Dagur - 03.02.1996, Page 13
Laugardagur 3. febrúar 1996 - DAGUR - 13
Svört og sérstœö
Þótt kynþáttamisrétti og fordóm-
ar í garð litaðs fólks hafi ef til vill
ekki verið áberandi í Bretlandi á
við það sem gerist í Bandaríkjun-
um, þar sem t.d. heil tónlist-
arstefna, rappið, hefur beinlínis
þrifist á gagnkvæmu kynþátta-
hatri, svo kaldhæðnislega og
mótsagnakennt sem það nú
hljómar, þá er langt því frá að
t.a.m. blökkumenn þar í landi
finni ekki fyrir fordómum og
minnihlutaandúð. Því til stað-
festingar eru orð sem yfirmaður
lögreglunnar í London, Paul
Condon, lét falla án rökstuðnings
sl. sumar um að svartrir ungling-
ar væru þeir sem mest bæru
ábyrgð á innbrotum í borginni.
Vöktu þessi orð hörð viðbrögð
og lét þar ekki sitt eftir liggja
söngkonan Skin, í hinni þá ört-
vaxandi og skörpu rokksveit
Skunk Anansie. Á tónleikum
sem haldnir voru ekki löngu eftir
að Condon lét þessi orð falla,
skartaði þessi 28 ára þeldökka og
krúnurakaða songkona bol með
áletrun, þar sem sagði vægt til
orða tekið að „Condon væri
hræsnari". Vakti þetta að sönnu
mikla athygli og átti sinn þátt í
að undirbúa jarðveginn fyrir út-
komu fyrstu plötu Skunk An-
ansie, Paranoid & Sunburnt, sem
svo kom út um miðjan septem-
ber.
Rammpólitísk
Það er hávær, áleitin, svolítið
fönkuð en jafnframt melódísk
rokktónlist, sem Skin (sitt rétta
nafn kýs hún ekki að gefa upp)
og félagar hennar, bassaleikarinn
Cass, gítarleikarinn Ace og nýi
trommarinn Mark Richardson,
bera á borð sem umbúnað utan
um það sem þó virðist ekki
skipta síður máli, hárbeitta og
rammpólitíska texta, þar sem
Skin skefur ekki utan af því eins
og sagt er. Hún segir þó reyndar
í viðtölum að það fari henni bet-
ur að syngja og semja lög, en
samt sé það nú þannig með til-
vist Skunk Anansie, að frá upp-
hafi hafi hún haft boðskap með í
för, ekki bara áreitna tónlistina
með innantómum textum. Því sé
Öhjákvæmilegt að fólk líti á sig
sem pólitíska. Auk þess að fjalla
- söngkonan Skin hristir
upp f bresku tónlistariíti
ósamt félögum f Skunk
Anansie
um luæsni og fordóma í textun-
um, eru yrkisefnin almennt frek-
ar neikvæð og reiðiþrungin. Þó
ekki þunglyndisleg, eins og t.d.
hjá sumum Seattlesveitunum,
þannig að þeir skapa sér nokkra
sérstöðu. Sú staðreynd að Skunk
Anansie er kröftug rokksveit með
blakka konu í leiðtogahlutverk-
inu, gerir það síðan að verkum
að sérstaða hennar er óh'íræð.
Uppgangur Skin og félaga sem
hefur verið stigvaxandi, þykir
því vera hinn jákvæðasti þegar
allt kemur til alls og þau þótt
hleypa nýju lífi í breskt rokk.
Á samningi hjá
útgáfufyrirtæki Bjarkar
Ásamt þeim Cass, Ace og
trommaranum Louie, stofnaði
Skin Skunk Anansie síðla árs
1993. Hafði hún þá áður stundað
háskólanám og m.a. síðar unnið
sem híbýlahönnuður, en fengið
leið á því. Um ári síðar eða svo,
eftir að þau höfðu jafnt og þétt
skapað sér nafn innan „indie"
geirans með líflegri og kröftugri
sviðsframkomu, nældu þau svo í
samning við One Little Indian,
það merka útgáfufyrirtæki, sem
Sykurmolarnir og síðan Björk,
hafa verið á mála hjá. Komu fyrst
út þrjár smáskífur, Selling Jesus, I
Can Dream og Charity, sem
vöktu stigvaxandi athygli á
hljómsveitinni og eins og áður
sagði kom síðan fyrsta platan,
Paranoid & Sunburnt, út sl.
haust. Fékk hún fínar móttökur
og fór beint í áttunda sæti sölu-
listans í Bretlandi. Samfara
plötunni spilaði Skunk Anansie
svo á ýmsum tónlistarhátíðum
m.a. á Reading, þar sem sveitin
stóð sig frábærlega. Nýjasta smá-
skífan með laginu Weak, er svo
rétt komin út og fór í síðustu
viku beint í tuttugasta sæti vin-
sældalistans. Hér á íslandi hefur
Skunk líka náð athygli og hefur
platan að sögn selst ágætlega.
Búast menn síðan við miklu af
Skunk Anansie í framhaldinu,
enda á ferðinni ein af ferskari fyr-
irbærunum í breskri rokktónlist
um þessar mundir. Skin lofar líka
meiru, enda segist hún nú sjálf
loksins vera komin á rétta hrllu í
lífinu.
HINÍSLENSKU
TÓNLIS TARVERÐLA UN
Hin íslensku tónlistarverðlaun
verða aflrent í þriðja sinn nú 15.
febrúar. Eru þar margir kallaðir að
venju en fáir útvaldir. Þó má telja
næsta víst, að Emiliana Torrini og
Páll Óskar Hjálmtýsson verði þar í
sviðsljósinu, eins og reyndar í
fyrra, en þau áttu einna mestu
fylgi að fagna í útgáfunni nú fyrir
jólin.
HVÍTA HERBERGIÐ
Fyrir þá tónlistaraðdáendur sem
ekki vita, er rétt að vekja athygli á
ansi hreint skemmtilegum og fjöl-
breyttum tónlistarþætti, sem Sjón-
varpið hefur sýnt eina tvo þætti af
á sunnudagseftirmiðdögum.
Nefnast þessir þættir Hvíta her-
bergið, White Room, og eru
breskrar ættar. Kemur þarna við
sögu allskyns rokk og popp með
yngri sem eldri listamönnum,
jannig að úr verður hin skemmti-
egasta blanda.
POPP
Therapy? Trommari hættur.
THERAPY?
Therapy?, rokksveitin stórgóða frá
írlandi hefur nú séð á eftir
trommuleikara sínum, Fyfe Ew-
ing, sem ákvað fyrir stuttu að
hætta þar sem hann treysti sér
ekki til að halda áfram í löngum
og ströngum tónleikaferðum, eins
og sveitin hefur jafnan farið í.
Kemur þetta sér nokkuð illa nú
þar sem Therapy? er í þann mund
að leggja í fimm mánaða tónleika-
ferð um Bandaríkin í kjölfar út-
gáfu á Infemal Love þar í landi.
Mun þó einhver tími vera til
stefnu og er nú a.m.k. einn inni í
myndinni. Nefnist hami Buck og
er nú sem stendur í annarri írskri
sveit, Joyrider.
THE BEATLES
ANTHOLOGY 2
Átjándi dagur marsmánaðar hefur
nú verið nefndur sem útgáfudagur
The Beatles Anthology 2. Kemur
þetta safn númer tvö sem kunnugt
er í kjölfar þess fyrsta, sem kom út
í nóvember samfara nýju heimild-
armynda-þáttunum um Bítlana.
Smáskífa með nýju lagi kemur út
líklega 3. mars.
RAGE AGAINST
THE MACHINE
Eftir meira en hálfs árs tafir, sér nú
loks fyrir endann á upptökum
rokksveitarinnar árásargjörnu,
Rage Against The Machine, á sinni
annarri plötu, sem beðið hefur
verið eftir með mikilli eftirvænt-
ingu. Fíefur sveitin, sem heimsótti
okkur íslendinga árið 1993, nú
lokið upptökum á plöturmi og
gera áætlanir ráð fyrir að hún
komi á markað 18. mars. Verður
nafn hennar Evil Empire.
MAGNÚS ÚEIR ÚUÐMUNDSSON
Músíktilraunir nólgast
Einn af föstu punktunum í ís-
lenskri popptónlistartilveru hvert
ár, Músíktilraunir Tónabæjar og
íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkur, eru nú enn einn ganginn
famar að nálgast. Verður þetta í
14. skiptið sem þessi hljómsveitar-
keppni fer fram og má segja að
hún hafi þjónað nokkuð vel þeim
tilgangi sínum að gefa ungum og
upprennandi tónlistarmönnum
tækifæri á að koma sér og sinni
tónlist á framfæri. Því til staðfest-
ingar má nefna sem dæmi að þrjár
af þeim hljómsveitum sem sigur
hafa borið úr bítum síðustu fimm
árin, Kolrassa krókríðandi (1992),
Maus (1994) og sigurvegarar síð-
asta árs, Botnleðja, hafa allar spjar-
að sig ágætlega og eru starfandi að
fullum krafti. Maus og „Kolröss-
ur" eru nú til að mynda að sjá
fram á útgáfu erlendis, sem segir
sitt um ganginn hjá þessum sveit-
um nú um stundir.
Að þessu sinni verða undanúr-
slitakvöldin í Músíktilraunum
fjögur, 14., 21., 22. og 28. mars og
úrslitakvöldið verður síðan 29.
mars. Er skráning nú þegar hafin
og geta þær norðlensku sveitir
sem áhuga hafa á að vera með,
haft samband við Tónabæ í síma
5535935 og 5536717 á milli kl. 10
og 22 alla virka daga fram til 8.
mars. Verður norðlenskum sveit-
um sem og öðrum af landsbyggð-
inni gefin kostur á 40% afslætti af
flugi með Flugleiðum af þessu til-
efni. Á síðasta ári áttu Akureyr-
ingar eina sveit í úrslitum, sem þá
kallaðist Border. Nú nefnist hún
hins vegar Flow og hefur á síðustu
mánuðum tekið upp nokkur lög,
sem m.a. heyrðust á Frostrásinni
um og fyrir jólin.
Kolrassa er ein
afþeim
sigurvegurum
Músíktilrauna,
sem hafa
spjarao sig.