Dagur - 03.02.1996, Page 5

Dagur - 03.02.1996, Page 5
Laugardagur 3. febrúar 1996 - DAGUR - 5 Það er manninum mikilvægt að þekkja rætur sínar og vita um sinn uppruna. Fjölskyldu- og ættartengsl skipta flesta máli og margir sem leggja töluvert á sig til að rækta ættartengslin. Slíkt kostar stundum ferðalög milli landshluta eða jafnvel nálægra landa. Þegar ættingjarn- ir búa hinum megin á hnettinum vandast hins vegar málið. Um síðustu jól og ára- mót fór Þórir V. Þórisson, læknir á Dal- vík, í langþráða heimsókn til Kólumbíu, sem er land móður hans. Heimsóknin var sú fyrsta í rúma tvo áratugi og því urðu miklir fagnaðarfundir þegar Þórir birtist í Kólumbíu ásamt konu sinni og börnum og heilsaði upp á móðurfólkið sitt. Dagur leit við hjá þeim hjónum fyrir skömmu og spjallaði við þau um nýafstaðna ferð og lífið í Kólumbíu. Eins og fyrr segir er móðir Þóris frá Kól- umbíu en faðir hans er íslenskur. Foreldrar Þóris kynntust á Spáni þegar bæði voru þar við nám. Þórir fæddist á Islandi og hefur búið þar lengst af. Hann var þó í Kólumbíu í nokkur ár fyrir sex ára aldurinn og síðan aftur í þrjú ár þegar hann var unglingur og gekk þar í gagnfræðaskóla en hefur ekki kontið til landsins síðan þá. En hvers vegna ákvað hann að fara í heimsókn núna þegar svo langt var um liðið síðan hann bjó þar? „Eg er búinn að vera á leiðinni lengi og þessi heimsókn var löngu orðin tímabær,“ segir Þórir. Hann hefur haldið tengslum við Þórir V. Þórisson og Sigrún Bjarnadóttir ásamt dóttur sinni, Önnu Elvíru. Synir þeirra, Bjarni og Vilhjálinur, voru úti að leika sér þegar myndin var tekin. Mynd: Al Rætumar toga fjölskyldu sína í Kólumbíu bæði í gegnum móður sína og einnig hefur hann hitt sum frændsystkini sín annars staðar í heiminum. „Þetta er mjög stór fjölskylda. Mamma á fimm systur og þær eru allar með mörg börn og þeirra börn eru komin með börn. Þar fyrir utan eru síðan heil hersing af fjar- skyldari frændum og frænkum en fjöl- skyldutengslin í Kólumbíu eru mjög sterk og algengt að stórfjölskyldan haldist sam- an,“ segir hann. Börnin skemmtu sér vel Kona Þóris, Sigrún Bjamadóttir, og bömin þeirra þrjú, Bjami, sem er tíu ára, hin sex ára gamla Anna Elvíra og Vilhjálmur, þriggja ára, fóru með Þóri til Kólumbíu og var þetta fyrsta ferð þeirra til landsins. Þórir og Sigrún em sammála um að ferðin um jólin hafi verið mikið ævintýri, ekki síst fyr- ir börnin. „Þau eiga þarna heilmikið af frændsystkinum og gátu leikið sér við þau vandræðalaust þó þau skildu ekki tungumál hvers annars. Sá elsti gat reyndar tjáð sig svolítið á ensku og bjargaði sér furðu vel,“ segir Þórir. Sjálfur talar hann spönsku og hefur haldið málinu vel við þó langur tími sé liðinn síðan hann var síðast í þessum heimshluta. Sigrún segir að sér hafi þótt landið ynd- islegt og miðað við það sem hún hafi heyrt áður var fátæktin minni en hún bjóst við. Þórir tekur undir þetta og segir fátækra- hverfin hafa breyst mikið síðan hann bjó í Kólumbíu. „í löndum í kring eru hús í fá- tækrahverfum mikið til úr pappa og báru- jámi en þama voru múrsteinshús. Sum voru kannski ekki fullkláruð en engu að síður traustar byggingar. Það hefur greinilega verið gert átak í að byggja upp fátækra- hverfið." Meira líf og kæti Kólumbía er staðsett norðarlega í Suður- Ameríku og á landamæri að Venesúela, Brasilíu, Perú, Ekvador og Panama. íbúar eru rúmlega 32 milljónir en í höfuðborg- inni, Bogotá, þar sem ættingjar Þóris eiga heima, búa milli sex og sjö milljónir. Menn- ingin er talsvert frábrugðin íslenskri menn- ingu og segir Þórir að það sem helst ein- kenni menninguna sé að í Kólumbíu sé meira líf og kæti en á íslandi. „Allt er hrað- ara og líflegra. I tónlistinni er hraðari taktur, í myndlistinni eru litimir skærari og áfram mætti telja. Eðli Suður-Ameríkana er öðru- vísi en Islendinga og þeir em mjög opnir,“ segir Þórir og Sigrún samsinnir, segist strax hafa tekið eftir þessu lífi og hve íbúamir væru opnir og ættu auðvelt með að tjá sig. Þegar spurt er um uppbyggingu þjóðfé- lagsins segir Þórir að í Kóluntbíu sé þjóðfé- lagið ójafnara en á Islandi. Þar sé rneira unt ríkidæmi og meira um fátækt. Þó sé þessi munur víða meiri í öðrum löndum Suður- Ameríku. I Kólumbíu er eiturlyfjafram- leiðsla töluverð og Þórir segir augljóst að þjóðfélagið líði mikið fyrir skipulagða glæpastarfsemi sem tengist eiturlyfjafram- leiðslunni. Hann hafi þó ekki orðið var við ofbeldi heldur fremur afleiðingar þess of- beldis sem gengið hefur yfir síðasta áratug- inn. „Öryggisráðstafanir eru alls staðar. All- ar stofnanir eru með vopnaða verði og oft eru líka verðir fyrir utan einkaheimili. Þegar ég bjó þama fyrir tuttugu árum var þetta ekki svona. Við vöndumst þessu þó fljótt og verðimir veita manni frekar öryggi," segir hann. Á hestbaki í Kólunibíu. Lengst til vinstri er Anna Elvíra, þá Þórir og síðan Sigrún. Strangheiðarlegt fólk Þó Þórir sé hálfur Islendingur og hálfur Kólumbíumaður segist hann alltaf líta á sig sem íslending. Hann viðurkennir þó að kól- umbísku ræturnar togi oft í hann. Hann reynir að vera stoltur af landinu og þykir oft erfitt að hlusta á fréttir þaðan í fjölmiðlum þar sem þær eru nær undantekningarlaust neikvæðar. „Meirihluti fólks í Kólumbíu er strangheiðarlegur og mjög trúaður. Það er aðeins lítill minnihluti sem svertir ímynd landsins. En eiturlyfjabarónamir hafa mútað mörgum embættismönnum og stjómmála- mönnum og þessi spilling gegnsýrir því þjóðfélagið. Það ríkir mikil tortryggni því þó flestir séu heiðarlegir eru óheiðarlegir menn inn á milli og ekki vitað hverjir eru handbendi kókaínbaróna og hverjir ekki. Stundum lauma glæpamennirnir peningum í kosningasjóði heiðarlegra stjómmálamanna án þess að upp um það komist fyrr en seinna. Þannig sá þeir fræjum efasemda og almenningur veit í rauninni aldrei hvort stjómmálamaðurinn hafi þegið mútur eða ekki,“ segir Þórir og nefnir nýlegt dæmi um eiturlyfjapeninga sem fundust í kosninga- sjóði forsetans. Enginn viti hvaðan þessir peningar séu komnir og spuming hvort ein- hver hafi laumað þeim inn til að reyna að klekkja á forsetanum. Signdu sig í bílnum Kólumbíumenn em kaþólikkar og trúin spilar mjög stórt hlutverk í daglegu lífi fólks. Sigrún segist hafa tekið eftir að fólk hafi ýmist talnabönd eða krossa fyrir ofan öll rúm og sumstaðar sé jafnvel stytta af Jesú á krossinum fyrir ofan hjónarúmið. „Mér fannst þetta mjög hlýlegt," segir hún. Fjölskyldan var farin að verða fyrir áhrifum frá þessari sterku trú og Sigrún seg- ir að hún hafi verið farin að signa sig í hvert sinn sem hún fór í bíl áður en hún fór af stað í umferðina. „Við höfum aldrei gert þetta heima en þama gerðu þetta allir og það hafði áhrif. Börnin voru farin að signa sig líka. Það er skrýtið að um leið og við komum heirn hættum við þessu,“ segir hún hugsandi og veltir fyrir sér að kannski væri ekki að vitlaust að signa sig hér heinta líka. Það er augljóst að ferðin til Kólumbíu er fjölskyldunni enn í fersku minni og Sigrún viðurkennir fúslega að hún hafi heillast af þessu landi sem á svo stóran hlut í Þóri. En kæmi til greina að búa í landinu? „Eftir þessa ferð væri ég alveg til í að vera þama kannski í einhverja mánuði en það væri of stórt stökk að flytja," segir Sigrún. Sem stendur er þó ekkert slíkt í bígerð hjá fjöl- skyldunni og þó Kólumbía heilli stendur Dalvík líka alltaf fyrir sínu. AI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.