Dagur


Dagur - 03.02.1996, Qupperneq 6

Dagur - 03.02.1996, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 3. febrúar 1996 „Ég ætla að verða eins og pabbi,“ segja litlir guttar gjarnan með blik í augum þegar þeir eru spurðir um framtíðina. Faðirinn er þeirra hetja og fyrirmynd. Sú hefð að sonur taki við af föður er þó ekki eins algeng nú og áður. Þeir valkostir sem ungt fólk stendur frammi fyrir hafa aldrei verið fleiri og talið er sjálfsagt og eðlilegt að hver og einn velji sér starfs- grein sem honum hugnast, óháð starfi foreldra. Sumir kjósa engu að síður að starfa á svipuðum vettvangi og faðirinn og reyndar eru það ekki aðeíns synir, heldur einnig dætur, sem kjósa að feta í fótspor föðurins. Dagur náði tali af nokkrum ungum mönnum og einni konu sem öll eiga það sameiginlegt að starfa við það sama og faðir þeirra. Vinitum út um allan bæ I fótspor feðranna undir hans stjórn. Báðir segja þeir að samvinnan gangi vel og aldrei nein illindi í gangi. Algengt er að smiðir vinni saman tveir og tveir í sjálfstæðum rekstri og Sigurður viðurkennir að hann hafi stundum langað í sjálfstæðan rekstur. Sem stendur kann hann þó vel við sig hjá bænum og því ekki á leiðinni að hætta þar í bráð. En stefnir son- urinn að því að verða yfirsmiður eins og pabbinn? „Nei, ekkert frekar. Möguleik- amir eru margir og ég á eftir að sjá hvemig þetta þróast hjá mér. Hvort ég fari út í að vinna sjálf- stætt og eins er orðið algengt að smiðir ráði sig sem umsjónarmenn að einhverjum húsum.“ Eldhúsinnrétting í uppáhaidi Gunnar og Sigurður eru spurðir hvort þeir eigi sér einhvern uppá- haldshlut sem þeir hafi smíðað en þeir segja erfitt að benda á eitt- hvað sérstakt. „Þegar ég lærði voru ýmsir smáhlutir sem ég þurfti að smíða og ég man m.a. annars eftir einum skáp sem ég held að systir mín eigi. Það sem mér finnst einna best eftir mig, og var mikið nostur við, er hins vegar eldhúsinnrétting sem við pabbi smíðuðum í blokkaríbúð sem ég bjó í en nú er ég fluttur þaðan. En þetta er öðruvísi hjá okkur en t.d. húsgagnasmiðum, sem eru meira í því að smíða staka hluti,“ segir Sigurður. Gunnar á einnig erfitt með að nefna einstakan hlut. „Ég smíðaði einhverja útidyrahurð sem sveinsstykki. Ég veit ekki einu sinni hvar hún er. En mér finnst ég oft eiga mikið í þessum stöðum sem við erum að vinna á.“ AI Bæjarsmiðimir á Akureyri sjá um viðhald og alla smíðavinnu í þeim byggingum og stofnunum sem heyra undir Akureyrarbæ. Yfir- smiður er Gunnar Éðvaldsson en sonur hans, Sigurður, vinnur einnig sem smiður hjá bænum og er því undir stjórn föður síns. Sigurður byrjaði í smíðavinnu 14 ára gamall og vann þá sem handlangari í sumarvinnu. Hann fór í menntaskóla í eitt ár en þegar hann var átján ára ákvað hann að velja sér sama lífsstarf og pabbi hans og verða smiður. „Mér féll ágætlega við þessa vinnu og fannst hún eiga vel við mig. Einnig var auðvelt fyrir mig að komast á samning," segir Sigurður um ástæðu þess að smiðsstarfið varð fyrir valinu. Gunnar segir að sér hafi litist ágætlega á ákvörðun Sigurðar en auk hans á Gunnar tvo aðra syni og eina dóttur. Sigurður er elstur en ekkert hinna bamanna hefur sýnt því áhuga að verða smiður. Hvorki faðir Gunnars né afi voru smiðir og því tæpast hægt að full- yrða að löngunin til að smíða sé í blóðinu þó sonurinn hafi ákveðið að velja sama starf og faðirinn. Skapandi vinna Sigurður segir að honum þyki skemmtilegt að vinna sem smiður því starfið sé skapandi. „Árangur- inn af því sem ég geri sést alltaf. Hjá bæjarsmiðunum er vinnan líka fjölbreytt. Við erum út um allan bæ á mörgum stofnunum og heimilum. Ég hugsa að ég hefði ekki áhuga á að vinna bara í einhverju einu ákveðnu verki,“ segir hann og sama er upp á ten- ingnum hjá Gunnari, fjölbreytnin og hinn skapandi þáttur er það sem heillar hann mest í þessu starfi. Verksvið þeirra feðga eru nokkuð ólík þar sem Gunnar er yfirsmiður og Sigurður vinnur Sigurður Gunnarsson (t.v.) og faðir hans Gunnar Eðvaidsson eru báðir siniðir og vinna hjá Akureyrarbæ. Mynd: BG Alltaf haft áhuga á dýrum Þróunin í jafnréttismálum hefur leitt til þess að mörg störf sem áð- ur voru hefðbundin karla- eða kvennastörf eru nú opin báðum kynjum. Það eru því ekki einungis synir heldur einnig dætur sem feta í fótspor feðranna og er Elfa Ágústsdóttir, dýralæknir á Akur- eyri, dæmi um dóttur sem valdi sér sama starf og faðirinn. Faðir Elfu, Ágúst Þórleifsson, hefur starfað sem dýralæknir síð- an 1958, eða í tæpa fjóra áratugi. Hann er héraðsdýralæknir fyrir vesturhluta Eyjafjarðarumdæmis og sér lika um alla kjötskoðun í sláturhúsum á svæðinu. Elfa er hins vegar sjálfstætt starfandi dýralæknir í sveitinni og sinnir gæludýrum og hestum í þéttbýl- inu. Bæði Ágúst og Elfa lærðu dýralækningar í Osló og segist Ágúst ekki hafa haft hugmynd um áhuga Elfu á að verða dýralæknir fyrr en eftir að hún tók stúdents- próf og þau voru í heimsókn í gamla skólanum hans í Noregi. Elfa segir hins vegar að áhuginn hafi alltaf blundað í sér þó hún hafi ekki haft hátt um hann í fyrstu. En hvemig leist Ágústi á ákvörðun Elfu um að læra dýra- lækningar? „Ég skipti mér í rauninni ekkert af því og hvorki hvatti hana né latti. Undir niðri hafði ég samt gaman af því og fannst gott að hún hefði kynnst einhverju starfi sem hún hefði ánægju af.“ Er flott þarna inni? Sem stelpa fylgdist Elfa með pabba sínum að störfum og fór oft með honum í vitjanir. „Mér fannst óskaplega gaman að fara með pabba og hef alltaf haft áhuga á dýrum,“ segir Elfa. Ágúst rifjar upp fyrstu minninguna um Elfu þegar hún fór með honum í vitjun. Hún var þá fjögurra eða fimm ára gömul og var að fylgjast með pabba sínum skoða kú innvortis. Þegar það er gert þarf að fara með hendina, alveg upp að öxl, inn í gegnum endaþarminn og upp í gömina. Mörgum þykir óþægilegt að fylgjast með þessum aðgerðum en þegar Ágúst hafði lokið verk- inu spurði sú stutta: „Var flott þama inni?“ „Hún er sjálfsagt búin að kynn- ast því núna að það er ekki allt flott og fallegt þarna inni,“ segir Ágúst og hlær að endurminning- unni. Samskipti við fólk mikilvæg Elfa er ein sex systkina en ekkert hinna fór að læra dýralækningar heldur hafa þau hvert valið sína leið í lífinu. „Elsti bróðir minn er olíuverkfræðingur, ég er næst í röðinni, síðan systir sem er þroskaþjálfi, ein sem er sjúkraliði, hinn bróðirinn sem er í doktors- námi í líffræði og yngsta systir mín er að læra tannsmíði," segir Elfa. Faðir Ágústs var sjómaður og bóndi og því ekki hægt að rekja áhugann á dýralækningum til hans. Ágúst segir hins vegar að á bænum hafi verið dýr, þar á meðal kindur, og ef sauðburðurinn gekk illa hafi skapast ógurlegt ástand. „Þá var alltaf sóttur handlaginn maður sem var lagfærinn við dýr. Ég fylltist mikilli lotningu fyrir þessum manni og hvemig hann leysti málin og kannski var hann kveikjan að þessum áhuga," segir hann. - Hvað annað en samvistin við dýrin gerir starf dýralæknisins eft- irsóknarvert? „Jú, það er gaman að ferðast í náttúrunni allan ársins hring. Ég er minn eigin herra og sem betur fer finn ég oft að ég geri gagn,“ svarar Ágúst og Elva bætir við að mikilvægt sé að hafa gaman af að umgangast fólk því stór þáttur í starfinu sé samskipti við dýraeig- endur. íslendingar skynsamir Hluti af starfi Elfu er að sinna gæludýrum og stundum þarf hún að taka erfiðar ákvarðanir, t.d. í þeim tilfellum þegar þarf að svæfa dýr sem eru veik eða slösuð. Hún segir að Islendingar séu enn bless- unarlega skynsamir í þessum efn- um og yfirleitt gangi ágætlega að

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.