Dagur - 12.03.1996, Blaðsíða 16
> Ljósmyndaljósritun Allt staö Ljósmyndaútprentun 4
> Venjuleg Ijósritun Ljósmyndavinnsla 4
► Litljósritun GFedí6myndir' Skipagata 16 - 600 Akureyri - Slmi 462 3520 Skönnun 4
► T ölvuútprentun CSOCÞ CD skrifun 4
Athugun á hagkvæmni sameiningar sveitarfélaga við utanverðan Eyjafjörð:
„Líklegt að samvinna sé álit-
legri kostur en sameining"
- segir Þorsteinn Ásgeirsson, forseti bæjarstjórnar Ólafsfjarðar
Maraþon-
tónar
blásara-
sveitar
Dagana 6.-13. júní nk. heldur
eldri blásarasveit Tónlistarskól-
ans á Akureyri í tónleikaferð til
Skotlands. Til þess að gera ferð-
ina mögulega fjárhagslega efndi
sveitin til maraþonhljóðfæra-
spils í Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar þar sem spilað var og æft í
24 tíma, þ.e. frá því klukkan
fjögur síðdegis sl. föstudag til
jafnlengdar á laugardag.
Ekki spilaði öll sveitin þó all-
an sólarhringinn, heldur spiluðu
einnig smærri hópar saman.
Þessari löngu „æfingu“ var stýrt
af stjórnanda blásarasveitarinn-
ar, Jóni Halldóri Finnssyni. Að-
ur en „törnin“ hófst var leitað
til fyrirtækja um áheit og söfn-
uðust alls kr. 123.601 hjá 55 fyr-
irtækjum. Því fyrirtæki sem
mest lét af hendi rakna var af-
hent viðurkenningarskjal frá
blásarasveitinni. GG
Athugun á hagkvæmni sam-
einingar Ólafsfjarðar, Dal-
víkur, Svarfaðardals, Árskógs-
strandar og Hríseyjar fer fram á
næstunni og verður fyrst og
fremst horft til þess hvort um
beina, fjárhagslega hagkvæmni
er að ræða, eða hvort einhverjir
verulegir ókostir eru fyrirsjáan-
Iegir samfara sameiningu áður-
nefndra sveitarfélaga.
Þorsteinn Ásgeirsson, forseti
bæjarstjómar Ólafsfjarðar, sem
sæti á í sameiningarnefndinni af
hálfu Ólafsfirðinga ásamt Guð-.
birni Ásgrímssyni, bæjrfulltrúa,
segist hafa fallist á gerð athugun-
arinnar en hann sé sjálfur and-
stæðingur sameiningar, hann sjái
fáa fjárhagslega eða félagslega
þætti við sameiningu þessara
sveitarfélaga sem réttlæti samein-
ingu þeirra. Þorsteinn telur þó rétt
að láta athugunina fara fram til að
taka af allan vafa í málinu. Hann
segir að við sameiningu muni
ferðalög milli staðanna aukast til
muna, sem sé kostnaðarliður sem
ekki sé til staðar í dag. Formaður
nefndarinnar er Kristján Ólafsson,
forseti bæjarstjómar Dalvíkur.
Einnig sé rætt um samvinnu á
nokkmm sviðum, en þar hafí Ól-
afsfirðingar nokkra sérstöðu í dag,
hin sveitarfélögin hafi nú þegar
nokkra samvinnu á sviði heil-
brigðisþjónustu og í skólamálum.
„Það er allt eins líklegt að sam-
vinna sé mun álitlegri kostur en
sameining, en það verður að fara
rólega í þessi mál. Það er ekki
langt síðan við Ólafsfirðingar
komumst í almennilegt vegasam-
band við umheiminn með gerð
jarðganga gegnum Ólafsfjarðar-
múla og full reynsla á áhrif þeirra
ekki að fullu komin í ljós. Meðal
almennings í Ólafsfirði er ekki
mikill áhugi á sameiningu, stór
hópur vill halda ákveðnu sjálf-
stæði sem við höfum í dag, því
vill fólk ekki tapa. Ég er ekki viss
um að allt þetta sameiningarbrölt
skili einhverjum árangri fyrir við-
komandi sveitarfélag, en það losar
ríkið við ákveðinn kostnað sem
færist yfir á sveitarfélögin. Það er
spuming hvort þau ná þeim kostn-
aði til baka. Eina áþreifanlega
sameiningarmálið milli þessara
sveitarfélaga, og um leið það eina
sem hefur skilað sveitarfélögun-
um einhverju, er stofnun Hafna-
samlags Eyjatjarðar. Til gamans
ntá þó geta þess að Dalvíkingar og
Ólafsfirðingar hafa sameinast í
briddsfélagi," sagði Þorsteinn Ás-
geirsson, forseti bæjarstjórnar Ól-
afsfjarðar. GG
Söfnunarátak Endurvinnslunnar á pappír:
ISÍSÍSíSÍ
illSÍSIP s
%MI! J i ,
’ Ufj W 8 \:.Mf |S» ]
ik j X \\% % fpy: |/ \ Wm^\
Margur hljófæraleikarinn var eðlilega orðinn þreyttur þegar spilað hafði verið í 20 tíma, en þá var þessi mynd tekin
af stærstum hluta blásarasveitarinnar. En einbeitingin leynir sér ekki hjá þessu unga listafólki. Mynd: GG
Viðbótarhæð ofan á Hótel Norðurland á Akureyri:
„Oframkvæmanlegt ef
setja þarf lyftu í húsið"
Jón Ragnarsson, eigandi
Hótels Norðurlands á Akur-
eyri, bíður enn í ofvæni eftir úr-
skurði umhverfisráðuneytisins
hvort hann má byggja fimmtu
hæðina ofan á hótelið án þess að
setja jafnframt lyftu í húsið.
O VEÐRIÐ
í dag verður suðvestankaldi
eða stinningskaldi, úrkomu-
lítið og hiti nálægt frost-
rparki á Norðurlandi vestra.
Á Norðurlandi eystra verður
suðaustlæg átt og rigning
við ströndina fyrri hluta
dags en léttir til með vax-
andi suðvestanátt undir há-
degi. Allhvasst þegar líður á
daginn. Hiti 0-3 stig.
Bygginga- og bæjaryfirvöld á
Akureyri höfðu veitt samþykki
sitt en Sjálfsbjörg, landssam-
band fatlaðra, kærði til ráðu-
neytisins.
„Það er erfitt að geta ekkert
gert nema bíða og rosalegt að fara
svona með tímann. Meiningin var
að reyna að koma þessu upp fyrir
sumarvertíðina og það er hver
dagur dýrmætur sem þetta dregst.
Ef einhver útkoma úr þessu fer
ekki að sjá dagsins ljós er málið
einfaldlega úr sögunni, að sinni
a.m.k.,“ sagði Jón.
Hann segir ljóst að ef úrskurður
ráðuneytisins verður á þann veg
að ekki fáist að byggja eina hæð
ofan á hótelið nema að setja lyftu
þá sé ekki grundvöllur fyrir þess-
um framkvæmdum. „Þá er þetta
einfaldlega óframkvæmanlegt því
forsendur fjárfestingarinnar eru
brostnar. í staðinn fyrir að fá 11
viðbótar herbergi verða þau ekki
nema 8 því 3 fara undir lyftu-
stokkinn. Auk þess verður kostn-
aður við lyftuna sjálfa 8 milljónir.
Það þýðir 1 milljón aukalega á
hvert viðbótarherbergi og þá eru
forsendur framkvæmdarinnar
brostnar. Þetta er ekki einhver ill-
vilji í garð fatlaðra eða eitthvað
slíkt. Þetta er einfaldlega reikn-
ingsdæmi sem kemur út í mínus,“
sagði Jón.
Hann tekur fram að aðstaða
fatlaðra breytist ekki til hins verra
þó hæð sé byggð ofan á hótelið.
„Aðstaða fyrir fatlaða er ekki fyrir
hendi í núverandi húsi. Það skal
fúslega viðurkennt að það er mjög
bagalegt að hafa ekki lyftu en því
miður er ekki fjárhagslegur grund-
völlur fyrir að setja hana í húsið,“
sagði Jón Ragnarsson. HA
Fer vel af staö
- segir Gunnar Garðarsson
Adögunum kynnti Endur-
vinnslan á Ákureyri söfn-
unarátak á pappír, þar sem sér-
stökum plastpokum er dreift í
hús í nokkrum hverfum á Akur-
eyri. Á hverjum laugardegi er
síðan farið um hverfin, pokar
með pappír teknir og aðrir tómir
skyldir eftir.
Nú hefur pappír verið safnað í
tvo laugardaga og segir Gunnar
Garðarsson í Endurvinnslunni að
þessi tilraun hafi farið ljómandi
vel af stað, eftir smávægilega
byrjunarörðugleika. „Þessa fyrstu
tvo laugardaga var mjög svipað
magn sem safnaðist í hvort skipti,
milli 35 og 40 rúmmetrar sem ger-
ir 2,5 tonn í hvort skipti. Seinni
daginn tók söfnunin ekki nema
einn og hálfan tíma sem lofar
mjög góðu,“ sagði Gunnar.
Þessa fyrstu tvo laugardaga var
bankað uppá í þeim húsum þar
sem pokarnir voru ekki þegar
komnir út fyrir dyr, en framvegis
verða aðeins teknir pokar sem fólk
hefur sett út fyrir dymar. Mun
söfnunin hefjast kl. 11 að morgni
þannig að fyrir þann tíma ætti fólk
að vera búið að ganga frá pokun-
um.
Sem kunnugt er þá eru einnig
pappírsgámar á nokkrum stöðum,
m.a. við stórmarkaði, þar sem fólk
getur losað sig við pappír. Hefur
heldur verið aukning í því að und-
anförnu að sögn Gunnars. Pappír-
inn er notaður við framleiðslu á
kubbum í vörubretti en Endur-
vinnslan tók við þeirri framleiðslu
í byrjun fbrúar sl. af Urvinnslunni.
Plast frá bændum er hin megin
uppistaðan í kubbunum og hefur
söfnun á því einnig gengið vel.
Gunnar sagist því ekki geta verið
annað en ánægður með gang
framleiðslunnar síðan Endur-
vinnslan tók við henni. HA
Skada Felicia
Abeins kr. 849.000,-
Tryggbu þér nýjan fjölskyldubíl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega lágu verði.
SKÁLAFELL SF.
Draupnisgötu 4, Akureyri, sími 462 2255
--- ■ - " .... tðí
1001
FRAMTÍÐIN BYGGIST Á HEFÐINNI