Dagur - 12.03.1996, Blaðsíða 6

Dagur - 12.03.1996, Blaðsíða 6
6- DAGUR - Þriðjudagur 12. mars 1996 Skólimt í breyttu samfélagi Grunnskólinn hefur samkvæmt annarri grein grunnskólalaga því hlutverki að gegna að búa nemend- ur undir líf og starf í lýðræðisþjóð- félagi sem er í sífelldri þróun. Það er efni í margar blaðagreinar að brjóta þessa fögru setningu til mergjar. Búa nemendur undir líf í lýðræðisþjóðfélagi, búa þá undir starf í þjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Hversu mikið lýðræði fá nemendur í grunnskóla að upplifa? Hversu mörg tækifæri fá þeir til að taka ábyrgan þátt í ákvörðunum um nám, kennslu, skólareglur, félagslíf o.fl.? Jú, varðandi félagslíf, þeir fá yfirleitt að ákveða hvenær þeir hafa böll og kannski hvert þeir fara í skólaferðalag. Þeir hafa lítið að segja um vinnuaðferðir og áherslur í námi og fá yfirleitt lílil tækifæri til að æfa tjáningu eða að segja sína skoðun sem er þó lykilatriði til þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi. Sum- ir, of margir, tjá vanþóknun sína með skrópi, ólátum og aðgerðar- leysi og hljóta yfirleitt bágt fyrir. Skipulag skólastarfsins hefur lít- ið sem ekkert breyst síðan munk- amir hófu að kenna í klaustrum í eldgamla daga. Sama lögmálið gildir í kennslustofunni. Sá sem veit mest, kennarinn, spyr þann sem veit minnst, nemandann. Hefði kennari í stórborg í Evrópu verið lagður í ís fyrir 100 árum og geymdur fram til dagsins í dag myndi fjarska margt í skólanum koma honum kunnuglega fyrir sjónir og hann yrði fljótur að koma sér að verki upp við töfluna í grunnskóla nútímans. Samtíma- maður hans í læknastétt fengi aftur á móti lítið að gera inni á nútíma sjúkrahúsi og þyrfti að taka allan læknaskólann upp á nýtt (nema Hyppokratesareiðinn). Enn er verið að kenna börnum að prjóna, nokkuð sem var lífs- nauðsynlegt fyrir barnakonur í köldum híbýlum að kunna en nú er ódýrara að kaupa sokka en að kaupa garn. Hvers vegna eru böm- in ekki alveg eins látin búa til sauð- skinnskó? Hve margir strákar ætli að hafi prjónað síðan þeir luku grunnskóla? Svona mætti lengi telja og ekki er ég þó að gefa í skyn að allt sem kennt er í skólum lands- ins sé úrelt. Ég er t.d. mjög hlynnt prjónaskap og er ánægð að vita að ég get prjónað peysu þegar mér sýnist, ef ég einhverntíma finn auða stund til þess. Mér finnst hins vegar ástæðulaust að prjónaskapur sé skylduverkefni fyrir alla nem- endur grunnskólans. Hugsum okkur sæmilega stóra líkamsræktarstöð. Þangað koma konur og karlar af öllum stærðum og gerðum til að efla líkamshreysti sína. Undir handleiðslu þjálfara feta menn sig inn á heilsubrautina. Sumir fara í tækin, aðrir í jóga og enn aðrir í þolfimi. Margir fara í skokkhóp og þeir þurfa engan sal, en kannski handrið utan á húsið til að halda í þegar þeir teygja sig. Líklega fara þeir flestir í sturtu heima hjá sér eftir hlaupin. Nokkrir fara að undirbúa sig undir maraþonhlaup og taka hvem áfangann af öðrum. Aðrir taka líka stórstígum framförum þótt þeir hlaupi aldrei meira en 3-5 kíló- metra. Eigendur stöðvarinnar vita að þeir verða að fylgjast vel með nýj- ungum og bjóða góða þjálfara og uppbyggilega dagskrá. Þeir sjá fljótt að það er ráð að fræða (selja) um sem mesta heilsurækt því góður árangur er besta auglýsingin fyrir stöðina. Menn tengja saman líkama og sál t.d með fræðslufyrirlestrum og leiðbeiningum um mataræði. Þeir setja feitasta fólkið í litla lok- aða hópa svo að því líði betur með- an það er að ná sér á strik, því ekki er uppörvandi að vera alltaf sá slakasti í hópnum. Sjúkraþjálfarar, nuddarar og fleira gott fólk hefur sínar skonsur og m.a. sálfræðingur er með í spilinu. Hann hefur enga skrifstofu enda vill hann alveg eins messa yfir hópnum og fá svo ein- staklingana til sín. Margir ná slíkum tökum á holl- um lífsvenjum að þeir útskrifast og geta stundað heilsurækt á eigin spýtur fjallgöngur, sund, skokk og hlaup. Þeir draga jafnvel vinnufé- laga og nágranna upp úr hægindun- um og út að skokka. Aðrir halda tryggð við stöðina eða leita annað þar sem þeir finna sig betur. Mig grunar að hægt væri að yfirfæra margt í skipulagi heilsu- ræktarstöðvar yfir á skólakerfið og ná miklu betri árangri en með gömlu, rykföllnu aðferðunum. Draumur minn er að skólinn verði fræðasetur þangað sem nemendur á ýmsum aldri sækja þekkingu, upp- lýsingar, fræðslu og handleiðslu til að undirbúa sig undir lífið. Þangað á fullorðna fólkið í hverfmu líka að geta komið t.d. atvinnulausir og farið á námskeið í matreiðslu eða tölvunotkun á kvöldin. Vinnusvæði þar sem öll gögn eru til staðar t.d. í stærðfræði, ís- lensku og tungumálum mætti sem best nýta fyrir blandaðan aldurs- hóp. Börnin geta aðstoðað hvert annað og þá ætti að leysast eilíf umræða um bekkjarstærð. Tölvurnar ættu að vera á hverju vinnusvæði en ekki allar í sömu stofu. Tölvur eru verkfæri til að nota við alls kyns verkefni. Þær ejga ekki að vera einangraðar frá daglegu amstri. Tónlist má alveg hljóma meðan böm eru við vinnu sína, það örvar heilastarfsemina og eykur námsgetu. Nýjustu rannsókn- ir um hraðnámstækni sýna ótvírætt kosti þess að spila tónlist fyrir nemendur í tungumálanámi. Skólaeldhúsin má nota til að framleiða mat handa nemendunt og gera þá ábyrga fyrir innkaupum og framreiðslu auk eldamennskunnar. Leikfimisalurinn á að vera op- inn hverfisbúum einhverja tíma á viku. Talandi um leikfimi þá er ekki nauðsynlegt að hún fari öll fram inn í leikfimisal. Hver segir að ekki sé hægt að slá saman líf- fræði, samfélagsfræði, heimilis- fræði, sögu, tónmennt, umferðar- fræðslu og íþróttum með því að hjóla með kennurunum upp í Mos- fellsveit, klífa á Úlfarsfell eða Esj- una og skoða steina, blóm og jurtir og horfa yfir Korpúlfsstaði og rifja upp deilumar um mjólkurbúin í Reykjavík. Taka síðan lagið í grænni laut með heimabökuðu bollurnar. (Norðlendingar setji sín örnefni inn í þessa upptalningu, sem samin var með Reykvíkinga í huga.) Það væri gaman að halda mál- þing eða vinnufund um framtíðar- skólann og inntakið í honum. Þar vil ég sjá fjölbreytta flóru af mann- fólki, arkitekta, listamenn, leikara, söngmenn, tölvukappa, þolfimi- spekúlanta, foreldra, viðskiptajöfra, kennara, skólamenn, leikskóla- kennara og alla þá sem hafa áhuga og skoðanir á skólamálum. Þar skulum við fara á flug og brjótast úr hlekkjum hugarfarsins svo að bömin okkar geti sungið af hjartans einlægni: „I skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera.“ Unnur Halldórsdóttir. Höfundur er formaður Landssamtakanna Heimili og skóli. BÚJÖRÐ Óska eftir kúabúi á Norðurlandi til leigu eða kaups. LANDSSAMTOK N HEIMILI OG SKÓLI Tilboð leggist inn á afgreiðslu Dags merkt: „Bújörð“ fyrir 25. mars ’96. Suzuki Vitara JLX Lipur í akstri og léttur í rekstri BSA Laufásgötu 9, Akureyri, sími 462 6300 Starf blaðamanns á Húsavík Dagblaðið Dagur óskar að ráða blaðamann frá 1. maí næstkomandi á skrifstofu blaðsins á Húsavík. í verkahring hans er fyrst og fremst dagleg frétta- og greinaskrif af málefnum á Húsavík og í Þingeyjarsýsl- um. Skilyrði er að umsækjendur sýni fram á haldgóða þekk- ingu á íslensku máli og hafi staðþekkingu í Þingeyjar- sýslum. Umsóknarfrestur er til 22. mars næstkomandi. Upplýsingar um vinnutíma og starfskjör veita ritstjórar Dags, Óskar Þór Halldórsson og Jóhann Ólafur Hall- dórsson í síma ritstjórnar á Akureyri, 462 4222. Undirbúningur að skólaþjónustu Eyþings í frétt á baksíðu Dags á laugardag s.l. er haft eftir undirrituðum í fyrir- sögn á baksíðu að dráttur á því að Eyþing hefji undirbúning á starf- semi skólaþjónustu hái starfsemi fræðsluskrifstofu. Samtal það sem blaðamaður átti við undirritaðan var tekið í stuttu símtali í önn dagsins. Hefur undirrituðum ekki tekist að vera nógu skýr í framsögn og gætir því nokkurrar misvísunar í frétt blaðsins sem leitt getur til rangtúlk- unar og vill undirritaður því leið- rétta eftirfarandi. S.l. tvö ár hefur staðið yfir undir- búningur af hálfu Eyþings um fyrir- komulag á skólaþjónustu í umdæm- inu í samræmi við ný lög um grunn- skóla. Þessum undirbúningi lauk með undirritun sveitarfélaganna á samningi unt sameiginlega skóla- Trausti Þorsteinsson. auglýsingadeild þjónustu. Það er því ekki rétt að tala um að Eyþing hafi dregið að hefja undirbúning á starfsemi skólaþjón- ustu. Hins vegar hefur stjóm Ey- þings ekki enn tilnefnt skólaráð, stjóm skólaþjónustunnar, eins og samningurinn gerir ráð fyrir, og ákvað að ráðið hæfi ekki störf fyrr en ljóst yrði á landsvísu að af flutn- ingi yrði. Það veldur ákveðnum vandkvæðum varðandi frágangs- verkefni fræðsluskrifstofunnar, vegna starfsloka hennar, því ýmis brýn úrlausnarefni bíða varðandi undirbúning næsta skólaárs. Það kemur þó ekki niður á hefðbundinni starfsemi skrifstofunnar, eins og skilja má af fyrirsögn fréttarinnar, að því leyti sem það varðar ekki verkefni næsta skólaárs. Allir eru sammála um hversu mikilvægt sé að tryggja sem mesta samfellu í þjónustu við skólana og að sú þekking sem til er orðin á fræðsluskrifstofu um skólastarf í fræðsluumdæminu nýtist sem best nýrri þjónustu Eyþings. Á það ber að líta að verið er að leggja niður stofnun þar sem 10 manns starfa. Starfsfólk hefur beðið af einstakri þolinmæði að sjá hvað verða vildi um framtíð starfsemi fræðsluskrif- stofunnar. Með undirritun samninga um stofnun skólaþjónustu Eyþings gerðu starfsmenn sér vonir um að óvissu yrði eytt og hægt yrði að taka ákvarðanir til framtíðar. Dráttur á niðurstöðu reynir á þolrif starfs- manna og hætta er á að einhverjir hugi að störfum á öðrum vettvangi. Trausti Þorsteinsson. Höfundur er fræðslustjóri Norðurlands eystra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.