Dagur - 06.01.1996, Page 7
Laugardagur 6. janúar 1996 - DAGUR - 7
þeir gjarnan sínum orlofstíma á
einum stað en nú eru þeir famir að
skipta orlofinu upp í aðalorlof og
aukaorlofsferðir. Oft fara þeir
þessar styttri ferðir til íslands.
Þetta helst í hendur við að Flug-
ieiðir hafa breytt sínum áherslum.
Fyrirtækið leggur mikið upp úr
gæðum og leiðir hingað til lands
fleira fólk sem hefur þokkalega
góð fjárráð. En flestir ferðamenn
eru komnir hingað til að kynnast
náttúrunni og eiga því erindi út á
land. Norðurland eystra er t.d.
mjög eftirsóttur ferðamannastaður
og því skiptir miklu máli að þjón-
ustuframboð og gæði þjónsutu
haldist í hendur út á landi ekki
síður en í Reykjavíksegir Tóm-
as.
Samgöngur eru mikilvægur
þáttur í að fá ferðamennina út á
land og þar segir Tómas framfar-
irnar hafa verið miklar. „Þær hafa
breyst mikið okkur í hag og að því
leyti býr landsbyggðin við betri
aðstæður nú en áður. En það sem
ég held að skipti mestu máli er að
við lögum okkur að breyttum að-
stæðum og bjóðum upp á gæða-
þjónustu.“
Hvalaskoðun til
fyrirmyndar
Sem dæmi um þjónustu sem hægt
sé að kalla gæðavöru nefnir Tóm-
as hvalaskoðun á Húsavík.
„Þjónustan er mjög góð, upplýs-
ingar sem eru veittar eru vandað-
ar, skipið sem er notað er safn-
gripur og talandi dæmi um ís-
lenskt handverk og siglingaleiðin
er vandlega úthugsuð. Verðið er
líka viðráðanlegt og það er einmitt
vara af þessu tagi sem við eigum
að bjóða upp á. A öðrum stöðum á
landinu er verið að bjóða upp á
hvalaskoðun sem er ekki alltaf í
lagi og ferðamenn kvarta yfir.
Þetta lýsir vel þessum tveimur
heimum; annars vegar að vanda
sína vöru frá upphafi til enda og
standa við allt sem var lofað og
hins vegar að þetta sé höppum og
glöppum háð. Þessi vöruvöndun
er það sem kemur til með að skera
úr hvort ferðaþjónustan á Islandi
verður samkeppnisfær í framtíð-
inni.“
Tómas bendir ennfremur á að í
hótelmálum sé þörf á breytingum.
Algengt sé að nýta heimavistir
sem gistirými yfir sumartímann
og þær hafi bjargað miklu þegar
þörfin á gistirými er mest. Mörg
þessara herbergja séu þó ekki
lengur í samræmi við kröfur við-
skiptavina því nú sé t.d. orðið
mjög algengt að ferðamenn vilji
hafa herbergi með baði.
Framtíðin ekki trygg
Tómas segir fyrirsjáanlegt að
vöxtur verði í ferðaþjónustunni á
næstu árum. Hins vegar sé það
líka öruggt að samkeppnin verði
gífurlega hörð. „Við getum ekki
sagt að framtíðin sé trygg því það
er hún ekki. Það sem við eigum
tryggt er hörð samkeppni og til að
bregðast við henni þurfum við að
skoða markaðsmál vel og eyða
tíma í að skoða markhópana sem
við viljum höfða til, finna okkur
einhvern hluta af markaðinum
sem við eigum erindi til og bjóða
upp á vöru sem stendur undir því
sem hún er sögð vera. Ef við ger-
um það held ég að við eigum fyrir
okkur góða framtíð." AI
Starfshópurinn sem vann skýrsl-
una Rannsóknir og ferðaþjónustu
á íslandi gerir eftirfarandi tillög-
ur.
1. Staða fcrðaþjónustunnar
sem atvinnugreinar verði
skýrð.
Þetta felur m.a. í sér að ferða-
þjónustan verði skilgreind á
skýrari hátt, endurbæta þarf söfn-
un hagtalna á vegunt opinberra
aðila um aila helstu þætti ferða-
þjónustunnar og bæta þart' upp-
lýsjngamiðlun fyrirtækja, sam-
laka og stofnana í ferðaþjónustu.
Einnig er æskilegt að Þjóðhags-
stofnun meti reglubundið stöðu
og afkomu ferðaþjónustunnar.
2. Breikka þarf starfsgrunn
ferðaþjónustunnar.
Þó tslensk náttúra hafi verið og
verði áfram sterkasta aðdráttar-
aflið fyrir ferðamenn er nauðsyn-
legt að meiri fjölbreytni verði í
frantboði ferðaþjónustunnar á
vörum og þjónustu. Þetta er
nauðsynlegt m.a. vegna þess að
taka þarf tillit til umhverfissjón-
armiða og burðarþols viðkvæmra
ferðamannstaða. Einnig skiptir
máli að háannatími í greininni er
of stuttur og að ójafnvægi er í
fjárfestingum milli mismunandi
þátta ferðaþjónustunnar. í skýrsl-
unni er bent á ýmsar leiðir sem
hægt væri að fara til að breikka
starfsgrunninn en einkum er
horft til rannsókna og þróunar-
verkefna í tengslum við sögu,
menningar- og atvinnultf þjóðar-
innar.
3. Ná þarf samstöðu um ímynd
íslands
Skýrsluhöfundar leggja ntikla
áherslu á að samstaða náist um
ímynd íslands og telja að kjarni
slíkrar ímyndar hljóti að vera
einstæð náttúra, sjálfbær þróun
og sérstæð menning, gömul og
ný. Mikilvægt er að ferðaþjón-
ustan skapi þessa ímynd í sam-
vinnu við aðrar atvinnugreinar
eins og útflutningsgreinar og
einnig orkuiðnaðinn og vísinda-
samfélagið.
4. Styrkja þarf forsendur
stefnumótunar í greininni
Stjómvöld þurfa að gefa ferða-
þjónustunni meiri gaum og nauð-
synlegt er að bæta stöðu þeirra
stofnana sem vinna á vegum
stjómvalda að stefnumótun og
eftirliti með starfsskilyrðum og
stuðla að þróun ferðaþjónustunn-
ar. Er hér einkum átt við
samgönguráðuneytið, Ferða-
málaráð, Rannsóknarráð íslands
og Utflutningsráð.
5. Etla verður rannsóknir, þró-
unarstarf og nýsköpun í ferða-
þjónustu
„Vöruþróun" í ferðaþjónustu er
háð sömu lögmálum og gerist í
öðrum greinum framleiðslu og
þjónustu. Stefnumótun í ferða-
málum hlýtur því að byggjast á
vandaðri greiningu á stöðu og
möguleikum atvinnugreinarinnar
á hverjum tíma, og því er nauð-
synlegt fyrir stjómvöld að hvetja
til rannsókna á þessu sviði.
6. Koma þarf skipulagi á tjár-
mögnun og framkvæmd rann-
sókna og þróunar í þágu ferða-
þjónustu.
Ferðamálaráð íslands, Rann-
sóknarráð íslands og Útflutn-
ingsráð íslands gegna lykilhlut-
verki af hálfu hins opinbera í að
koma á nausynlegu samstarfi op-
inberra aðila og fyrirtækja í
ferðaþjónustu um skipulegt rann-
sókna- og þróunarstarf. Háskóli
íslands, Háskólinn á Akureyri,
rannsóknarstofnanir atvinnulífs-
ins og einnig skipulagsyfirvöld
og Náttúruvemdarráð eru meðal
þeitra aðila sem hér gætu lagt
hönd á plóginn og undirbúið
jarðveginn.
7. Rannsóknarráð íslands
kynni tillögur starfshópsins.
Lagt er til að efnt verði til ráð-
stefnu um ofangreindar tillögur
og böðskap þessarar skýrslu og
um leið reynt að leggja grunn að
framkvæmd þeirra.
Tilboð óskast
Vátryggingafélag íslands hf. Akureyri, óskar eftir tilboð-
um í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í umferð-
aróhöppum.
1. Lada Sport ............árgerð 1995
2. Lada Samara ............árgerð 1994
3. Toyota Corolla.........árgerð1990
4. Range Rover............árgerð 1989
5. Honda Civic GT .........árgerð 1986
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð
VÍS að Furuvöllum 11 mánudaginn 8. janúar nk. frá
kl. 9-16.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16 sama dag.
w
VÁTRYGGINGAFÉLAG
ÍSLANDS HF
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Nauðungarsala
lausafjárrr.una
Eftirtalin ökutæki og annað lausafé verður boðið upp á
lögreglustöðinni við Þórunnarstræti, Akureyri, laug-
ardaginn 13. janúar 1996 kl. 14 eða á öðrum stað eftir
ákvörðun undirritaðrar sem verður kynnt á uppboðsstað.
1. Bifreiðar, dráttarvélar ofl.
A-820 A-922 A-1437 A-1486 A-1674 A-1706
A-3446 A-4502 A-5072 A-7717 A-8610 A-9307
A-9743 A-9897 A-10614 A-11051 A-11106 A-11543
A-11887 A-12309 A-12501 A-12586 AB-678 Ad-1121
Ad-1569 Ad-1643 BV-684 E-1605 G-556 G-1675
G-2604 GA-930 GH-615 GO-778 GU-846 GV-507
H-154 HA-379 HI-549 HL-832 HR-897 HX-909
HZ-219 HÞ-264 I-2888 ID-339 IH-923 IO-677
IÖ-977 JI-765 JK-739 JZ-399 KD-370 KT-123
KT-169 KT-731 KV-406 KV-683 KY-577 LB-714
LD-938 LF-558 LG-309 LG-650 M-4097 MA-443
MB-676 ML-093 MS-280 MZ-959 NJ-395 NR-451
VP-689 0-75 OP-406 PX-313 R-1128 R-1211
R-3449 R-4643 R-19657 R-35770 R-43783 R-44570
R-44788 R-46401 R-51569 AO-612 TT-287 TX-600
U-3143 UA-257 UN-479 UT-867 UY-108 V-336
VJ-867 Þ-1923 VT-19 XV-326 Y-6614 YA-195 Z-398
2. Annað lausafé:
Óskilamunir, grafa af gerðinni Case 580 G 4x4, heyhleðslu-
vagn af gerðinni Carboneer, hestarnir Jarpur 14 vetra og
Kvistur 17 vetra, jarpur 6 vetra foli undan Njáli frá Varmalæk,
upptökuvél af gerðinni Grimme MK650, 50% af upptökuvél
af gerðinni Grimme MK700, niðursetningavél af gerðinni Ho-
ward, 50% af úðunartæki af gerðinni Evers & Woll, jarðtæt-
ari, gufusjóðari af gerðinni Frankie, lyftari af gerðinni
Kentruck, tölvur: IBM PS 55x61 og Ambra 386S, 24 feta
kæligámur af gerðinni Polar 155, magnari af gerðinni SWR
220, bassahátalari af gerðinni SWR Goliat 2, Unnur EA-597
og rennibekkur af gerðinni Torrent 52 mod T 72-52.
Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávísanir
ekki teknar gildar nema með samþykki gjaldkera.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis hjá undirritaðri og þar
verða einnig veittar upplýsingar ef óskað er.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
4. janúar 1995.
Harpa Ævarsdóttir, fulltrúi.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EGILL SIGURBJÖRNSSON,
Seljahlíð 3 G,
áður Norðurgötu 37, Akureyri.
lést fimmtudaginn 4. janúar á Dvalarheimilinu Hlíð.
Útförin auglýst síðar.
Kristlaug Guðmundsdóttir,
synir, tengdadætur og sonabörn.