Dagur - 03.02.1996, Blaðsíða 15

Dagur - 03.02.1996, Blaðsíða 15
Laugardagur 3. febrúar 1996 - DAGUR - 15 „Blendnar tilfinningar“ - segir leikarinn og bæjarlistamaðurinn Þráinn Karlsson, sem hvílir sig frá leikstarfinu þennan veturinn Síðastliðið sumar valdi Menning- armálanefnd Akureyrarbæjar Þrá- inn Karlsson, leikara, bæjarlista- mann ársins og ver hann tíma sín- um í vetur til að sinna helstu hugðarefnum sínum, m.a. að forma timbur og stál eftir sínu höfði. Hann er í fríi frá sínu starfi hjá Leikfélagi Akureyrar og við- urkennir að það hafi verið blendn- ar tilfinningar að standa utan við hringiðu leikhússins þegar leik- starfið hófst í haust. „Ég var búinn að leika mjög mikið undanfarin ár og varð þess áskynja að ég var farinn að ganga á eigin forða. í því fámenni sem er við L.A. mæð- ir mikið á fastráðnum leikurum. Maður er alltaf notaður og það verður slítandi. Þegar ég var að leika í Ovœntri heimsókn fann ég fyrir kominu sem fyllti mælinn og ég náði mér ekki á það flug sem ég var vanur. Ég var einfaldlega orðinn þreyttur vegna mikillar vinnu og varð að hvfla mig. En það eru viðbrigði að vera ekki með og manni finnst maður svo- lítið utangátta. Þegar Þráinn er spurður um út- nefninguna sem bæjarlistamaður kveðst hann vera feginn að geta notað tímann til að sinna eigin hugðarefnum og byggja sig upp. „Ég hef gengið með þann draum að gera myndverk en það er erfitt að skipta sér á milli leiklistarinnar og smíðanna. Ég kýs frekar að gera eitthvað eitt vel en að gera tvennt sæmilega. Nú er ég með ágætis aðstöðu í Punktinum þar sem ég sinni mínum verkum og aðstandendur Punktsins hafa tekið mér forkunnarvel. Starfsemin þar er fjölbreytt og mannbætandi. Ég lít því svo á ég fái þama gott tæki- færi til að hvfla mig frá leiklistinni og snúi til baka tvíefldur." Bæjarlistamaður þiggur föst laun í eitt ár með samþykkt frá menningarmálanefnd. Nokkur hefð er að skapast fyrir þessum sið en bæjarlistamaður var fyrst valinn árið 1990 og er Þráinn því sá sjötti í röðinni, og jafnframt fyrsti leikarinn sem verður þessa heiðurs aðnjótandi. Kristjana Arndal myndlistar- kona var fyrsti bæjarlistamaður- inn, en síðan hafa tveir myndlist- armenn hlotið heiðurinn, Jón Lax- dal og Guðmundur Ármann Sigur- jónsson. Enn fremur fylla þau Margrét Jónsdóttir leirlistakona og Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld hópinn. Allar rósirnar í garðinum eiga að þrífast Eiga bæjarlistamenn almennt að nota árið til hvfla sig eftir vel unn- in störf? „Nú er það svo að ég hef verið leikari á föstum launum hjá leikhúsinu og því er um frí að ræða en líklega á það samt ekki við um þá sem áður hafa verið bæjarlistamenn. Ég efast um að tilgangurinn með útnefningu minni hafi verið sá að ég notaði fríið til að leika. Myndlistarmenn eru sjaldnast á föstum launum og er kannski við því að búast að þeir taki fyrir krefjandi verkefni sem aldrei fyrr og geti þá fengið gott tækifæri til að sinna listinni alfar- ið. Þeir þakka svo gjaman fyrir sig með því að að halda bænum sýn- ingu þannig að bær og listamaður- inn njóta báðir góðs af og upp- hefðin er beggja. Ég er hinsvegar afskaplega þakklátur fyrir að leik- listin skyldi nú komast á blað hjá menningarmálanefndinni af því að mér finnst að allar rósirnar í garð- inum verði að þrífast. Ég lít fyrst og fremst á útnefninguna sem við- urkenningu á því sem ég hef verið að gera síðustu áratugina." Það vill svo skemmtilega til að Þráinn á um þessar mundir fjörutíu ára leikafmæli. Járnsmíðanám og Alþýðuleikhús Þráinn byrjaði í leiklistinni á sautjánda ári í gegnum námskeið sem Verkalýðsfélagið stóð fyrir. Jafnframt stundaði Itann ýmis störf til sjós og lands og lauk jám- smíðanámi. Sú kunnátta hefur hef- ur nýst honurn vel því hann hefur smíðað leikmyndir bæði í leikhúsi og í kvikmyndum. I leiklistinni byrjaði hann alfar- ið árið 1971 en 1974 stofnaði hann ásamt nokkrum starfsfélög- um og áhugahópi Alþýðuleikhús- ið. „Alþýðuleikhúsið var róttækt leikhús og átti að vekja fólk til umhugsunar um hin ýmsu félags- legu vandamál. Við gáfum út stefnuskrá þar sem lögð var áhersla á tilgang leikhússins, og skoruðum á hvem þann sem áhuga hefði á þjóðfélagslegri um- ræðu og róttækri listsköpun að styrkja starfsemi þess en fjárskort- ur var nú lengst af fylgikona Al- þýðuleikhússins,“ segir Þráinn kíminn á svip. Samvinnan mikilvæg Það er gjaman til siðs að spyrja leikara hvemig hlutverk hann myndi helst óska sér ef hann mætti velja. Þráni er ekki hlíft við þeirri spumingu. Hann leggur hinsvegar áherslu á að enginn verði góður leikari með því að troða sér fram í sviðsljósið á for- sendum einstaklingshyggju því leikhúsið byggir annarsvegar á samvinnu leikara og hinsvegar á samspili listrænnar útfærslu og tæknilegra atriða. „Leikarinn ætti að leitast við að miðla heildar- stemmningunni út í salinn og sam- sama sig hópnunt því einstak- lingshyggja á ekki við í leikhúsi." En hvernig persónur finnst Þráni best að leika? „Vissulega sækir maður í sinn eigin reynsluheim þegar maður túlkar persónur og erfiðið helgast af nálægðinni við persónuna." Bar Par Leikritið Bar Par sem sýnt var við feiknalegar vinsældir fyrir tveim- ur árum hjá L.A. sló öll fyrri sýn- ingarmet í margra áratuga sögu Leikfélagsins. Hvað telur Þráinn að hafi valdið þessurn vinsældum? „Það er nú ýmislegt sem telja mætti til. í fyrsta lagi er leikritið vel skrifað og á frekar óvenjuleg- an hátt. Áður en leikritið fór í stóru leikhúsin skrifaði höfundur- inn Jim Cartwright það að hluta og fékk það síðan leikurunum í hendur sem bættu við og felldu úr það sem þeir helst vildu. Cart- wright umskrifaði það aftur og þannig gekk vinnsluferlið fyrir sig í nokkrum áföngum uns leikritið var fullgert. Leikritið var þannig leikið og skrifað samtímis. Áhorf- endur höfðu líka mjög gaman af því að sjá hvemig galdur leikhúss- ins virkaði eins og hinar hröðu skiptingar inn og út á sviðið. Það eru dæmi um að leikarar hafi ver- ið fleiri. Við Sunna Borg vorum bara tvö sem lékum allar persón- umar og áhorfendum þótti greini- lega til þess koma hvemig tækni- leg atriði voru útfærð." Höfundur er Örlygur Sigurjóns- son, nemi í hagnýtri fjölmiðlun í Hóskóla jslands. Hann er 25 ór að aldri og lauk BA prófi í íslensku og heimspeki fró Hó- skóla íslands ó síðasta óri. Þegar Bar Par var sett upp hér á Akureyri var ekki hefðbundið leiksvið notað heldur sátu áhorf- endur inni á „krá“ sem hafði verið innréttuð til þessa. „Það skapaðist góð nálægð við áhorfendur sem nánast tóku þátt í sýningunni og höfðu gaman af. Leikritið er ekki þmngið boðskap og táknum held- ur ljúfsárt og kemur nánast öllum við og svo má ekki gleyma því að öll vinna sem lögð var í leikritið var mjög vönduð.“ Kvikmyndir Við endum spjallið á því að fjalla um afskipti Þráins af kvikmynd- um. Þráinn hefur smíðað leik- ntyndir í ýmsum myndum. Þar má nefna Land og syni og Utlagann, þar sem hann lék einnig Þorkel, bróður Gísla Súrssonar. „Vinna við kvikmyndir hvort heldur er leikur eða leikmyndagerð er af- skaplega skemmtileg og gefandi. Mér er minnisstætt sumarið 1980 þegar við vorum að gera Útlag- ann. Tíðarfarið var svo einstak- lega gott og samvinnan heppnað- ist vel. Útlaginn er ein af þessum myndum sem eldast vel. Og marg- ar aðrar til dæmis Land og synir, svona myndir sem eru lausar við allan rembing eldast mjög vel.“ Lumar Þráinn ekki á einni léttri í lokin? „Það voru notaðar geitur í Útlaganum en leikhæfileikar þeirra voru satt að segja ofmetnir. Þegar minnst varði, í miðju skoti tóku þær á rás, og hlupu til fjalla svo að allir tiltækir þurftu að hlaupa á eftir þeim í fullum her- klæðum. Þetta var rosalega fyndið en leikstjórinn alveg brjálaður. Það hlógu samt allir að þessu á endanum." Bæjarlistamaðurinn Þráinn Karlsson er kvaddur að sinni en væntanlega líður ekki á löngu uns hann kveður sér hljóðs á ný á fjöl- unum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.