustu. Stefnumótun í ferða- málum hlýtur því að byggjast á vandaðri greiningu á stöðu og möguleikum atvinnugreinarinnar á hverjum tíma, og því er nauð- synlegt fyrir stjómvöld að hvetja til rannsókna á þessu sviði. 6. Koma þarf skipulagi á tjár- mögnun og framkvæmd rann- sókna og þróunar í þágu ferða- þjónustu. Ferðamálaráð íslands, Rann- sóknarráð íslands og Útflutn- ingsráð íslands gegna lykilhlut- verki af hálfu hins opinbera í að koma á nausynlegu samstarfi op- inberra aðila og fyrirtækja í ferðaþjónustu um skipulegt rann- sókna- og þróunarstarf. Háskóli íslands, Háskólinn á Akureyri, rannsóknarstofnanir atvinnulífs- ins og einnig skipulagsyfirvöld og Náttúruvemdarráð eru meðal þeitra aðila sem hér gætu lagt hönd á plóginn og undirbúið jarðveginn. 7. Rannsóknarráð íslands kynni tillögur starfshópsins. Lagt er til að efnt verði til ráð- stefnu um ofangreindar tillögur og böðskap þessarar skýrslu og um leið reynt að leggja grunn að framkvæmd þeirra. Tilboð óskast Vátryggingafélag íslands hf. Akureyri, óskar eftir tilboð- um í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í umferð- aróhöppum. 1. Lada Sport ............árgerð 1995 2. Lada Samara ............árgerð 1994 3. Toyota Corolla.........árgerð1990 4. Range Rover............árgerð 1989 5. Honda Civic GT .........árgerð 1986 Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð VÍS að Furuvöllum 11 mánudaginn 8. janúar nk. frá kl. 9-16. Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16 sama dag. w VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF Sýslumaðurinn á Akureyri Hafnarstræti 107, 600 Akureyri Nauðungarsala lausafjárrr.una Eftirtalin ökutæki og annað lausafé verður boðið upp á lögreglustöðinni við Þórunnarstræti, Akureyri, laug- ardaginn 13. janúar 1996 kl. 14 eða á öðrum stað eftir ákvörðun undirritaðrar sem verður kynnt á uppboðsstað. 1. Bifreiðar, dráttarvélar ofl. A-820 A-922 A-1437 A-1486 A-1674 A-1706 A-3446 A-4502 A-5072 A-7717 A-8610 A-9307 A-9743 A-9897 A-10614 A-11051 A-11106 A-11543 A-11887 A-12309 A-12501 A-12586 AB-678 Ad-1121 Ad-1569 Ad-1643 BV-684 E-1605 G-556 G-1675 G-2604 GA-930 GH-615 GO-778 GU-846 GV-507 H-154 HA-379 HI-549 HL-832 HR-897 HX-909 HZ-219 HÞ-264 I-2888 ID-339 IH-923 IO-677 IÖ-977 JI-765 JK-739 JZ-399 KD-370 KT-123 KT-169 KT-731 KV-406 KV-683 KY-577 LB-714 LD-938 LF-558 LG-309 LG-650 M-4097 MA-443 MB-676 ML-093 MS-280 MZ-959 NJ-395 NR-451 VP-689 0-75 OP-406 PX-313 R-1128 R-1211 R-3449 R-4643 R-19657 R-35770 R-43783 R-44570 R-44788 R-46401 R-51569 AO-612 TT-287 TX-600 U-3143 UA-257 UN-479 UT-867 UY-108 V-336 VJ-867 Þ-1923 VT-19 XV-326 Y-6614 YA-195 Z-398 2. Annað lausafé: Óskilamunir, grafa af gerðinni Case 580 G 4x4, heyhleðslu- vagn af gerðinni Carboneer, hestarnir Jarpur 14 vetra og Kvistur 17 vetra, jarpur 6 vetra foli undan Njáli frá Varmalæk, upptökuvél af gerðinni Grimme MK650, 50% af upptökuvél af gerðinni Grimme MK700, niðursetningavél af gerðinni Ho- ward, 50% af úðunartæki af gerðinni Evers & Woll, jarðtæt- ari, gufusjóðari af gerðinni Frankie, lyftari af gerðinni Kentruck, tölvur: IBM PS 55x61 og Ambra 386S, 24 feta kæligámur af gerðinni Polar 155, magnari af gerðinni SWR 220, bassahátalari af gerðinni SWR Goliat 2, Unnur EA-597 og rennibekkur af gerðinni Torrent 52 mod T 72-52. Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki gjaldkera. Uppboðsskilmálar eru til sýnis hjá undirritaðri og þar verða einnig veittar upplýsingar ef óskað er. Sýslumaðurinn á Akureyri, 4. janúar 1995. Harpa Ævarsdóttir, fulltrúi. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EGILL SIGURBJÖRNSSON, Seljahlíð 3 G, áður Norðurgötu 37, Akureyri. lést fimmtudaginn 4. janúar á Dvalarheimilinu Hlíð. Útförin auglýst síðar. Kristlaug Guðmundsdóttir, synir, tengdadætur og sonabörn.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.