Dagur - 12.03.1996, Side 8

Dagur - 12.03.1996, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 12. mars 1996 ÍÞRÓTTIR Karfa - Úrslitakeppni úrvalsdeildar: Njarðvíkurlestin stöðvaðist ekki á Sauðárkróki - Tindastóll úr leik í úrslitakeppninni Tindastólsliðið, sem hafnaði í mátti játa sig sigrað í leiknum áttunda sæti deildarkeppninnar, gegn deildarmeisturum Njarð- víkur á laugardag, þegar liðin mættust á Sauðárkróki. Heiina- menn höfðu í fullu tré við Njarðvíkurliðið framan af báð- um hálfleikjunum en skorti síð- an þrek til að velgja gestunum undir uggum á lokamínútunum. Lokatölur urðu 68:78 og Tinda- stóll er því úr leik, en Islands- meistararnir frá því í fyrra eru komnir í undanúrslit keppninn- ar. Tindastóll byrjaði af krafti og hafði frumkvæðið fram að miðj- um fyrri hálfleik. Liðið lék mjög vel framan af, en Njarðvíkingar voru frekar mistækir í sóknum sínum. Staðan var 19:12 um miðj- an hálfleikinn, en þá var eins og Njarðvíkurliðið skipti um gír, skoraði nítján stig gegn einu á fimm mínútna kafla og breytti stöðunni í 20:31 og óhætt er að segja að á þessum mínútum hafi vörn heimamanna verið galopin. Njarðvíkurliðið hélt þessum mun út hálfleikinn, staðan í leikhléi 33:44. I síðari hálfleiknum komu heimamenn grimmir til leiks, náðu að herða vömina og spiluðu vel í sóknarleiknum. Á meðan gekk lít- Tindastóll-Njarðvík 68:78 íþróttahúsið á Sauðárkróki (Sfkið), 8-liða úrslitakeppnin í körfuknatt- leik, síðari leikur. Gangur leiksins: 8:6, 19:12, 20:31, 26:38, (33:44), 37:48, 54:54, 57:64, 63:72, 68:78. Stig Tindastóls: Hinrik Gunnars- son 15, Pétur Guðmundsson 14, Torrey Jolin 13, Omar Sigmarsson 9, Amar Kárason 8, Lárus Dagur Pálsson 6, Atli Þorbjömsson 3. Þriggja stiga körfur: 4 úr 22 til- raunum. Vítaskot: 10afl5. Liðsvillur: 25. Fráköst: 32 (12 í sókn - 20 í vöm). Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygs- son 26, Rondey Robinsson 23, Jó- hannes Kristbjömsson 16, Rúnar Ámason 6, Sverrir Þór Sverrisson 3, Kristinn Einarsson 2, Friðrik Ragnarsson 2. Þriggja stiga körfur: 2 úr 6 til- raunum. Vítaskot: 15 af 31. Liðsvillur: 20. Fráköst: 45 (7 í sókn - 38 í vöm). Dómarar: Leifur Garðarsson og Bergur Steingrímsson. Dæmdu mjög vel. Áhorfendur: 420. Torrey John hafði oft bctur í baráttunni við varnarmenn Njarðvíkinga á iaugardaginn en það dugði ekki til. Tindastólsmenn voru þar með slegnir út í úrslitakeppninni um Isiandsmeistaratitilinn. Mynd: BG ið upp hjá gestunum. Torrey John jafnaði metin um miðjan síðari hálfleikinn, 54:54 með þriggja stiga körfu. Njarðvíkingar keyrðu þá upp hraðann að nýju og á kafl- anum sem eftir fylgdi virtist þreyt- an vera farin að segja til sín í Tindastólsliðinu, sem keyrði að mestu á byrjunarliðinu. Þegar fimm mínútur voru eftir, fór Hin- rik Gunnarsson útaf með fimm villur og þar með slokknaði á síð- asta neista Stólanna. Þríeykið, Hinrik, Pétur Guð- mundsson og Torrey John voru bestu leikmenn Tindastóls. Hinrik var atkvæðamikill í fráköstum og drjúgur undir körfu Njarðvíkinga. Pétur var mjög sterkur í fyrri hálf- leik og Torrey John, sem skoraði aðeins tvö stig í fyrri hálfleiknum, var sérstaklega drjúgur framan af síðari hálfleiknum þegar Tinda- stóll náði að vinna upp forskot Njarðvíkur. Rondey Robinson var besti maður Njarðvíkur, hitti með af- brigðum vel í fyrri hálfleiknum og var liðinu mjög mikilvægur á lokakaflanum. gg/fe Handbolti - Úrslitakeppni 2. deildar: Orþreyttir Þórsarar náðu öðru stiginu gegn Breiðabliki Margar hendur á lofti! Sævar Árnason, þjálfari og leik- maður Þórs, svífur inn að markinu. Lið hans tryggði sér þrjú stig um helgina í úrslitakeppni 2. deildar í handknattleik. Mynd: BG „Ég get ekki annað en verið mjög ánægður með törnina. Við erum búnir að spila fímm leiki á átta dögum og ná níu stiguin af tíu mögulegum. Því er hins veg- ar ekki að neita að menn voru orðnir gífurlega þreyttir í leikn- um gegn Breiðabliki, en leik- menn sýndu mikinn karakter með því að vinna sig upp á síð- ustu mínútunum og jafna leik- inn,“ sagði Sævar Árnason, þjálfari og leikmaður Þórs, sem lék tvo leiki í úrslitakeppni 2. deildar um helgina og náði í þrjú stig. Þórsarar fóru til Hafnarfjarðar á föstudaginn og sigruðu ÍH 17:22, þar sem Þórsarar höfðu yfirhöndina nær allan leikinn. Daginn eftir lék liðið gegn Breiða- bliki í Kópavogi og skildu liðin jöfn eftir hnífjafna baráttu, 25:25. Þórsarar léku að mestu án tveggja lykilmanna í ferðinni, Páll Gíslason leikstjórnandi var veikur og Geir Aðalsteinsson meiddur á ökkla. Þorvaldur Sigurðsson tók við hlutverki Páls á miðjunni og Gauti Einarsson lék f hominu og báðir léku vel gegn ÍH. Þórsarar leiddu leikinn nær allan tímann, um tíma var jafnt, 8:8 en Þórsarar skoruðu síðustu þrjú mörk fyrri hálfleiksins. Það forskot hélst síð- an óskert í síðari hálfleiknum og sigur Þórs var aldrei í hættu. Það leit lengi vel út fyrir að Breiðablik mundi vinna sigur á laugardaginn. Þórsarar höfðu yfir í leikhléi 12:13, en þreyta fór að segja til sín í liðinu í síðari hálf- leiknum. Breiðablik náði til að mynda þriggja marka forskoti 20:17 með því að skora fimm mörk í röð og stuttu síðar var stað- an 22:20. Þórsarar náðu hins veg- ar að komast inn í leikinn að nýju, jöfnuðu og fengu tvívegis færi til að komast yfir á lokamínútunum, það gekk ekki eftir en Sævar Kristjánsson, markvörður Þórs, sem varði tvö vítaköst í leiknum, tryggði liðinu annað stigið með því að verja skot úr aukakasti á lokasekúndunum. Næsti leikur Þórs er gegn topp- liðinu Fram annað kvöld á Akur- eyri. ÍH-Þór 17:22 Iþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði. Mörk ÍH: Ólafur Thordersen 6/3, Ólafur Magnússon 4, Guðmundur Sigurðsson 4, Bragi Lárusson 1, Sæþór Ólafsson 1, Guðjón Stein- grímsson 1. Mörk Þórs: Samúel Ámason 7, Sævar Ámason 6/3, Atli Már Rún- arsson 4, Gauti Einarsson 2, Ing- ólfur Samúelsson 1, Páll Gíslason 1, Þorvaldur Sigurðsson 1. Dómarar: Marinó Njálsson og Aðalsteinn Ömólfsson. Breiðablik-Þór 25:25 íþróttahúsið Smárinn í Kópavogi. Mörk Breiðabliks: Sigurbjöm Narfason 11, Ragnar Kristjánsson 4, Erlendur Stefánsson 4, Guðjón Hauksson 3, Magnús Blöndal 2, Bragi Jónsson 1. Mörk Þórs: Sævar Ámason 11/4, Atli Már Rúnarsson 6, Jón Kjartan Jónsson 2, Logi Már Einarsson 2, Páll Gíslason 2, Þorvaldur Sig- urðsson 1, Samúel Ámason 1. Dóntarar: Ólafur Haraldsson og Gunnar Kjartansson. Hvað sögðu þeir eftir leikinn? Tilbúnir í hvaða lið sem er „Miðað við aðstæður var þetta mjög góður sigur hjá okkur,“ sagði Hrannar Hólm og átti þá við erfitt ferðalag liðsins með rútu til Sauðárkróks, en Njarðvíkurliðið komst ekki á leikstað, fyrr en rétt áður en ieikurinn átti að hefjast. „Við komumst ekki í gang fyrr en undir lok fyrri hálf- leiksins, en í síðari hálfleikn- um héldu menn að þetta væri búið. Tindastólsmenn voru samt ekki búnir að gefast upp, en leikur okkur small saman og á síðustu tveimur mínútun- um var þetta orðið mjög ör- uggt,“ sagði Hrannar. „Það skiptir ekki öllu hvort við mætum Keflavík eða KR í undanúrslitunum, við erum til- búnir í hvaða lið sem er. Það væri þó óneitanlega rneiri stemmning fyrir því að mæta Keflvtkingum. Vantaði hreyf- ingu í sóknina „Við byrjuðum mjög vel og brutum upp svæðisvörnina sem þeir hafa verið að vinna okkur á. Það má hins vegar aldrei gera mistök á móti þeim, þá refsa þeir okkur um leið með hraðaupphlaupum. Það vantaði meiri hreyfingu í sóknarleikinn hjá okkur á tímabili í síðari hálfleiknum, menn tóku ótímabær skot og á sarna tíma gekk ekki að hafa hemii á Rondey (Robinson),“ sagði Hinrik Gunnarsson, fyr- irliði Tindastóls. Ljómandi gott aðsigra „Það var ljómandi gott að sigra og fá þar með góða hvíld fram til fimmtudags. Þetta var rnik- ill baráttuleikur og við máttum ekki slaka á því Tindastóis- menn voru þá komnir upp að okkur. Eftir að þeir náðu að jafna í síðari hálfleiknum, fór- um við að spila af meiri skyn- semi og lékum mikið upp á Rondey (Robinson), sem var alveg frábær í þessum ieik,“ sagði Teitur Örlygsson, leik- maður Njarðvíkur. Mikil orka í að vinna upp muninn „Það vantaði herslumuninn eftir að við komumst inn í leikinn um miðjan síðari hálf- leikinn. Það fór hins vegar mikil orka í að vinna upp mun- inn og við voruin óheppnir með skotin, boltinn dansaði oft á hringnum," sagði Lárus Dag- ur Pálsson, leikmaður Tinda- stóls. „Njarðvík er rneð mjög gott lið, ekki bara sóknarlega séð. Leikmenn liðsins eru líkam- iega sterkir og spila mjög góða vörn. Þeir hafa mikla reynslu og hún á eftir að færa þeint ís- landsmeistaratitilinn."

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.