Dagur - 06.01.1996, Page 10
10 - DAGUR - Laugardagur 6. janúar 1996
Hótel KEA
Laugardagskvöldið
6. janúar
verða veitingasalir
hótelsins
LOKAÐIR
og á Súlnabergi
verður lokað frá kl.
18.00 vegna
árshátíðar
starfsmanna hótelsins
HÓTEL
KEA
Sími 462 2200
Þjóðhátíðarsjóður,
Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1,150 Reykjavík
Þjóðhátíðarsjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki út sjóðnum á
árinu 1996.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. septem-
ber 1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofn-
ana og annarra aðila, er hafa það að verkefni að vinna
að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og
menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal
renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á veg-
um Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal
renna til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og
annarra menningarverðmæta á vegum Þjóðminja-
safns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé
hverju sinni í samræmi við megintilgang hans, og komi
þar einnig til álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í
liðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbót-
arframlag til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði
ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra
eða draga úr stuðningi annarra við þau.“
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Um-
sóknarfrestur er til og með 1. mars 1996. Eldri um-
sóknir ber að endurnýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðla-
banka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðsstjórnar, Svein-
björn Hafliðason, í síma 569 9600.
Reykjavík, 28. desember 1995.
Þjóðhátíðarsjóður.
Steinar Gunnarsson (t.v.) og Sigurður Guðmundsson ásamt nýju hundunuin tveimur, Treason og Hórasi. Þriðja
hundinn á myndinni átti Steinar fyrir. Mynd: bg
Tveir nýir leitarhundar á Norðurlandi:
Hóras og Treason
koma til Islands
Nýlega voru fluttir til landsins
tveir skoskir fjárhundar og í vik-
unni komu þeir í land eftir sex
vikna einangrun í Hrísey. Hund-
amir eru af tegundinni Border
Collie og hafa fengið grunnþjálf-
un sem leitarhundar en eigendur
þeirra eru tveir Norðlendingar,
sem báðir hafa starfað með
björgunarsveitum til margra ára.
Það er þeir Sigurður Guð-
mundsson og Steinar Gunnars-
son sem kaupa hundana með
hjálp styrks frá landbúnaðarráðu-
neytinu. Sigurður er frá Akureyri
og starfar með Flugbjörgunar-
sveitinni en Steinar er Sauð-
krækingur og er í Skagfirðinga-
sveit, sem er innan Slysavarnafé-
lagsins á Sauðárkróki. Þó land-
búnaðarráðuneytið styrki kaup
þeirra félaga þurfa þeir engu að
síður að leggja fram hundruði
þúsunda úr eigin vasa og því eru
þeir að leita fyrir sér með frekari
styrki og eru nokkrir aðilar
„volgir“ eins og þeir orða það.
Vinnuhundar og
heimilishundar
Leitarhundar sönnuðu svo sann-
arlega gildi sitt í atburðunum
hræðilegu á Súðavík og Flateyri
á síðasta ári og ljóst að góðir
leitarhundar eru bráðnauðsynleg-
ir ef björgunarsveitir eiga að
vera færar um að rækja hlutverk
sitt sem best. Hundamir eru hins
vegar ekki tæki sem hægt er að
geyma í geymslum þegar þeirra
er ekki þörf og sú leið virðist al-
geng að einstaklingar fremur en
sveitimar eigi hundana. „Þetta
eru bæði heimilishundar og
vinnuhundar,“ segir Steinar.
Að sjálfsögðu er langt frá því
að vera sjálfsagt að meðlimir í
björgunarsveitum séu tilbúnir til
að verja miklum fjármunum og
tíma í að eiga og sjá um leitar-
hund en Sigurður og Steinar
segja að hjá þeim sé þetta bæði
ákveðin hugsjón og einnig ævin-
týramennska. „Við erum búnir
að starfa í mörg ár með björgun-
arsveitum og höfum verið með
aðra hunda. Það er bæði gaman
og gefandi að vinna með dýr og
mér finnst ég fá borgað margfalt
til baka. Hundar eru líka bestu
vinir sem hægt er að velja sér,“
segir Steinar.
Mikil þjálfun framundan
Hundana tvo er þegar búið að
grunnþjálfa og sá sem þjálfaði þá
er einn af fremstu hundaþjálfur-
um í Evrópu að sögn Sigurðar.
Hundamir virðast líka lofa góðu
og Sigurður og Steinar segja þá
vera mjög góða hunda. Vinnan
við þá er þó bara rétt að byrja og
nú tekur við stanslaus þjálfun,
þar sem hundamir verða þjálfað-
ir til að taka þátt í allskonar leit-
um. Sigurður og Steinar eru
meðlimir í Björgunarhundasveit
Islands sem em sameiginleg
samtök sem taka þátt í að þjálfa
alla leitarhunda á Islandi en
sveitin fékk einmitt nýlega út-
hlutað fjárhæð úr minningarsjóði
Gunnars Thoroddsen og verða
peningamir notaðir í námskeiða-
hald.
Öðlingshundar eins og þessir
tveir sem nú eru komnir til
landsins hljóta að bera einhver
nöfn og þau eru ekki af verri
endanum. Hundur Sigurðar heitir
Hóras í höfuðið á rómversku
skáldi en Steinars hundur heitir
Treason. „Mér skilst að nafnið
þýði föðurlandssvikari. Ætli
Skotamir hafi ekki verið eitthvað
súrir yfir að missa hann úr
landi,“ segir Steinar.
AI